Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 13. MARS 2000
7
DV
Fréttir
Heyfengur í Skagafiröi í tæpara lagi:
Ljóst að hrossa-
fjöldi er of mikill
- segir Bjarni Maronsson forðagæslumaður
„í heildina má segja að þetta sé í
járnum með heyfeng í héraðinu.
Nokkuð margir eru í knappara lagi
með hey og ljóst að þeir verða að
grípa til þess fyrr en seinna að
drýgja heyin, þá væntanlega með
kjarnfóðurgjöf, því það verður trú-
lega erfitt að útvega sér hey úr
þessu. Ég hef svo sem ekki áhyggj-
ur af að menn bjargi sér ekki en
við munum fylgjast með áfram,“
segir Bjarni Maronsson, forða-
gæslumaður hjá Búnaðasambandi
Skagafjarðar, sem annast forða-
gæslu fyrir sveitarfélagið eins og
síðasta vetur.
Bjarni segir að bændur hafi verið
búnir með allar fyrningar eftir
óhemju gjafafrekan vetur. Síðan
hafi þeir fengið kalin tún ofan í
kaupið í vor og heyfengur því verið
í naumara lagi eftir síðasta sumar.
„En bændur stóðu sig mjög vel síð-
asta vetur og útveguðu sér hey og
fóður í tíma og fóðrunin var í góðu
lagi. Síðan hefur þessi góði vetur
orðið til þess að menn hafa getað
sparað heyfeng, en þeir gera það nú
ekki eftir þetta,“ sagði Bjarni Mar-
onsson.
En ásetningur mun hafa verið í
knappara lagi í haust hjá mörgum
og trúlega hefur góð tíð framan af
orðið til þess að menn fækkuðu ekki
eins mikið og raunar hefði þurft.
„Það er alveg ljóst að hrossafjöldi í
héraðinu er of mikill og þetta er
slæmt varðandi beitarþol og líka
það að menn geta ekki gefið með
þessu endalaust. Menn gætu haft
miklu betur út úr hrossabúskapn-
um með því að fækka i stóðinu og
gera þá betur við úrvalið,“ segir
Bjarni Maronsson. -ÞÁ
Ekki litið eins illa út meö grásleppuna lengi:
Veiðimenn lítið
spenntir
- ef verð lækkar enn
„Þetta er mjög óljóst meðan
menn vita ekkert hvað fæst fyrir
tunnuna og ég held að það sé alveg
víst að menn eru lítið spenntir fyr-
ir veiðunum ef verðið lækkar enn
frá því í fyrra. Mér sýnist aö útlitið
með grásleppuvertíðina hafi ekki
verið svona slæmt mörg síðustu
árin,“ segir Steinn Rögnvaldsson,
bóndi og grásleppuveiðimaður á
Hrauni á Skaga, en nú styttist í að
veiðar á grásleppu megi hefjast.
Það hefur venjulega verið um 20.
mars hér fyrir norðan.
Steinn sagði að verksmiðjurnar
héma vildu kaupa hrogn en ekki
væri búið að fá fast verð fyrir eina
einustu tunnu og menn vildu
ógjarnan byrja veiðar fyrr en það
væri komið á hreint. Annars munu
birgðir vera miklar á markaðnum
eftir gífurlega veiði Kanadamanna
á síðustu vertíð. Þeir veiddu 17.700
tonn á þremur vikum þrátt fyrir að
kvótinn hafi verið miðaður við 50
net á bát. Þá hafa Grænlendingar
komið inn á markaðinn síðustu
árin með um 3.000 tonna ársveiði
en þeir segjast ætla að halda sér við
það magn þrátt fyrir að geta veitt
mun meira og hættu veiði í fyrra í
bullandi fiskiríi.
Verð á grásleppuhrognum lækk-
aði mjög í fyrra. Þá fengust 41 þús-
und krónur fyrir tunnuna framan
af vertíð og fyrir útflutninginn. Eft-
ir 20. apríl féll verðið hins vegar
niður í 38 þúsund fyrir tunnuna hér
innanlands. Grásleppuveiðimenn
óttast að verðið lækki enn frekar
nú í ár og heyrst hafa tölur niður í
22.500 kr. fyrir tunnuna en Steinn á
Hrauni telur að þar miði menn við
verð sem hrogn frá Kanada voru
keypt á síðasta vor.
-ÞÁ
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSON
Aldargamalt höföingjahús
Villa Nova, eöa Nýja húsiö, á Sauöárkróki hýsti margan góöan manninn og
um áratugaskeiö var þar landsfrægt hótel. Nú hefur húsiö veriö friöaö.
Hótel Villa Nova friðlýst
DV, SAUDÁRKRÖKI:
Húsafriðunarnefnd ríkisins hefur
gefið út tilkynningu þess efnis að
húsið Villa Nova á Sauðárkróki sé
friðlýst á ytra borði. Villa Nova er
sögufrægt hús, norskt að uppruna,
byggt árið 1903 í svokölluðum Kata-
logstil. Það stendur yst í gamla bæn-
um á Sauðárkróki og setur óneitan-
lega sterkan svip á bæjarhlutann.
Húsið var upphaflega reist sem
íbúðarhús en um 30 ára skeið var
þar rekið hótel. Árið 1972 keyptu
Ragnar Arnalds og Haukur Hafstað
húsið. Skömmu síðar var stofnað
hlutafélagið Villa Nova hf. sem
haföi það markmið að vinna að
varöveislu hússins.
Að sögn Jóhanns Svavarssonar,
eins af stjómarmönnum Villa Nova
hf., hefur talsvert verið unnið við
endurbætur á húsinu undanfarin ár
en mikil vinna er þó eftir. Hann seg-
ir ákvörðun Húsafriðunamefndar
ánægjulega enda sé þarna um hús
að ræða sem tvímælalaust hefur
verulegt byggingar- og menningar-
sögulegt gildi. Með friðlýsingunni
séu a.m.k. líkur á að meiri fjárfram-
lög fáist úr opinberum sjóðum en
hingað til sem muni létta á allri
framkvæmdinni í heild. Jóhann seg-
ir að þeir sem að þessu vinna stefni
á að endurbótum utanhúss verði
lokiö á hundrað ára afmæli þessa
merka húss. -ÖÞ
Hann Turni litli er voða góður hundur. Hann þekkir nafnið sitt, bítur ekki og
getur staðið á afturlöppunum. En Tumi er enginn varðhundur. Hann myndi
líklega flaðra upp um alla innbrotsþjófa. Og sleikja á þeim nefið.
HAUKKA
Haukka er fullkomið
eftirlitskerfi sem þú
stjórnar með GSM síma
En þú þarft ekki á varðhundi að halda til að fylgjast
með eignum þínum. Haukka sér um þá hlið mála.
Með Haukka farstjórnunarbúnaði getur þú látið GSM
símann þinn vara þig við ef eitthvað óvenjulegt er á seyði
í sumarbústaðnum þínum, bátnum eða jafnvel heima.
Haukka er hvort tveggja í senn, þjófavörn og eldvarnarkerfi. Það skynjar
reyk, hreyfingu og breytingar á hita- og rakastigi. Ef eitthvað er ekki eins og
það á að vera lætur kerfið þig vita með SMS skilabcðum.
Haukka er auk þess stjórnstöð. Þú getur til dæmis stjórnað hitanum
og kveikt og slökkt Ijósin með GSM símanum þínum.
Það getur Tumi litli örugglega ekki.
FÆST í VERSLUNUM SÍMANS
SÍMINN-GSM
FÆRIR ÞÉR FRAMTÍÐINA