Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Blaðsíða 23
35
I
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
DV Tilvera
'msmm
Prince á afmæli
Popparinn góð-
kunni sem flestir
kannast við undir
nafninu Prince
verður 42 ára 1 dag.
Hann fæddist í
Minneapolis og var
skírður Prince
Rogers Nelson.
Undir nafninu
Prince varð hann frægur fyrir frum-
legheit í tónlistinni og hefur ávallt
farið eigin leiðir. 1993 skýrði hann
umheiminum frá því að hann væri
hættur að nota nafnið Prince. Nýjustu
fregnir herma þó aö hann sé farinn að
nota aftur nafnið Prince.
Gildir fyrir miövikudaginn 7. júní
Vatnsberlnn (20. ian.-l8. febr.);
. Þú átt auðvelt með að
' gera öðrum til geðs í
dag og fólk kann vel
að meta starf þitt.
Happatölur þínar eru 3, 25 og 27.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars):
Þú mætir góðvild og
Ijákvæðu hugarfari hjá
1 vinum þínum í dag. Þú
nýtur þess að vera í
margmenni.
Hrúturinn (21. mars-19. aprii):
. Einhver er að reyna að
'ná betra sambandi við
þig en þú hefur ekki
sýnt þessari mann-
eskju næga athygli.
Nautið (20. ai
y i
aðvanrækji
að gera úlfa
Tvíburarnir f2
<( I
skapa hetra
Nautið (20. apríl-20. maí):
Að eiga góða og sam-
, heldna fjölskyldu
skiptir miklu máli og
þú verður að gæta þess
að’vánrækja hana ekki. Forðastu
að gera úlfalda úr mýflugu.
Tvíburarnir (21. mai-21. iúní);
Ekki láta það fara í
'taugarnar á þér þótt
samstarfsfólk þitt sé
svartsýnt. Reyndu að
skapa'betra andrúmsloft í vinn-
unni.
Krabblnn (22. iúní-22. iúií):
í kringum þig er fólk
| sem þú gætir fengið
’ góð ráð hjá ef þú ein-
_____ ungis gæflr þér meiri
tíma"Bl að hlusta á það.
Liónið (23. iúlí- 22. áeúst):
, Vinur þinn segir þér
fréttir sem eiga eftir
að hafa mikil áhrif á
þig á næstunni. Þú
hefúr mikið að gera i dag.
Mevlan (23. áeúst-22, seot.):
Vertu tillitssamur við
vin þinn sem hefur
^^V^l*oröiö fyrir óhappi eða
^ f vonbrigðum. Gefðu þér
meiri tima fyrir einkalíflð.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
J Ástvinur þinn þarfnast
Oy meiri athygli. Þú færð
\ f hrós í vinnunni fyrir
r f vel unniö starf og
verður við það afar kátur.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.):
Forðastu óhóflega
eyðslu í dag og hugaðu
■að fjármálunum. Þetta
er ekki bestí tíminn til
að gera fjárfestingar.
Bogamaður 127. n6v.-?1. des.l:
IVertu bjartsýnn varð-
fandi frama í vinnunni.
Þú nýtur æ meiri virð-
ingar og fólk treystir
þér. Þér gengur vel að vinna fram
úr vandamálum.
Stelngeltin (22. des.-l9. ian.):
Reyndu að skipuleggja
daginn vel svo að þú
komist yfir allt sem þú
þarft að gera og náir
einnig að slappa af seinni hluta
dagsins.
Selja mjöðinn klukkutíma á dag
Anna Lísa Hilmarsdóttir og Jóhanna Einarsdóttir við afgreiöslu í nýju vínbúðinni í Búöardal, hún er opin klukkutíma á
dag. Á öðrum tímum sinna þær Hárhúsi Hönnu.
Þegar ÁTVR opnaði útibú í Hárhúsi Hönnu í Búðardal:
Stakur reglumaður
einn í „biðröð“
DV, BUDARDAL:____________________
„Við vonum að þetta verði Dala-
mönnum til gleði og ánægju á góð-
um stundum en dökku hliðamar,
sem við óneitanlega vitum að geta
fylgt þessum veigum, verði fáar
eða engar,“ sagði Höskuldur Jóns-
son, forstjóri ÁTVR, í ávarpi sem
hann flutti í boði sem var haldið í
tilefni opnunar vínbúðar fyrirtæk-
isins í Búðardal. Til opnunarinn-
ar var boðið sveitarstjóm Dala-
byggðar, sveitarstjóra, fulltrúum
fjölmiðla og fleiri heimamönnum.
Höskuldur kynnti það samstarf
sem nú hefur tekist með Hárhúsi
Hönnu og ÁTVR með opnun vín-
búðar í Búðardal. Hárhús Hönnu
er rekið af Jóhönnu Einarsdóttur
hárgreiðslumeistara og Sæmundi
Jóhannssyni og hafa þau gert
breytingar á húsnæðinu sem Hár-
húsið er í svo það henti rekstri
vínbúðarinnar. Þær breytingar
hafa tekist vel og eru smekklega
gerðar.
Fyrsti viðskiptavinurinn beið
við dymar þegar búðin var opnuð
kl. 17 þann 24. maí, og var það Jó-
hann Sæmundsson, fyrrverandi
bankagjaldkeri. Ekki hefur hann
verið mikið orðaður við áfengi
eða bjór hingað til, en þarf ekki að
vera verri viðskiptavinur fyrir
það. Þrátt fyrir að Jóhann hafí lát-
ið af störfum fyrir nokkmm árum
sem bankagjaldkeri er hann hlað-
inn störfum fyrir hin ýmsu mál-
efhi.
Hann er i Eiríksstaðanefndinni
sem undirbýr nú af fullum krafti
hátíðahöld sumarsins á Eiríks-
stöðum í Haukadal. Hann er for-
maður Rauðakrossdeildar Búðar-
dalslæknishéraðs, einnig er hann
formaður safnanefndar Dalasýslu
en mikið og gott byggöasafn er á
Laugum í Sælingsdal og þessa
dagana er hann að undirbúa opn-
un þess:
„Það þótti skemmtilegt að gera
mig út af örkinni til að kaupa ei-
lítið í afmæli tengdasonar míns
sem var daginn eftir. Ég er ekki
yfirmáta fanatískur þótt ég hafi
látið þessa hluti vera en ég
predika ekki fyrir einu eða
neinu,“ sagði Sæmundur.
Verslunarstjóri ÁTVR í Búðar-
dal er Jóhanna Einarsdóttir og
með henni mun starfa Anna Lísa
Hilmarsdóttir. í versluninni
munu að jafnaði verða til sölu 80
tegundir og búðin verður opin kl.
17-18 mánudaga til flmmtudaga og
kl. 16-18 föstudaga. Dalamenn eru
að vonum ánægðir með þessa
nýju þjónustu og fengu Jóhanna
og Sæmundur margar góðar
kveðjur og blóm í tilefni dagsins.
-MelB
... ... DV-MYNDIR MELKORKA BENEDIKTSDÓTTIR
Vel valið
Jóhann mættur til leiks fyrstur Dalamanna og ráðfærir sig viö Jóhönnu urn
hvað kaupa skuli. Svo virðist sem valiö hafi heppnast vel. Ari Eggertsson
fyigist með baka til.
Skemmtu gestunum
Sigvaldi Fjeldsteö og kona hans Guörún Siguröardóttir. Sigvaldi lék undir
og skemmti gestum viö opnun vínbúöarinnar í Hárhúsi Hönnu.
Sviðsijós
Geri laðast að
hommum
Geri Halliwell, fyrrum kryddpía,
kvartar sáran yfir því að finna ekki
kærasta. „Það er algjör martröð að
reyna að hitta einhvem til að fara
út með af því að allir sem ég hitti
eru hommar," segir söngkonan geð-
þekka.
Fréttir utan úr hinum stóra
heimi herma að Geri sé mjög í mun
að komast á fast til að öll hjartasár-
in vegna mislukkaðra ástarsam-
banda megi gróa.
Geri var síðast við karlmann
kennd í nóvember þegar hún sló sér
upp um stund með forríka plötu-
snúðinum Chris Evans.
Brad og Jen í
hjónabandið
Leikaraparið Brad Pitt og Jenni-
fer Aniston ætlar loksins að láta
verða af því að gifta sig. Ha, ha, ha,
segja nú sumir. Eins og það hafl
ekki heyrst áöur. En nú ku víst al-
vara fylgja máli, að sögn amerískra
slúðurdálkahöfunda. Brad og Jen
hafa verið í óðaönn að tilkynna vin-
um sínum að þau ætli að ganga í
hnapphelduna í næsta mánuði.
Talskona Pitts er þó á öðru máli,
segir að skötuhjúin hafl ekki einu
sinni opinberað trúlofun sína, hvað
þá að þau ætli að gifta sig.
Katazeta mætti
í hippafötum
Ólétta leikkonan Catherine Zeta
Jones, unnusta Michaels Douglas
stórleikara, stal senunni þegar hún
kom á tónleika á Mallorcu, ekki
langt frá glæsihöll unnustans. j--
Katazeta mætti í hálfgerðum hippa-
fotum, þrátt fyrir bumbuna sem á
að detta af henni eftir sjö vikur eða
svo.
„Mér fannst æsðilega gaman,“
sagði Kata eftir tónleikana þar sem
leikin var spænsk tónlist.
„Hún var stórglæsileg, það geisl-
aði af henni,“ sagöi einn tónleika-
gestanna