Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 7
FÚSTUDAGUR 17. MARS 2000
DV
7
Fréttir
Stöðfirskir íþróttaálfar ánægðir með nýtt íþróttahús:
Hafa losað sig við
hálft tonn af spiki
DV. STODVARFIRÐI:_____________________
Nú er allt komið í fullan gang í
nýju íþróttahúsi Stöðfírðinga og
hafa böm og fullorðnir verið dug-
legir að sækja húsið síðan það var
opnað. Er þetta mikil breyting til
hins betra íyrir alla þá sem stunda
hvers konar íþróttir þar sem nú er
i fyrsta sinn hægt að stunda þær
innanhúss að vetrinum. Áður var
kennd leikfimi í gömlu samkomu-
húsi staðarins og þar var einnig
Eróbikk íjólu Þorsteins til húsa.
Segir Fjóla mikinn mun vera að
stunda líkamsrækt í íþróttahúsinu
sem er ágætlega búið tækjum til
íþróttaiðkana og einnig með full-
komnu hljóðkerfi.
Að sögn Bæjarslúðursins, sem er
bæjarblað Stöðfirðinga, munu Stöð-
firðingar hafa losað sig við á
fimmta hundrað kíló frá því
íþróttahúsið var opnað fyrir rúm-
um mánuði. -GH
DV-MYND GARÐAR HARÐARSON
Fitan er á förum
Þetta stæöilega íþróttahús skiþtir sköþum fyrir Stööfíröinga. Nú þegar hafa
þeir svitnaö meira en nokkru sinni - og 500 kiló af sþiki sögö horfm.
Ódýrara heitt
vatn og
Skagamenn
kynda betur
DV, AKRANESI:
Sala á heitu vatni fer vaxandi á
Akranesi, hefur aukist úr 1.394 þús-
und tonnum árið 1996 í 1.580 þúsund
tonn árið 1999 og er gert ráð fyrir að
salan fari i 1.592 þúsund tonn á
þessu ári. Lækkun á verði vatnsins
er farin að skila sér í meiri notkun,
aðallega vegna þess að Akumesing-
ar kynda hús sín betur og njóta
þeirra þæginda sem góðri upphitun
fylgja. Aukin sala eykur möguleika
á áframhaldandi lækkun á verði
heita vatnsins því rekstrarkostnað-
ur og greiðslur af lánum eru óháð
notkuninni. í fjárhagsáætlun veit-
unnar er miðað við að söluverð á
heitu vatni lækki um 7,5% þann 1.
nóvember næstkomandi. -DVÓ
HB eykur framleiðnina:
Framleiða
minna í
neytenda-
pakkningar
DV, AKRANESI:____________
Um síðustu áramót var vinnslu-
ferlið í frystihúsi HB h/f á Akranesi
endurskipulagt. Fest voru káup á
nýrri vinnslulínu sem var hönnuð
af Marel hf. og Skaganum hf.
Ákvörðun var tekin um aö færa
framleiðsluferlið að mestu niður á
jarðhæð frystihússins og eru vonir
bundnar við að þetta muni auka
framleiðni til muna. Vinnsla á nýrri
snyrtilínu hófst um miöjan janúar
og er óhætt að segja að byrjunin lofi
góðu.
Samfara þessum breytingum hef-
ur orðið áherslubreyting á afurða-
vali og hefur framleiðsla á ferskum
ílökum og lausfrystum flakabitum
verið stóraukin, en dregið hefur
verið úr framleiðslu í svokallaðar
neytendapakkningar. Höfrungur in
kom til hafnar á dögunum með afla-
verðmæti upp á 65 milljónir króna.
Þetta er blandaður afli, aðallega
karfi, þorskur og grálúða. -DVÓ
Nýbúafræðsla á Stöðvarfirði:
Nemendur frá
Kína, Póllandi og
Taílandi
Að undanfómu hefur staðið yfir
íslenskunámskeið fyrir útlendinga í
Grunnskólanum á Stöðvarfirði.
Kennt hefur verið á þriðjudags-
kvöldum og laugardögum og er
námskeiðið samtals fjörutíu og átta
kennslustundir. Þar mætast fulltrú-
ar þriggja þjóða til að nema íslensk-
una en nemendur eru 16 talsins og
eru frá Kína, Póllandi og Taílandi
og búsettir á Fáskrúðsfirði og Stöðv-
arfirði. Þykir þeim námið skemmti-
legt og eru mjög áhugasamir um
það. Kennari er Erla Rán Kjartans-
dóttir. -GH
Gerðu góð kaup á gólfefnadögum Húsasmiðjunnar. Komdu og fáðu faglega ráðgjöf.
Skráðu þig #>
í vefklúbbinn
www.husa.is
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
10-5
/O
afsláttur af öllnm gólfefnum