Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Qupperneq 33
MÁNUDAGUR 13. MARS 2000
DV
45
"ilvera
Jóladiskar bestir á vorin
„Ég er kúreki, kátur og hress, þaö
er kántrí í blóðinu á mér.“ Þannig
hljómar texti Rúnars Kristjánsson-
ar við hið þekkta lag Hallbjörns
Hjartarsonar, Kátur kúreki, en það
er að finna á nýjasta geisladiski
Hallbjöms sem að sjálfsögðu ber tit-
ilinn Kántrí 9. Nýi diskurinn er
safnplata þar sem er að flnna 19
gömul lög úr safni Hallbjörns og
undirtitillinn er Golden Memories,
Country Love Songs, en yfirskriftin
er að sjálfsögðu: „The King of the
Country in Iceland".
Aðspurður segist Hallbjöm hafa
valið úr 112 lögum en það hafi ekki
vafist fyrir honum. „Það er ekki
erfitt að velja úr slíku úrvali. Fólk
er svo ánægt með lögin mín og seg-,
ir þetta notalega og góða tónlist. Ég
verð auðvitað að trúa því. Kántrí 9
kom reyndar út skömmu fyrir jólin,
en ég er ekki farinn að kynna hann
ennþá. Ég ætla reyndar ekki gera
mikið í því fyrr en það fer að vora.
Mér hefur alltaf reynst best að gera
hlutina þegar lifið tekur að vakna af
vetrardvalanum,“ segir Hallbjörn.
„Mér hefur alltaf reynst
best að gera hlutina
þegar lífið tekur að
vakna af vetrar-
dvalanum. “
Það er óhætt að taka undir orð
aðdáenda Hallbjarnar að lögin hans
eru notaleg, sum virka kannski svo-
lítið stirð við fyrstu áheym, en þeg-
ar maður hlustar á þau næst, þá
renna þau strax betur í gegn og lík-
lega er það rétt sem Hallbjörn segir,
að þau lög séu lífseigust sem hægt
og sígandi vinna sér vinsældir.
Lögin á plötunni eru: Sannur vin-
ur, Ég vitja þín, Söngfuglinn,
Trukkurinn, Ef þú sérð hana, Þetta
var kona, Söngurinn minn, Ég vil
fylgja þér, Kátur kúreki, Litli dreng-
urinn, Hundurinn Húgó, í einver-
unni, Upp til fjalla, Kántrýbær,
Litla þorpið, Elsku barn, Hljóða
bæn, Ágúst nótt, Ljóshærða gyðjan
og Kæri Jesú.
-ÞÁ.
Esther Canadas
Þyngdar sinnar viröi í gulli.
Esther vakti
mesta athyglina
Spænska ofurfyrirsætan
Esther Canadas vakti mesta at-
hygli allra stúlknanna sem tóku
þátt tískusýningahátíðinni í Ma-
dríd á Spáni í síðustu viku. Ekki *
undarlegt þar sem Esther þykir
með glæsilegri konum.
Að öðrum fatnaði ólöstuðiun
vöktu brúðarkjólar spænska
hönnuðarins Jesúsar del Pozos
mesta hrifningu viðstaddra.
Esther Canadas er einhver eft-
irsóttasta fyrirsæta heimsins um
þessar mundir og hún er lika
þyngdar sinnar virði í gulli.
Heimildir herma að hún fái
rúma milljón króna fyrir dag-
inn. *_
Esther er líka lánsöm í einka-
lífinu því hún hefur fundið
draumaprinsinn í líki hollenska
sýningarmannsins Marks Vond-
erloos.
DV-MYND ÞÖRHALLUR
Hallbjörn, kúreki,
kátur og hress:
“Þaö er ekki erfítt aö velja
úr slíku úrvali. Fólk er líka
svo ánægt meö lögin mín. “
Hallbjörn Hjartarson
gaf út Kántrí 9 fyrir
jólin en hefur ekki
enn mátt vera að því
að kvnna hana.
Titill plötunnar er
„Golden Memories,
Country Love Songs“
- en yfirskriftin
er að sjálfsögðu:
„The King of the
Country in Iceland“.
Stórmyndarleg fjölskylda Signýjar Pálsdóttur
Afmælisbarnið meö hluta af sinni nánustu fjölskyldu. Frá vinstri: Kristján Þóröur
Hrafnsson, sonur Hrafns Gunnlaugssonar og eiginmaður Melkorku Teklu, Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir, dóttir Signýjar og Ólafs Torfasonar kvikmyndagagnrýnanda,
Guðrún Stephensen, móöir Signýjar, Árni Möller, svínabóndi og eiginmaöur
Signýjar, Signý sjálf og Melkorka Tekla, dóttir hennar og Ólafs.
Signý fimmtug
Fjölmargir gestir heiðruðu Signýju
Pálsdóttur, menningarmálastjóra Reykja-
víkurborgar, á fimmtugsafmæli hennar
sem haldið-var á Kjarvalsstöðum á laug-
ardaginn.
Glæsimenni tvó
Egill Ólafsson, leikari, Stuðmaöur og Þurs,
og Siguröur Pálsson skáld eru á þeim aldri
aö þeir þræöa fimmtugsafmælin.
Menningarleg ræðuhöld
Þórunn Siguröardóttir, framkvæmdastjóri Menningarborgarinnar, hélt tölu um
Signýju, samstarfskonu sína í menningunni. Aö baki Þórunnar má sjá skáld-
mæringana Sigurö Pálsson og Kristján Þórö Hrafnsson býöa í ofvæni eftir aö
rööin komi aö þeim.
Miðvikudaginn 29. mars fylgir DV hið vinsæia fermingarblað.
Fermingar
Auglýsendum er bent á að hafa samband við Selmu Rut Magnúsdóttur,
auglýsingadeild DV, í síma 550-5720, netfang: srm@ff.is hið fyrsta
svo unnt verði að veita öllum sem besta þjónustu.
Umsjón með efni hefur Arndís Þorgeirsdóttir, sími 550 5823.
Netfang auglýsingad. auglysingar@ff.is
Bréfsími: 550 5727
ATH.:
Skilafrestur
auglýsinga er til
föstudagsins
24. mars.