Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Qupperneq 6
6
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
Lífeyrissjóður borgarstarfsmanna lánar borginni á niðurgreiddum vöxtum:
Herfileg misnotk-
un á sjóðnum
- segir Guðlaugur I>ór Þórðarson borgarfulltrúi
„Það er deginum ljósara að vegna
óstjómar og fáránlegrar fjárfesting-
arstefnu Lífeyrissjóðs borgarstarfs-
manna í Reykjavík hefur sjóðurinn
tapað hundruðum milljóna króna
undanfarin ár. Það getur ekki talist
eðlilegt að borgarsjóður fjármagni
skuldir sínar með niðurgreiddum
vöxtum úr sjóði starfsmanna. Þetta
er skólabókardæmi um sukk í fjár-
málum og maður spyr sig hvenær
borgarstjórinn, sem er formaður líf-
eyrissjóðsins, fer að seilast í kafii-
sjóð starfsmanna," sagði Guðlaugur
Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins.
Lífeyrissjóðurinn er með allt
handbært fé sitt bundið í
borgarsjóði, gagnstætt því
sem margir lifeyrissjóðir
gera, og hefur ekki mögu-
leika á að njóta hagstæðra
ávöxtunarkjara sem boðist
hafa á innlendum fjár-
magnsmarkaði undanfar-
in ár.
Borgin greiðir hins veg-
ar 5,5% vexti á skuld sína
sem er óverðtryggð en i
fyrra fékk sjóðurinn þó
vaxtauppbót úr borgar-
sjóði. Hlutfall lífeyris af ið-
gjöldum nemur nú 93,1% og hækk-
aði um nærri 4% milli ára.
Guðlaugur Þór réðst
harkalega á rekstur
stjómar Lífeyrissjóðs
starfsmanna Reykjavíkur-
borgar á fundi borgar-
stjórnar í síðustu viku.
Hann vísar í því efni til
gagnrýninna orða borgar-
endurskoðanda sem bend-
ir á að raunávöxtun eigna
sjóðsins er með því lægsta
sem þekkist hjá lífeyris-
sjóðum landsins.
Hún var i fyrra 3,86%
en á sama tíma fékk Líf-
eyrissjóður starfsmanna Hafnar-
fjarðarkaupstaðar 10% ávöxtun af
sínum eignum og í Kópavogi var
talan 8%. Undanfarin fimm ár hef-
ur Reykjavík verið með 4,49%
ávöxtun sjóðsins meðan Kópavogur
var með 7,9% og Hafnarfjörður
7,4%. Eitt prósentustig í þessu
dæmi vegur 30 milljónir króna.
Guðlaugur Þór segir það engan
veginn ásættanlegt að sjóðurinn
skuli misnotaður svo herfilega.
Hann segir að tvennt geti gerst í
kjölfar slikrar óreiðu - að sjóðsfé-
lagar muni njóta lakari kjara en
gerist í betur ávöxtuðum sjóðum
eða að borgarbúar verði látnir
gjalda fyrir óreiðuna. Hvort tveggja
sé óásættanlegt. -JBP
Guölaugur Þór
Þóröarson
borgarfulltrúi.
Eins og flórkýr sem
slettir upp um sig
— segir borgarstjóri um gagnrýni borgarfulltrúans á ávöxtun lífeyrissjóðsins
„í ákafa sínum við að koma á mig
höggi minnir Guðlaugur Þór einna
helst á flórkýr sem skvettir upp um
sig alla. f raun eru stóryrði hans
þess eðlis að þau eru ekki svara-
verð en hann er hins vegar svo
ábyrgðarlaus í ummælum sínum
um Lífeyrissjóð starfsmanna
Reykjavíkurborgar að það verður
ekki hjá því komist að að halda
nokkrum staðreyndum til haga,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri þegar ummæli Guð-
laugs Þórs Björgvinssonar borgar-
fulltrúa voru borin undir hana.
Hún sagði að sjóöurinn væri eign
borgarsjóðs Reykjavíkur og sjóðfé-
laga en borgarsjóður væri í fullri
ábyrgð fyrir öllum skuldbindingum
sjóðsins og réttindi sjóðfélaga óháð
iðgjöldum. Þau fara eftir reglugerð
sjóðsins og góð eða slök
ávöxtun sjóðsins hafi engin
áhrif á réttindi sjóðfélaga
eins og Guðlaugur Þór
heldur fram.
Til skamms tíma hefur
sjóðsstjóm unnið eftir fjár-
festingastefnu sem byggð-
ist á eldri reglugerð sjóðs-
ins. Hefur stjórnin fyrir-
mæli um hvemig ávaxta
mætti fjármuni sjóðsins.
Fjárfestingin var þá ein-
göngu í ríkistryggðum
bréfum, sveitarfélagabréf-
um og fasteignatryggðum
skuldabréfum sjóðfélaga.
Gilti raunar hið sama hjá
Lifeyrissjóði starfsmanna ríkisins
að sögn borgarstjórans.
„Frá 1. júlí 1998 varð til Lífeyris-
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
borgarstjóri
Hvergi vikiö aö
óreiöu í skýrslu
borgarendur-
skoöanda.
sjóður starfsmanna sveit-
arfélaga og eiga allir nýi-
ir starfsmenn Reykjavík-
urborgar aðild að þeim
sjóði.
Sama máli gegnir um
fjölda eldri starfsmanna
sem kaus að flytjast yfir
til nýja sjóðsins. Reykja-
víkurborg samtímagreið-
ir allar skuldbindingar
vegna réttindaávinnslu
þessara starfsmanna og
því myndast engar skuld-
ir vegna þeirra," sagði
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir.
„Á sfðustu misserum
hefur verið unnið að gagngerri end-
urskipulagningu lífeyrissjóðsins en
það hefur greinilega farið framhjá
Guðlaugi Þór eins og svo margt
annað. Starfsemin hefur verið flutt
úr Ráðhúsinu, allir kostnaðarþætt-
ir eru nú sérgreindir og sýnilegir,
ný reglugerð hefur fengist staðfest í
fjármálaráðuneytinu, ný fjárfest-
ingastefna hefur verið samþykkt og
sjóðnum hefur verið lokað fyrir
nýjum sjóðfélögum,“ sagði borgar-
stjóri.
Ingibjörg sagði, varðandi skýrslu
borgarendurskoðanda, að þar væri
hvergi vikið að óreiðu eða gefið í
skyn að illa hafi verið staðið að
stjóm sjóðsins.
Þess bæri einnig að geta að stjórn
sjóðsins er skipuð fulltrúum meiri-
hluta og minnihluta borgarstjórnar
og fulltrúum starfsmanna. Þar hafi
ætíð ríkt full sátt um framkvæmd í
málefni sjóðsins." -JBP
Mývatnssveit:
Kísiliðjan er
undirstaðan
DV, AKUREYRI: ~~
Bæjarráð Akureyrar hefur fjallað
um málefni Kisiliðjunnar í Mývatns-
sveit og samþykkt ályktun varðandi
fyrirtækið sem send verður til Skipu-
lagsstofnunar.
f ályktun bæjarráðsins segir að frá
því að kísilgúrvinnsla hófst við Mý-
vatn hafl starfsemi Kísiliðjunnar ver-
ið ein helsta undirstaða mannlífs í
Mývatnssveit. Áframhaldandi starf-
semi hennar sé því afar þýðingarmik-
il fyrir byggðina í Skútustaðahreppi
sem og önnur sveitarfélög á Norður-
landi eystra.
„Með þetta í huga hvetur bæjarráð
Akureyrar til þess að veitt verði
áframhaldandi starfsleyfi fyrir verk-
smiðjuna til lengri tíma. Flestar fram-
kvæmdir hafa í för með sér breyting-
ar á umhverfínu, hjá því verður ekki
komist. Þetta á ekki sist við um efnis-
töku hvers konar, hvort sem náman er
á láði eða legi. Jafnframt þvi að veitt
verði starfsleyfi til áframhaldandi
vinnslu kísilgúrs úr Mývatni er lögð
áhersla á stöðugar rannsóknir á lífríki
vatnsins, þannig að strax verði hægt
að gripa inn í veröi lífríkinu í og við
þessa náttúruperlu ógnað,“ segir í
ályktun bæjarráðs Akureyrar. -gk
Frúin hlær í betri bil...
Þessar stöllur á leikskólanum Tjarnarborg létu sér ekki leiöast í góöa veörinu í borginni
heldur brugöu sér í bíltúr.
_ HS'Umsjón:
Hörftúr Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.ls
Móra afturgengin
Gísli Hjartarson,
gamansagnahöfund-
ur á Isafirði, flutti
erindi á dögunum á
málstefnu í Bolung-
arvík um sérkenni
; Vestfirðinga. Sagði
hann þar m.a. eftir-
farandi þjóðsögu af
Dóra á Brodda-
nesi, Halldóri Jónssyni, greinar-
góðum karli sem enn lifir hátt á ní-
ræðisaldri:
Hann þeysir nú um alla landar-
eignina á fjórhjóli, karlinn. Dóri er
nokkuð fljótfær og til eru mörg
skemmtileg tilsvör höfð eftir hon-
um. Fyrir nokkru, eftir að sonur
Dóra, Torfi, var tekinn við búi
slátruðu þeir feðgar mórauðri gam-
alá í heimaslátrun að hausti. Hafði
ærin verið forystukind. í leitum
haustið eftir, þegar verið var að
reka í rétt, kemur gömul ær í rétt-
ina og líktist mjög ánni sem slátrað
hafði verið haustið áður. Þá kallar
Dóri: „Torfi, þama er hún komin,
hún Móra, sem við lóguðum i
fyrra!“
Peningar í hring
Nýríkir íslensk-
ir kvikmyndajöfr-
ar, kvótaeigendur
og verslunarmenn
eru nú farnir að
fjárfesta grimmt
og galið i eyjum,
fjörðum og jörð-
um um land allt.
Þannig festu Hag-
kaupsbræðurnir
Jón og Sigurður
Gísli Pálmasynir
einar 25 milljónir
að sagt er í jörð á
Snæfellsnesi á
dögunum. Gár-
ungar segja að
þannig
þeir hringrás fjár-
magnsins. Landlausir bændur arki
nú suður á mölina með peningana
bræðranna í vasanum til að kaupa
aftur gömlu lambalærin sín í Hag-
kaupi...
Nei, ekki aftur!
Athygli
vakti er Jó-
hanna Sig-
urðardóttir,
þingmaður
Samfylkingar-
innar, dró
fram box-
hanska á þingflokksfundi sem hald-
inn var á ísafirði fyrir skömmu.
Hóf hún að berja púða af miklum
móð í líkamsræktarstöð Stebba
Dan þar i bæ. Félagar Jóhönnu i
þingflokknum fylgdust með en sagt
er að Össuri Skarphéðinssyni,
nýja formanni flokksins, hafi ekki
litist á blikuna og smokrað sér af-
síðis svo lítið bar á. Telja gárungar
víst að hann hafi ekki ætlað að
brenna sig á því öðru sinni að
takast á við Jóhönnu, minnugur
þess er hún sló hann út á rothöggi
í prófkjöri um efsta sætið í Reykja-
vík...
Svart og veröbólgulaust
SÁÁ er farið að
gera reglulegar
verðkannanir á
hinum svarta
fikniefnamarkaði
hér á landi. Þar
kemur í ljós að
mikið framboð
virðist vera á eit-
urlyfjum og verð-
lag stöðugt: hassið á fimmtán
hundruð krónur, kókaín á tíu þús-
und grammið og e-töflur á þrjú
þúsund kall. Menn hafa velt fyrir
sér í framhaldi af þessu hvort ekki
væri ráð að fá fjármálaspekinga úr
neðanjarðarhagkerfínu til að koma
upp á yfirborðið. Alla vega virðist
þeim takast að reka þetta svarta
samfélag dauðans án verðbólgu,
þrátt fyrir mikið mótlæti samfé-
lagsins, og það mitt í stórhertum
og árangursríkum lögregluaðgerð-
um...
'
!s$
I