Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
DV
5
Fréttir
Skagfirðingar bera landbúnaðarráðherra á höndum sér:
Fékk lúxushnakk úr
gjöf
Einstæöur gripur
Guöni Ágústsson landbúnaðarráðherra með hnakkinn góða ásamt
starfsfólki söölasmíðastofunnar Hestsins á Sauðárkróki.
að
DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON.
Þakkaö fyrir sig
Guðni búinn að taka við hnakknum og ávarpar eigendur söðlasmíðastofunnar Hestsins, þau Hannes
Friöriksson og Þórdísi Jónsdóttur.
kom. Guðni byrjaði daginn á að
heimsækja starfsfólk Búnaðarsam-
bands Skagfirðinga og eftir að hafa
heimsótt söðlasmíðastofuna Hest-
inn, var litið við hjá Sveini Guð-
mundssyni og stóðið hans skoðað.
Þá var voru þau Ingibjörg og Sig-
urður, mjólkurbændur í Vík, heim-
sótt og ráðherrann fór einnig í kaffi
til þess þekkta hestafólks Skafta og
Hildar á Hafsteinsstöðum. Þannig
báru Skagfirðingar landbúnaðarráð-
herrann á höndum sér þegar hann
kom í heimsókn.
En aftur að hnakknum úr hlýra-
leðrinu. Það er enskur heildsali sem
selur þeim hjá Hestinum nautsleðr-
ið sem þau nota í framleiðsluna.
Þessi maður ferðast um allan heim
til að selja leður og hann var yfir sig
hrifinn af hnakknum og fullyrti að
svona framleiðsla væri hvergi ann-
ars staðar til í heiminum.
-ÞÁ
hlýraleðri
DV, SAUDÁRKRÓKI:
Guðni Agústsson landbúnaðar-
ráðherra fór aldeilis ekki tómhent-
ur heim úr for sinni til Skagafjarð-
ar nú fyrir helgina. Þá heimsótti
hann ýmsa staði er tengjast land-
búnaðinum í héraðinu, en á söðla-
smiðastofunni Hestinum færði
starfsfólkið ráðherranum forkunn-
arfallegan hnakk úr hlýraleðri, og
er hann sá eini í heiminum sem vit-
að er um úr slíku efni en fiskroð er
einmitt sútað á Króknum.
Mikill undrunarsvipur kom á
ráðherrann en hann þakkaði fyrir
sig á viðeigandi hátt: „Góðar eru
gjafir ykkar en meira fmnst mér
samt um þann hug og vináttu sem
að baki býr. Þaö verður stoltur reið-
maður sem heldur héðan úr hér-
aði,“ sagði Guðni í ávarpi til starfs-
fólksins.
Hannes Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Hestsins, sagði þegar
hann afhenti Guðna hnakkinn að
starfsfólkið væri á einu máli um að
ráðherrann ætti það inni hjá Skag-
firðingum að fá eilítinn þakklætis-
vott fyrir framgöngu sína í málum
þeim til handa. Auk þess yrði ráð-
herrann náttúrlega að hafa eitthvað
verulega veglegt undir sér í hópreið-
inni á landsmótinu i sumar.
Það var vitaskuld afgreiðsla ráð-
herrans á Hestamiðstöð íslands í
Skagafjörð sem Hannes I Hestinum
vék þarna að en fyrir það mál er
Guðni án efa langvinsælasti ráð-
herrann í Skagaflrði. Móttökumar
voru líka góðar hvar sem hann
Fyrsti aðalfundur Einingar-Iðju í Eyjafirði:
Tvöfalda á vinnudeilusjóðinn
DV, AKUREYRI:_____________________
Aðalfundur Einingar-Iðju var
haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri.
Þetta var fyrsti aðalfundur félagsins
en það var sem kunnugt er stofnað
fyrir ári síðan við sameiningu
Verkalýðsfélagsins Einingar og
Iðju, félags verksmiðjufólks á Akur-
eyri og nágrenni. Eining-Iðja er
þriðja stærsta stéttarfélag landsins
og það langstærsta utan Reykjavik-
ursvæðisins.
Fjárhagsleg afkoma félagsins á
árinu 1999 var lakari en vonast
hafði veriö eftir. Tæplega 6,5 millj-
óna króna tap varð af reglulegri
starfsemi en vegna mikilla endur-
bóta á orlofshúsum félagsins sem
allar eru gjcddfærðar á árinu, sam-
tals að upphæð 21,7 milljónir króna,
varð 20,7 milljóna króna halli á or-
lofssjóði.
„Þetta ár var okkur dýrt að ýmsu
leyti. Þótt sameining félaganna hafi
sem slik gengið sérlega vel þá kost-
aði hún engu að síður töluverða
fjármuni og þótt fjárhagslegur ábati
verði af sameiningunni til lengri
tíma litið er hann ekki farinn að
koma fram í reikningum síðasta
árs. Undirbúningur kjarasamninga
og kjarasamningaviðræður kostuðu
líka sitt, sem og endurbætur á Al-
þýðuhúsinu. Stjóm félagsins hefur
nú ráðist í ákveðnar aðgerðir sem
eiga aö snúa þessu við en þó er ljóst
að yflrstandandi ár getur einnig
orðið kostnaðarsamt. Annars ein-
kenndist árið af því hversu marga
fundi við héldum og þar bar hæst
undirbúning kjarasamningavið-
ræðna. Ég get fullyrt að félagið hef-
ur aldrei staðið jafn vel að þeim
málum. Niðurstöður samninganna
hefðu hins vegar þurft að vera
betri,“ segir Bjöm Snæbjömsson,
formaður Einingar-Iðju.
Sem fyrr er sagt varð verulegur
halli á orlofssjóði og tap félagssjóðs
jókst einnig nokkuð á milli ára, úr
6,3 milljónum króna í 10 milljónir
króna. Hins vegar jókst hagnaður
vinnudeilusjóðs og var 6,3 milljónir
Björn
Snæbjömsson
Endurkjörinn
formaöur
Einingar-lðju.
króna á árinu og
fræðslusjóður
skilaði einnig
nokkrum hagn-
aði. Rekstur
sjúkrasjóðs var
áfram lítillega
neikvæður en
greiðslur dagpen-
inga úr sjóðnum,
sem vega lang-
þyngst í rekstri
hans, námu 25,1
milljón króna á árinu. Rekstur ann-
arra sjóða var hefðbundinn.
Á aðalfundinum voru samþykkt-
ar nokkrar breytingar á reglugerð
sjúkrasjóðs. Tímabilum sem dag-
peningar eru greiddir var fækkað
en fyrsta tímabilið lengt, útfarar-
styrkur var festur í einni tölu og
reglum um endurgreiðslu fyrir
sjúkranudd breytt ásamt því sem
endurgreiðslan var hækkuð. Þá var
samþykkt að hækka félagsgjald í
1,3% og er tilgangur þess tvíþættur.
Annars vegar er ákvæði í síðustu
samningum um hærra framlag í
starfsmenntasjóð og hins vegar er
verið að hækka framlag í vinnu-
deilusjóð úr 0,1% í 0,25% með það
að markmiði að tvöfalda vinnu-
deilusjóðinn á samningstímanum.
Hann er nú um 60 milljónir króna
en stefnt er á að hann verði um 120
milljónir króna þegar samningar
eru næst lausir.
-gk
íslensku þolfimimeistararnir Jóhanna Rósa og Halldór:
leið á heimsmeistaramót
„Þetta verður hörkubarátta
enda erum við að keppa við at-
vinnumenn," segir Jóhanna Rósa
Ágústsdóttir sem heldur út til
Þýskalands í dag ásamt Halldóri
B. Jóhannssyni til að keppa á
heimsmeistaramótinu í þolfimi
sem fram fer í bænum Riesa um
næstu helgi. Rósa og Halldór eru
bæði íslandsmeistarar í greininni
og hafa mörgum sinnum áður
keppt á mótum erlendis. Halldór
lenti í 3. sæti á heimsmeistaramót-
inu í fyrra svo hann hefur titil að
verja og Jóhanna Rósa vonast til
þess að komast sem næst úrslitun-
um en hún lenti í 20. sæti á mót-
inu í fyrra.
Ekki með í hópakeppninnl
Fyrir utan keppni í einstaklings-
flokkum er einnig hópakeppni á
mótinu. íslendingar hafa hins vegar
ekki sent kandídata í hópakeppnina
síðan 1996 en þá lenti íslenski hóp-
urinn í 16. sæti og var Jóhanna
Rósa í þeim hópi.
„Það er ekki um svo marga ein-
staklinga að ræða til þess að mynda
hóp með,“ segir Halldór sem kosinn
Heimsmeistaramót fram undan
Jóhanna Rósa og Halldór á góðri
stund á heimsmeistaramótinu í fyrra
sem haldiö var í Hannover en þar
lenti Halldór í 3. sæti.
var fímleikamaður síðasta árs og
ýjar að því að íslenskir þolfimendur
séu svo miklir egóistar að þeim
finnist best að æfa einir.
Undirbúningurinn undir mótið
hefur gengið vel hjá islensku
þolfimimeisturunum en þó hefur
Halldór þurft að taka tillit til
meiðsla sem hann hlaut á alþjóð-
legu móti fyrir skömmu. Einnig eru
þau bæði 1 háskólanámi og vinnu
með því þannig að það hefur tekiö
sinn tíma frá æfmgunum. „Ég verð
mjög svekktur ef ég kemst ekki í úr-
slit,“ segir Halldór sem segist þó ef-
ast um að hann geti sigrað sigur-
vegarann frá því í fyrra en þó skyldi
maður aldrei segja aldrei. -snæ