Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
DV
Ríkið eyddi yfir tveimur millj-
örðum króna í aðkeypta ráðgjöf á
árinu 1998 og haföi kostnaðurinn,
að teknu tilliti til verðlagsbreyt-
Stóra fíkniefnamáliö
Yfirheyrslum er aö Ijúka.
Stóra fíkniefnamálið:
Málflutningur
hefst á morgun
Stóra fikniefnamálinu hefur verið
frestað til morguns en búist er við að
verjendur ljúki vamarræðum sínum í
þessari viku.
Við yfirheyrslur hafa hinir ákærðu
dregið mikið úr fyrri vitnisburði sínum.
Flestir viðurkenndu að eiga einhverja
aðild að innflutningi eiturlyíja frá
Hollandi, Danmörku og Bandaríkjun-
um, en sögðu að magnið væri mun
minna en áður hafði komið fram við yf-
irheyrslur lögreglu. Hinir ákærðu báru
ýmist við þrýstingi frá lögreglu, taugaá-
falli eða ásökuðu lögreglu um að hafa
breytt skýrslum eftir yfirheyrslur. í gær
spurði settur saksóknari, Kolbrún Sæv-
arsdóttir, rannsóknarlögreglumenn
hvort þetta væri rétt, en þeir neituðu
því og sögðu að hinir ákærðu hefðu af
sjálfsdáðum lagt spilin á borðið. Hinir
ákærðu eru sakaðir um að hafa notað
sér aðstöðu Samskipa og flutt eiturlyfm
í gámum félagsins, en þrír hinna
ákærðu unnu hjá Samskipum. Einnig
eru þeir ákærðir fyrir að hafa selt mik-
inn hluta eiturlyfjanna í ágóðaskyni.
Málinu hefur verið frestað tÚ mið-
vikudags, þegar vitnaleiðslum lýkur. Þá
mun sækjandi, Kolbrún Sævarsdóttir,
halda sóknarræðu sína á miðvikudag og
vamarræður verjenda hinna 19 ákærðu
hefjast. Búist er við að fimm aðrar
ákærur varðandi peningaþvott og minni
háttar fikniefnamál verði þinglýstar á
næstu 10 dögunum. í ákærunum eru 13
aðilar í viðbót við hina 19 sem Héraðs-
dómur fjallar um núna ákærðir í sam-
bandi við þetta mál. -SMK
inga, nærri tvöfaldast frá árinu
1994. Þetta kemur fram í nýrri út-
tekt Ríkisendurskoðunar.
Ríkisendurskoðun segir ríkis-
stofnanir ekki fara eftir neinum
samræmdum reglum við kaup á
ráðgjöf og að oftar en ekki sé ekki
einu sinni skilgreint fyrir fram aö
hverju ráðgjöfin á að beinast eða
hversu miklum tíma eða fé eigi að
verja til hennar. Þá sé langsjaldn-
ast leitast við að lækka kostnað,
gæta hlutleysis og auka trúverðug-
leika ráðgjafar meö þvi aö afla til-
boða frá fleiri en einum aðila þrátt
fyrir að gildandi lög og reglur
mæli svo fyrir um.
„í raun er oftast aðeins haft sam-
band viö einn aðila, gjarnan þann
sem oft hefur unniö með viökom-
andi ríkisaðila," segir Ríkisendur-
skoðun sem telur kunningsskap
jafnvel ráða vali á ráðgjöfum.
Ekkf eitt verkefni skilgreint
Svo viröist sem ráðgjafar ríkis-
Aðdáun
Viöskiptavinurinn á gangstéttinni á Laugaveginum horföi meö aödáun á gínurnar í glugganum í góöviörinu enda ekki
allt sem sýnist. Gínurnar voru lifandi og bæröu á sér svo lítiö bar á-og blikkuöu í laumi.
stofnana hafi oft
og tiðum sjálf-
dæmi þegar
kemur að því að
verðleggja þjón-
ustu sína. „Það
fellur oft í hlut
ráðgjafans að
gera nánari til-
lögur um verk- Siguröur
efnið, afmörkun Þórðarson:
þess og áætlun „Útboö á ráö-
um hvaö það gjöf, hæfnismat
muni kosta. eöa verösam-
Verklag af þessu keppni meöal
tagi er að mati ráögjafa er nær
Ríkisendurskoð- óþekkt innan rík-
unar í flestum isgeirans. “
tilvikum ekki 1
verjandi," segir í
úttekt Ríkisendurskoðunar.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir
einnig harðlega hversu slælega
ríkisstofnanir fylgist með þeirri
ráðgjafarvinnu sem þær eru að
greiöa fyrir. „Þessi þáttur er mjög
losaralegur, svo ekki sé meira
sagt,“ segir Ríkisendurskoðun og
dregur heldur ekki undan þegar
kemur að umsögn um undirbún-
ing ráðgjafaverkefna. „Ekki eitt
einasta verkefni, sem leysa átti,
haföi verið skilgreint áður en sam-
band var haft við þann sem átti að
vinna verkið," segir í úttektinni.
Að þvi er segir i skýrslu Ríkis-
endurskoðunar telja stofnanir
ávinning af aðkeyptu ráðgjöfinni
oft mikinn. „En hafa verður í huga
að matið er oftast á hendi þess,
sem einnig tók ákvörðun um
kaupin, stjórnaði vinnunni og
kom tillöguninn í framkvæmd,"
bendir Ríkisendurskoðun jafn-
framt á.
Könnun Ríkisendurskoðunar
náði til 200 af 243 ríkisstofnunum.
Þær sem ekki skiluðu þótti Ríkis-
endurskoðun ekki svara verð og
hunsuðu itrekaðar beiðnir um að
senda inn gögn.
-GAR
Kostnaður ríkisins vegna ráðgjafar tvöfaldaðist á fjórum árum:
Stjórnlausir ráðgjafar
kosta tvo milljarða
- ólögleg og óverjandi vinnubrögð, segir Ríkisendurskoðun
Tökur áVilliljósi í fullum gangi:
Líkbílstjóri í ástarsorg
í Borgarleikhúsinu standa nú yfir
tökur á myndinni Villiljós sem ný-
verið fékk úthlutað úr Kvikmynda-
sjóði íslands. Tökumar ganga vel og
er nú búið að taka upp tvær af þeim
fimm sögum sem taka á upp. „Já,
þessar fimm sögur fléttast saman í
eina heild í lok myndarinnar. Þær
gerast allar á sama tíma og segja frá
fólki á íslandi nútímans sem er átta-
villt í lífinu og reynir að bjarga sín-
um málum," segir Huldar Breið-
fjörð, handritshöfundur myndarinn-
ar, sem staddur er í Kaupmanna-
höfn. „Hugmyndin kviknaði hjá
mér þegar ég skrifaði smásögu sem
innihélt minni sögur sem síöan
tengdust í eina heild. Reyndar er lít-
ið eftir af þessari upprunalegu hug-
mynd í handritinu nema kannski
beinagrindin sjálf. Fyrsta sagan
íjallar um þrjár óléttar unglings-
stúlkur sem eru að reyna að leysa
sin mál; önnur sagan fjallar um líf-
- og fleiri spaugilegar sögur meðal efnis
Tökur standa nú yfir á myndinni Villiljós. Búiö er aö taka tvo
af fimm hlutum myndarinnar.
hræddan líkbílstjóra í ástarsorg;
þriðja sagan tekur á málum ungs
nýtrúlofaðs pars sem hittir afar
hreinskilin hjón sem skýra fyrir
þeim leyndarheima hjónalífsins.
Fjórði part-
ur sögunn-
ar gerist í
flugvél og
fjallar um
þaö þegar
aðalspraut-
an í rokk-
hljómsveit
ætlar að
hætta
vegna þess
að hann er
að verða
pabbi, og
þarna er
komin teng-
_____ ing við
fyrstu sög-
una. Síðasta sagan er síðan um
mann sem kemur heim úr vinnunni
um miðjan dag og gengur þá inn á
konuna sína í rúminu með blindum
manni. Allar eru sögumar spaugi-
legar og myndin kemur án efa til
með að veröa hin besta skemmtun."
Einvalaliö leikara kemur við
sögu í myndinni og má þar m.a.
nefna Eddu Björgvinsdóttur, Ingvar
Sigurðsson, Baldur Trausta, Björn
Jörund og Rúnar Frey.
„Myndinni er leikstýrt af Ásgrími
Sverrissyni, Degi Kára, Ingu Lísu,
Einari Þór og Ragnari Bragasyni -
hvert þeirra með einn þátt,“ segir
Þórir Sigurjónsson, annar af fram-
leiðendum myndarinnar.
„Handriti myndarinnar var út-
hlutað 20 milljónum úr Kvikmynda-
sjóði og um 15 milljónum frá Nor-
ræna ráðinu. Til stendur að frum-
sýna myndina núna um jólin eða
áramótin og við væntum þess að
myndin fái mjög góðar viötökur,
enda um afar skemmtilegt efni að
ræða og nýmóðins efnistök," bætti
Þórir við.
-ÓRV
BK'
Kári Stefánsson er stjama
Bandariska við-
skiptaritið Business
Week telur Kára Stef-
ánsson, forstjóra ís-
lenskrar erfðagrein-
ingar, vera í hópi 50
manna er tekist hef-
ur að breyta ásjónu
Evrópu, en þá menn
kallar blaðið „Stjömur Evrópu".
Drukkinn ökuníðingur dæmdur
Karlmaður á tuttugasta og fimmta
aldursári, sem ók á ofsahraða undir
áhrifúm áfengis og velti bfl út í á, hef-
ur i Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdur í tveggja mánaða fang-
elsi. Að auki var hann sviptur ökurétti
ævilangt. Mbl. sagði frá.
Framkvæmdir í Laugardai
Stórfelldar byggingaframkvæmdir
eru áformaðar á grænum svæðum í
Laugardal. Bygging gistiheimilis á að
hefjast í þessum mánuði og um svipað
leyti verða auglýst breyting á
deiliskipulagi sem heimflar risastóra
líkamsræktarstöð í dalnum. Stöð 2
sagðifrá.
Pöbbar loki um miðnætti
Gjörbylting verður á afgreiðslutíma
veitingahúsa ef farið verður eftir tfl-
lögum starfshóps á Akureyri. Starfs-
hópur um vímuvamir vill að af-
greiðslutími veitingahúsa verði enn
styttri en hann var áður en hann var
gefmn frjáls. Frelsið veldur ókyrrð að
mati bæjarstjóra. Dagur sagði frá.
ísland fyrst með vetnisbíla?
Fullyrt er í nýjasta tölublaði þýska
vikuritsins Spiegel að ísland verði
fyrsta landið þar sem allir bílar á land-
inu gangi fyrir vetni. Telur dálkahöf-
undur að þróunin taki um 30 ár. RÚV
sagði frá.
Hjálpar íbúum Súmötru
Þorsteinn Þorkels-
son, skólastjóri björg-
unarskóla Slysa-
vamafélagins Lands-
bjargar, fer í dag á
vegum Sameinuðu
þjóðanna til
Indónesíu þar sem
hann tekur þátt í því
að skipuleggja og samræma björgunar-
aðgerðir vegna þeirra hörðu jarð-
skjálfta sem urðu á eyjunni Súmöfru á
sunnudagskvöld. Mbl. sagði frá.
500 færri í Vinnuskóla
Tæplega fiórðungi færri koma til
vinnu í Vinnuskóla Reykjavíkur en
gert var ráð fyrir því 1800 unglingar
koma til starfa en ekki 2300 eins og bú-
ist var við. í athugun er að lengja
starfstímabilið úr 6-7 vikum. Vinnan
hefst i dag. Mbl. sagði frá
Rykmistur sunnanlands
Rykmistur lá yfir höfuðborgarsvæð-
inu í gær vegna hvassrar suðaust-
anáttar sem bar með sér fint ryk af
heiðum og söndunum við suðurströnd-
ina og jafnvel leifar af öskunni úr gos-
inu í Heklu í vetur. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Veðurstofúnni er óvanalegt
að svo þurrt veður sé í slíkri átt. Mbl.
sagðifrá.
Bjóða Keflavík leigulóö
Utamíkisráðuneytið hefúr sent bæj-
aryfirvöldum i Reykjanesbæ erindi þar
sem þeim er boðið svokallað nikkel-
svæði til leigu tfl 99 ára með framleigu-
rétti til annarra 99 ára en vamarliðið á
Keflavikurflugvelli hafði áður viðbúnað
á þessum landskika. Mbl. sagði frá.
Ekkert sambýli í Hrísey
Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra er
hættur við sambýli í
Hrísey fyrir fatlaða af
höfúðborgarsvæðinu.
Pétur Bolli Jóhannes-
son, sveitarstjóri í
Hrísey, segist ósáttur
með hvemig tekið hafi verið á málinu.
Mbl. sagði frá. -GAR