Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Qupperneq 24
36
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
Tilvera DV
lífift
Myndasýning
frá Nepal
í kvöld mun Helgi Benedikts-
son kynna í máli og myndum
gönguferðir í Nepal. Meðal ann-
ars mun Helgi segja frá ferð á
Langtang-svæðið í október síð-
astliðnum auk þess að kynna
fyrirhugaða ferð á slóðir Ever-
est-f]alls í október næstkomandi.
Þá verða sýndar myndir og sagt
frá fyrirhugaðri ferð haustið
2001 til fyrrum konungsríkisins
Mustang sem er afar einangrað
^og þarf sérstakt leyfl til að ferð-
' ast um. Myndasýningin fer fram
í versluninni Nanoq og hefst kl.
20.30.
Krár
■ STEFNUMOT 30 Hin víðfrægu
Stefnumótakvöld Undirtóna halda
áfram öllum til ómældrar gleöi. Nú
er það Stefnumót 30. Þeir Undir-
tónamenn eru að venju búnir aö
massa upp feitt prógramm. Aö
þessu sinni eru það sveitirnar Vítis-
sódi, Bris og Úlpa. Rokk, ról og ró-
legheit er stefna kvöldsins.
9
m SOLEY A THOMSEN Sóley, einn
sætasti dídjei veraldar, spilar feitt
r’n’b og fönkí hip-hop á Kaffi Thom-
sen. Úber-tjill og næsheit.
■ UÚFT Á CAFÉ ROMANCE
Sænski píanósnillingurinn Raul
Petterson leikur léttum fingrum á pí-
anóið á Café Romance.
■ NÆS Á NAUSTINU Söngkonan
og píanóleikarinn Liz Gammon styttir
gestum stundir í koníaksstofu
Naustsins.
Djass
■ CESARIA EVORA Miðar á tón
leika söngkonunnar Cesaria Evora
'!'seldust upp á rúmum tveimur tímum
strax viö upphaf miðasölu Listahá-
tíöar og varö strax mikil eftirspurn
eftir aukatónleikum. Nú halda Ces-
aria Evora og hljómsveit hennar
aukatónleika í Broadway klukkan
19. Sími miðasölunnar er 552
8588. Miðasala Listahátíöar er opin
alla virka daga kl. 9-17 og laugar-
daga kl. 10—14.
Leikhús
■ SIÐASTI SNORKO Það parf varla
aö kynna verðlaunaleikritið Abel
Snorko býr einn fyrir neinum. Þetta
slykki er búið að ganga fyrir fullu
husi tvö leikár, í kvöld er 89. sýning.
Hún er jafnframt næstsíöasta sýn-
ingin. Eins og áður er hún sýnd á
stóra sviöinu í Þjóðleikhúsinu kl.
20. Það eru enn til miöar þannig að
þiö ættuö aö drífa ykkur!
Opnanir
■ HRAUN OG VATN Svava Sigríöur
Gestsdóttir lýkur myndlistarsýningu
sinni í Veislugalleríi Listhússins viö
Laugardal í dag. Sýningin ber heitið
Hraun og vatn. Þetta er 12. einka-
sýning Svövu, en hún hefur tekiö
þátt í mörgum samsýningum.
Sjá nánar: Líflð eftir vinnu á Vfsi.is
Listahátíð í Reykjavík:
Berfætta dívan á Broadway
- Cesaria Evora er komin langt að til að syngja fyrir Reykvíkinga
Söngkonan Cesaria
Evora frá Grænhöfðaeyj-
um hélt í gærkveldi tón-
leika á Broadway við góð-
ar undirtektir og eru aðr-
ir tónleikar fyrirhugaðir í
kvöld. Hún hefur vakið
heimsathygli fyrir söng
sinn á undanfomum
ámm og hafa gagnrýnend-
ur hælt tónlist hennar í
hástert. Ganga sumir svo
langt að líkja henni við
stjörnur á borð við Billie
Holiday og Edith Pflaf.
Sjáif gerir Evaro lítið úr
slíkum samanburði: „Ég
kann ekki við að vera bor-
in saman við þær. Ég er
að vísu mikill aðdáandi
þeirra og finnst þær báðar
stórkostlegar söngkonur
en hver manneskja hefur
sín eigin sérkenni og stíl.
Það hefur því lítið upp á
sig að vera að bera okkur
saman á þennan hátt.“
Tónlist Evora er hin
angurværa og seiðmagn-
aða morna tónlist sem
meðal annars hefur haft
mikil áhrif á ýmsa evr-
ópska tónlistarmenn. Sjálf
lýsir Evora henni svo:
„Morna er hefðbundin
tónlist Grænhöfðaeyja
sem fjallar um allt milli
himins og jarðar svo sem
ástina, hið daglega líf, sól-
ina og sjóinn.“ Evora bæt-
ir þvi við aö annarra
strauma gæti í tónlist
sinni: „Heimaborg mín,
Mindelo, er hafnarbær og
er því suðupottur mis-
munandi menningarstrauma sem
skila sér í tónlistina. Það er því
erfitt að benda á einhverja ákveðna
áhrifavalda í tónlist minni heldur
koma þau víða að.“
Lét ekki frægðina stíga sér
til höfuðs
Cesaria Evora ólst upp við kröpp
kjör í Mindelo og hóf ung að syngja
á börum og kafflhúsum borgarinn-
ar. Náði hún fljótlega mikilli hylli í
heimalandi sínu en sló ekki í gegn á
alþjóðavettvangi fyrr en á tíunda
áratugnum en þá var hún komin á
fimmtugsaldur. Þegar Evora var
Bíógagnrýni
Cesaria Evora - berfætta dívan
„Ég kunni aldrei við að ganga í skóm og þess vegna var ég alltaf berfætt,"
sagði söngkonan Cesaria Evora um nafngiftina.
DV-MYND HILMAR ÞÓR
spurð hvemig það hefði verið að
hljóta svo skyndilega heimsfrægð
sagði Cesaria að það hefði gert sér
gott. „En það var ekki eitthvað sem
breytti mér. Ég lét það ekki stíga
mér til höfuðs og er því enn sama
manneskjan innst inni og ég var
áður.“ Hún kveðst heldur ekki finna
svo mikinn mun á því að syngja á
stórum sviðum en á litlum reyk-
mettuðum krám: „Fyrir mér kemur
það i sama stað niöur hvort ég kem
fram á stóru sviði eða litlu. Eini
munurinn er að fleiri sjá mig á
stóru stöðunum. Ég næ ekki síður
góðu sambandi við áhorfendur þar.“
Cesaria býr á Grænhöfðaeyjum
en þarf að dvelja langdvölum er-
lendis vegna tónleikaferöalaga: „Ég
er 7 til 8 mánuði á ári á tónleika-
ferðalagi og 4 til 5 heima. Þetta get-
ur verið mjög þreytandi fyrir konu
á mínum aldri en þetta er hluti af
vinnunni minni og ég verð að gera
það. Þar að auki er þetta gott fyrir
ferilinn." Þrátt fyrir hinar miklu
fjarverur vegna tónleikaferðalaga
segist Evora vera í góðum tengslum
við fósturjörðina. „Það er enginn
vandi að halda sambandi við fóður-
landið. Ég er í stöðugu símasam-
bandi við fjölskylduna til að sjá
hvort ekki sé allt í lagi. Þetta er auð-
veldara nú en áður fyrr með allri
fjarskiptatækninni svo sem símum
og faxtækjum. Jafnvel þó að maður
sé fjarri heimahögum getur maður
þvi verið mjög nærri," sagði Ces-
aria Evora.
Ekki gefst Evora tími til að skoða
sig um á íslandi meðan á dvöl henn-
ar stendur enda verður hún hér að-
eins í þrjá daga og dagskráin þétt-
skipuð: „Ætli ég haldi mig ekki
bara á hótelinu. Ég vildi gjaman
skoða mig meira um en er þvi mið-
ur ekki með bíl,“ sagði Evora að
lokum.
-EÖJ
Háskólabíó - I Kina spiser de hunde •k -k'k'k
Enn koma Danir á óvart
Bjöm Æ.
Norðfjjörö
skrífar gagnrýni
um kvikmyndir
„Eg leyfi mér aö fullyrða aö engri þjóö aö undanskildum Bandaríkjamönnum
hefur tekist aö búa til jafnháöska ofbeldiskómedíu og I Kina spiser de
hunde. íslendingar ættu ekki síöur aö fiykkjast á hana en Nattevagten,
Breaking the Waves og Festen."
Óhætt er að fullyrða að Danir séu
leiðandi í norrænni kvikmyndagerð.
Jafnvel mætti halda því fram að
danskar kvikmyndir bæra af í evr-
ópskri kvikmyndagerð um þessar
mundir. I kjölfar Dogme æðisins hlaut
danska myndin Dancer in the Dark
gullpálmann í Cannes. Mynd Lasse
Spang Olsen, I Kina spiser de hunde,
á lítið skylt við ofurraunsæi Dogme
eða söngleik Lars von Triers. Hún er
hasarmynd, uppfull af gríni og
spennu. Og skyldu einhverjir vera
haldnir þeim fordómum að Danir geti
ekki búið til slíka mynd leiðréttist það
hér með. Ég leyfi mér að fullyrða að
engri þjóð að undanskildum Banda-
ríkjamönnum hefur tekist að búa til
jafn háöska ofbeldiskómedíu og I kina
spiser de hunde. íslendingar ættu
ekki síður að ílykkjast á hana en
Nattevagten, Breaking the Waves og
Festen.
Bankaafgreiðslumaöurinn Arvid
(Dejan Cukic) lifir afskaplega tilbreyt-
ingarlausu lífi þar til kærastan (Trine
Dyrholm) yfirgefur hann með ásökun-
um um að hann sé leiðinlegasti mað-
ur í heimi. Að henni óafvitandi breyt-
ist það sama dag. Arvid kemur í veg
fyrir bankarán með því að slá banka-
ræningjann (Peter Gantzler) í höfuðið
með skvass-spaöa. Eftir að hafa kom-
ist að því að ræninginn þurfti sárlega
á peningunum að haida ákveður
Arvid að bæta fyrir hetjuskap sinn.
Hann biður bróður sinn, glæponinn
Harald (Kim Bodnia), um að aðstoða
sig við rán á peningaflutningabíl. Þeir
láta slag standa ásamt aðstoðarmönn-
um Harald, kokkunum Peter (Tomas
Villum Jensen) og Martin (Nikolaj Lie
Kaas). Smátt og smátt tekur Arvid aö
breytast úr saklausri bankatusku í
harðsvíraðan ofbeldissegg undir
Nietzscheískum predikunum bróður
síns. Gott og iilt skiptir engu, heldur
þol einstaklingsins. Smekkur og sið-
ferði era afstæð - I Kína borða þeir
hunda.
Það er ekki sist leikurunum að
þakka hversu vel tekst til. Margir eru
kunnuglegir hkt og Kim Bodnia úr
Pusher, Trine Dyrholm úr Festen og
Nikolaj Lie Kaas úr Idioteme - aðrir
standa sig ekki síður. I öllum hama-
ganginum og látunum missa persón-
urnar aldrei danska raunsæisyfir-
bragðið - kannski það sé bara vegna
þess að þær era ekki bandarískar.
Myndin býr einnig yfir vel útfærðum
hasaratriðum og einhverjtun besta
bílaeltingarleik sem lengi hefur sést -
að bandarískum myndum meðtöldum.
Háðið verður svartara með hverri
mínútu myndarinnar og jafnvel
spuming hvort hún gengur ekki fram
af sjálfri sér á endanum. Um það
verða áhorfendur sjálfir að dæmi en
ljóst má vera að I Kina spiser de
hunde er enn ein rósin í hnappagat
danskrar kvikmyndagerðar.
Leikstjóri: Lasse Spang Olsen. Handrit:
Anders Thomas Jensen. Aöalhlutverk:
Dejan Cukic, Kim Bodnia, Tomas Villum
Jensen, Nikolaj Lie Kaas og Peter
Gantzler.