Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Side 4
Fréttir
ÞRIDJUDAGUR 30. MAÍ 2000
DV
Fékk 6,3 milljóna hús Þingvallanefndar gefins til brottflutnings en átti enga lóð:
Sveikst um að fjarlægja
sumarhús á Þingvöllum
- féllumst á skýringar mannsins, segir Björn Bjarnason, formaður Þingvallanefndar
„Þegar menn koma með röksemd-
ir 1 málum er eðlilegt að taka tilliti til
þeirra,“ segir Bjöm Bjamason,
menntamálaráðherra og formaður
Þingvallanefndar, um sumarbústað í
eigu ÞingvaUanefndar sem gefinn
var manni í fyrravor gegn því
stranga skilyrði að hann flytti húsið
á brott innan fárra vikna og jafnaði
og hreinsaði lóðina. Brottflutningur
sumarhússins hófst þó ekki fyrr en
nú í vor, heilu ári of seint, og standa
leifar af hús-
inu enn inn-
an þjóðgarðs-
ins, skammt
innan við
Hótel Val-
höll.
Á daginn
kom aö hinn
áhugasami
kaupandi átti
alls ekki visa
lóð undir
sumarbú-
staðinn þrátt
fyrir að hann
hafi skuld-
bundið sig til
að fjarlægja hann með aðeins nokk-
urra vikna fyrirvara. Margir mimu
hafa haft áhuga á húsinu á sínum
tíma en fallið frá að senda inn tilboð,
ekki síst vegna þess hversu stuttur
frestur var gefínn til að losa húsið af
staðnum.
Frá Eyrarbakka í Fljótshlíö
„Það komu fram skýringar frá
kaupandunum í fyrra sem við féllumst
á. Ég held að maðurinn, sem var aö
kaupa hafi verið að fá stað undir bú-
staðinn. Það er ekki flóknara en það,“
segir Bjöm Bjamason en vísar að öðm
leyti á Sigurð Oddsson, framkvæmda-
stjóra Þingvallanefridar.
„Sá sem keypti taldi sig vera að fá
lóð á Eyrarbakka og það var fallist á að
bíða. Það dróst hins vegar alltaf að
hann fengi lóðina og á endanum fékk
hann hana alls ekki. Þá fékk hann
aðra lóð austur í Fljótshlíð en þá var
komið fram á haust þannig að málinu
var frestað til vors. Hann hófst síðan
handa við að flytja húsið fyrir stuttu
og heldur væntanlega áfram á morgun
(þriðjudag) við að fjarlægja það sem
eftir stendur og ganga frá lóðinni,“ seg-
ir Sigurður Oddsson.
Hafa ekki keypt fleiri hús
Sigurður segir það hafa átt þátt í
biðlund Þingvallanefndar að húsið
sem um ræðir sé aflsérstakt og því hafi
þótt ástæða til að gefa kaupandanum,
sem hugðist endurreisa það á nýjum
stað, svigrúm til að útvega undir það
lóð.
Þeir mörgu sem sýndu sumarbú-
staðnum áhuga þegar hann var boðinn
út í aprfl 1999 en töldu að þeir þyrftu
að uppfyfla skilmála útboðsins til að
komast ókeypis yfir húsið geta því
nagað sig í handarbökin í dag.
Þingvallanefnd eignaöist sumarbú-
staðinn síðla árs 1998 þegar neíndin
nýtti forkaupsrétt sinn og gekk inn í
6,3 milljóna króna tilboð sem borist
hafði í bústaðinn, en hann stóð á leigu-
lóð í eigu ríkisins. Kaupin vom gerð til
að veita almenningi betri aðgang að
svæðinu. Að því er Sigurður Oddsson
segir hefur nefndin ekki keypt fleiri
eignir í þjóðgarðinum. -GAR
Fyrir Þingvailanefnd
Svona leit sumarbústaðurinn út sem Þingvallanefnd keypti
til niöurrifs á 6,3 milljónir króna.
Niðurstaða alþjóðlegs fundar vísindamanna sem rannsaka umferðarslys:
Fimmtungur umferðarslysa af völdum þreytu
Þreyta eða syfja veldur um fimmt-
ungi allra alvarlegra umferðarslysa í
lofti, á landi og á sjó er niðurstaða
fundar vísindamanna sem rannsaka
orsakir umferðaslysa og haldinn var
Stokkhólmi um helgina.
Að mati vísindamannanna er
þreyta stórlega vanmetin ástæða
slysa. Þeir benda á að samfélag þar
sem hjólin snúast allan sólarhringinn
sé uppspretta slysa af völdum ónógr-
ar hvíldar og óreglulegs svefntíma.
Langur vinnudagur er ekki endilega
hættulegastur, heldur tími sólar-
hringsins, hversu langt er liðið frá
fótaferð og hversu lengi bflstjórinn
svaf síðast segja vísindamennimir á
Karolinska sjúkrahúsinu í Stokk-
hólmi, sem skipulögðu fundinn.
Athygli vekur að fólk með svefn-
raskanir veldur mun fleiri alvarleg-
um umferðarslysum en aðrir og bent
er á að allt of algengt sé að vaktir
þeirra sem vinna við að stýra farar-
tækjum séu skipulagðar þannig að
líkamsklukka þeirra raskist eða þeir
fái og stuttan svefii.
En hvað er til ráða?
Ýmsar nýjungar sem auka öryggi
þreyttra bilstjóra eru að líta dagsins
ljós. Ein þeirra er nemi sem getur
komið í veg fyrir svokallaða harm-
Allt of algeng sjón
Umferðarslys eru því miöur daglegt
brauð en fimmtungur þeirra er, að
mati vísindamanna, af völdum
þreytu.
oníkuárekstra. Neminn hemlar með
innrauðu ljósi ef bílstjórinn gerir það
ekki sjálfur þegar þörf krefur. önnur
nýjungin er mælir sem nemur óreglu-
legt eða sérkennilegt aksturslag og
vekur bílstjórann með suði og blikki.
Loks má nefna áfengismælinn sem
kemur í veg fyrir að bflstjóri sem hef-
ur drukkið áfengi getir startað bfl
sínum.
Gallinn við þessi tæki er að þau
eru varla komin í fjöldaframleiðslu
enn og því dýr. Innan tíu ára má þó
gera ráð fyrir að þessi tæki verði
komin í notkun og stuðli þannig að
auknu umferðaröryggi. -ss
Hreiöur maríuerlu á snúrustaur
Þó maríuerlan sæki oft í að gera
hreiður sín í nánd viö mannabú-
staöi, þá er þetta hreiðurstæði í
Kópavoginum af nýrri geröinni. Mar-
íuerla er farfugl, kemur í apríl-maí og
flýgur til Afríku í lok ágúst-septem-
ber. Maríuerlan verpir oft tvisvaryfir
sumariö, eggin klekjast út á u.þ.b.
tveimur vikum og aörar tvær tekur
það ungana aö verða fleygir.
Síldarvertíð:
Dreginn í land
Síldveiöiskipiö Huginn VE dró
Berg VE úr síldarsmugunni í land á
Fáskrúðsfirði á sunnudagskvöldið.
Bergur haföi þá orðið fyrir vélarbil-
un en renniblíða var þá á miðunum
og hættán lítil. Veiði hefur gengið
fremur treglega það sem af er síld-
arvertiðinni en Víkingur AK datt
niður á góða veiði á mánudagsnótt
og er á landleið með um 1200 tonn.
Skipin eru flest að veiðum í Jan
Mayen-lögsögunni en í gærdag var
þar kaldi og veiði lítil. -jtr
Dalamenn ræða
sameiningu
DV. DALASÝSLU:_____________
Eins og DV greindi frá fyrr í vetur
þá fór hreppsnefnd Saurbæjarhrepps
fram á viðræðm- um hugsanlega sam-
einingu Saurbæjarhrepps, Dalabyggð-
ar og Reykhólahrepps en Reykhóla-
hreppur taldi það ekki tímabært. Á
fundi hreppsnefndar Dalabyggðar ný-
lega var tekið fyrir erindi frá hrepps-
nefiid Saurbæjarhrepps frá 16. mars
2000, þar sem óskað er eftir viðbrögð-
um hreppsnefhdar Dalabyggðar við
sameiningarviðræðum.
Hreppsnefiid Dalabyggðar samþykk-
ir að fela oddvita og sveitarstjóra að
kanna möguleika þess að ganga til
sameiningarviðræðna við Saurbæjar-
hrepp. Samþykkt var að tilnefiia Sig-
urð Rúnar Friðjónsson oddvita og Þor-
stein Jónsson hreppsnefiidarmann í
viðræðunefndina. Þann 1. desember
voru 680 íbúar í Dalabyggö og 95 i
Saurbæjarhrepp. -DVÓ
Veöriö í kvöld
Afram norðanátt
Búast má við norðlægri átt síðdegis og í
kvöld, víöa 5-10 m/s, en lægir smám saman
vestanlands. Dálítil slyddu- eða snjóél á
Noröaustur- og Austurlandi og skúrir viö suður-
og vesturströndina.
Sólargangur og sjávarföll
sœfeafifiv.',
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 23.26
Sólarupprás á morgun 03.24
Síödeglsflóð 16.12
Árdeglsflób á morgun 04.29
23.15
03.03
20.45
09.02
Skýrlngar á va&urtáknum
KviNDÁTT 10°,----HITI
ViNDSTYRKUR
I metrtnn & sckúndu
-10!
HEIOSKÍRT
3D o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
V,/ 'W' ©
RIGNiNG SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
Q §
ÉUAGANGUR PRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Helstu þjóðvegir fœrir
Á Möörudalsöræfum eru hálkublettir.
Annars eru allir helstu þjóövegir
landsins greiöfærir í dag, en
hálendisvegir lokaöir.
Skýjað með köflum
Búist er við norðlægri eöa breytilegri átt, 5-8 m/s og dálítilli rigningu
suöaustanlands á morgun. Annars staðar á landinu veröur skýjaö meö
köflum og þurrt aö mestu.
tflHuEMiiflj' sSÆihi&is
Vindur: \ J, 3-8 ,V» J Oj, Hiti 3“ til 10” OO Vindur: O ^" ©*/ Hiti 6” til 12” *v* *‘*‘
Búlst er vlð hægrl suölægrl Vestlæg átt og skúrlr
eöa breytllegri átt. Viöa sunnan- og vestanlands en
veröur léttskýjaö en skúrir bjart veöur austan til. Hlti
vestanlands. Hitl 3 tll 10 6 tll 12 stlg, mildast
stlg. austanlands.
Vindun > vjL/
^m/* ^
Hiti 6° til 14” v
Suölæg átt. Súld meö
köflum suövestanlands en
bjart veöur á Noröur- og
Austurlandl. Hltl 6 tll 14
stlg, hlýjast austan tll.
AKUREYRI skýjaö 0
BERGSTAÐIR úrkoma 0
BOLUNGARVÍK skýjaö 0
EGILSSTAÐIR 0
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 2
KEFLAVÍK léttskýjaö 2
RAUFARHÖFN snjóél O
REYKJAVÍK léttskýjaö 1
STÓRHÖFÐI rigning 3
BERGEN skúrir 7
HELSINKI skýjaö 11
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 10
OSLÓ rigning og súld 8
STOKKHÖLMUR 10
ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 6
ÞRÁNDHEIMUR rigning og súld 6
ALGARVE heiöskírt 24
AMSTERDAM skýjaö 10
BARCEL0NA léttskýjaö 17
BERLÍN skýjaö 8
CHICAGO hálfskýjað 11
DUBLIN léttskýjaö 7
HALIFAX léttskýjaö 5
FRANKFURT skýjaö 8
HAMBORG skúrir 9
JAN MAYEN snjókoma -2
LONDON rigning 10
LÚXEMBORG alskýjað 8
MALLORCA léttskýjaö 21
MONTREAL léttskýjaö 12
NARSSARSSUAQ alskýjaö 3
NEWYORK hálfskýjaö 11
ORLANDO léttskýjaö 24
PARÍS rigning 9
VÍN léttskýjaö 13
WASHINGTON heiöskírt 7
WINNIPEG léttskýjaö 10