Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Blaðsíða 11
11 ÞRIÐJUDAGUR 6. JtJNÍ 2000 PV_____________________________________________________ Útlönd Sími 553 3818 Frír pruFutími Verið velkomin Sumartilboð í gangi Opið virka daga kl. 8-22 TRIM/\F0RM Wbi : i i t i j i mmm Grensásvegi 50 Sími 553 3818 Jacques Chirac Frakklandsforseti vill aí> kjörtímabil þjóöhöföingians veröi stytt í 5 ár. Frakkland: Kjörtímabil for- seta verði stytt Jacques Chirac Frakklandsforseti lagöi til í gær að kjörtímabil þjóö- höfðingjans yrði stytt úr sjö árum í fimm. Forsetinn lýsti yfir stuðningi sínum við tillögur um þjóðarat- kvæðagreiðslu um breytingarnar síðar á árinu. Breytingamar myndu ganga í gildi eftir forsetakosningarnar 2002 þar sem búist er við að Chirac etji kappi viö Lionel Jospin sem nú gegnir embætti forsætisráðherra. Valéry Giscard d’Estaing, fyrrum forseti, sem endurvakti hugmynd- imar um styttra kjörtímabil í síð- asta mánuði, lýsti yfir ánægju sinni með tillögur og sinnaskipti Chiracs en hægrisinnar í flokki forsetans lýstu andstöðu sinni við áformin. Færeyingar bíða eftir hópi Serba Fiskverkendur í Færeyjum furða sig á því að serbneskir flóttamenn, sem þeir lofuðu að ráða í vinnu, skuli ekki hafa látið sjá sig. Serb- arnir fara nú huldu höfði í Dan- mörku þar sem þeir eiga yfir höfði sér að vera vísað úr landi. Málið hefur verið að velkjast í kerfinu í Danmörku frá því í sept- ember 1998. Færeyingar björguðu dönskum stjómvöldum úr klípunni þegar þeir lofuðu fólkinu landvist en eru nú að missa þolinmæðina því störfin bíða ómönnuð. Hjá okkur nærðu árangrí! Faqmennskan í Fyrlrrúml Bill Clinton Bandaríkjaforseti kominn aftur heim í Hvíta húsið: Lítill árangur af síöustu heimsókninni til Evrópu Skæruliðum fagnað Þúsundir Líbana fögnuöu skæruliðum Hizbollah í gær er þeir óku um götur Nabatiyeh í S-Ubanon í herbílum sem ísraelar skildu eftir. Myrti sex ára dreng í Noregi: Hafði hótað mörgum nágrönnum lífláti Tuttugu og þriggja ára gömul norsk kona, sem myrti sex ára dreng á eyjunni Smola í Noregi síð- astliðið fimmtudagskvöld, hafði hót- að mörgum nágrönnum sínum líf- láti undanfarin ár. Enginn kærði konuna vegna hótananna. Konan, sem er andiega vanheil, tók sjálf þátt í leitinni að drengnum á fimmtudagskvöld en hætti leitinni er hún varð blaut í fæturna. Hún viðurkenndi morðið aðfaranótt sunnudags. Foreldrar drengsins höfðu bann- að honum að heimsækja konuna þar sem hún hafði verið dæmd fyr- ir ofbeldi gagnvart börnum. Henni tókst þó að lokka hann til sín með því að lofa honum krákueggjum. Konan hefur verið í miklu ójcifn- vægi frá þvi að tvær litlar stúlkur voru myrtar í Kristiansand á dög- unum. Hún tjáði fjölskyldu sinni að hún yrði að kaupa sér dagblöð á hverjum degi til þess að geta lesið öll smáatriði um málið. Norskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að lögreglan í Kristiansand hefði fundið fingrafór sem gætu tengst morðinu. Augusto Pinochet sviptur friðhelgi Bill Clinton Bandaríkjaforseta var vel fagnað þegar hann kom heim til Washington í gærkvöld úr heimsókn sinni til fjögurra Evrópu- landa. Árangur ferðarinnar var þó heldur rýr í roðinu þar sem leiðtog- arnir sem Clinton hitti að máli slógu öllum meiri háttar ákvörðun- um á frest. Clinton á enda ekki eftir að sitja nema sjö mánuði í embætti. Hátindur Evrópuferðar Clintons að þessu sinni var þriggja daga heimsókn hjá Vladímír Pútín Rúss- landsforseta í Moskvu. Forsetunum miðaði hins vegar ekkert í viðræð- um sínum irni eldflaugavamarkerfi sem Bandaríkjamenn hafa mikinn áhuga á að koma sér upp. Þá varð Clinton heldur ekkert ágengt í að leysa viðskiptadeilur við lönd Evrópusambandsins eftir daglangan fund sinn með leiötogum þess. Bandaríkjaforseti fór þó ekki al- gjöra erindisleysu til Evrópu. Hon- Forsetahjal í Kreml Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti ræddu sam- an í Krem um helgina en árangurinn var ekki sem skyldi. um tókst að fá stjómvöld í Úkraínu til að fastákveða daginn sem kjam- orkuverinu í Tsjemobýl verður lok- að. Það mun gerast um miðjan des- ember. „Kjarnaofninn í Tsjernobýl verð- ur tekinn úr notkun 15. desember í ár,“ sagði Leoníd Kútsjma, forseti Úkraínu, eftir fund með Clinton í forsetahöllinni í Kænugarði. Þá komust þeir Clinton og Pútín að samkomulagi um að eyða sam- tals 68 tonnum af plútoni sem nothæft var í gerð kjamorkuvopna. Fréttaskýrendur segja að ferðalag Clintons hafi á stundum frekar líkst kveðjuferð en viðleitni til að ná ein- hverjum árangri. Á ferðalögum sín- um frá Lissabon til Berlínar og Aachen i Þýskalandi og þaðan til Moskvu og Kænugarðs sökkti Clin- ton sér í menningu gestgjafanna. Hann lýsti sig aðdáanda portú- galskrar fadotónlistar og hlustaði á djassista i Rússlandi. Dómstóll í Chiie staðfesti í gær að Augusto Pinochet, fyrrverandi ein- ræðisherra landsins, hefði verið sviptiu- friðhelgi. Greiðir þessi ákvörðun fyrir málsókn gegn Pino- chet vegna yfir 100 kæra um brot á mannréttindum í stjómartíð hans 1973 til 1990. Þá voru að minnsta kosti þrjú þúsund manns drepin. Tugir þúsunda flýðu land. Ákvörðunin kom ekki á óvart því fréttir af henni láku út í síðasta mánuði. Lögmenn Pinochets ætla að áfrýja ákvörðuninni til hæstaréttar. Pinochet, sem er 84 ára, var hand- tekinn er hann var í heimsókn í Bretlandi í október 1998, að kröfu spænsks dómara. Hann fékk að fara heim til Chile í mars síðastliðnum eftir 503 daga í stofufangelsi. Fyrrverandi einræðisherra Chile Ákvöröunin um aö svipta Pinochet friöhelgi kom ekki á óvart.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.