Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Síða 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
DV____________________________ útiönd
^ Helmut Kohl:
I ástarsambandi við
einkaritarann sinn
Nýtt hneyksli skekur nú Þýska-
land. Helmut Kohl, fyrrverandi
kanslari, var í ástarsambandi við
einkaritarann sinn, að því er
sænska blaðið Aftonbladet greinir
frá. Austur-þýska leyniþjónustan,
Stasi, kortlagði líf einkaritarans og
hleraði sima Kohls, bæði í kanslara-
bústaðnum og á skrifstofu hans.
Á árunum 1982 til 1989 voru skrif-
aðar að minnsta kosti 9 þúsund sið-
ur með símtölum Kohls. Samkvæmt
þýska blaðinu Tagesspiegel, sem
rætt hefur við fyrrverandi starfs-
menn Stasi, fylgdust a-þýsku njósn-
aramir nákvæmlega með Kohl allt
frá miðjum áttunda áratugnum.
1982 tókst Stasi að komast inn á
einkalínu Kohls í kanslarabústaðn-
um í Bonn. Tveimur árum seinna
gat Stasi einnig hlerað síma Kohls á
skrifstofu hans. Stasi sóttist bæði
eftir upplýsingum um aðgerðir gegn
Kanslarinn fyrrverandi
Helmut Kohl er ekki sáttur viö að skjöl a-þýsku teyniþjónustunnar um hann
og aöra v-þýska stjórnmálamenn veröi þirt.
A-Þýskalandi og viðkvæmum upp-
lýsingum um einkalíf kanslarans.
Stjórn Kohls lét eyðileggja fjolda
skjala Stasi um v-þýska stjórnmála-
menn við sameiningu þýsku ríkj-
anna. En menn fundu ekki allt. Fyr-
ir tveimur vikum kom svo í ljós að
Stasi hefði í yfir 20 ár vitað um ólög-
leg framlög til kristilegra
demókrata, flokks Kohls.
Kohl hefur þegar hótað málaferl-
um gegn þeirri stofnun sem hefur
skjalasafnið undir höndum verði
haldið áfram að afhenda fjölmiðlum
skjölin. Rannsóknamefnd þingsins,
sem rannsakar leynisjóðina, hefur
hingað til neitað að nota
upplýsingarnar í skjölunum þar
sem þeirra hafi verið aflað á
ólöglegan hátt. Margir benda á að
skjalasafnið hafi verið myndað gegn
A-Þjóðverjum. Ekki eigi að gera
undantekningu fyrir V-Þjóðverja.
Hogni Hoydal
Færeyski ráðherrann er ánægöur
meö stuöning Dana viö sjálfstæöi
frænda okkar og granna.
Danir almennt
hlynntir sjálf-
stæði Færeyja
Mikill stuðningur er við sjálf-
stæði Færeyja meðal dönsku þjóð-
arinnar. Þrír af hverjum fjórum
kjósendum eru hlynntir því að
frændur okkar fái að yfirgefa
danska ríkjasambandið, að því er
fram kemur í skoðanakönnun
sem gerð var fyrir danska blaðið
Aktuelt. Aðeins sex prósent eru
andvíg því að Færeyingar verði
sjálfstætt fólk.
Hogni Hoydal, ráðherra sjálf-
stæðismála í færeysku landstjórn-
inni, var mjög uppveðraður yfir
tíðindunum. „Þessi mikli stuðn-
ingur við sjálfstæði á umfram allt
rætur að rekja til þess sem mönn-
um þykir ómerkilegt. í opinberri
umræðu í Danmörku eru Færeyj-
ar bara áhugaverðar vegna
hneykslismála,“ segir Hoydal.
Garöálfar frelsaöir úr prísundinni í Paris
Ekki er allt sem sýnist í heimi garðálfanna í Bagatelle-garðinum í París. Þrátt fyrir friösælt yfirbragöiö kraumar ólgan
undir niöri. Aö minnsta kosti sá frelsishreyfing garöálfa ástæöu til aö leggja til atlögu og frelsa tuttugu litla skemmti-
lega og skrýtna karla úr prísundinni um helgina. Árásin var gerö aö næturlagi. Meö framferði stnu vildu frelsisher-
menn mótmæla því að lítiö væri gert úr garöálfum og lofuöu aö skila þeim aftur út í náttúrlegt umhverfi sitt.
Angela Merkel
Nýr leiötogi kristilegra demókrata er
bjartsýnn á framtíöina í kjölfar leyni-
reikningahneykslis Helmuts Kohls.
Merkel ætlar að
leiða kristilega
fram til sigurs
Angela Merkel, sem var kjörin
leiðtogi flokks kristilegra
demókrata í Þýskalandi við upphaf
landsfundarins í gær, sagðist stað-
ráðin í að leiða flokkinn fram til sig-
urs í kosningunum 2002.
„Við vitum öll að mikO og erfið
vinna bíður okkar. Þetta er spenn-
andi verkefni en það verður ekki
auðvelt," sagði þessi 45 ára gamla
prestsdóttir frá austurhluta Þýska-
lands við flokkssystkini sín.
ESB þrýstir
á Rússa
Evrópubandalagið (ESB) hefur
þrýst enn frekar á Rússa að hætta
stríðsrekstri i Tsjetsjeníu og hefur i
kjölfarið gert þeim ljóst að ESB-
löndin muni í maí næstkomandi
taka ákvörðun um hvort Rússum
verði vikið úr Evrópuráðinu.
Tilkynningin barst þegar Igor
Ivanov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, hélt til fundar við utanríkis-
ráðherra ESB i Lúxemborg en þar
var einnig lagt að Rússum að hætta
öllum hernaði í héraðinu.
Lengi vel stóð til að leysa fundinn
upp þar sem Rússar vildu ekki ræða
mál Tsjetsjeníu en utanrikisráð-
herra Rússa samþykkti að lokum að
ræða ástandið sem þar hefur ríkt.
í gerð einangrunaiglers
fyrir íslenskar aðstæður.
Glerborgargler er framleitt undir
gæðaeftirliti Rannsóknastofriunar
byggingariðnaðarins.
Dalshrauni 5 220 Hafnarfirði Sími 565 0000
Lenncm Leinis
us. Michael Grant