Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
7
I>V
Fréttir
Sonur bóndans í Reykjahverfi að koma af dansleik þegar örlagaríkir atburðir gerðust:
Þriðja manndrápsmálið
á rúmum 8 mánuðum
- lögreglan aflar frekari gagna og bíður eftir niðurstöðum úr réttarkrufningu
Lögreglan á Húsavík rannsakar
lát bóndans sem lést á heimili sínu
í Reykjahverfi aðfaranótt laugar-
dagsins 18. mars sem manndráps-
mál. Atburðarás og málið sjálft er
talið fremur sérstakt. Engu að síður
liggur ljóst fyrir að sonur bóndans,
sem handtekinn var á þriðjudag í
síðustu viku, hafði verið á dansleik
í félagsheimilinu Ýdölum áður en
hann kom heim á bóndabæinn að-
faranótt umrædds laugardags.
Þegar lögreglan kom á vettvang
um morguninn hafði sonurinn til-
kynnt að faðir hans væri látinn.
Rifflll fannst í húsinu og var ljóst að
hleypt hafði verið af vopninu enda
var bóndinn með skotsár. í fyrstu
var talið að um sjálfsvíg hefði verið
að ræða. Eftir það kom í ljós að
fleiri en eitt skot voru i hinum
látna. Var þá sonurinn yfirheyrður
og hann síðan handtekinn á þriðju-
dag, með réttarstöðu grunaðs
manns þar sem talið var að um
manndráp hefði verið að ræða.
Lögreglan á Húsavík vill ekki tjá
sig um hve mörgum skotum var
hleypt af né heldur um tildrög máls-
ins. Hún vill engu að síður orða það
þannig að sonurinn „hafi átt hlut að
máli“.
Það sem nú er til rannsóknar er
markviss gagnaöflun lögreglunnar
og réttarkrufning, auk þess sem
reynt er að varpa skýrara ljósi á
óljós atriði, s.s. þá atburðarás sem
átti sér stað á heimili feðganna hina
örlagaríku nótt.
Hér er um þriðja manndrápsmál-
ið að ræða sem rannsakað er hér á
landi á aðeins rúmum átta mánuð-
um. Er það langt yfir meðaltali þar
sem manndráp höfðu síðustu ára-
tugi að meðaltaldi aðeins komið upp
annað hvert ár á íslandi. Þau tvö
manndráp sem framin voru hér á
landi á seinni hluta síðasta árs voru
Vorblíöunni fagnað
Börnin fagna því aö þau geta hlaupiö um í góðu veöri án þess aö vera dúöuö
í þykkar peysur, úlpur og regngalla. Þau hrópa margfalt húrra
fyrir sólskininu eystra.
Húrra fyrir
vorblíðunni
DV, NESKAUPSTAÐ:______________
Það var vor í lofti í Neskaupstað i
gær og fyrradag, glaðasólskin og yfir
20 stiga hiti þar sem sólar naut. En
veturinn minnir á sig, allt um kring
er snjórinn og víða háir ruðningar og
skaflar. Vegir eru auðir og erfiðleika-
laust að komast á milli.
Fjölmargir yngri bæjarbúar voru i
skíðamiðstöðinni í Oddsskarði og
sneru heim brúnir og sællegir eftir
sólina og snjóinn þar. Þeir allra
yngstu undu sér vel í leikskólanum í
notalegu veðri.
„Krakkarnir eru nú alltaf ljúfir, en
alveg sérstaklega í dag,“ sagði Pálína
Sigurðardóttir, leiðbeinandi í leik-
skólanum. -RN
Vetrar/sumarástand.
Þessi ungi maöur var að pjakka í
snjóinn og sandinn í Neskaupstaö,
glaðuryfir veörabrigðunum.
Myndatökumanni vísað frá keppni:
Krefur sýslumann um bætur
DV, AKUREYRI:________________________
„Lögmaður minn hefur sent bréf
til sýslumannsins á Akureyri með
kröfú um bætur vegna ólögmætrar
handtöku," segir Birgir Þór Braga-
son, en hann var látinn yfirgefa
vélsleðakeppni á Akureyri um síð-
ustu helgi í fylgd lögreglu sem fór
með hann fyrir varðstjóra. Birgir
Þór sagði eftir þann atburð að varð-
stjóri hefði tjáð sér að um mistök
hefði verið að ræða og væri hann
frjáls ferða sinna.
Ástæða þess að lögreglan hafði af-
skipti af Birgi Þór var að forsvars-
menn keppninnar á Akureyri fóru
fram á það og sögðu Birgi Þór vera
að mynda þar i óleyfi, en þar grein-
ir menn á eins og í nær öllum öðr-
um málum er varða akstursíþróttir
hérlendis.
Birgir Þór segir það ekki rétt,
sem fram hefur komið, að hann og
bróðir hans eigi helming hlutafjár
í fyrirækinu Mororis sem hefur
séð um alla myndatöku af aksturs-
íþróttum fyrir Landssamband akst-
ursíþrótta (LÍA). Hið rétta sé að
þeir bræður hafi aldrei ætlað sér
að eiga hlut í þvi fyrirtæki, en hafi
neyðst til þess snemma á þessu ári
að kaupa 9% hvor í kjölfar mikils
tapreksturs undanfarin ár, tap-
reksturs sem er 35 milljónir á sl.
þremur árum eða milljón á mán-
uði. Um síðustu áramót átti fjöl-
miðladeild LÍA (FLIA) 51% í
Motoris, Aflvirki og Nýsköpunar-
sjóður 47% en þessir aðilar hafa átt
svo til allt hlutafé í Mororis frá
upphafi.
-gk
svokallað Leifsgötumál, þar sem
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson var
dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að
bana Agnari W. Agnarssyni aðfara-
nótt 14. júlí síðastliðinn, og Espi-
gerðismálið þar sem Elís Ævarsson
er ákærður fyrir að hafa banað átt-
ræðri konu á heimili hennar í fjöl-
býlishúsi þann 3. desember. Réttar-
höld i því máli hefjast í næstu viku.
Ungi maðurinn sem nú er grun-
aður um að hafa banað föður sínum
í Reykjahverfi situr í gæsluvarð-
haldi á Akureyri.
-Ótt
Minidiskurinn er hið nýja stafræna
upptökuform, þaegilegt og færanlegt
Upptökugæðin eru með því besta sem
þekkist. Með minidisk getur þú tekið
upp stafraent í 80 mínútur. Minidiskinn
er hægt að endurskrifa aftur og aftur og
skrifa inn texta á diskana, td. heiti laga,
flytjendur osfrv. Hægt er að færa til lög
i disknum, bæta við, sameina osfrv.
Minjdiskspilara bjóðum við i samstæðum,
ferðatækjum, vasatækjum og bíltækjum,
með og án upptöku.
F/ott hönnun - Alvöru gæði.
DHC-MDXI0 MiniDlsc Samstæða
• Magnari 2 x 80W RMS * Útvarp með FM/AM RDS klukku * MiniDisc upptökuspilari
I bita geistaspilarí fyrir 3 diska • Tvöfalt seguiband auto-reverse • Tónjafnari með minnum
• 3 Way hátalarar • Karaoke • Fjarstýring
MZ-R70 MiniDisc upptöku- og afspilari
• 40 sek. hrístivörn
• Rafhlöðuending er allt að 17 klst.
• Hleðslubattcrí fylgir.
• Fjarstýring f heyrnatólunum
• Tóngæði eru sambærileg á við geisladisk
\ \ • Mjög lítill og léttur (lófastærð, 115 g.)
1 \ * Hægt að tengja við allar græjur
WMmm
MZ-E60 MiniDisc afspilari
• 40 sek. hrístivörn
• Fjarstýríng í heyrnatólunum
Tóngæði eru sambærileg á við geisladisk
• Mjög lítill og léttur (lófastærð)
• Hægt að tengja við allar græjur
BRAUTARHOLTI 2 • LAUGAVEGI 13 • KRINGLUNNI
SÍMI 5800 800