Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Qupperneq 36
Fjórhjóladrifinn SUBARU LEGACY ... draumi líKastur Ingvar Helgason hf. FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 Hamraborg: Kartöflur í mars Krakkarnir á leikskólanum Hamraborg við Grænuhlíð lyftust upp af kæti þegar þeir komu niður .ý á fullþroskaðar kartöflur þar sem þeir voru að grafa í leikskólagarð- inum: „Börnin fóru að koma inn eitt af öðru með kartöflur og við vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið því það á ekki að taka upp kartöfl- ur í mars,“ sagði Anna Maria Að- alsteinsdóttir, fóstra á Hamraborg. „Krakkarnir héldu áfram að grafa og alltaf komu fleiri kartöflur; þeir minntu einna helst á litla gullgraf- ara,“ sagði Anna María sem telur að skýringin sé sú að eitt kartöflu- beð frá í fyrra hafi gleymst í haust og sé nú að koma i ljós. Kartöfl- umar eru stórar og fallegar og virðast ekki hafa orðið fyrir nein- ^um frostskemmdum. Á morgun verður kartöfluveisla hjá bömun- um á Hamraborg: „Við ætlum að búa til kartöflusalat," sagði Anna Maria fóstra. -EIR Venus * heillar í Fókusi, sem fylgir DV á morgun, er að finna viðtal við ofurgelluna og söngfuglinn Venus sem mörgum finnst synd að er í raun karlmaður. Skyggnst er inn í skuggaveröld bún- ingsklefa karla, tékkað á hvað fólk hugsar í vinnunni og þau atriði tal- in upp sem ekki teljast æskileg að við tökum með okkur inn í 21. öld- ina. Einnig gefur Páil Óskar góð ráð um það hvemig á að krúsa og ís- lenskir karlmenn svara fyrir sig. Fókus býður einnig á kvikmyndina Scream 3 og er bíómiða á sýninguna að finna i Lifinu eftir vinnu sem er nákvæmur leiðarvísir um skemmt- ana- og menningarlifið í Reykjavík. DV-MYND TEITUR Kartöflukrakkar í Hlíöunum Eins og litlir gullgrafarar þegar þeir moka kartöflunum upp úr leikskólagaröinum. í dag ætla þeir svo að slá upp kartöfluveislu í Hamraþorg. Umhverfissinnar fagna björgun Eyjabakka: Gífurleg náttúruspjöll af Kárahnjúkavirkjun - segir sigurglaður formaður Umhverfisvina Umhverfissinnar eru himinlifandi vegna þeirra kúvendinga sem orðið hafa í deilunni um Fljótsdalsvirkjun og uppistöðulón við Eyjabakka. Með því að forráðamenn Reyðaráls vilja reisa 240 þúsund tonna álver í Reyðar- firði í stað 120 þúsund tonna verk- smiðju eru allar líkur á því að Eyja- bökkum verði ekki sökkt en þess í stað verði rennslisvirkjun tengd Kára- hnjúkavirkjun. Gangi vilji forsvars- manna Reyðaráls eftir verður álver við Reyðarfjörð ekki að veruleika fyrr en árið 2007. Ólafur F. Magnússson, borgarfulltrúi og formaður Umhverf- isvina, segir að sigur hafi unnist. „Fram að deginum í gær var hark- an slík að maður gat trúað öllu. Verði niðurstaðan sú að Eyjabökkum verði þyrmt er það sigur fyrir alla umhverf- issinna. Ég er þess fuilviss að ef þessi harða umræða hefði ekki farið í gang þá væri málið ekki í þessum farvegi. Ég er mjög bjartsýnn og vonast til þess að nú fari í gang önnur atburða- rás og önnur umræða. Tíminn vinnur mög hratt í þessu máli,“ segir Ólafur. Hann segir að þegar baráttan um Eyjabakka verði að baki taki við önn- ur barátta. „Ég er í hjarta mínu á móti virkjun Kárahnjúka þó ég geri mér grein fyr- ir því að þar mæli ég ekki fyrir munn allra Umhverfisvina. Kárahnjúka- Magnússon ormsson - Áfangasigur. - Spilaborgin er hrunin. virkjun mun fela í sér gífurleg náttúrspjöU. Ekki aðeins í kringum náttúruperluna Dimmugijúf- ur heldur mun hún hafa ófyrirsjáan- legar afleiðingar í Fljótsdalshéraði vegna rennslis stórrar jökulár um annan farveg en sinn náttúrulega. Af- leiðingar gætu orðið aðrar og meiri en við áttum okkur á í dag. Framtíðar- sýn stjórnvalda í stóriðjumálum er ekki sú besta og baráttan heldur áfram,“ segir Ólafur. Hjörleifur Guttormsson, náttúru- fræðingur og fyrrverandi alþingis- maður Austfirðinga, tekur í sama streng og Ólafur. „Það eru stórtíðindi og afar jákvæð- ar fréttir að þessi spilaborg er að hrynja. Það er ljóst að hægt verður að friðlýsa Eyjabakka sem hluta af Snæ- fellsþjóðgarði og ólíklegt að Fljótsdals- virkjun verði frekar til umræðu. Framtið risaálverksmiðju i Reyðar- firði er lika í fullkominni óvissu sem og bygging virkjana í hennar þágu. Kárahnjúkavirkjun er þegar afar um- deilt mál og stjómvöld ættu að sjá sóma sinn í því að leggja öll stóriðju- áform til hliðar á meðan farið er yfir orkustefnuna í landinu. Næsta skref er að fara yfir málefni Austurlands á nýjum forsendum og bæta fyrir þessa lönguvitleysu," segir Hjörleifur. -rt Kúvending í bankamálum: íslandsbanki og FBA saman? Sú frétt fór sem eldur í sinu um íslenska fjármálamarkaðinn i morgun að forráðamenn íslands- banka og Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins, FBA, eigi í alvarleg- um viðræðum um sameiningu. Ekki tókst að fá þessar fréttir stað- festar áður en DV fór í prentun í morgun. Hér er um kúvendingu að ræða varðandi hagræðingu og samein- ingu í bankakerfinu en undanfarið hefur verið búist við að íslands- banki og Landsbanki gætu runnið Kristjáns Ragnarssonar, formanns saman. Eftir orðahnippingar stjómar íslandsbanka og Valgerð- ar Sverrisdóttur viðskiptaráð- herra hefur hins vegar hlaupið snurða á þráðinn. Gangi hugmyndir tun samein- ingu FBA og íslandsbanka eftir verður til langstærsta fjármála- stofnun landsins með liðlega 226 milljarða króna heildareignir. Hagnaður bankanna á liðnu ári nam nær þremur milljörðum króna, en mikil hagræðing næðist fram með sameiningu. Mark- aðsvirði bankanna er í heild um 61 milljarður króna. -rt bnothef P-touch 9400 Stóra merkivélin sem þolir álagið 10 leturgerðir margar leturstærðir 16 leturstillinpar prentar í 10 linur borði 6 tii 36 mm Bafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport Erum flutt í Skipholt 50 d Skipholti 50 d / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.