Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 Fréttir DV Meintur morðingi sjónvarpsstjörnunnar Jill Dando: Trúi ekki að þetta sé morðinginn - segir Jakob Frímann Magnússon, sem þekkir til ákærða „Þetta var einn af okkar smærri bræðrum, lítil- magni sem hafð- ist gjarnan við á kaffihúsi þvi í Lundúnum sem íslendingar vöndu komur sín- jjn Dando ar á. Þess vegna Myrtfyrir þekktum við utan heimili hann og ég er S/tt/ ekki frá því að Lundúnum fyrir við höfum séö rumu QrL hann daglega ....... þarna á kafííhúsinu í flmm ár,“ sagði Jakob Frímann Magnússon um Lundúnabúann, Barry Bulsara, sem ákæröur hefur verið fyrir Jakob Frímann Magnússon Hitti meintan moröingja á kaffíhúsi daglega í fímm ár. ur fyrir morðið morðið á sjón- varpsstjörnunni Jill Dando en hún var skotin fyrir utan heimili sitt í Lundúnum fyrir rúmu ári. Síðan þá hefur Lund- únalögreglan leit- að morðinjga sjónvarpsstjöm- unnar án árang- urs þar til Barry Bulsara var hand- tekinn og ákærð- rr í vikunni. Kynlegur kvistur „Ég trúi ekki að Barry sé morð- inginn og hvað þá að honum skyldi takast að leyna gjörðum sínum svo lengi. Ég er ákaflega vantrúaður á þetta en á hitt ber að líta að lögregl- unni gæti auðveldlega tekist að klína á hann morðinu ef enginn annar finnst. Barry Bulsara er ósköp ólánlegur og eiginlega það sem við hér á íslandi köllum kyn- legan kvist,“ sagði Jakob Frímann. Kaffihúsið þar sem íslendingam- ir í Lundúnum og Barry Bulsara vöndu komur sínar á heitir Unique og er rekið af írönskum vetinga- manni sem sá aumur á Barry og notaði hann til sendiferða og ann- arra viðvika þegar þurfti gegn kaffi- bolla. Kaffihúsið er staðsett í næstu götu við heimili hinnar myrtu sjón- varpsstjörnu en gegnt heimili henn- ar bjó Jakob Frímann sjálfur. Að sögn Jakobs hafði Barry mikið yndi af því að sýna íslendingum og öðr- um gestum á Unique myndir af frænda sínum, Freddy heitnum Mercury, söngvara Queen: Frændi Freddy Mercury? „Engin trúði þvi að þeir væru frændur en samt sýndi hann okkur myndir af sér og Freddy saman og sagðist hafa erft eitthvert fé að hon- um látnum. Hitt þykir mér þó ótrú- legra að Barry Bulsara sé hinn raunverulegi morðingi Jill Dando,“ sagði Jakob Frímann. -EIR Enn sama misskiptingin - segir Einar Karlsson DV,~STYKKISHÓLMI: Verkalýðsfélag Stykkishólms fagnaði 85 ára afmæli sinu í Félags- heimili Stykkishólms á verkalýðs- daginn 1. maí. Fram kom meðal annars í ræðu formannsins, Einars Karlssonar, að þrátt fyrir 85 ára framþróun ríkti enn sama misskipt- ingin, bæði félagslega og fjárhags- lega, þegar fyrirtæki veltu ofsa- gróða en segðu á sama tíma nei við launahækkunum láglaunafólks. Guðmundur Gunnarsson, formað- ur Rafiðnaðarsambandsins, hélt ræðu í afmælinu og minnti menn á að vera á varðbergi gagnvart kröf- um um aukinn vinnutíma og tók sem dæmi aðbúnað verkafólks þeg- ar vinna hófst klukkan 5 að morgni og endaði klukkan 22 án matartíma þar sem menn höfðu ekki rétt á slíku þá. -DVÓ DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON Námsfólk á vegamótum Suðurlandsstúdentar og brautskráöir nemendur afýmsum brautum Fjöibrautaskóia Suöurlands. Þetta unga fólk stendur nú á vissum vegamótum í lífi sínu og fer í ýmsar áttir í námisínu. Fyrsta skóflustungan: Iðnaðarhverfi í Grundarfirði 102 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Suðurlands: Hluti nemenda far- PVTgRUNDARFIRDI: Björg Agústsdóttir sveitarstjóri tók í liðinni viku fyrstu skóflustung- una að nýju iðnaðar- og athafnsvæði í Grafarlandi við Kvemá. Töluvert hefur verið byggt af iðnaðarhúsnæði í Grundarfirði á síðustu árum og var því þörf á að taka nýtt svæði undir slíkar lóðir. Það var Erla Bryndís Kristjánsdóttir, landslagsarkitekt á Teiknistofunni Eik ehf., sem vann deiliskipulag svæöisins. Fyrsta skóflustungan var tekin fyrir 290 fermetra stálgrindar- skemmu sem Ásgeir Valdimarsson hyggst láta reisa undir útgerðarstarf- semi sína og telur líklegt að húsið muni risa á timabilinu ágúst-septem- ber. Þegar hefur veriö úthlutaö fimm lóðum á svæðinu. -DVÓ Borgnesingar jarðgera DV, BORGARNESI: Auglýst verður eftir 20 fjölskyld- um í Borgarbyggð til að stunda jarð- gerð í tilraunaskyni. Á fundi bæjar- ráðs Borgarbyggðar á dögunum vom lagðar fram tillögur í jarðgerð- armálum. Lögð var fram greinar- gerð Stefáns Gíslasonar og aögeröa- áætlun varöandi jarögerð lifræns úrgangs, val á safnkössum og fleira. Samþykkt var að kaupa 23 safn- kassa af þremur mismunandi gerð- um. -DVÓ tölvuvæddur næsta ár - aðstoðarskólameistari kvartaði yfir lakari skólasókn DV, SELFOSSI:_________________ 102 nemendur brautskráðust frá Fjölbrautaskóla Suðurlands fyrir skömmu. Af þessum hópi voru 66 að ljúka stúdentsprófi. Þeir 36 nemendur sem voru að ljúka námi af öðram brautum voru flestir að klára nám á iðn- brautum, auk meistaranáms í nokkrum iðngreinum og þrír nemendur brautskráðust af hússtjómarbraut. í máli Örygs Karlssonar að- stoðarskólameistara við út- skriftina kom fram að aldrei hafi fleiri nemendur verið skráðir í skólann en á önninni sem nýliðin er, eða alls 686. Að meðaltali var hver nemandi skráður i 16,3 einingar í upp- hafi annar. 79,65% eininganna sem lagðar voru undir stóðust. Meðalnemandinn lauk því 13,1 einingu. örlygur sagði að skólasókn hafi verið heldur slakari en oft áður ein- ungis 36% nemenda hafi verið með 8-10 i skólasókn. Á nýliðinni vorönn var í fyrsta skipti frá stofnun skólans ekki kennt í öldungadeild. Á undanfom- um árum hefur dregiö úr aðsókn að öldungadeildinni auk þess sem menntamálaráðuneyti hefur gert auknar nýtingarkröfur í deildinni. Því voru fjárveitingar á fjárlögum fyrir árið 2000 ónógar til að halda deildinni úti á vorönn miðaö við nemendafjölda síðustu anna. Boðið verður upp á nám í öldungadeild næsta haust. Fjölbrautaskóli Suðurlands er þróunarskóli í upplýsingatækni og mikið er lagt upp úr tölvunámi og tölvuvæðingu í skólanum. Skólinn er einn þeirra framhaldsskóla sem verður í átaki við að fartölvuvæða framhaldsskólanema og þegar ný námskrá tekur gildi næsta vetur verða nýjungar í henni tengdar far- tölvuvæðingu. -NH Sandkorn Höröur krístjánsson netfang: sandkom@ff.is Guðni með hnakk Mikil fyrirheit og miklar vanga- veltur voru um að breyta stíl á opinberum mót- tökum hingað til lands. Með ráð- herrann og hestaáhuga- manninn Guðna Ágústs- son í fararbroddi var kynnt áætlun um heiðursvörð hestamanna á Keflavíkurflugvelli. Áform voru uppi um aðstöðu fyrir hestamenn á flugvellinum. Síöan þessi áform voru kunngerð hefur margt tiginna manna stigið á íslenska grund. Hins vegar hefur minna farið fyrir fánaborg íslenskra hestamanna og ekki einu sinni að það bregði fyrir ilm af þeim ferfættu. Nú mun allt standa til bóta þar eð Guðni er bú- inn að fá lúxushnakk að gjöf. Því vænta menn þess að sjá ráðherr- ann þeysa um flugbrautina næst þegar tigna gesti ber að garði... Verða kosningar? Ástþói Magnússon friðarsinni og forsetafram- bjóðandi, er ekki aldeilis af baki dottinn. Þó stuðnings- menn hans hafi ekki reynst upp- fylla ströngustu kröfur og hon- um ekki gert mögulegt að bæta þar úr, þá hefur hann nú fundið nýja leið til að beina fjölmiðlum að mál- inu. Hann hefur einfaldlega kært til æðstu dómstóla tilbúnað sem hann telur aðfor að sínum málstað. Gárungar velta því nú fyrir sér hvemig fari ef Ástþóri verður úr- skurðað í vil. Verða forsetakosn- ingar eftir allt saman, eða það sem meira er, verður Ólafur að skila Dorrit...? Hvar er Framsókn? Fjarska lítið virðist fara fyrir framsóknar- mönnum í hinni pólitísku um- ræðu þessa dag- ana. Á sama tíma og sjálf- stæðismenn keppast um auglýsinga- mennsku í vegagerð, Vinstri grænir út af umhverfis: og virkjun- armálum og Samfylking flaggar Össuri, þá heyrist ekki múkk í framsóknarmönnum. Sérfræðingar velta því nú fyrir sér hvort HaH- dór Ásgrlmsson sé að undirbúa leiftursókn og muni þegar minnst varir tefla öflu sínu liði fram í fjöl- miðla landsins, íslendingum í sum- arleyfi væntanlega til óblandinnar ánægju... Máttur orðsins Guðbergur Bergsson impraði á þvi í pistli fyrir nokkru að máttur orðsins gæti mikill. Orðið er oft talið geta verið ýkja beitt vopn i viðskiptum manna. vitum við hvort orð geti flutt fjöll eins og trúin er stundum sögð gera, en hitt vitum við að mörg orð væm betur ósögð. Eigi að siður hefur máttur orðsins og umfjöllun Guðbergs Bergssonar orðið einum hagyrðingi tilefni að vísukorni: Orðið hefur mikinn mátt marga konu tefur. En að það væri á við drátt mig aldrei grunað hefiu-.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.