Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Síða 28
NYR NISSAN PATROL Stóra fíkniefnamáliö: Segja magnið mun minna Aðalmeðferö stóra fíkniefnamálsins svokallaða hófst í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Tvö aðalvitni voru yfir- > heyrð í dómsal í gær. Flestir hinna 19 ákærðu hafa viðurkennt aðild sína að málinu, en draga verulega úr magni eiturlyfjanna sem flutt voru til lands- ins í gámum Samskipa á tæplega tveimur árum. Níu manns hafa setið í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni vegna þessa máls síðan í september í fyrra. Við rannsókn málsins lagði lögregl- an í Reykjavík hald á 24 kíló af hassi, 4 kíló af amfetamíni, 1 kíló af kókaíni og 6000 e-töflur en þar sem meintir höf- uðpaurar málsins hafa stundað þessa iðju í mörg ár er heildarmagn fíkniefn- anna talið mun meira. -SMK Mjölverksmiöjurnar: Friður í fjórar loðnuvertíðir DV, AKUREYRI: „Ég er ekki þeirrar náttúru að fara alltaf ánægð heim af samningafundum en lengra varð, tel ég, ekki komist núna,“ segir Signý Jóhannesdóttir, for- maður verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, um samningana sem tókust milli 8 fískimjölsverksmiðja á Norður- og Austurlandi og starfsfólks í þeim. Samningurinn er mjög áþekkur þeim -sem gerðir hafa verið við aðra að und- anfómu. Atkvæði verða greidd um samninginn á næstu dögum og verkfalli hefur verið frestað til 10. júní. -gk ísafjarðardjúp: Leitað að neyðarsendi Neyðarsendir fór í gang í gærkvöld á Vestfjörðum. Erfitt reyndist að staðsetja sendinn og leituðu bæði einkaflugvél og fólk á landi að honum. Fyrst var óttast um bát undir Grænuhliðinni á ísafjarð- ardjúpi, en hann fannst heill á húfi. Sendirinn fannst svo á gámasvæði í Bol- ungarvik, sem getur útskýrt erfiðleik- ana við að finna hann vegna þess að "gámamir lokuðu fyrir ákveðnar send- ingaráttir en ekki aðrar._____-SMK Lést af völd- um fallsins Bráðabirgðaniðurstöður krufningar- innar hafa leitt í ljós að tvítug stúlka sem fannst látin fyrir framan húsið að Engihjalla 9 í Kópavogi á laugardaginn lést af völdum fallsins af svölum á efstu hæðum hússins. Maður á þrítugsaldri var handtek- inn í íbúð í fjölbýlishúsinu eftir að lik stúlkunnar fannst en talið er að fólkið hafi komið saman að Engihjalla 9. Hvorugt þeirra bjó í húsinu en maður- jt inn þekkir til fólks þar. -SMK FI5KINN MINN... ÞSFRETTASKOTIÐ ISÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað f DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. a ■ ■ |n9var B 550 5555 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAI 2000 Vor á Austurvelli Meö fingur í frjósamri mold og bros mót sólu. Ekkert jafnast á við vordag í Reykjavík. DV-MYND HILMAR ÞÓR Nýtt atvinnuleikhús - Loftkastalinn, Leikfélag íslands og Hjóðsetning í eina sæng Tvö stærstu „poppleikhúsin" ásamt Hljóðsetningu tilkynntu í morgun að þau væm á leið í eina sæng undir nafninu Leikfélag Is- lands. Á annað hundrað starfsmanna mun vinna hjá fyrirtækinu. Á þess vegum eru tveir leikhússalir og fjögur hljóðver. Þessi sameining mun án efa skerpa línurnar í leikhúsheiminum og fyrir- sjáanlegt er að listrænar áherslur verði skýrari með tilkomu þessa nýja afls. Á síðasta leikári hýstu Iðnó og Loftkastalinn hvort um sig um 40.000 gesti eða samtals 80.000 - jafnmikið og stóra leikhúsin drógu til sín. Fastráðnir listamenn verða ráðnir til leikhússins strax næsta haust. Eig- endur leikhússins era: Stefán Hjör- leifsson framkvæmdastjóri, Hallur Helgason, starfandi stjómarformað- ur, Baltasar Kormákur, Karl Pétur Jónsson, Sigurður Sigurjónsson, Öm Ámason, Jóhann Sigurðarson, Jón Ingi Friðriksson, Kristján O. Andrés- son, Þórhallur Andrésson, Breki Karlsson, Ágúst Einarsson, Magnús Geir Þórðarson og Stöð 2, sem mun þó ekki eiga meira en 10% samkvæmt heimildarmanni blaðsins. - En hvaða áhrif getur þetta haft á leikara? „Væntanlega mun þetta hafa þau áhrif að stóra leikhúsin geta einbeitt sér að því að sýna „þyngri“ stykki en þetta nýja fyrirtæki sýnir söngleiki eða „léttara" efni sem gríðarleg eftir- spum er orðin eftir,“ sagði Bergur Þór Ingólfsson leikari. Aðrir lista- menn sem DV setti sig í samband við vora flestir ánægðir með sameining- una en höfðu þó þann fyrirvara á að þetta gæti orðið til þess að kjör leik- ara yrðu verri. Islendingar passi upp á fiskinn - segir Kenneth Clarke, fyrrverandi iðnaðar- og fjármálaráðherra Breta Fyrrverandi iðnaðar- og fjármála- ráðherra Breta, Kenneth Clarke, var á íslandi um helgina á vegum Bresk-ís- lenska verslunarfélagsins. í gær hélt hann fyrirlestur um gengi evrunnar og Evrópusambandið á Hótel Loftleiðum. „Öll Evrópuríki hagnast af því að vera í Evrópusambandinu, en ís- lendingar þurfa að vera sérlega vara- kárir vegna fisksins," sagði Clarke í viðtali við DV. „Ég veit ekki nóg um íslensk stjóm- mál til þess að geta gefið ráð varðandi þetta, en þar sem ísland byggir fjárhag sinn að stórum hluta á fiskinum held ég að enginn íslendingur myndi vilja ganga í Evrópusambandinu án þess að skilja nákvæmlega hvaða áhrif sú inn- ganga hefði.“ Biðröð Evrópuríkja eftir að komast inn í Evrópusambandið hefur mynd- ast, en Clarke útskýrði að þau lönd DV-MYND HILMAR ÞÓR Fjallað um ESB og Evruna Kenneth Clarke, fyrrverandi iönaöar- og fjármálaráðherra Bretlands. sem biðu f þessari röð væra ekki af- greidd í þeirri röð sem umsóknir þeirra bærust. ísland, sagði Clarke, myndi ekki þurfa að bíða lengi eftir að komast inn vegna þess að fjárhagur ís- lands væri í mun betra ástandi heldur en hjá fyrrverandi kommúnistarikjum Evrópu. Bretland hefúr ekki notað evruna, en Clarke taldi líklegt að svo yrði fyrr en varir. „Að mínu áliti ætti Bretland að taka upp evruna við réttar fjárhagsaðstæð- ur. Við getum tekið ekki tekið hana upp núna því í augnablikinu er pund- ið of sterkt," sagði Clarke. Fyrir vikið era vörur bændastéttar Bretlands dýr- ari en sömu vörur Evrópuríkja sem nota evruna og hefur það valdið mikl- um vandræðum meðal bænda og það sama má segja um iðnað í Bretlandi. Seinni partinn í gær fór Clarke svo að skoða Gullfoss og Geysi. Hann tók sjónaukann með í fór i von um að sjá fúgla, en Clarke er mikill áhugamaður um fúglaskoðun. -SMK Magnús Geir Þórðarson sem er leikhússtjóri nýja leikhússins segir að þeir muni bera hag listamannanna fyrir bijósti og bjóða þeim sem fast- ráðnir verða upp á mikinn sveigjan- leika. „Leikfélag íslands hefur einnig áhuga á að þróa íslenskt sjónvarps- efni, en eins og alþjóð veit þá hefur Skjáreinn sýnt og sannað að til er markaður fyrir það. Hljóðsetning, Iðnó og Loftkastalinn era öll mjög sterk fyrirtæki og hefur Hljóðsetning m.a. verið með sérsamning við Disn- ey á hljóðsetningu allra Disney- mynda sem sýndar era hér á landi. Þama hefúr því skapast vettvangur fyrir framleiðslu á afþreyingar- og menningarefni sem nokkur skortur er á. í dag skortir ekki tæknilegar lausn- ir til þess að koma frá sér efni - það er bara gott efni sem vantar. Fyrir- tækið mun einbeita sér að því að anna þessari eftirspum og gerir það væntanlega í samstarfi við þá miðla sem fyrir era.“ ÓRV SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI SÍMI 581 1010 SPENNANDI KOSTUR FVRIR HÓPA r / / / / / / / / / / / / / / /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.