Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Side 33
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
_______2Z<
Tilvera
DV
Huginn og Guöni
Hommar í Hátúni sem vilja búa saman.
Öryrkjabandalagið:
Óánægðir
hommar
á 7. hæð
- vilja búa saman en fá ekki
„Ef annar okkar væri kona þá
væri þetta allt i lagi. En af því að
við erum hommar fáum við ekki að
búa saman eins og okkur langar
til,“ sagði Huginn Svan Þorbjöms-
son, fyrrverandi sjómaður en nú ör-
yrki á sjöundu hæð í Hátúni 10 B. Á
hæðinni fyrir neðan Hugin býr kær-
asti hans, Guðni Ö.Þ. Guðnason,
fyrrum starfsmaður hreinsunar-
deildar Reykjavíkurborgar, og hann
vill flytja upp til félaga síns og ást-
manns. „Við erum búnir að vera
saman í hálft þriðja ár og þykir
vænt hvorum um annan,“ sagði
Huginn.
Anna Ingvarsdóttir, fram-
Priestley ekur
undir áhrifum
Sjónvarpsleikarinn Jason
Priestley hefur verið dæmdur til
funm daga fangelsisvistar fyrir að
aka undir áhrifum áfengis í desem-
ber síðastliðnum. Þá vildi ekki bet-
ur til en svo að leikarinn ók
Porsche glæsikerru sinni á ljósa-
staur, ruslatunnur og kyrrstæða bif-
reið. Dómurinn er skilorðsbundinn
í þrjú ár og leikaranum er jafnframt
gert aö fara í meðferð við áfengs-
neyslu eða eituráti. Leikarinn
meiddist ekki í árekstrinum, sem
betur fer.
kvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins,
sagði það af og frá að verið væri að
stía hommum í sundur í húsum fé-
lagsins: „Strákamir mega búa sam-
an ef þeir vilja en þeir eru bara að
biðja um stærri ibúð og hún er ekki
á lausu. í raun og veru er það lækna
að ákvarðá hvort það sé gott fýrir
þessa drengi að hefja búskap," sagði
Anna Ingvarsdóttir.
Huginn og Guðni hafa nú tvær
einstaklingsíbúðir til umráða í Há-
túni 10 B og ef þeir flyttu saman
myndi ein íbúð losna. Skortur á
stærri íbúðum stendur sambandi
þeirra hins vegar fyrir þrifum.
-EIR
Café Bleu:
Me&afeínkunn
Gæði
Sushi er svipað og víðast annars
staðar í bænum, liklega úr fabrikku
úti á landi, i algerri þversögn við
hugmyndafræði þessarar mat-
reiðslu í Japan. Pönnusteikt og
bragðdauf rispahörpuskel var los-
araleg og virtist vera úr surimi-
fabrikku, borin fram með fallegu
salati og litskrúöugum sósum.
Ágæt voru grilluð eggaldin með
kúskus, hrásalati, ostbökuðum
tómati og sesamkryddaðri olíu. Eld-
islax var góður matur, hæfiléga
grillaður, brenndur utan og mjúkur
að innan. í annað skiptið lá hann
undir ofsöltuðum, djúpsteiktum
kartöfluþráðum og ofan á
sveppasteiktum hrísgrjónum og
þurrkuðum tómötum. í hitt ski'ptið
var engifer stungið í rifur í roðinu
og laxinn borinn fram með mildu
súrkáli og maukuðum seljustöngl-
um, fyrirmyndarréttur.
Lakari var lúðan, sem var þurr
og bragðdauf, greinilega úr frysti,
borin fram með parma-osti, sól-
þurrkuðum tómötum, jóðlandi í
olífuolíu og maukuðu spínati. Sinn-
epsgljáðar grísalundir voru líka of
þurrar og bragðdaufar, bomar fram
með eins konar káljafningi í sýrð-
um rjóma. Bezti kjötrétturinn var
óvenjulega bragðsterkur, indversk-
ur tandoori-kryddaður kjúklingur,
afar meyr og safaríkur, með full-
saltri skorpu, borinn fram með smá-
söxuðu og pönnusteiktu grænmeti.
Matreiðslan á Café Bleu var
aldrei vond og stundum nokkuð
góð. Þar er hver stíllinn á fætur öðr-
um eins og í innréttingunni.
Jónas Kristjánsson
-■ Venus er svartur hommi og klæðskiptingur
- margfaldur minnihluti - i miðbæ Reykjavíkur.
Og hann hefur það fínt.
lf ó k u s
fylgir DV á morgun.
f
r