Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Blaðsíða 28
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
55Ú 5555
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
Fjölnir í markaðsstjórn:
BSR fær and-
litslyftingu
Leigubílastöðin BSR fær andlits-
lyftingu á næstunni. Athafnamaður-
inn Fjölnir Þorgeirsson hefur tekið
að sér markaðs-
stjómun fyrir-
tækisins og nýr
framkvæmda-
stjóri hefur verið
ráðinn, að hans
sögn. Farið verð-
ur af stað með
auglýsingaher-
ferð innan tíðar.
„Við ætlum að
gera eitthvað
sniðugt til þess
að minna fólk
enn betur á stöð-
^0 ina,“ sagði Fjölnir við DV. „Við ætl-
um að fara hinar ýmsu leiðir og
leggja áherslu á að gera eitthvað
nýtt.“
Fjölnir tók að sér markaðsverkefn-
ið fyrir BSR fyrir rúmri viku.Hann
sagði það alls ekki rétt sem sagt væri
að hann hefði keypt hlut í stöðinni.
Þó væri aldrei að vita hvað gæti
gerst í framtíðinni. JSS
íslenski hugbúnaðarsjóðurinn:
Hluthafar keyptu
^ fyrir 1,5 milljarða
403 forgangsrétthafar i íslenska
hugbúnaðarsjóðnum skráðu sig fyr-
ir öllum bréfum sem í boði voru i
hlutafjárútboði íslenska hugbúnað-
arsjóðsins fyrir helgi. Um var að
ræða rúman hálfan annan milljarð
króna að markaðsverðmæti en að
nafnvirði rúmlega 117 milljóna
króna. Af þessum sökum kom ekki
til almennrar sölu eins og áætlað
hafði verið.
Tilgangur útboðsins var að afla
fjár til kaupa á verðbréfum í sam-
ræmi við fjárfestingarstefnu félags-
ins, ásamt því að greiða niður
skuldir. íslenski hugbúnaðarsjóður-
inn er áhættuijárfestir sem á ráð-
m andi hlut í leiðandi fyrirtækjum á
sviði upplýsingatækni á íslandi.
Heildarmarkaðsvirði bréfa sjóðs-
ins er 6,6 mifljarðar króna. -Ótt
Fjölnir
Ætlar aö festa
BSR 1 mirtni
fótks
Drukknaði í
Ölfusá
Pilturinn sem drukknaði í Ölfusá á
fimmtudaginn hét Guðjón Ingi Magn-
ússon. Hann var 24 ára gamall Sel-
fyssingur, ógiftur og barnlaus. Guð-
jón Ingi féll í ána á fóstudagsmorgun-
inn en þar sem ölfusá er straumþung
gekk björgunarmönnum erfiðlega að
finna hann. Hann fannst svo á laugar-
'.m, dagsmorguninn við Arnarbæli, fjóra
til fimm kílómetra frá staðnum þar
sem hann féll i ána. -SMK
Þakplötur fuku
Slökkviliöiö í Reykjavík var kallaö til seinnipartinn í gærdag þegar þakplötur fuku af Suöurveri. Mikiö rok var á suövesturhorninu í gær. Þakkantur úr bárujárni
rifnaöi upp í rokinu og ógnaöi mönnum og bíium. Slökkviliöiö festi þakiö niöur og hvorki uröu skemmdir á mannvirkjum né slys á fólki.
Tveggja ára starfslokasamningur formanns VMSÍ sem ríkisleyndarmál:
Fimm milljóna samningur
- Björn Grétar ekki ofhaldinn, segir Sigurður Ingvarsson stjórnarmaður
Bjöm Grétar Sveinsson, formað-
ur Verkamannasambands íslands
og fráfarandi framkvæmdastjóri,
fékk tveggja ára starfslokasamning
á fullum launum þegar hann féflst á
að hætta afskiptum af verkalýðs-
málum. Aðeins hluti framkvæmda-
stjórnar hefur fengið að vita inni-
hald samningsins sem Hervar
Gunnarsson stjórnarmaður hafði
framgöngu um. Þá hafa hvorki þing
né sambandsstjórn VMSÍ fjaflað um
málið. Sigurður Ingvarsson, forseti
Alþýðusambands Austurlands og
stjómarmaður í framkvæmdastjórn
VMSÍ, sagðist i morgun þekkja inni-
hald samningsins sem hann taldi
sanngjaman. Aðspurður hvort tvö
ár á fúflum launum væri ekki dýr
kostur til að kaupa formanninn út
sagði hann svo ekki vera.
„Björn Grétar er ekki ofhaldinn
af tveggja ára starfslokasamningi.
Hann var á frekar lágum launum.
Ég tel ekki eðlilegt að aðrir aðilar
en framkvæmda-
stjórn fjalli um
samninginn. Ég
þekki mörg dæmi
um starfsloka-
samninga og þar
koma ekki aðrir
að en fram-
kvæmdastjórn,"
segir Sigurður.
Aðspurður hvort
ekki væri brot á
félagslögum að
sambandsstjórn
eða þing fjölluðu
um brotthvarf
réttkjörins formanns svaraði Sig-
urður: „Ég veit það ekki. Ég er ekki
lögfræðingur.“
Þeir sem vita eitthvað af viti um
innihald starfslokasamningsins sem
gerður var við Bjöm Grétar Sveins-
son þegar hann lét af starfi Verka-
mannasambands íslands fyrir
nokkrum dögum era þögulir sem
Björn Grétar
Sveinsson
„Þetta er búiö
mál í mínum
huga. “
Tekiö var á móti fióttafólkinu í Leifsstöö í nótt. Alls eru þetta 7 fjölskyldur
sem komu til landsins og munu þær fiytja til Siglufjaröar
gröfin séu þeir
spurðir um inni-
hald samningsins.
Óhætt er því að
segja að farið sé
með samninginn
sem ríkisleyndar-
mál.
Samkvæmt
heimfldum DV
mun Bjöm Grétar
halda fúllum laun-
um sem era á bil-
inu 200-240 þús-
und krónur á
mánuði, og starfslokasamningurinn
sé því á bilinu 4,8 milljónir til 5,7
mifljónir króna. Þar er þó ekki tekið
tiflit til launatengdra gjalda þannig
að reikna má með að samningurinn
kosti Verkamannasambandið mun
meira. Þegar Bjöm Grétar var spurð-
ur í gærkvöld hvort þetta væri rétt
sagði hann: „Ég segi ekkert um það.“
Þegar gengið var frekar á hann var
Siguröur
Ingvarsson
- Ég er ekki lög-
fræöingur.
23 flóttamenn komu í nótt:
Setjast á
skólabekk
- íslenska aðalnámsefnið
Sjö fjölskyldur flóttamanna, sam-
tals 23 manneskjur, komu til landsins
í nótt. Fólkið er allt að koma frá
Júgóslavíu þar sem það hefur dvalið í
flóttamannabúðum í fimm tfl níu ár.
Fjölskyldumar munu setjast að á
Siglufirði en allt kapp hefur verið lagt
á að fólkinu finnist það vera velkom-
ið þegar þangað er komið. Um 30
sjálfboðaliðar hafa útbúið íbúðir sem
fólkið mun dvelja í og fótum hefur
verið safnað handa þvi síðustu daga.
Þegar fólkið hefúr komið sér fyrir
mun það setjast á skólabekk og læra
íslensku. Hverri fjölskyldu hefur ver-
ið úthlutað tveimur stuðningsfjöl-
skyldum sem munu vera þeim innan
handar á meðan aðlögun að nýjum
aðstæðum stendur yfir. -ÓRV
svarið hins vegar: „Ég tjái mig ekki,
þetta er búið mál í mínum huga.“
Svo furðulega sem það kann að
hljóma var lagt að blaðamanni DV að
vera ekki að skrifa meira um þetta
mál en orðið er. „Þú ræður því auð-
vitað, en það mun ekki borga sig. Svo
er verið með skrifum um starfsloka-
samninginn að gera Björn Grétar að
„vonda manninum" í þessu máli en
ekki þá sem boluðu honum í burtu og
era í raun og veru sökudólgamir í
málinu," sagði einn viðmælenda DV.
Ólgan innan Verkamannasam-
bandsins, sem gaus upp við brott-
rekstur Bjöm Grétars, er langt frá
því að vera farin að hjaðna. Formenn
landsbyggðarfélaganna ræða mikið
óformlega saman þessa dagana um
hvemig sé hægt að bregðast við yfir-
töku Flóabandalagsins og „aðstoðar-
rnanna" þess á sambandinu, og reiðin
sem kraumar undir er mikil. Ekki er
hægt að sjá neina leið til þess í augna-
blikinu að þeir sem harðast hafa tek-
ist á undanfarið séu í neinum sáttar-
hugleiðingum eða muni starfa saman
í nánustu framtíð.
-gk/-rt
Gæði og glæsileiki
smort
(sólbaðstofa)
Grensásvegi 7, sími 533 3350.