Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Blaðsíða 11
11 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 Útlönd Bandarísk stjórnvöld ómyrk í máli eftir forsetakosningarnar í Perú: Fujimori ógn við lýðræð- ið í Rómönsku Ameríku Alberto Fujimori, forseti Perús, ítrekaði í gær að ekki hefðu verið brögð I tafli þegar hann var endur- kjörinn í síðari umferð forsetakosn- inganna á þriðjudag. Stjómarand- staðan neitaði að taka þátt í kosn- ingunum og bandarísk stjórnvöld fordæmdu stjórn Fujimoris og köll- uðu hana alvarlega ógn við lýðræð- ið í Rómönsku Ameríku. Hinn 61 árs gamli Fujimori var kjörinn í forsetaembættið í þriðja sinn á sunnudag eftir að stjómar- andstæðingurinn Alejandro Toledo dró framboð sitt til baka og hvatti kjósendur til að sitja heima. Toledo óttaðist að Fujimori myndi beita brögðum til að tryggja endurkjör sitt. Alþjóðlegir eftirlitsmenn höfðu viljað fresta kosningunum. Fujimori visaði á bug staðhæfmg- um Toledos um að hann væri ein- ræðisherra og sagðist ætla að senda utanríkisráðherra sinn til sérstaks fundar Samtaka Ameríkurikja í Kanada. Þar á ráðherrann að gefa réttar upplýsingar um kosningam- ar, eins og Fujimori kallar það. Nýendurkjörinn förseti fær heimsókn Alberto Fujimori, nýendurkjörinn forseti Perús, fékk mæta menn í heimsókn til sfn í forsetahöllina í Lima í gær. Innanríkisráðherrann Cesar Saucedo og tveir háttsettir foringjar úr her landsins komu til aö óska honum til haminglu. Fujimori ávarpaði perúsku þjóð- ina í gær og fullvissaði hana um að hann myndi vinna í þágu lýðræðis- ins._ „Ég lofa að valda ykkur ekki von- brigðum. Ég ætla að hefja sannkall- aða lýðræðisvæðingu Iandsins,“ sagði Fujimori sem fékk ekki nema rétt rúm flmmtíu prósent atkvæða, þrátt fyrir að hann væri einn í framboði. Bandarísk stjómvöld voru harð- orð í garð F'ujimoris í gær. Talsmað- ur utanríkisráðuneytisins í Wash- ington sagði að þar á bæ væri ekki hægt að taka kosningamar gildar þar sem kvartanir alþjóðlegra eftir- litsmanna um að ekki hefði gefist tími til að sannreyna nýtt atkvæða- talningarkerfi voru ekki teknar gildar. Bóndasonurinn Toledo, sem braust til mennta og starfaði um tíma sem hagfræðingur hjá Alþjóða- bankanum, sagði að hann myndi koma i veg fyrir að Fujimori tækist að sverja embættiseiðinn 28. júlí með mótmælagöngu til höfuðborg- arinnar úr öllum landshornum. Börn í Sierra Leone Sér fyrir endann á átökum? Fulltrúar SÞ fari til Sierra Leone Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna sögðu á mánudaginn að í undirbún- ingi væri að senda friðargæslu- menn að nýju til Sierra Leone og leitast þannig við að ljúka borgara- styrjöld sem staðið hefur í landinu síðastliðin 9 ár ef frá er talið sam- komulag sem náðist á síðasta ári um afvopnun skæruliða. Stuðningsmenn yfirvalda þar í landi hafa þegar náð borginni Luns- ar á sitt vald og hafa skæruliðar flutt sig um set norðar í landið þar sem er að finna auðugar demanta- námur. Leiðtogar Vestur-Afríkuríkja hafa ákveðið að leiðtogi skæruliða, Foday Sankoh, verði fluttur úr landi og þá fyrst verði hægt að rétta í máli hans. Töfralæknar Töfralæknirinn Katuza frá Mexíkó situr hér ásamt lærisveini sínum í ævafornu gufubaði með jurtir við hönd og kyrjar. Gufubaðið var hannað á sínum tíma til að lækna sjúkdóma og önnur líkamleg óþægindi. Stjórnarflokkur á Grænlandi: Andvígur flugskeytavarnar- kerfi í herstöðinni í Thule Annar stjómarflokkanna á Græn- landi, Inuit Ataqatigiit (LA), hefur lýst andstöðu sinni við áform bandarískra stjómvalda um aö setja upp eldflaugavarnarkerfi í herstöð- inni í Thule, að því er grænlenska útvarpið greindi frá í gær. Herstöðin í Thule á Norðvestur- Grænlandi myndi gegna lykilhlut- verki í eldflaugavamarkerfi Banda- ríkjanna. Kerfinu er ætlað að verja Bandaríkin gegn eldflaugaárásum óvinveittra ríkja. „Grænland er hluti alþjóðasamfé- lagsins og heimskautaþjóðanna. Ilokkurinn getur ekki fallist á áform Bandaríkjanna um svokallað- ar flugskeytavamir," segir á heima- Jonathan Motzfeldt Félagar Motzfeldts I grænlensku heimastjórninni eru á móti eld- flaugavarnarkerfi í Thuie. síðu grænlenska útvarpsins. Þar er vitnað í ályktun sem samþykkt var á landsfundi IA um helgina. í álykt- un flokksins kemur fram að Græn- land og allt norðurheimskautssvæð- ið eigi að vera vopnlaust. Þótt grænlenska heimastjórnin hafi viðtæk völd ná þau þó ekki til utanríkis-, varnar- og öryggismála sem eru á ábyrgð stjórnvalda í Kaupmannahöfn. Hinn stjómarflokkurinn á Græn- landi, jafnaðarmannaflokkurinn Si- umut, vill ekki leyfa neitt sem myndi brjóta í bága við samning um takmörkun langdrægra kjarna- flauga frá árinu 1972 sem Bandarik- in og Sovétríkin undirrituðu. Vertu ekki í fýlu Nýjung Air Sponge umhverfisvænn lyktargleypir iFæst nú í:Húsasmiöjunni, Garðheimum og Bensínstöðvum Esso. Pontiac Sunfire oz-» 039* Argerð: 1996 Ekinn: 54.200 km Velarstærð: 2200cc 5g. Litur: Vinrauður Aukahlutir: Geislaspilari, þjófa- __ vörn, spoiler og álfelgur. &) TOYOTA Verð: 1.090.000,- kr. Betnnotad.rbflar Sími 570 5070

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.