Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
9
Neytendur
Könnun á dekkjaverkstæðum:
Mikill verðmunur á þjón-
ustu dekkjaverkstæða
Á laugardaginn kemur, þann 15.
aprll, eiga bíleigendur aö vera búnir
aö skipta yfir á sumardekkin. Eins
og margir vita er bíllinn þungur á
fóðrum um þessar mundir og ekki
verra að komast á hagstæðan hátt
frá þessum kostnaðarlið heimilisins.
Neytendasíða DV hafði samband við
15 hjólbarðaverkstæði og var mikill
verðmunur á þjónustu þeirra. Spurt
var um kostnað við kaup á nýjum
sumardekkjum og beðið um verð-
listaverð á þeim dekkjum sem mest
eru seld á viðkomandi verkstæði.
Ekki var spurt um sóluð dekk. Þá
var spurt um það hve mikið kostaði
að láta umfelga, skipta um dekk og
jafnvægisstilla fólksbíla.
15 dekkjaverkstæöi í könn-
uninni
Dekkin sem spurt var um voru af
stærðunum 175-70-13 og 175-70-14, eða
13 og 14 tommu dekk. Verkstæðin
Leiðrétting:
Nettóeggin
eru frá Mónu
I DV á fimmtudag var umfjöll-
un um verðlag á páskaeggjum í
stórmörkuðum. Kannað var verð
á fimm tegundum páskaeggja. Um
var að ræða Nóa, Mónu og Góu
páskaegg, auk páskaeggja sem
framleidd eru í nafni Bónuss og
Nettó. Því miður slæddist inn
villa í greinina þar sem mishermt
var að Nettóeggin væru framleidd
af Góu. Hið rétta er að Móna fram-
leiðir Nettóeggin en engin Góuegg
eru seld í Nettó. Góa framleiðir
aftur á móti páskaeggjalínu fyrir
Bónus. Mónueggin voru að jafnaði
dýrari en Góueggin í könnuninni.
Á grafi með greininni kom verðið
frá Nettó því þannig út að Nettó
væri með dýrustu Góueggin. Þar
sem Nettóeggin eru frá Mónu er
þetta því fallið til misskilnings.
Nettó býður með öðrum orðum
ódýrustu páskaeggin sem Móna
framleiðir, undir nafni Nettó.
Venjuleg Mónupáskaegg, sem
einnig fást í Nettó, voru hins veg-
ar næstódýrust í könnuninni.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
- Kaldasel og Pit stop ódýrust
Nagladekkin af
Á laugardaginn kemur, þann 15. apríl, eiga bíleigendur
að vera búnir að skipta yfir á sumardekkin.
sem lentu í könnuninni eru Barðinn,
Skútuvogi, Smur-, bón- og dekkja-
verkstæðið, Sætúni, Sólning, Austur-
vegi, Selfossi, Gúmmívinnslan, Rétt-
arhvammi, Hjólbarðastöðin, Bílds-
höfða, Hjólbarðahöllin, Fellsmúla,
Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs,
Gylfaflöt, Höldur, hjólbarðaverk-
stæði, Dalbraut, Akureyri, Hjól-
barðaverkstæði Kaldasels, Dalvegi,
Dekkjahöllin, Kauptúni, Egilsstöð-
um, Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns,
Hátúni, Hekla, Laugavegi, Brimborg,
Bíldshöfða, Dekkiö, Reykjavíkur-
vegi, og Pit stop, Kleppsmýrarvegi.
Ódýrast hjá Kaldaseli
Samkvæmt könnun DV er ódýrast
að kaupa 13 tommu dekk hjá hjól-
barðaverkstæði Kaldasels. Þar kostar
eitt dekk 3762 krónur. Næstódýrast
er i Pit stop, þar sem 13 tommu dekk
kostar 3950 krónur. Þá kemur Hjól-
barðahöllin, Hjólbarðaverkstæði
Grafarvogs og Hjólbarðaverkstæði
Siguijóns, Sólning og Höldur, Smur-,
bón- og dekkjaþjónustan, Dekkið,
Gúmmívinnslan, Hjólbarðastöðin,
Dekkjahöllin, Hekla, Barðinn og dýr-
ast er 13 tommu dekkið hjá Brim-
borg, þar sem það kostar 6030 krón-
ur. Hér, eins og annars staðar í
könnuninni, er ekki spurt um gæði
vöru eða þjónustu, aðeins verðið.
Meðalverðið á 13 tommu dekki er
tæplega 4400 krónur en munurinn á
hæsta og lægsta verði er rúmlega
60%.
Hekla og Hjólbaröaverk-
stæöi Grafarvogs dýrust
Kaldasel er einnig ódýrast í 14
tommu dekki þar sem það kostar
4149 krónur. Næstódýrast er það hjá
Hjólbarðahöllinni en þar kostar það
4491 kr. Þá kemur Pit stop, Barðinn,
Gúmmívinnslan, Höldur, Sólning,
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, Hjól-
barðastöðin, Smur-, bón- og dekkja-
þjónustan, Dekkið, Dekkjahöllin og
Brimborg sem er næstdýrust. Á
toppnum tróna Hekla og Hjólbarða-
verkstæði Grafarvogs en þar kostar
dekkið undir bílinn 7029 kr. Hér er
verðmunurinn meiri en í 13 tommu
dekkinu, eða nálægt 70 af hundraði.
Langódýrast hjá Pit stop
Skemmst er frá því að segja að ef
marka má niðurstöður þessarar
könnunar er langódýrast að láta um-
felga, skipta um dekk og jafnvægis-
stilla bílinn hjá Pit stop þar sem
þjónustan kostar 2000 krónur.
Næstódýrast er hjá Kaldaseli þar
sem hún kostar 3300 krónur. Þá kem-
ur Smur-, bón- og dekkjaverkstæðið,
Barðinn og Sólning, Hjólbarðaverk-
stæði Grafarvogs, Höldur, Hjólbarða-
verkstæði Sigurjóns og Brimborg.
Dekkjahöllin kemur þar næst, þá
Dekkið, HjólbarðahöUin, Gúmmí-
vinnslan, Hekla og dýrast er að láta
umfelga, jafnvægisstiUa og skipta
um dekk hjá Hjólbarðastöðinni, þar
sem það kostar 4150 skv. verðlista-
verði. Verðmunurinn nemur hér
hvorki meira né minna en 107%.
Víða er afsláttur
í þessari könnun þótti rétt að biðja
um verðlistaverð þar sem fjöldi fólks
notar nánast eingöngu kreditkort.
Hins vegar bjóða mörg dekkjaverk-
stæði t.d. staðgreiðsluafslátt, annað-
hvort 10 eða 5% af verðlistaverði. Þá
ber einnig að hafa i huga að flest
verkstæði selja bæði dýrari og ódýr-
ari dekk en gefin eru upp í þessari
könnun. Plássins vegna var ekki
hægt að taka aUar þessar upplýsing-
ar inn í þessa grein en það getur
margborgað sig að spyrjast fyrir um
gæði, verð og afslátt, svo eitthvað sé
nefnt, áður en ákveðið er að skipta
við ákveðin verkstæði. -HG