Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Blaðsíða 10
10 Útlönd MÁNUDAGUR 6. MARS 2000 I>V Flóðin í Mósambík eru í rénun: Matvæli og lyf til fórnarlambanna Erlendir hermenn og starfsmenn hjálparstofnana unnu höröum höndum að því í gær aö koma mat- vælum og lyfjum til tugþúsunda manna sem eiga um sárt að binda eftir flóðin miklu í Afríkuríkinu Mósambík. Flóðin voru í rénun í gær. Breskar, franskar og þýskar her- þyrlur komu í gær til aðstoðar þyrl- um frá Suður-Afríku og Malaví sem hafa borið hitann og þungann af björgunaraðgerðunum á flóðasvæð- unum frá því um miðjan febrúar Þá komu tvö frönsk herskip og sjö bandarískar flutningavélar einnig til Mósambiík. Þyrluflugmenn hafa bjargað um þrettán þúsund manns af húsþökum og úr trjám undanfama daga en í gær voru fáir sem þurfti að bjarga. Þyrlurnar héldu þó áfram að flytja fólk sem ekki hafði aðgang að mat og hreinu vatni til búða þar sem séð Pinochet hvílist: Hafði víst ekki hugmynd um voðaverkin á stjórnarárunum Augusto Pin- ochet, fyrrum ein- ræðisherra f Chile sem nú hvílist á heimili sínu í Santi- ago, hafði víst ekki hugmynd um að fólk hefði horfið í stórum stíl á sautján ára valdaferli hans, frá 1973 til 1990. „Það kom honum mjög á óvart að slík grimmdarverk skyldu hafa ver- ið framin," sagði sonur einræðis- herrans fyrrverandi og alnafni við fréttamenn í gær. Þúsundir manna voru ýmist drepnar eða hurfu sporlaust í stjórnartíð Pinochets sem komst til valda í blóðugri byltingu hersins 1973. Þá var réttkjörnum forseta lqndsins, sósíalistanum Salvador Allende, steypt af stóli. Allende var drepinn í valdaráninu. Pinochet kom heim til Chile á fostudag eftir rúmlega árs stofufang- elsisvist í Bretlandi. Breski innan- ríkisráöherrann hafnaði því að framselja Pinochet til Spánar eða annarra landa svo hægt væri að rétta yfir honum fyrir glæpi í stjórnartíð hans á þeirri forsendu að hann væri of sjúkur. Mörgum þótti hins vegar Pinochet ansi hress að sjá þegar hann kom heim. Björgunarstörf í Mósambík Unniö var höröum höndum aö því í gær aö koma matvælum og lyfjum til þeirra sem eiga um sár aö binda eftir flóöin í Mósambiík síöustu vikurnar. er fyrir lágmarksþægindum og heilsugæslu. „Við höfum góð tök á ástandinu í Limpopo-dalnum. Núna snýst þetta um matvæli og læknisþjónustu," sagði Jaco Klopper, foringi í suður- afríska hernum, á fundi með frétta- mönnum. í gær hafði mjög dregið úr vind- hraða í fellibylnum Gloríu sem ótt- ast var aö myndi gera mikinn usla og var hann orðinn aö hitabeltis- lægð. Meira annríki var á flugvellinum í höfuðborginni Maputo en nokkru sinni fyrr. Undir kvöld í gær voru þar rúmlega þrjátiu flugvélar og tugir gáma voru á flugbrautunum. Kössum með ferskum eggjum frá Suður-Afríku var staflað upp á sjóð- heitu malbikinu við hlið lyfjakassa. Forseti Mósambík sagöi á laugardag að þörf væri á 250 milljóna dollara aðstoð. Bill Clinton minnist mannréttindagöngunnar í Selma Bill Clinton Bandaríkjaforseti og blökkumannaleiötoginn Jesse Jackson voru í Selma í Alabama í gær til aö minnast þess aö 35 áreru liöin frá því aö blökkumenn fóru í kröfugöngu til aö krefjast kosningaréttar. Gengiö var út úr Selmu til brúar í nágrenni bæjarins. Lögreglan réöst til atlögu viö mótmælendurna á sínum tíma og biöu nokkrir bana. Gott gengi í Færeyjum Anfinn Kalls- berg, lögmaður Færyja, getur verið ánægður með gott gengi í færeyskum efnahagsmálum um þessar mundir. Er- lendar skuldir Fær- eyinga hafa lækkað úr 44 milljörðum íslenskra króna í um tiu milljarða frá árinu 1993. Bosníu-Serbi handtekinn Friðargæsluliðar NATO í Bosníu hafa handtekið Serba sem grunaður er um stríðsglæpi í fangabúðum í stríðinu 1992 til 1995. Varð fyrir sleða og lést Einn maður lét lífið þegar heima- gerður sleði rann á smákofa neðst í skíðabrekku í sunnanverðu Þýska- landi í gær. Sleðaferðin var liður í þorpshátíð. Albright heimsækir Havel Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, heimsótti Vaclav Havel Tékklandsforseta í gær. Fjölmargir Tékkar vilja að hún taki við forsetaembættinu af Havel, enda fædd í Tékkóslóvakiu. Al- bright hefur hins vegar lýst yfir að hún ætli ekki að bjóöa sig fram. ísraelar burt úr Líbanon tsraelska ríkisstjórnin ákvað í gær að ljúka heimkvaðningu allra ísraelskra hermanna í Líbanon í júli, jafnvel þótt ekki hefðu náðst friðarsamningar við Sýrlendinga. Hellakonu bjargað Franskri hellarannsóknarkonu var bjargað í gær eftir átta daga vist í helli í suðausturhluta Frakklands. Konan var meðal annars handleggs- brotin. Aftur í skólann Skólasystkin hinnar 6 ára gömlu Kaylu Rolland, sem var myrt af skólafélaga sínum í síðustu viku, snúa aftur í skólann í dag. Vildi friðmælast við Hitler Breska drottning- armóðirin var hlynnt því að Bret- ar friðmæltust við Adolf Hitler í síðari heimsstyrjöldinni, að því er breska blaðið Independent on Sunday greindi frá í gær. Þetta kemur fram í leyniskjölum sem komið var í veg fyrir að yrðu birt í síðustu viku. Rússland kannski í NATO Vladímir Pútín, starfandi forseti Rússlands, sagði í gær að Rússar gætu hugsanlega gengið í NATO en þó aðeins að komið verði fram við þá sem jafnoka aðildarlandanna. AEG R/KSUGUR Á T Pakki af v' ryksugupokum . fylgir með í kaupbæti jp VamperinoSX 1.300 W Fimmfalt filterkerfi Tveir fylgihlutir ^ Pakkiaf ' ryksugupokum Pakkiaf ryksugupokum .. fylgir með í kaupbæti ,, it. Pakkiaf ‘ ryksugupokum _ fylgir með í kaupbæti fylgir með í kaupbæti Vamperino 920« 1.300 W Lengjanlegt sogrör Fimmfalt filterkerfi Þrir fylgihlutir CE-P0WER • Ný, kraftmikil ryksuga í sportlegri tösku Sogkraftur 1.600 W» Lengjanlegt sogrör Rmmfalt filterkerfi • Tveir fylgihlutir Vampyr 5020 Ný, orkusparandi vél Sogkraftur 1.300 W Fimmfalt filterkerfi Tveirfylgihlutir tgS> BRÆÐURNIR UMBOÐSMENN Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is Vesturland: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúð, Búðardal. Vestflrðir: Geirseyrarbúðin, --------------------------— Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafirði. Pokahomið, Tálknafirði. Norðurland: Radionaust, Akureyri. Kf. Steingrímsfjarðar; Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúö, Sauðárkróki. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þoríákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Klakkur, Vík. Reykjanes: Ljósbogin Keflavík. Rafborg, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.