Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Síða 16
16 Menning MÁNUDAGUR 13. MARS 2000 x>v Kvikmyndahátíð í Rúðuborg Ungfrúin góða og Húsið eftir Guðnýju Hall- dórsdóttur verður fulltrúi íslands á norrænu kvikmyndahátíðinni í Rúðuborg 15.-26. mars, segir í skeyti frá fréttaritara menningarsíðu í París, Einari Má Jónssyni. Hún er ein þeirra níu kvikmynda sem valdar hafa verið til að taka þátt í sanikeppninni. Meðal annarra mynda má nefna Fucking Ámál eftir Svíann Lukas Moodysson sem hefur notið gífurlegra vinsælda á Norðurlöndum. Sýndar verða myndir frá öllum Norðurlöndunum og einnig er þáttur Hollendinga stór, en minna ber á kvikmyndum frá Eystrasaltslöndum þar sem talsverð kreppa hefur verið í kvikmyndagerð á þeim slóðum að undanfornu. Að venju kennir margra grasa á hátíðinni. Oft hefur einn rithöfundur verið tekinn fyrir og sýndar kvikmyndir sem gerðar hafa verið eftir verkum hans, m.a. var einu sinni dag- skrá helguð Halldóri Laxness og í fyrra var Ib- sen í þessum sessi. Nú er röðin komin að H.C. Andersen sem hefur orðið uppsprettulind kvikmyndahöfunda víða um heim alveg siðan 1908. Önnur dagskrá verður helguð sænsku leikkonunni Harriet Andersson sem ekki varð síst fræg fyrir leik sinn í kvikmyndum Ing- mars Bergmans. Margvíslegar aðrar uppákomur verða í tengslum við hátíðina, myndlistarsýningar, danssýningar og tónleikar. M.a. mun Fern Nevjinsky leika islenska tónlist, verk eftir Pál ísólfsson, Jón Leifs, Hjálmar H. Ragnarsson og fleiri og Ólöf Ingólfsdóttir sýnir dans. Cosmos Jóns Á laugardaginn var opnuð í sal 2 í Lista- safhi íslands sýning á verkinu Cosmos eftir hinn snjalla og frumlega myndlistarmann Jón Gunnar Árnason. Þetta er innsetning sem var fyrst sýnd á Tvíæringnum í Feneyjum 1982 og tilheyrir röð verka Jóns sem tengjast sólar- orkunni og aðdráttaraflinu. í þeim leitaðist Jón Gunnar við að fanga rýmið og orkuflæðið í alheiminum inn i verk sín og notaði til þess bæði spegla og steina. Cosmos er í eigu Lista- safnsins. Þekktasta verk Jóns Gunnars, Sólfar, sem stendur við Skúlagötu, er frá svipuðum tíma og unniö út frá skyldum hugmyndum og Cosmos. Hinir fjölmörgu aðdáendur þess ættu að nota tækifærið og upplifa Cosmos meðan það (hann?) dvelur í sal 2 en þar verður verk- ið til 9. apríl. Djöflarnir á förum Nú fer hver að verða síðastur að sjá Djöfl- ana í Borgarleikhúsinu, hina mögnuðu upp- færslu Rússanna Borodíns og Benediktovs og Leikfélags Reykjavíkur á leikgerð samnefndr- ar skáldsögu Dostojevskis. Er áhugamönnum um leikhús eindregið ráðlagt að láta sýning- una ekki fram hjá sér fara. Leikhúsgestir hafa nokkuð kvartað undan því að þeir átti sig ekki alveg á persónum leiksins sem eru margar eins og gjaman er i klassískum rússneskum skáldsögum - Rússar eru svo ansi margir, við verðum að skilja það. En nú er væntanleg - beinlínis í dag - þýðing Ingibjargar Haraldsdóttur á skáldsögunni sjálfri svo að enginn þarf lengur að fara í graf- götur um hver er hver í Djöflunum. Á myndinni eru Guðrún Ásmundsdóttir og Friðrik Friðriksson í hlutverkum sínum. Leiklíst Leikið með mat DV-MYND TEITUR Jakob Þór Einarsson leikur viö Nönnu Kristínu Magnúsdóttur í Leikjum „Óskandi er að Bjarni Bjarnason haldi áfram á þessari braut því einþáttungarnir eru lipurlega skrifaöir og samtöl sérlega eölileg. “ Sú nýbreytni stjómenda Iðnó að bjóða upp á stuttar leiksýningar i hádeginu hefur mælst vel fyrir. Verkin sem þegar hafa verið sýnd, Leitum að ungri stúlku eftir Kristján Þórð Hrafnsson og Þúsundeyjasósa Hallgríms Helgasonar, unnu fyrstu og önnur verðlaun í samkeppni um hádegisleikrit í tilefni af end- uropnun Iðnó. Þriðju verðlaun í þeirri sam- keppni hlaut Bjarni Bjarnason og siðastliðinn fostudag var verk hans frumsýnt. Reyndar væri réttara að tala um verk í fleirtölu því sýningin Leikir samanstendur af þremur stuttum einþáttungum. Umfjöllunar- efni allra eru samskipti kynjanna (eins og flestra leikrita ef út í það er farið!) og „leikirn- ir“ sem einkenna þessi samskipti. í fyrsta þættinum fá áhorfendur að fylgjast með því hvernig kvennabósi á miðjum aldri ber sig að við að taka unga konu á löpp á kaffíhúsi. Þrátt fyrir fremur hallærislega tilburði tekst hon- um að mæla sér mót við konuna þetta sama kvöld en áhorfendum er látið eftir að geta í eyðurnar um útkomu stefnumótsins. Gagn- kvæm hrifning parsins í miðþættinum er öll- um augljós en þar sem hvorugt kann til verka í þeim flókna leik sem samdráttur karls og konu er fer púðrið í að ræða fræðilega um kossa í stað þess að njóta þeirra. Hjónin í lokaþættinum eru ekki öfundsverð því konan leikur sér að þvi að æsa upp mann sinn en hafnar honum um leiö. I þeirra tilviki er „leikurinn" orðinn að sjálfskaparvíti sem hvorugt virðist fært um að komast út úr. Nanna Kristín Magnúsdóttir og Jakob Þór Einarsson fara með öll hlutverkin í Leikjum og komast ágætlega frá sínu. Jakob Þór átti reynd- ar frekar erfltt með að samsama sig kvennabós- anum í fyrsta þætti en efldist í hlutverki spek- ingsins og var mjög góður sem ráðvillti eigin- maðurinn í lokaþættinum. Leikur Nönnu Krist- ínar var jafnari en einnig henni tókst best upp í lokaþættinum og er það fyllilega í samræmi við þá stígandi sem einkenndi sýninguna í heild. Stefán Karl Stefánsson er að þreyta frumraun sina sem leikstjóri í þessari upp- færslu og velur að hafa sýninguna raunsæis- lega, bæði í umgjörð og leik. Textinn býður upp aðrar og fantasíukenndari leiöir en hér var kosið að sigla lygnan sjó. Skáldsögur Bjama Bjamasonar hafa vakið verðskuldaða athygli en Leikir er fyrsta verk hans fyrir svið. Óskandi er að hann haldi áfram á þessari braut því einþáttungamir eru lipurlega skrifaðir og samtöl sérlega eðlileg. Það er alltaf gaman að sjá texta lifna á leik- sviði en eftir að hafa horft á Leiki hafði ég á tilfinningunni að ég hefði skemmt mér álíka vel við lestur einþáttunganna. Ekki vegna þess að þeir séu „bókmenntalegir" heldur vegna þess hve litlu sviðsetningin bætti við. P.S. Þeir sem koma í Iðnó í hádeginu gera það vegna leiksýningarinnar en koma líka til að næra sig. Súpan sem var boðið upp á með Leikjum bragðaðist ágætlega og var vel heit. Hins vegar kom brauðið á borðið löngu eftir að súpan var borin fram og aldrei kom þjónn til að athuga hvort við vildum drekka eitt- hvað annað en vatn. Þetta ber ekki vott um mikla fagmennsku! Halldóra Friðjónsdóttir Leikfélag íslands sýnlr í Iðnó: Leikir. Höfundur: Bjarni Bjarnason. Leikmynd og búningar: Rannveig Gylfadóttir. Lýsing: Kjartan Þórisson. Leikstjóri: Stefán Karl Stefánsson. Fyrstu tónleikarn- ir í kammertónleika- röð Garðabæjar árið 2000 fóru fram á laugardag fyrir nær fullu húsi áheyr- enda. Þetta vom lika fyrstu opinberu tón- leikar Hljómkórsins sem er skipaður 15 söngvurum að því er stendur í efnisskrá (ég taldi að vísu 17 en tveir hafa kannski verið fengn- ir að láni fyrir þetta tækifæri). Hann var stofnaður árið 1993 og hefur að mestu sungið við kirkjuleg- ar athafnir. Stjórn- andi var Gerrit Schuil og Richard Simm sá um orgel- og píanóleik. Dagskráin fyrir hlé fór fram í Vídalínskirkju og hóf kórinn raust sína í hinni þekktu mótettu Bachs, Jesu meine Freude þar sem Bach tónsetur sálm eftir Johann Franck og texta úr bréfi Páls post- ula til Rómverja. Flutningur þessa verks var ansi misjafn. Byrjunin og lokin voru falleg og flutt af öryggi en það er hinn þekkti sálmur J. Crúgers og hefur kórinn eflaust sungið hann oft- ar en einu sinni. Það sem kom á milli var upp og ofan en þó margt fallega gert. T.d. voru altraddirnar finar í Denn das Gesetz og Weg mit allen Schatzen var í góðu jafnvægi, sömuleiðis Gute Nacht sem var hógvært og fallegt. Við- kvæmar innkomur í Er ist nun nichts voru stundum ekki alveg 100%, smá óöryggis gætti þá sérstaklega í karlaröddunum og einhver los- arabragur var einnig á So aber Christus...; Ihr aber seid... og So nun der Geist... hefðu fyrir minn smekk gjaman mátt vera dálítið hressari með meiri léttleika. Mér fannst líka vanta svo- DV'MtND pjetur Hljómkórinn á æfingu undir stjórn Gerrits Schuil „Kórinn geislaöi afkrafti, sönggleöi og öryggi og úr verkunum skein ást og hlýja sem fékk hjartaö til aö slá örar af hoppandi hamingju. “ lítið upp á himneska tæra klingjandi í sópranin- um en þar eru margar stórar raddir saman- komnar, vel skólaðar en flestir ef ekki allir með- limir kórsins em menntaðir í sönglistinni. Ave verum corpus eftir Mozart kom þar á eftir og var það sungið af djúpri einlægni þannig að maður fékk kökk í hálsinn og tár í augun enda eitt fallegasta tónverk í heimi. Ave Maria úr Quatro Pezzi sacri eftir Verdi var svo lokaverkið fyrir hlé, þar söng kórinn án undirleiks í magnaðri raddsetningu þar sem línurnar virðast endalausar og flæða milli radda á áhrifamikinn hátt og var það ágætlega flutt af kórnum þó það hefði þolað smá finpússningu hér og þar. Eftir hlé færðu áheyrendur sig yfir í safnað- arheimilið Kirkjuhvol þar sem beið þeirra mikil söngveisla. Fluttir voru Liebeslieder- Walzer sem Brahms samdi sumarið 1869. Hann var þá tíður gestur hjá Clöru og Júlíu Schumann og er augljóst að Brahms hefur á þessum tíma verið syngjandi sæll og glaður. Lögin eru samin við pólsk, rússnesk og ung- versk ljóð sem Georg Friedrich Daumer sneri yfir á þýsku og eru hvert öðru fallegra með ljúfri Vínarsveiflu. Með kórnum léku Gerrit og Richard fjórhent á píanó og var útkoman hreint afbragð. Allt small saman og hvergi bar skugga á. Kórinn geislaði af krafti, sönggleði og öryggi og úr verkunum skein ást og hlýja sem fékk hjartað til að slá örar af hoppandi hamingju. Gerrit og Richard voru vel sam- stilltir í skemmtilegum píanópörtunum og upplifunin var slik að maður vildi helst ekki að þetta tæki enda. Sat brosið fast á gagnrýn- anda langt fram eftir kvöldi. Arndls Björk Ásgeirsdóttir Tónlist Syngjandi gleöi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.