Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
33
I>V
Tilvera
Tveir ólíklr New York-búar
Robert De Niro og Philip Seymour Hoffman leika aöalhlutverkin í Flawless, menn sem veröur vel til vina
þegar aöstæöur hjá öörum þeirra breytast.
Flawless, nýjasta kvikmynd Joel Schumacher:
• •
Oryggisvörðurinn og
dragdrottningin
Ó skars verölaunin:
Þessar
fengu ekki
tilnefningu
Það eru aldrei allir á eitt sáttir hvort
bandaríska akademían hafi valið rétt
þegar hún velur bestu kvikmynd árs-
ins úr fimm tilnefningum. Til að
mynda voru ekki margir ánægðir með
að miðlungskvikmyndin Shakespeare
in Love skyldi verða valinn besta kvik-
myndin í fyrra eða að Forrest Gump
skyldi vera tekin fram yfir Pulp Fict-
ion á sínum tíma. Svona mætti lengi
telja þegar farið er yfir tilnefiiingam-
ar. En hvað um meistaraverk sem
fengu ekki einu sinni tilnefhingu sem
besta kvikmynd. Nokkrir bandarískir
gagnrýnendur tóku sig til og völdu tíu
bestu bandarísku kvikmyndimar sem
ekki fengu tilnefningu sem besta kvik-
mynd:
1. North by Northwest (1959)
Lelkstjóri: Alfred Hitchcock
2. The Man Who Shot Liberty Valance
(1962)
Leikstjóri: John Ford
3. To Have and Have not (1944)
Leikstjórí: Howard Hawks
4.2001: A Space Odyssey (1968)
Leikstjórí: Stanley Kubrick
5. Singin' in the Rain (1952)
Leikstjóri: Stanley Donan
6. The Manchurian Candidate (1962)
Leikstjóri: John Frankenheimer
7 Touch of Evil (1958)
Leikstjóri: Orson Welles
8. Do the Right Thing (1989)
Leikstjóri: Spike Lee
9. The Big Sleep (1946)
Leikstjóri: Howard Hawks
10. The Truman Show (1998)
Leikstjóri: Peter Weir
Það hafa alltaf verið tveir Joel
Schumacher. Sá fyrri er Hollywood-
maðurinn sem gerir Batman-myndir
og fleira álíka sem ekki ber að taka al-
varlega. Hinn Schumacher er öllu al-
varlegri, maður sem lætur sér annt um
manneskjuna, kannar dökkar hliðar
hennar og hefúr stundum nokkuð að
Á morgun verður frumsýnd í Bió-
höllinni og Kringlubíó nýjasta kvik-
mynd Joel Schumacher (Batman og
Robin, 8MM), Flawless. Mynd þessi,
sem er í minni kantinum þegar miðað
er við stóru myndir Schumacher, ger-
ist í New York og segir frá tveimur
íbúum í sömu blokk. Annar þeirra er
Walt Koonzt (Robert De Niro), fyrrum
segja umheiminum. Failing Down og
Flawless falla í þennan hóp kvik-
mynda.
Joel Schumacher er fæddur í New
York 1939 og hóf listaferil sinn i hönn-
unarskóla. Meðan á námi hans stóð
var hann ráöinn til að sjá um tísku-
uppstillingar í hinni virtu verslun
er alltaf syngjandi, málar sig í tíma og
ótíma, veit mikið og talar mikið, er í
rauninni allt það sem Walt þolir ekki í
fari karlmanna.
Nótt eina vaknar Walt upp við ein-
hver læti í íbúðinni hjá Rusty. Af
gömlum vana tekur hann byssuna úr
slíðrinu og heldur á vettvang. í stað
þess að standa uppi sem bjargvættur,
fær hann hjartaáfall og liggur sem
lamaður á gólfinu. Það er farið með
hann á spítala en Walt á aldrei eftir að
ná sér. Nú getur haim varla gengið og
talar með miklum erfiðleikum en neit-
ar að yfirgefa íbúð sína og leggst í
þunglyndi. Að lokum fæst hann til að
fara í endurþjálfun og sú endurþjálfún
felst meðal annars í því að fara í söng-
tíma hjá Rusty. Upp úr þessu fer aö
myndast vinskapur á milli þessara
ólíku manna, vinskapur sem þó á eftir
að brotlenda.
Philip Seymour Hofifinan hefur átt
mikilli velgengni að fagna að undan-
förnu enda fengið hlutverk sem ekki
gleymast fljótt, meðal annars í hinni
umdeildu Happiness þar sem hann
leikur manneskju sem fáir mundu
Henri Bendel. Ekki löngu síðar hóf
hann sjálfstæðan rekstur og gerðist í
framhaldi hönnuður hjá Revlon. Það
kemur því varla á óvart að hann skuli
hafa hafið kvikmyndaferil sinn sem
búningahönnuður auk þess sem hann
leikstýrði sjónvarpsauglýsingum.
Eftir að hafa leikstýrt lítt eftirminni-
legum sjón-
varps- og kvik-
myndum sló
hann í gegn með
táningamynd-
inni St. Elmo’s
Fire (1985), sem
er í dag kannski
fyrst og fremst
eftirminnileg
fyrir vandræða-
leg upphafsskref
leikara eins og
Demi Moore,
Emilio Estevez
og Rob Lowe.
Næstu tvær
kvikmyndir
hans, The Lost
Boys og The
Flatliners, höfð-
uðu einnig til
unglinga. Breyt-
ing verður á
ferli hans þegar
hann leikstýrir
Falling Down
með Michael
kæra sig um að hitta. Áður hafði hann
vakið mikla athygh sem klámmynda-
aðdáandi í Boogie Nights, þá má sjá
hann í þeirri ágætu kvikmynd Coen-
bræðra The Big Lebowski í enn einu
furðuhlutverkinu. Leikstjóri Boogie
Nights, Paul Thomas Anderson, valdi
Hoffmann einnig í Magnoliu, sem sýnd
er um þessar mundir og þá má einnig
sjá hann í The Talented Mr. Ripley.
Fyrsta stóra hlutverkið sem Hoffinan
fékk var í The Twister, þar sem hann
lék mann sem eltir uppi fellibyl til þess
eins að komast í spennuvímu.
Hoffinan fæddist í New York 23. júlí
1967 og hefúr búið þar aila ævi. Þessa
dagana er hann að leika ásamt vini
sínum og meðleikara í þremur kvik-
myndum, John C. Reilly, í hinu þekkta
leikriti True West. -HK
Philip Seymour Hoffman
Leikari á uppleiö sem hefur brugöiö
sér í mörg ólík hlutverk síöustu
misserin.
Douglas í aðalhlutverki. Fjaliaði hún á
áhugaverðan máta um krísu hvíta
karlmannsins í bandarísku samfélagi
sem finnst að sér vegið af minnihluta-
hópum úr öllum átttum. Schumacher
eyddi síðan næstu árum í stórmyndir
á borð við Batman Forever og Batman
og Robin - og The Client og A Time To
Kill sem báðar eru gerðar eftir skáld-
sögum John Grishams.
Schumacher er með tvær kvik-
myndir í farvatninu sem frumsýnd-
arverða á þessu ári, önnur er Tiger-
land sem fjallar um líf ungra manna í
æfmgabúðum áður en þeir eru sendir
í Vietnam stríðið. Óþekktir leikarar
eru í öllum hlutverkum. Hin myndin
er The Church of the Dead Girls sem
gerð er eftir skáldsögu Stephens Do-
byns. -HK
Joel Schumacher og Robert De Nlro
Schumacher á sér tvær hliöar sem leikstjóri, skiptir á milli ódýrra kvikmynda og
Hollywood-stórmynda.
hermaður, sem heldur sér í góðu
formi, æfir mikið og notar
stera tl að hjálpa upp á lík-
amlegt atgervi. Koonzt virrn-
ur sem öryggisvörður og hef-
ur nýlega fengið verðlaun og
medaliu fýrir að hafa skotið
tvo bankaræningja og frelsa
gísla. Hann er sem sagt sönn
hetja sem hefúr mjög hægri
sinnaðar skoðanir og hefúr
sest að í austurhluta New
York-borgar.
Rusty (Philip Seymour
Hoffinan) er dragdrottning
sem kemur fram á skemmti-
stað og er næsti nágranni
Walts. Hann er ekki þægileg-
asta nábúinn að mati Walts,
Tvær hliðar á Joel
Schumacher
111«
The Inslder
The Insider er einhver besta kvik-
mynd sem gerð hefur verið um fjölmiðlun
og tekst leikstjóranum, Michael Mann (The
Last of the Mohicans, Heat), að ná upp
góðri spennu í kvikmynd sem hefur sterk-
an boðskap og mikið raunsæi. The Insider
er einnig kvikmynd um fjölmiðlun, baráttu
um fréttir og baráttu við eigendur sem
hugsa öðruvísi heldur en fréttamenn. Mann
fær góða hjálp frá frábærum leikurum,
Russel Crowe og A1 Pacino. -HK
American Beauty
★★★ Til allrar hamingju fer American
Beauty vel með þetta margþvælda efhi,
gráa fiðringinn, óttann við að eldast og lífs-
ins allsherjar tilgangsleysi. Styrk og hljóð-
lát leikstjóm ásamt einbeittum leikarahópi
lyftir þessari mynd yfir meðalmennskuna
og gerir hana að eftirminnilegu verki. -ÁS
Man on the Moon
★★★ Það er kvikmyndinni Man on the
Moon til mikils lofs að hún fylgir hinni ein-
strengingslegu sýn grínistans Andy
Kaufmans á tilveruna allt til enda. Jim Car-
rey sýnir fantagóðan leik í aðalhlutverkinu,
við gleymum því tiltölulega Qjótt að Carrey
er ein mesta stjama kvikmyndanna um þess-
ar mundir og sogumst inn í þennan karakter
sem um leið er aldrei ráðinn eða útskýrður
með sálfræðilegum vísunum. -ÁS
Magnolia
★★★Hér er áherslan lögð á þau skemmdar-
verk sem unnin em i skjóli fjölskyldunnar,
vanrækslu, misnotkun og skeytingarleysi.
Það sem heppnast afar vel er samspil þess-
ara þráða sögunnar svo úr verður fallegur
samhljómur og hjartnæm lýsing á eðli mann-
legra samskipta. Samkenndin með persónun-
um á rætur sínar í þeirri vitneskju að við
erum öll tengd en það sem tengir okkur er
sú staðreynd að öll erum við stök. -ÁS
Summer of Sam
★★★ Þaö er mikill kraftur í Summer of
Sam og sem fyrr er Spike Lee ekkert að
hlífa persónum sínum, rifur þær niður
jafnóðum og harrn er búinn að upphefja
þær. Þrátt fyrir að sumar hverjar séu ýktar
þá eru þær trúverðugar, eru í meira lagi
orðijótar og í samræmi við það umhverfi
sem þær alast upp i. Lee byggir mynd sína
ekki upp í kringum eina eða tvær sögur,
heldur keðjuverkandi atburði, sem stund-
um virðast eins og tilviljanakenndir, en allt
stenst þetta nánari skoðun. -HK
Fíaskó
★★★ Aðall Fíaskó er hvemig á galsafullan
en um leiö vitrænan hátt þrjár sögur um
ólík viðhorf til llfsins tengjast. Myndin er
fyndin og um leið mannleg. í sinni fyrstu
kvikmynd í fullri lengd fer Ragnar Braga-
son vel af stað. Það er viss ferskleiki i
kvikmynd hans og enginn byijendabragur
á leikstjóminni sem er örugg og útsjónar-
söm. Honum tekst að láta smáatriðin vera
mikilvæg fyrir framvindu sögunnar, þá hef-
ur hann góð tök á leikurum sem upp til
hópa em í sínu besta formi. -HK
Græna mílan
★★★Vel gerð og spennandi kvikmynd með
áhugaverðum söguþræði á mörkum raunsæ-
is og þess sem enginn kann skýringu á. Leik-
stjórinn, Frank Daramont, sem einnig skrif-
ar handritið, fylgir sögunni vel eftir og er lít-
ið um breytingar hjá honum. Þar af leiðandi
er myndin mjög löng, nánast engu er sleppt,
og hefði að óselcju mátt stytta hana aðeins.
Hún hefði þá sjálfsagt orðið skarpari með
sterkari áherslum á hið góða og illa. -HK
The Hurricane
★★★Hinn margreyndi leikstjóri, Norman
Jewison, hefur gert áhrifamikla og góða
kvikmynd þar sem réttlæti og óréttlæti er í
deiglunni. Myndin er byggð á reynslu
hnefaleikakappans Rubins „Hurricane"
Carters sem sat átján ár í fangelsi. Leikur
Denzels Washingtons í hlutverki Carters er
stórbrotinn vel verðugur tilnefningarinnar
til óskarsverðlauna. -HK
Three Klngs
★★★Það er ekki oft sem hægt er að segja
um stríðsmynd að hún sé skemmtileg en
það orð á svo sannarlega við um Three
Kings sem segja má að sé poppuð stríðs-
mynd þar sem hefðum er fleygt fyrir borð
og bryddað upp á mörgu nýju sem ekki hef-
ur áður sést í stríðsmyndum frá
Hollywood. Three Kings nær á mjög svo
sérstakan máta að sameina spennu og gam-
an og þótt sum atriðin séu ftdlgroddaleg og
blóðug þá er um leið nokkurt raunsæi í
myndinni þar sem enn einu sinni birtist
okkur sá sannleikur að þeir sem þjást mest
í stríði eru þeir sem saklausastir eru. -HK
Sleepy Hollow
★★★Tim Burton, sá snillingur af guðs náð,
gefúr þessu efhi kvikmyndalegt líf af ein-
stakri alúð og nautn; maður finnur að hann
er hér í sínu elementi, sérstaklega hvað
varðar alla umgjörð og andrúmsloft. Sá galli
er þó á að ljóminn af verkinu fer svolítið að
fólna þegar líða tekur á myndina og maður
finnur of mikið fyrir höfundunum sem
standa gleiðir í póstmódemiskri stellingu og
glotta fyrir aftan myndavélina. -ÁS