Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Síða 8
8 FTMMTUDAGUR 30. MARS 2000 Viðskipti Umsjón: Vidskiptablaðiö Sæplast hagræðir í starfsemi sinni í Noregi - verksmiðjunni í Skodje lokað Sæplast hf. hefur ákveöið aö ráö- ast í endurskipulagningu á starf- semi sinni í Noregi. í henni felst að höfuðstöövar Sæplasts í Noregi veröa í Álasundi hjá Sæplast Álesund. Framleiðsla Nordic Supply Container (NSC) verður flutt til Sæplast Norge í Salangen og verk- smiðju NSC lokað, enda fram- leiðsluvörur verksmiðjanna tveggja sambærilegar. Eins og fram hefur komið var á dögunum undirritað samkomulag um kaup Sæplasts hf. á öllum hluta- bréfum í Nordic Supply Container AS (NSC), í Skodje rétt utan við Álasund. Verksmiðjan hefur starfað á sama markaði og Sæplast, nýtt sömu tækni og framleitt sambæri- legar vörur. Nú hefur verið gengið frá kaupunum og í kjölfarið mun Sæplast ráðast í endurskipulagn- ingu á rekstri sínum í Noregi með það að markmiði að ná fram auk- inni hagræöingu. Áöur en kaupin á NSC komu til rak Sæplast tvö dótt- urfélög í Noregi. Stunda þau ólika framleiðslu. Sæplast Álesund í Álasundi framleiðir einkum nóta- flot, belgi og fríholt úr plasti og er leiðandi á þeim markaði. Sæplast Norge, sem er með verksmiðju í Sa- langen í Norður-Noregi, er i sam- bærilegri framleiðslu og Sæplast á Dalvík og NSC, þ.e. framleiðir plast- ker, tanka o.fl. Línurnar í rekstrinum skerptar í framtíðinni verða höfuðstöðvar Sæplasts í Noregi í Álasundi, þ.e. hjá Sæplast Álesund. Framleiðsla Nordic Supply Container verður flutt til Sæplast Norge og verk- smiðju NSC lokað, enda fram- leiðsluvörur verksmiðjanna tveggja sambærilegar. Vélar og tæki NSC veröa seld öörum verksmiðjum inn- an Sæplast-samstæðunnar eins og hagkvæmt þykir. Ástæður þessarar ákvörðunar eru eingöngu rekstrar- legs eðlis. NSC og Sæplast Norge eru verksmiöjur af svipaðri stærð með um 20 starfsmenn hvor en sam- anlagt er afkastageta þeirra mun meiri en markaðurinn þarfnast. Með breytingunum er leitast við að skerpa línumar í rekstrinum í Nor- egi. Sæplast Álesund mun einbeita sér að framleiðsu á ýmsum flotvör- um líkt og verið hefur en Sæplast Norge mun stunda framleiðslu á hverflsteyptum afurðum svo sem plastkerum, tönkum og fleiru. Reynt verður eftir föngum að bjóða starfsmönnum NSC störf hjá Sæplast Álesund og Sæplast Norge. Steinþór Ólafsson, framkvæmda- stjóri Sæplasts, segir ýmsa kosti fylgja áðumefndum aðgerðum. „Með því að fækka verksmiðjum veröur framleiðslan öll markvissari og reksturinn tryggari sem mun gagnast bæöi hluthöfum og við- skiptavinum, auk þess sem atvinnu- öryggi starfsfólks eykst, til lengri tíma litið. Ástæða þess að viö flytj- um starfsemi NSC til Salangen en ekki öfugt er m.a. sú að með því móti getum við tryggt fleiri atvinnu áfram. Eins og staðan er í dag get- um við bætt við starfsfólki í fram- leiðsluna hjá Sæplast Álesund. Einnig mun starfsemin þar eflast í kjölfar þess að þar verða höfuð- stöðvar Sæplasts í Noregi, m.a. sam- ræming, sölu- og markaðsstarfs.“ esmhct Sæplast endurskipuleggur í Noregi „Meö því aö fækka verksmiöjum veröur framleiöslan öll markvissari og reksturinn tryggari sem mun gagnast bæöi hluthöfum og viöskiptavinum, auk þess sem atvinnuöryggi starfsfólks eykst, til lengri tíma litiö. “ Eignarhald stórra upplýsinga- tæknifyrirtækja sameinað - verður með 280 starfsmenn og 1,5 milljarða veltu Hagnaður ÍSAL 1.590 milljónir eftir skatta Framleiðsla íslenska álfélagsins hf. var meiri á síðasta ári en nokkru sinni fyrr, samtals 163.370 tonn. Velta ISAL var 18.190 milljónir króna árið 1999 og hagnaður eftir skatta 1.590 milljónir króna, nokkuð minni en árið 1998. í frétt frá ÍSAL segir að helsta ástæða minnkandi hagnaðar hafi verið lágt álverð, sem náði fimm ára lágmarki í marsbyrjun í fyrra. Þá hækkuðu skattgreiðslur ISAL um 29% á síðasta ári, voru 883 milljónir króna. Framleiðsluskerðing vegna orku- skorts var um 5.000 tonn, sem jafngild- ir því að 15 ker hafl verið úr rekstri allt árið. Áhrif orkuskerðingar eru því veruleg enda fengiust um 580 milljónir króna fyrir 5.000 tonn af áli miðað við álverð í dag. Eignarhald hefur verið sameinað á nokkrum af stærstu upplýsinga- tæknifyrirtækjum landsins og tveimur dönskum hugbúnaðarfyrir- tækjum. Fyrirtækin eru Hugvit hf„ SCIO A/S, Þróun hfl, Þekking hf. og Tristan ehf. Einingin verður með 280 starfsmenn og veltu upp á um 1,5 milljarða. í frétt frá Islenska hugbúnaðarsjóönum hfl, sem er einn stærsti hluthafi samstæðunnar segir aö markmiö aðgerðanna sé að auka og bæta heildarþjónustu inn- anlands ásamt því að búa fyrirtæk- in undir kröftuga útrás á erlenda markaði. Þá hefur Hugvit hf. gengið frá kaupum á rekstri danska upp- lýsingatæknifyrirtækisins F8-Data og verður fyrirtækið sameinað rekstri SCIO AS. Unnið er að skipulagi fyrir sam- starf fyrirtækjanna þar sem þekk- ing og reynsla starfsmanna nýtist á breiöu sviði við þjónustu við inn- lenda viöskiptavini og útrás á er- lenda markaði. Grunnur að nýju skipulagi mun liggja fyrir 1. maí 2000. Áætlanir gera ráð fyrir stofn- un fyrirtækis sem mun fara með eignarhald í fyrirtækjunum og ann- ast áætlanagerð, stefnumörkun og skipulagningu. Ólafur Daðason hef- ur verið ráðinn framkvæmdastjóri. Eining sem ræður við stærstu verkefnl á sviði upp- lýsingatækni Fyrirtækin verða starfrækt í óbreyttu formi en þau starfa öll á svipuðu sviði með þjónustu og fram- úrskarandi lausnir að leiðarljósi fyrir viðskiptavini sína. Hluthafar fyrirtækjanna hafa sameinað eign- arhald undir íslensku forræði með það að leiðarljósi að ná fram hag- ræðingu og skapa öflugri og mark- vissari fyrirtæki. Saman mynda fyr- irtækin öfluga heild, sem ræður við stærstu verkefhi á sviði upplýsinga- tækni. Þessi nýja sameinaða eining verður ein sú stærsta sinnar teg- undar á Norðurlöndum með um 280 starfsmenn á sínum snærum og vel á annan milljarð í veltu. Á þessu ári er gert ráö fyrir að erlendar tekjur verði um 700-800 milljónir. Þrátt fyrir áherslu á hinn víðari sjóndeildarhring erlendis verður mikil og þung áhersla lögð á þjón- ustu við innlenda notendur hvar sem þeir eru á landinu. Sérstök áhersla verður lögð á uppbyggingu á Akureyri. íslensku fyrirtækin byggja hvert um sig á farsælu starfi á heimamarkaði og líta á hann sem grundvöll sinn. Aðildarfyrirtækin hafa þannig nú þegar yfir aö ráða einni stærstu einingu á sviði hýs- ingar (hosting) og með yfir 100 starfsmenn sem sinna daglegri þjón- ustu og hýsingu. Meðal stærstu hluthafa eru: ís- lenski hugbúnaðarsjóðurinn hf. með 18%, Ólafur Daðason með 16,3%, Eignarhaldsfélagið Alþýðu- bankinn hf. með 10,9%, Landssím- inn hf. með 7,3%, Daði Ólafsson með 4,1%, Jóhann P. Malmqust með 3,3% og KEA með 2,9%. Aðrir hlut- hafar eru: Halldór Friðgeirsson, ís- lenski íjársjóðurinn hfl, FBA, Vís hfl, Samvinnulífeyrissjóðurinn hf„ Olís, Opin kerfi, stjómarmenn og starfsmenn fyrirtækjanna og fleiri.. DV Þetta helst ria-i'.flf/i'jyjginafliryyri HEILOARVIÐSKIPTI 2.358 m.kr. - hlutabréf 397 m.kr. - húsbréf MEST VIÐSKIPTI 560 m.kr. O Isl. hugbúnaöarsjóöurinn 81 m.kr. I 0 Össur hf. 54,8 m.kr. Gfba MESTA HÆKKUN 54,7 m.kr. | o Eignarh.f. járnbl.félagsins 12,90 % j O Baugur hf. 3,82 % 0 Samheiji hf. 3,37 % MESTA LÆKKUN ; O íslenska járnblendif. hf. -10,38 % I O Skagstrendingur hf. -9.09 % | © Skýrr hf. -5,31 % ÚRVALSVÍSITALAN 1774 stig : - Breyting O -0,06 % Ráðinn til Veftorgs Hallgrímur Thor- steinsson hefur verið ráðinn ritstjóri hjá Vef- torgi hfl, alhliða þjón- ustu- og viðskiptasvæði, sem opnað verður á Intemetinu innan skamms. Að loknu mastersnámi í gagnvirkri margmiðlun starfaði Hall- grímur við gerð gagnvirks efnis hjá Transmedia í New York. 1994 gerðist hann markaðsstjóri Miðheima, fram- kvæmdastjóri upplýsingastandakerfis- ins Asks hjá Skýrr 1995-96. Þá undir- bjó hann stofnun Islandia Intemet og Fjölnets fyrir ÍÚ 1997 þar til að hann stofnaði eigið fyrirtæki, Ljósagang sf. MESTU VIÐSKIPTI 0 Össur 944.610 0 Marel 694.670 Opin kerfi 642.390 0 FBA 543.827 0 íslandsbanki 521.247 siöastlldna 30 daga ; O ísl. hugb.sjóöurinn 159 % o Össur 45 % o Skýrr hf. 45 % ! O Nýherji 32 % 10 Marel 26 % m&mnmvmz ^,^30 m O Opin kerfi -70 % o Stálsmiöjan -54 % 0 Flugleiöir -19 % O Samvinnuf. Landsýn -18 % 0 Fiskiöjus. Húsavíkur -16 % Magnús Gauti hættir Magnús Gauti Gautason, fram- kvæmdastjóri Snæfefls, sagði upp fyrir skömmu og lætur af störfum nú um mánaðamótin. Við starfi Magnúsar Gauta tekur Þórir Matth- íasson en hann er núverandi fram- kvæmdastjóri BGB sem sameinaðist Snæfelli fyrir skömmu. ÍS § i 1 11020,27 O 0,77% |l • Inikkei 20441,50 O 1,28% ÍKSIs&p 1508,52 O 0,05% P~ NASDAQ 4644,67 O 3,91% SSrse 6598,80 O 0,77% I^DAX 7864,76 O 0,85% B Mcac 40 6505,48 O 0,71% 30.3.2000 kl. 9.15 KAUP SALA H Dollar 73,620 74,000 SOPund 117,160 117,760 B*i Kan. dollar 50,430 50,740 CS' Dónsk kr. 9,4360 9,4880 fcfcjNorskkr 8,6930 8,7410 EBSænskkr. 8,4960 8,5430 Htjpl- niark 11,8124 11,8834 1 i! Fra. franki 10,7070 10,7714 B t iBolg. franki 1,7410 1,7515 3 Sviss. franki 44,0800 44,3200 DhoII. gyllini 31,8706 32,0621 ^Þvskt matk 35,9099 36,1256 1 11 ít. líra 0,03627 0,03649 QQAust sch. 5,1041 5,1347 IfJPort. escudo 0,3503 0,3524 Cl Spá. poseti 0,4221 0,4246 [•Jjap. yen 0,69910 0,70330 E j lírskt pund 89,178 89,714 SDR 98,86000 99,46000 {^ECU 70,2336 70,6556

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.