Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
I>V
7
Fréttir
Farmanna- og fiskimannasambandið rannsakar mál útgerðar Ófeigs VE 325:
Hlunnfarnir um 11 milljónir
- grunur um að útgerðin hafi keypt kvóta en ekki leigt á kostnað áhafnarinar
Farmanna- og flskimannasam-
band íslands er með til skoðunar
mál er snertir útgerð og áhöfn
Ófeigs VE 325 frá Vestmananeyj-
um. Áhöfn Ófeigs hefur borið sig
upp við Farmanna- og fiski-
mannasambandið og kraflst
launaleiðréttingar vegna þátt-
töku í leigu á kvóta útgerðarinn-
ar en skipverjar lögðu útgerð-
inni til 11 milljónir vegna kvóta-
leigu á fimm mánaða timabili í
fyrra. Lætur nærri að með þessu
hafl útgerðin haft eina milljón af
hverjum skipverja en verra er að
grunur leikur á að útgerðin hafi
keypt varanlegan kvóta fyrir fé
sjómannanna i stað þess að
leigja hann.
„Við erum að kanna málið
með lögfræðingum okkar en
samkvæmt kjarasamningum
eiga sjómenn ekki að taka þátt í
kvótaleigu eða kvótakaupum út-
gerðanna," sagði Benedikt Vals-
son, framkvæmdastjóri Far-
manna- og fiskimannasambands-
ins, í gær. „Því miður blandast
launamál sjómanna oft inn í
kvótaleigu útgerðanna en það er
bæði andstætt kjarasamningum
og landslögum," sagði Benedikt
sem vildi ekki tjá sig um hvort
könnun á málefnum áhafnarinn-
ar á Ófeigi snerist einnig um það
hvort útgerðin hefði keypt kvóta
í stað þess að leigja hann eins og
sjómennimir staðhæfa. „Það get-
ur verið erfltt að sanna hvort
varanlegur kvóti útgerða sé fjár-
magnaður með launum sjó-
manna eða ekki,“ sagði Bene-
dikt.
Þegar áhöfn Ófeigs VE sneri
sér til Farmanna- og fiskimann-
sambandsins vegna þessa máls
brást útgerðin við með því að
reka alla áhöfnina. Hún var síð-
an endurráðin aftur að kröfu
Farmanna- og flskimannasam-
bandsins.
„Ég vil ekkert tjá mig um
Benedikt Valsson
Andstætt lögum aö blanda launa-
málum sjómanna inn í kvótaleigu
eöa kvótakaup útgeröa. Mál
Ófeigs VE í rannsókn.
þetta mál,“ sagði Viktor Helga-
son, útgerðarmaður Ófeigs VE
325, í gær. -EIR
Ófeigur VE 325
Áhöfnin lagöi útgeröinni til 11 milljónir til leigu á kvóta en grunar aö kvótinn hafí veriö
keyptur til varanlegrar eignar.
Fyrst að nýrri bryggju
Fyrsta stóra olíuskipiö lagðist aö nýju olíubryggjunni í Örfirisey á dögunum. í tönkum þess var olía og
bensín til olíufélaganna.
Myndir tengjast ekki efni
Vegna mistaka við vinnslu DV
Fókus síðastliðinn fóstudag birtust
myndir af tveimur einstaklingum
með pistli Þorsteins Guðmundssonar.
Þeir tengjast efninu á engan hátt
og áttu myndir af þeim ekki að birt-
ast. Viðkomandi einstaklingar og
lesendur eru beðnir afsökunar á
þessum mistökum og hugsanlegum
óþægindum sem þeir hafa orðið fyr-
ir.
-Ritstj.
www.isol.is
HJ0LS0G
FESTO
FESTO
fvrir öll verkfæri
og þu getur andau lettar!
..þaS sem
fagmaðurinn
notar!
slml: 533 1334 fax: 5GB 0493
Hægt er að tengja
FESTO-ryksuguna við
öll verkfærin frá FESTO