Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Page 28
40
MANUDAGUR 13. MARS 2000
Ættfræði
DV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
«a
90 ára
Birna Ingimarsdóttir,
■ Hrísalundi 16f, Akureyri.
85 ára
Hannes Erasmusson,
Hagatúni 9, Höfn.
Oddbjörg Siguröardóttir,
Gagnvegi hjúkrh. Eir, Reykjavík.
80 ára
Guörún Kristín Hjartardóttir,
Austurbyggð 17, Akureyri.
Rósa Jóhannsdóttir,
Hvassaleiti 153, Reykjavík.
75 ára
Guöbjörg Arnadóttir,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
Gunnar Tryggvi Óskarsson,
Ásvegi 30, Akureyri.
Helga Ólafsdóttir,
Flókagötu 16a, Reykjavlk.
60 ára
Kristján
Kristjánsson
tannlæknir,
Barmahlíð 19,
Reykjavík.
Edda Pálsdóttir,
Sambyggð 6, Þorlákshöfn.
Helga Lára Jónsdóttir,
Grýtubakka 4, Reykjavík.
Hulda Sigurvinsdóttir,
Brekkugötu 6, Akureyri.
Ingólfur Kristjánsson,
fjarðarási 21, Reykjavík.
Magnús Sigfússon,
Kvíholti 10, Hafnarfirði.
María M. Kristófersdóttir,
Brekkugötu 3, Hrisey.
Ólafur Gunnarsson,
Brúnási 2, Mosfellsbæ.
50 ára
Bjarni E. Magnússon,
Hafnarbyggð 17, Vopnafiröi.
40 ára
Asrún Helga
Guömundsdóttir,
Steig, Mýrdal.
Eiginmaður hennar er
Ólafur Stigsson bóndi.
Þau taka á móti vinum
og vandamönnum á Hótel
Dyrhólaey laugard. 18.3. kl. 20.30.
Auöur Ólafsdóttir,
Hraunteigi 11, Reykjavík.
Bergþóra Kristín Grétarsdóttir,
Meistaravöilum 35, Reykjavík.
Eyrún Hafdís Kjartansdóttir,
Arnarflöt 7, Súðavík.
Guömundur Rafn Guömundsson,
Lækjarvöllum 9, Grenivík.
Hanna Fríöa Jóhannsdóttir,
Vallarbraut 12, Seltjarnarnesi.
Magnús Jóhannesson,
Hamragerði 27, Akureyri.
Magnús Magnússon,
Rauðási 12, Reykjavik.
Ólafur Atli Ólafsson,
Bæjargili 17, Garðabæ.
Þorlákur B .Friöriksson,
Ásabraut 13, Grindavík.
IJrval
— 960 síður á ári —
fróðleikur og skemmtun
sem lífir mánuðum og
árum saman
Eggert Laxdal, Frumskógum 6, Hvera-
geröi, andaðist á Sjúkrahúsi Suöurlands
fimmtudaginn 9.3.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sveinn Guömundsson iést fimmtudag-
inn 9.3.
Karl Kristján Júlíusson, verkamaður I
Reykjavík, andaöist á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur fimmtudaginn 2.3.
Útförin hefur farið fram.
f Jón Sigurösson frá Gvendareyjum, Gull-
smára 7, Kópavogi, lést á líknardeild
Landspítalans miövikudaginn 8.3.
Jón Árnason skólastjóri, Skeiöarvogi
125, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur miðvikudaginn 8.3.
Valgeröur Eyjólfsdóttir sjúkraliði, Kapla-
skjólsvegi 61, Reykjavlk, andaðist á
hjúkrunarheimilinu Víðinesi
t fimmtudaginn 9.3.
Gunnar Felixson
forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar
Gunnar J. Felixson, forstjóri
Tryggingamiðstöðvarinnar hf.,
Hellulandi 6, Reykjavík, verður sex-
tugur á morgun.
Starfsferill
Gunnar fæddist í Reykjavik og
ólst þar upp í Vesturbænum. Hann
lauk stúdentsprófi frá VÍ 1960.
Gunnar hóf störf hjá Trygginga-
miðstöðinni hf. sumarið 1960, varð
aðstoðarforstjóri fyrirtækisins 1976
og er forstjóri þess frá 1991.
Gunnar situr í stjórn Sambands
íslenskra tryggingafélaga frá 1991,
er stjómarformaður islenskrar end-
urtryggingar hf. og hefur setið í
stjórn þess frá 1993, í stjórn Samein-
aða líftryggingarfélagsins hf. frá
1995, í stjórn Heklu hf. frá 1995, í
stjórn Glitnis hf., Frjálsrar fjölmiðl-
unar hf., Alþjóðlegra bifreiðatrygg-
inga á íslandi og er stjórnarformað-
ur Björgunarfélagsins hf., sat í
stjórn Verslunarráðs íslands
1996-2000. Hann sat í stjórn knatt-
spyrnudeildar KR í rúm tuttugu ár
og í aðalstjóm KR i nokkur ár.
Gunnar hefur verið KR-ingur frá
barnsaldri. Hann lék knattspyrnu
með öllum aldursflokkum félagsins
og meistaraflokki 1959-70. Hann er
margfaldur íslands-, Reykjavíkur-
og bikarmeistari með meistara-
flokki KR og lék sjö landsleiki fyrir
ísland. Gunnar og bræður hans,
Bjarni og Hörður, léku allir samtím-
is með íslenska landsliðinu.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 30.3. 1963 Hildu
Guðmundsdóttur, f. 22.10. 1940, hús-
móður. Hún er dóttir Guðmundar B.
Péturssonar, f. 28.8. 1914, d. 13.4.
1980, stýrimanns og Lydiu Guð-
mundsdóttur, f. 17.10. 1920, d. 23.5.
1993, húsmóður.
Börn Gunnars og Hildu eru Guð-
mundur Örn, f. 6.1. 1963, deildar-
stjóri, búsettur i Garðabæ, kvæntur
Dóru K. Sigurðardóttur og eiga þau
saman Sigurð Orra, f. 3.8. 1989, og
Hildu Hrönn, f. 16.10. 1991, en sonur
Dóru er Friðrik Kristjánsson, f. 21.1.
1983; Ágúst Felix, f. 6.4. 1964, bak-
arameistari í Boston í Bandarikjun-
um, kvæntur Rosellu Mosty Gunn-
arsdóttur og er dóttir hennar Ester
Eva Gunnarsdóttir, f. 13.9. 1983;
Harpa Lydia, f. 29.6. 1968, ferðafræð-
ingur, búsett í Reykjavík.
Bræður Gunnars eru Hörður Fel-
ixson, f. 25.10.1931, fyrrv. skrifstofu-
stjóri í Tryggingamiðstöðinni hf.;
Bjarni Felixson, f. 27.12. 1936,
íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins.
Foreldrar Gunnars voru Felix
Pétursson, f. 7.2. 1900, d. 3.9. 1987,
bókari í Hamri hf„ og Ágústa
Bjamadóttir, f. 2.8. 1900, d. 3.10.
1978. Felix og Ágústa bjuggu lengst
af við Bræðraborgarstíginn.
Ætt
Felix var sonur Péturs, sjómanns
á Vatnsleysuströnd, Jóakimssonar á
Auðnum á Vatnsleysuströnd,
Ámundasonar, b. á Stóra-Knarrar-
nesi, Pálssonar, b. á Efri-Hömrum i
Holtum Ólafssonar, b. Ölvesholti í
Holtum, Jónssonar, pr. á Breiðaból-
stað í Fljótshlíð, Torfasonar. Móðir
Jóakims var Sigríður Guðmunds-
dóttir. Móðir Felix var Agnes Felix-
dóttir, Ásbjörnssonar.
Ágústa var dóttir Bjarna, b. í
Sandhólaferju, Filippussonar, b.
þar, bróður Bjarna, langafa Grétars
Kristins Zóphaníassonar á Stokks-
eyri. Filippus var sonur Jóns, b. á
Sandhólaferju, Gunnarssonar,
hreppstjóra þar, bróður Rannveig-
ar, konu Bjarna riddara Sívertsen
og langömmu Magdalenu,
Ingvar Gunnlaugsson
sjómaður og iðnverkamaður
Ingvar Gunnlaugsson, sjómaður
og iðnverkamaður, Heimahaga 12,
Selfossi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Ingvar fæddist á Gjábakka í Vest-
mannaeyjum og ólst upp í Eyjum.
Hann stundaði nám við Vélskólann
í Vestmannaeyjum og siðan Sjó-
mannaskólann í Reykjavík.
Ingvar fór fimmtán ára til sjós,
var fyrst háseti en síðan ýmist stýri-
maður, vélstjóri eða skipstjóri tO
1975.
Ingvar og fjölskylda hans íluttu á
Selfoss í gosinu. Hann starfaði
áfram í Eyjum fyrstu tvö árin, vann
síðan árum saman hjá KÁ og nokk-
ur ár við Sundhöll Selfoss. Siðustu
árin hefur hann verið iðnverkamað-
ur í fyrirtæki sonar síns og tengda-
sonar.
Fjölskylda
Ingvar kvæntist 25.12. 1955 Ingi-
björgu Helgu Guðmundsdóttur, f.
3.10. 1933, húsmóður og listakonu.
Hún er dóttir Guðmundar Kristins
Gíslasonar og Þuríðar Árnadóttur,
bænda á Hurðarbaki í Flóa.
Börn Ingvars og Helgu eru Elísa-
bet f. 7.10.
1956, en mað-
ur hennar er
Guðmundur ______________________
Þórarinn Óskarsson og eiga þau tvö
börn; Guðmundur Kristinn, f. 16.5.
1959, en kona hans er Elínborg
Gunnarsdóttir og eiga þau fjóra
syni og eitt barnabarn; Þröstur, f.
12.2. 1963, en kona hans er Guðbjörg
Hrefna Bjarnadóttir og eiga þau
þrjú börn; Svanur, f. 12.2. 1963, en
kona hans er Maria Óladóttir og
eiga þau tvö börn; Þuríður, f. 19.1.
1972, en maður hennar er Einar
Guðmundsson og eiga þau tvö börn.
Alsystkini Ingvars: Aðalsteinn, f.
14.7. 1910, látinn; Þórarinn, f. 24.6.
1913; Sigurbjörg, f. 28.9. 1914, látin;
Arnoddur, f. 25.6. 1917, látinn; Guð-
björg, f. 21.4 1919, látin; Jón, f. 21.11
1920; Elías, f. 22.2. 1922; Guðný, f. 6.3.
1928. Hálfbróðir Ingvars, samfeðra,
var Gunnlaugur, f. 13.10.1906, látinn.
Foreldrar Ingvars: Gunnlaugur
Sigurðsson, f. 27.9. 1883, d. 1965, sjó-
maður í Vestmannaeyjum, og k.h.,
Elisabet Arnoddsdóttir, f. 25.8. 1889,
d. 1951, húsmóðir.
Ingvar verður að heiman á
afmælisdaginn.
Gunnar Felixson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar og KR-ingur
Gunnar varð íslandsmeistari með KR 1961, 1963, 1965 og 1968, sex
sinnum bikarmeistari, og lék landsleik 1963, ásamt báðum bræðrum sínum.
langömmu Jónasar Kristjánssonar,
ritstjóra DV.
Móðir Ágústu var Sigríður Sig-
urðardóttir, b. í Ásmúla í Holtum,
Sigurðssonar, b. í Kálfholtshjáleigu,
bróður Helgu, langömmu Guðlaug-
ar, ömmu Flosa Ólafssonar. Sigurð-
ur var sonur Ólafs, hreppstjóra á
Eystri-Loftsstöðum, Vernharðsson-
ar og Sesselju Aradóttur, b. i Götu á
Stokkseyri, bróður Ingimundar,
langafa Magnúsar í Litlalandi,
langafa Ellerts B. Schram. Ari var
sonur Bergs, ættföður Bergsættar,
Sturlaugssonar. Móðir Sigurðar í
Ásmúla var Sigríður Brynjólfsdótt-
ir, pr. í Kálfholti, Guðmundssonar,
pr. í Kálfholti Bergssonar. Móðir
Sigríðar Sigurðardóttur var Guðný,
systir Guðmundar í Gröf, langafa
Svövu, móður Sigurðar, fram-
kvæmdastjóra ísfélags Vestmanna-
eyja, og Ágústs, prófessors og fyrrv.
alþm. Guðný var dóttir Guðmundar,
b. í Efstadal í Laugardal, Guð-
mundssonar, pr. í Reykjadal, Guð-
mundssonar.
Gunnar og Hilda taká á móti gest-
um á Grand Hótel Reykjavík, við
Sigtún, á morgun kl. 17.00 og 20.00.
Guðlaug Þorbergsdóttir
húsmóðir
Guðlaug Þorbergsdótt-
ir, húsmóðir í Vest-
mannaeyjum, er látin. Út-
för hennar fór fram frá
Landakirkju í Vest-
mannaeyjum fóstudaginn
10.3.
Starfsferill
Guðlaug fæddist á
Gvendarnesi á Fáskrúðs-
firði 17.7. 1932 og ólst þar upp fram
yfir fermingu. Hún fór ung í vinnu-
mennsku og var m.a. vinnukona hjá
Bergljótu Snorradóttur á Kjartans-
stöðum í Árnessýslu um langt skeið.
Guðlaug var vinnukona til 1962
er hún gifti sig og flutti með eigin-
manni sinum til Vestmannaeyja.
Þar bjuggu þau hjónin að Landa-
götu 2, ásamt tengdaforeldrum Guð-
laugar á meðan þau lifðu.
Guðlaug vann um tíma í þvotta-
húsinu Straumi í Eyjum fyrir gos.
Þau hjónin fluttu síðan til Reykja-
vikur í gosinu þar sem maður Guð-
laugar starfaði hjá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar en Guðlaug vann
við þrif í Reykjavík.
Þau hjónin fluttu svo aftur til
Eyja, að FífUsgötu 2, 1975 og áttu
Jón Sigurðsson á Reynistað í Skagafirði,
sem fæddist 13. mars 1888, er dæmigerð-
ur fyrir þá héraðshöfðingja sem sátu á Al-
þingi fram yfir miðbik aldarinnar.
Jón fæddist og átti alla tíö heima á
foðurarfleifð sinni - Reynistað - sögu-
frægu höfuðbóli sem var jarlssetur á
Sturlungaöld, nunnuklaustur fram yf-
ir siðaskipti, kirkjustaður og löngum
sýslumannssetur.
Jón átti kost á að fara í Latínuskól-
ann og læra til embættis en ákvað sjálf-
ur annað nám og ævistarf. Hann lauk
gagnfræðaprófi á Akureyri, búfræðiprófi
frá Hólum, stundaði nám í Askov og bú-
fræðinám í Danmörku og Noregi 1907.
Jón var bústjóri hjá foður sínum frá 1908 og
Jón Sigurðsson á Reynistað
bóndi á Reynistað frá 1919, en á móti Sigurði,
syni sínum, frá 1947. Hann var eljusamur
og framfarasinnaður búhöldur, gegndi
flestum helstu trúnaðarstörfum fyrir
sveit sína, hérað og stétt og var alþing-
ismaður á þrjátíu og þremur þingum,
lengst af fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Jón stofnaði og starfrækti Sögufélag
Skagafjarðar, var frumkvöðull að
stofnun byggðasafnsins í Glaumbæ og
vann ötuÚega að byggingu Bókhlöð-
unnar á Sauðárkróki. Hann lést 1972.
Af strákum sem voru i sveit hjá Jóni
og urðu síðar þjóðkunnir menn má nefna
frænda hans, Jónas Kristjánsson, ritstjóra
DV, Ragnar Borg framkvæmdastjóra og
Bjöm Bjarnason menntamálaráðherra.
síðan heima í Vestmanna-
eyjum. Maður hennar
vann þá m.a. við Bóka-
safnsbygginguna hjá
Vestmannaeyjabæ.
Fjölskylda
Guðlaug giftist 1962
Magnúsi Jóhannssyni, f.
28.12. 1921, d. 26.6. 1987,
skáldi frá Hafnarnesi.
Foreldrar hans voru Jóhann Magn-
ússon og Guðríður Lúðvíksdóttir.
Árið 1972 tóku Guðlaug og Magn-
ús í fóstur stúlkubarnið Björt Hug-
rúnu Magnúsdóttur, skírð Dagný
Björt, f. 6.5. 1971. Eiginmaður henn-
ar er Hjörleifur Sveinsson, f. 27.12.
1954, og starfa þau við eigin útgerð-
arfyrirtæki.
Guðlaug og Magnús ættleiddu
Björt Hugrúnu 1977.
Systkini Guðlaugar eru Þorbjörg
Málfriður, Magnús, Sigríður, Guð-
rún, Margrét, Svavar, Guðjón, Þór-
dís og Oddný Þorbergsdóttir.
Foreldrar hennar voru Þorbergur
Þorvaldsson og Níelsína Sigurðar-
dóttir.
Jarðarfarir
Þormóöur Karlsson veröur jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 14.3. kl.
13.30.
Ragna Aradóttir , Hólmgarði 1,
Reykjavlk, sem lést á Borgarspítalanum
laugardaginn 4.3., verður jarösungin frá
Bústaðakirkju mánudaginn 13.3. kl.
13.30.
Sigurbjartur Loftsson, Álfaskeiði 27,
Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni I Hafnarfiröi þriðjudaginn
14.3. kl. 15.00.
Jón Örn Garöarsson, Gnoðarvogi 53,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 14.3. kl. 15.00.
Guðbjörg Arnórsdóttir, Stella, verður
jarðsungin frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 15.3. kl. 15.00.