Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Blaðsíða 8
8
Viðskipti__________
Umsjón: Viðskiptabiaöið
Marel afhendir fyrstu
kjúklingaflæðilínuna
í sumar mun Marel afhenda
fyrstu flæðilínu fyrir kjúkling auk
MPS hugbúnaðar til viðskiptavinar
í Bandaríkjunum. Flæðilínan bygg-
ist á sömu eiginleikum og flæðilín-
ur fyrir flakasnyrtingu, sem eru vel
þekktar í frystihúsum hér á landi og
erlendis. Þessi fyrsta flæðilina sinn-
ar tegundar mun styrkja markaðs-
sókn Marel á sviði kjúklingaiðnaðar
verulega og bindur fyrirtækið mikl-
ar vonir við árangur af þessu fyrsta
verkefni.
Flæðilínur hafa veriö í stöðugri
þróun allan síðasta áratug og er
Marel nú í fararbroddi hvað varðar
framleiðslu á flæðilínum fyrir fisk-
Stuttar fréttir
Samstarf Klaks,
Talentu
og Uppsprettu
Klak ehf., dótturfélag Nýherja hf„
Talenta hf. og Uppspretta SA hafa
undirritað samstarfssamninga sem
fela í sér að aðilamir muni vinna
saman að þvi að byggja upp og fjár-
magna sprotafyrirtæki á sviði upplýs-
ingatækni.
Áhættufjárfestingarsjóðirnir
Talenta, sem er í vörslu íslandsbanka-
FBA hf„ og Uppspretta, sem er í
vörslu Kaupþings hf„ munu m.a.
skoða verkefni með fjármögnun
þeirra að markmiði, veita ráðgjöf á
sviði fjármögnunar og aðstoða við
uppbyggingu á tengslaneti við erlenda
íjárfesta. Klak mun hins vegar leggja
sprotafyrirtækjunum til húsnæði og
aðstöðu, aðgang að búnaði, aðgang að
rekstrarumhverfi, ráðgjöf á sviði
stjórnunar og markaðsmála, auk
reynslu og þekkingar á uppbyggingu
fyrirtækja á sviði upplýsingatækni.
„Með tilkomu Klaks og samstarfs
þess við öfluga fjárfesta býðst frum-
kvöðlum nýr kostur í því að fjár-
magna og þróa hugmyndir sínar með
þeim hraða sem alþjóðlegt umhverfi á
sviði upplýsingatækni krefst," segir í
frétt frá Nýherja. Þar er bent á að
vandamál frumkvöðla og sprotafyrir-
tækja í dag eru ekki síst tengd stjóm-
un, rekstri og markaðssetningu og
hefur því sérstaklega veriö hugað að
þessum þáttum í þeirri þjónustu sem
Klak veitir.
„Það er von samstarfsaðilanna að
framkvæði þeirra muni stuðla að enn
frekari uppbyggingu þekkingariðnað-
ar á íslandi og þannig leggi þeir sitt af
mörkum til að nýta þau gríðarlegu
tækifæri sem framþróun upplýsinga-
tækni á alþjóðavettvangi hefur skap-
að,“ segir í frétt frá Nýherja.
Flytjandi semur
um dreifingu
símaskrárinnar
Talenta-Hátækni á markað í júní
- fyrsta erlenda félagið á Verðbréfaþingi íslands
I morgun hófst hlutaijárútboð
Talentu-Hátækni hf„ áhættufjárfest-
ingarsjóðs sem fjárfestir í innlendum
og erlendum fyrirtækjum á sviði upp-
lýsingatækni, fjarskipta og tölvuþjón-
ustu. Sjóðurinn er rekinn af Talentu
hf„ dótturfélagi Íslandsbanka-FBA.
Verðbréfaþing íslands hf. samþykkti
að skrá Talentu-Hátækni hf. á Vaxtar-
lista VÞÍ, enda verði öll skilyrði
skráningar uppfyllt. Sjóðurinn er þar
með fyrsta erlenda félagið sem skráð
er á VÞÍ.
Nýtt hlutafé Talentu-Hátækni
(Talenta Luxembourg Holding S.A., C-
deild), sem nemur 30,5% af nafnverði
útgefmna hlutabréfa eða 350 milljón-
um króna að nafnverði, verður selt
með áskriftarfyrirkomulagi á genginu
1,50. Hámarkshlutur hvers aðila í út-
boðinu eru 20 milljónir króna að nafn-
verði og lágmarkshlutur 100.000 krón-
ur að nafnverði. Útboðið hófst í morg-
un og ráðgert er að sölutímabili ljúki
þann 2. júní, eða fyrr seljist allt hluta-
fé fyrir þann tíma.
Talenta hf. er rekstraraðili sér-
hæfðra sjóða sem fjárfesta í helstu
vaxtargeirum atvinnulífsins. „Útboð
þetta og skráning er fyrir marga hluti
sérstakt," segir Bjarni K. Þorvarðar-
son, framkvæmdastjóri fyrirtækisins
í samtali við Viðskiptablaðið.
„Talenta-Hátækni er fyrsta erlenda fé-
lagið sem skráð er á Verðbréfaþingi
Islands, en félagið er starfrækt í Lux-
embourg." Bjarai bendir einnig á að
þetta er í fyrsta skipti sem það sölu-
fyrirkomulag er viðhaft i tengslum
við nýskráningu á VÞÍ að þeir hafa
forgang sem fyrstir skrá sig fyrir
hlutafé, þar sem móttöku áskrifta
verður hætt þegar allt hlutaféð er selt.
Tilgangur útgáfu nýs hlutafjár er
að afla fjármagns til frekari fjárfest-
inga í samræmi við fjárfestingar-
stefnu Talentu-Hátækni. Við fjárfest-
ingarákvarðanir sjóðsins er litið til
þess að fyrirtæki hafi fram að færa
nýja tækni eða nýja notkun á eldri
tækni sem skapað geti aukinn hagnað
eða hagsæld, t.d. í formi aukinnar
framleiðni, aíkastagetu eða frítima.
Íslandsbanki-FBA er umsjónaraðili
hlutafjárútboðsins og skráningarinn-
ar. Einungis verður tekið á móti raf-
rænum áskriftum á vef FBA,
www.fba.is.
iðnað og hugbúnaði tengdum þeim.
Markaðssetning á flæðilínum í
kjúklingaiðnað hófst á þessu ári í
Bandaríkjunum en forprófanir
höfðu farið fram í Englandi í fyrra á
notkun flæðilínu við úrbeiningu á
fuglakjöti. í frétt frá Marel kemur
fram að kjúklingaflæðilínan var
fyrst kynnt á vörusýningu í Atlanta
i janúar sl. og vakti mikla athygli
kjúklmgaframleiðenda. Meðal ann-
ars var þessi vara kynnt sem ein
áhugaverðasta nýjungin á sýning-
unni í fagtímaritinu „Poultry". í
kjölfar árangursríkra prófana hjá
stórum viðskiptavinum Marels í
bandarískum kjúklingaiðnaði skrif-
aði Marel USA, dótturfyrirtæki
Marels, undir samning við Foster
Farms, stærsta kjúklingaframleið-
anda á vesturströnd Bandaríkjanna,
um kaup á fyrsta kerfmu af þessu
tagi.
Kostir kjúklingaílæðilínunar fel-
ast í einstaklingseftirliti með nýt-
ingu, afköstum og gæðum við úr-
beiningu, sem byggist á Marel MPS
hugbúnaði og sér hann um að safna
og birta gögn til ákvarðanatöku fyr-
ir framleiðslustjóra. Auk þess er
hráefnisflæði, vinnuaðstaða og
gæðaeftirlit stórbætt miðað við nú-
verandi vinnsluaðferðir. Þessi
fyrsta flæðilína sinnar tegundar
mun styrkja markaðssókn Marels á
sviði kjúklingaiðnaðar verulega og
bindur fyrirtækið miklar vonir við
árangur af þessu fyrsta verkefni,
þar sem verksmiða Foster Farms í
Wasington riki mun verða þunga-
miðja áframhaldandi markaðssetn-
ingar á hugbúnaði og hátæknilausn-
um.
Nú standa yfir lokaprófanir á
flæðilínunni og í lok vikunnar verð-
ur hún send sjóleiðis til Bandaríkj-
anna.
Jón Birgir Gunnarsson og Magnús Rögnvaldsson við nýju kjúklingaflæðilín-
una.
Flytjandi hefur
gert samning við
Landssímann um
flutning og dreif-
ingu á símaskránni
2000. Um er að ræða
nýjung í dreifingu
símaskrárinnar
sem hingað til hefur
verið dreift frá póst-
húsum landsins.
Skráin verður alhent almenningi á
öllum afgreiðslustöðvum Flytjanda
um land allt sem eru um 80 talsins.
í frétt frá Flytjanda kemur enn
fremur fram að gerður hefur verið
samningur við Skeljung og verður
simaskráin afhent á öllum Shellstöðv-
um í landinu sem eru rúmlega 50 tals-
ins. Þar með getur almenningur nálg-
ast símaskrána utan hefðbundins
skrifstofutíma en flestar Shellstöðvar
eru opnar fram á kvöld. Þá verður
hægt að kaupa haröspjaldasímaskrá
fyrir 400 kr. á þessum stöðum.
Hægt verður að
sækja síma-
skrána á næstu
Shellstöð.
Strik.is og Tæknival hf. með samstarfssamning
- náið samstarf um tæknifréttir og tilboð
Asgeir Friðgelrsson, framkvæmdastjóri Striks.is, og Ámi
Sigfússon, framkvæmdastjórl Tæknivals, glaðbeittir eftir
undirrltun samningsins.
Strik.is og Tæknival hf.
hafa gert með sér samning
um náið samstarf fyrirtækj-
anna. Samstarfið felst meðal
annars í því að Tæknival
leggur til efni á tölvuvef
Striks.is og býður tilboðsvör-
ur á Verslunar- og þjónustu-
vef Striks sem einnig eru á
vef Tæknivals eða BT.
Samstarf Striksins og
Tæknivals um efni felst í því
að gestum Striksins er boð-
inn auðveldur aðgangur að
völdu efni á heimasíðu
Tæknivals en þar birtast
nýjar fréttir, tengdar tölv-
um, tækni og Neti, á degi
hverjum. Fyrirsagnir fréttanna munu
birtast samtímis á Strik.is, samkvæmt
samningi fyrirtækjanna, og með þvi
að smella á fyrirsögn frétta fara les-
endur Striks.is yfir á heimasíðu
Tæknivals.
Verslunarsamstarfið tekur
samkvæmt samningnum til
tilboða frá Tæknivali eða BT
- sem er heimilismarkaður
Tæknivals - og kveður á um
fimm til tíu tilboð sem ávallt
verða í boði á Verslunar- og
þjónustuvef Striks, undir
vefnum Tölvur.
Fyrirtækin tvö, Strik.is og
Tæknival hf„ hafa á undan-
fornum mánuðum unnið
saman að þróun Skólatorgs-
ins í samvinnu við Selásskóla
og Skýrr hf. Skólatorgið er
gagnvirkt vefútgátu- og sam-
skiptakerfi fyrir skóla og
heimili. Skólatorgið opnar vefsetur
sitt í ágúst.
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
DV
HEILDARVIÐSKIPTI i 162 m.kr.
Hlutabréf 96 m.kr.
Bankavixlar 48 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Tryggingamiðstöðin 15 m.kr.
j 0 Islandsbanki-FBA 11 m.kr.
Össur 10 m.kr.
MESTA HÆKKUN
: © Nýheiji 8,7%
! Q Marel 5,4%
: © Pharmaco 4,9%
MESTA LÆKKUN
o Þorbjörn hf. 7,8%
0 Vinnslustöðin 5,8%
0 Tryggingamiðstöðin 4,9%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.545 stig
Breyting O -0,48%
BaMiB
Islenski hui
inn fjárfestir
íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hf.
hefur keypt kr. 316.754 að nafnverði af
nýju hlutafé í Softa ehf. en með því er
sjóðurinn að nýta þann forgangsrétt
sem félagið nýtur til að skrá sig fyrir
nýju hlutafé í Softa ehf. Fyrir átti sjóð-
urinn 23,08% í félaginu en með þessari
aukningu verður hluturinn 25,78%.
Auk þessa hafa íslenski hugbúnaðar-
sjóðurinn og alþjóðlega fjarskiptafyrir-
tækið Sonera, í sameiningu keypt um
45% hlut í ZOOM hf. Hlutur íslenska
hugbúnaðarsjóðsins er 13,30%. Enn-
fremur hefur sjóðurinn ásamt öðrum
fjárfestum fest kaup á nýju hlutafé í
LandMati Interaational hf.
MESTU VtÐSKiPTt
j 0 Islandsbanki
10 Eimskip
| Q Össur
v. Búnaðarbanki
S© FBA
síöastliöna 30 daga
~ 348.252
328.382
277.215
249.022
232.630
0 Samvinnuf. Landsýn 21%
0 Fiskiöjus. Húsavíkur 20%
0 Samvinnusj. íslands 10 %
: 0 Frumherji 8%
: 0 SR-Mjöl 6%
8.', í 4--Í í: W=13 < ' ,-,4i síöastl/öna 30 daea
0 Fiskmarkaöur Breiöafjarðar 26%
0 Stálsmiöjan 25%
0 Þorbjörn 21%
: 0 Þróunarfélagiö 19%
0 ÚA 19%
Annað stærsta fjarskiptafyr-
irtæki Kína á markað
China Unicom, sem er annað
stærsta fjarskiptafyrirtæki Kina, ætl-
ar að bjóða út 2.459 milljón nýja hluti
í hlutafiárútboði sem verður undan-
fari skráningar félagsins á hlutabréfa-
markað.’Ætlunin er að skrá hlutabréf
China Unicom bæði í Bandaríkjunum
og í Hong Kong. Gert er ráð fyrir að
útboðið muni skila fiórum milljörðum
bandaríkjadala i nýtt hlutafé.
IBHpowjones 10299,24 O 0,24%
f*lNIKKEI 16228,90 O 0,10%
HBs&p 1378,02 O 0,25%
Pul NASDAO 3205,11 O 0,01%
B^ftse 6257,60 O 0,65%
:Hdax 7060,05 O 0,62%
B IcAC 40 6233,45 O 0,46%
BSM 30.5.2000 kl. 9.15
KAIIP SALA
SlM Dollar 75,420 75,800
Stsl Pund 113,080 113,660
8*1 Kan. dollar 50,250 50,560
£ £1 Dónsk kr. 9,4730 9,5250
rjtíÍNorskkr 8,4780 8,5250
.j "'■{ Sœnsk kr. 8,3940 8,4400
BBR.martc 11,8869 11,9583
t • 1 Fra. ftanki 10,7745 10,8393
i B B Belg. franki 1,7520 1,7625
im Sviss. franki 45,0000 45,2500
CShoII. gyllini 32,0714 32,2641
(“3 Þýskt mark 36,1361 36,3533
ZH •*- I'ra 0,03650 0,03672
| QB Aust. sch. 5,1362 5,1671
iE' li Port. escudo 0,3525 0,3546
2H|spá. pcseti 0,4248 0,4273
■I * 1 Jap. yen 0,70520 0,70940
•; Irskt pund 89,740 90,279
SDR 99,8000 100,4000
^ECU 70,6761 71,1008