Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Síða 10
10
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
I>V
Erítrear á undanhaldi
Her Erítreu hefur fariö hailoka í bar-
dögunum viö Eþíópa síöustu daga.
Eþíópski herinn
burt frá Erítreu
Stjórnvöld í Eþíópíu tilkynntu í
morgun að hersveitir þeirra hefðu
verið kaliaðar heim frá vesturhluta
Erítreu eftir að þær náöu hemaðar-
markmiðum sínum.
Eþíópar hófu sókn gegn nágrönn-
um sínum í Erítreu fyrir rúmum
tveimur vikum til að endurheimta
land sem Eritrear lögðu undir sig í
landamærastríðinu í maí 1998.
Eþíópar sögðu i gær að herir óvin-
anna væm að því komnir að leysast
upp og að þeir hefðu yfirgeflð stöðv-
ar sínar á austur-vígstöðvunum.
Eþíópiskar herflugvélar gerðu
árásir á Asmara, höfuðborg Erítreu,
í gær í fyrsta sinn í tvö ár. Var
sprengjum varpað á herstöðina á
aðaiflugvelli borgarinnar.
Búist er við aö friðarviðræður
deilenda hefjist í Algeirsborg í dag,
eftir sólarhrings töf.
Skothríð:
Fjórir drengir í
Klakksvík stofna
fjölda í hættu
Tveir lögreglubílar urðu fyrir
skemmdum og fjöldi manns var í
lifshættu þegar fjórir 13 og 14 ára
drengir í Klakksvik í Færeyjum
hófu að skjóta í allar áttir út um
glugga einbýlishúss í bænum í gær.
Maður í nærliggjandi húsi fékk
glerflís i augað þegar kúla úr einum
rifflinum fór í gegnum rúðu. Þá
fékk maður sem ók bíl sínu hjá hús-
inu einnig glerflís í fótlegginn.
Tveir lögregluþjónar sem voru
kvaddir á vettvang þurftu að leita
skjóls undan kúlnahríðinni.
Svæðið kringum húsið var girt af
og eftir nokkra stund tókst að fá
drengina til að hætta skothríðinni.
Þeir em ekki sakhæfir vegna ungs
aldurs síns, að sögn lögreglu.
Trimble aftur í stjórn
David Trimble er aftur oröinn fyrsti
ráöherra á Noröur-írtandi.
Heimastjórnin á
NorðuMrlandi
endurreist í nótt
Tólf ráöherrar norður-írsku
heimastjómarinnar komu til vinnu
sinnar í morgun. Heimastjómin var
endurreist á miðnætti en þá haföi
hún ekki verið starfandi frá því í
febrúar þegar bresk stjórnvöld
leystu hana upp vegna deilna um af-
vopnun írska lýðveldishersins. End-
urreisn heimastjómarinnar var
mikilvægur þáttur í að blása nýju
lífi í friðarsamkomulagið frá 1998.
Herinn tók völdin á Fídji í gærkvöld:
Stjórnarskráin
numin úr gildi
Herforingjastjómin á Fídji-eyjum
lét í morgun undan kröfum valda-
ræningjans Georges Spreights og
nam úr gildi stjórnarskrá landsins
sem gerði manni af indverskum ætt-
um kleift að verða forsætisráðherra
landsins.
Frank Bainimarama, leiðtogi her-
foringjastjómarinnar, undirritaði
opinbera tilskipun þess efnis að aft-
ur skyldi horfið til stjórnarskrár-
innar frá 1990 þar sem innfæddum
Fídjibúum er hyglað.
Herinn á Fídji tók völdin í gær-
kvöld vegna sivaxandi óaldar í kjöl-
far valdaráns Speights og vopnaöra
félaga hans fyrir ellefu dögum.
Valdaræningjamir halda Mahendra
Chaudry, fyrsta indverska forsætis-
ráðherra eyjanna, og um þrjátiu
öðrum í gíslingu í þinghúsinu í höf-
uðborginni Suva.
Fylgst meö fréttunum
Stuöningsmaöur vaidaræningjans
Georges Speights á Fídji skoöar
biööin til aö fá nýjustu fréttir.
Tilskipun herforingjastjómarinn-
ar kemur til móts við eina helstu
kröfu Speights sem segist vera að
berjast fyrir réttindum innfæddra
Fídjibúa. Um 44 prósent íbúa Fídjí
eru af indversku bergi brotin og
ráða yfir helstu þáttum efnahags-
lífsins, svo sem sykurrækt og ferða-
þjónustu.
Fjölmiðlar á Fídji sögðu í morgun
að viðræður stæðu yfir milli manna
Speights og fulltrúa frá hernum sem
vilja að gíslamir verða látnir lausir.
Meðal gíslanna er dóttir forsetans
sem fór frá í gærkvöld til að herinn
gæti tekið völdin.
Speight sagði á fundi með frétta-
mönnum í morgun að hann væri óá-
nægður með stjóm Bainimarama
þar sem hann stæði of nærri forset-
anum og leiðtoga valdaránsins 1987
sem hafi svikið innfædda.
Drottnlng og keisari stlnga saman nefjum
Silvía Svíadrottning og Akihito Japanskeisari ræddu saman um landsins gagn og nauösynjar í kvöldveröarboöi í
sænsku konungshöllinni í Stokkhólmi í gær. Akihito keisrari og eiginkona hans, Michiko, eru í þriggja daga heimsókn
hjá frændum okkar Svíum. Ekki er annað að sjá en vel fari á meö drottningu og keisara.
Lögreglan nýtur aðstoð-
ar kollega sinna í Arvika
Rannsóknarlögreglan í Orrefors
nýtur nú aöstoðar lögreglunnar í
Arvika við að upplýsa morðið á tíu
ára gamalli stúlku i Orrrefors í Sví-
þjóð á laugardag. Lögreglan í
Arvika fékkst við svipað morðmál
ekki alls fyrir löngu þar sem fjög-
urra ára drengur var myrtur.
„Morðrannsókn sem snýst um böm
er mjög sérstæð. Það væri hræsni
að hlusta ekki á þá sem hafa
reynslu af slíku,“ sagði fulltrúi lög-
reglunnar í Orrefors.
Tuttugu og fimm lögreglumenn
vinna nú hörðum höndum að því að
finna meintan banamann litlu
stúlkunnar. Hafa lögregluyfirvöld
lagt áherslu á að vinna að rann-
sókninni á breiðum grundvefli í
staö þess að afmarka hana strax frá
upphafi.
Lögreglan telur sig vita hvers
konar vopn er um að ræða og er það
eggvopn af ákveðinni tegund. Nú er
hins vegar lögð áhersla á að upplýsa
ástæðu verknaðarins áður en hægt
verður að benda á hinn seka.
I gær, mánudag, var fyrsti skóla-
dagurinn í grunnskólanum í Orre-
fors eftir morðið á laugardag. „Við
höfum verið að taka á móti börnum
og fuflorðnum, kveikt á kertum og
haft einnar mínútu þögn,“ sagði
Conny Karlsson, sóknarprestur á
svæðinu sem hefur skipulagt áfalla-
hjálp í samráði viö sálfræðinga,
lækna og kennara skólans.
Rannsókn málsins er í fullum
gangi og nú síöast var byrjað að yf-
irheyra bömin sem gistu í tjaldúti-
legunni þessa örlagaríku aðfaranótt
laugardags. Þar hefur m.a. komiö
fram að nokkar stúlknanna í hópn-
um hafi orðið að flýja af tjaldsvæð-
inu undan ágangi piltanna sem rifu
tjaldhæla upp og áreittu stúlkumar
á annan hátt. Gistu þær því á heim-
ili einnar sem bjó skammt frá tjald-
svæðinu.
Klukkan hálfljögur um morgun-
inn vaknaði ein stúlkanna við hróp
sem bárust að utan en ályktaði sem
svo að það væri einn af strákunum.
Lýsti hún hljóðinu og sagði að það
hefði verið eins og þegar vatni væri
hellt yflr tjald.
Lögreglan hefur enn sem komið
er ekki fengið heildstæða lýsingu á
því hvernig morðið atvikaðist og
enn sem komið er hefur enginn ver-
ið ákærður. Grunur leikur þó á að
börnin í tjaldútilegunni gætu komið
þar eitthvað við sögu.
Lögreglan mun á næstunni ein-
beita sér að því að bera saman göt á
tjaldinu við meint morðvopn.
imimœvmmá
Styður Peres
aforætisráðherra ísra-
els, sagðist í gær
myndu styðja
Shimon Peres í for-
setakosningum til að
taka við af núver-
andi forseta lands-
ins, Ezer Weisman.
Neita að hafa styrkt Kohl
Siemens Ag neitaði í gær fullyrðing-
um þess efnis að þeir hefðu gefið millj-
ónir marka i kosningasjóð fyrrum
kanslara Þýskalands, Helmuts Kohl.
Sæl tvö met
David Hempleman Adams setti
tvö met á mánudag er hann varð
fyrstur manna til að fljúga lengur
en 13 klukktíma í loftbelg, einn og
óstuddur. Seinna metið setti hann
þegar hann varð fyrstur til að fljúga
yfir íshafið á sama loftbelg.
44 drepnir á Jakarta
Stjórnvöld í Indónesíu tilkynntu
fyrr í dag að skæruliðar hefðu myrt
44 og sært hundruð á Jakartaeyju í
stríði ólíkra trúarhópa sem staðið
hefur yfir í landinu að undanförnu.
Fórnarlömb voru að mestu kristin.
Sprengingar í íran
Fjögur skot úr sprengjuvörpu
hæfðu Austur-Tehran í dag að því
er fram kom í íranska útvarpinu.
Engum sögum fer af mannfalli eða
skemmdum en talið er aö stjómar-
andstæðingar standi að baki
árásinni.
Clinton til Evrópu
Bifl Clinton, for-
seti Bandaríkjanna,
hóf Evrópufór sína
sem standa mun í
um viku í Portúgal í
dag. Þar ætlaði
Clinton að tala við
ráðamenn landsins,
x á m. Jorge Sampaio, forseta
landsins. Clinton mun einnig heim-
sækja Þýskaland og Rússland.
„Siðferðilega æðri“
Slobodan Milosevic,
forseti Júgóslavíu,
vigði í gær formlega
nýja brú þar í landi
sem hann kaflaði af
því tilefhi „siðferði-
lega æðri“ brú yfir
fljótið Dóná.
Hætt í patéinu
Skoskur aöalsmaður og hans frú
hafa ákveðið að sniðganga frægt
verslunarhús í Edinborg af því að
verslunin neitar að hætta sölu á
gæsalifrarpaté. Þau hjón, sem eru
miklir dýravemdunarsinnar, hafa
hótað að snúa ekki aftur fyrr en söl-
unni verður hætt.
Larsen til Líbanon
Terje Roed Larsen, sérlegur
sendifufltrúi Sameinuðu þjóðanna
er væntanlegur til Líbanons í dag til
að staðfesta hvort ísraelar hafi með
öUu yfirgefið Suður-Líbanon. Að því
búnu mun Larsen eiga viðræður við
utanríkisráðherra Sýrlands, Farouq
al-Shara. Um 4500 friðargæsluliðar
eru nú að störfum í Suður-Líbanon.