Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
Utlönd
Koss fyrlr botni Miðjarðarhafs
Vel fór á meö þeim Ehud Barak, for-
sætisráöherra Israels, og Madeieine
Albright, utanríkisráöherra Bandaríkj-
anna, í Jerúsalem í gær.
Albright talar við
Arafat og Barak
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, heldur áfram
í dag að reyna að koma á friði fyrir
botni Miðjarðarhafsins. Hún hittir
Yasser Arafat, forseta Palestínu-
manna, að máli og síöan ræöir hún
öðru sinni við Ehud Barak, forsæt-
isráðherra ísraels.
ísraelskur samningamaður hefur
kallað viðræður Albright og leiðtog-
anna þær alvarlegustu sem nokkru
sinni hafa verið haldnar.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti,
sem á aðeins eftir að sitja sjö mán-
uði enn í Hvíta húsinu, gerir sér
vonir um að kóróna áralangar
samningaumleitanir með leiðtoga-
fundi með þeim Arafat og Barak.
Bandarískir embættismenn sögðu
þó í gær að bilið væri enn of breitt
til að hægt væri að brúa það í
tveggja daga heimsókn Albright.
Andvíg stríös-
glæpadómstól
Bandaríkin eru í herferð gegn
myndun alþjóðlegs stríðsglæpadóm-
stóls, að því er breska blaðið
Independent greinir frá. Fyrir 2 ár-
um undirrituðu 120 aðildarríki
Sameinuðu þjóðanna, SÞ, viljayfir-
lýsingu um stofnun alþjóðlegs
stríðsglæpadómstóls. Bandaríkin
eru sögð gera allt til að koma í veg
fyrir að bandarískir þegnar, sakaðir
um þjóðarmorö, stríðsglæpi og
glæpi gegn mannkyninu, verði
dregnir fyrir dómstólinn. Hefur
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hótað að
bandarískar sveitir taki ekki þátt í
aðgerðum SÞ vegna málsins.
Hillary hjá SÞ
Bandaríska forsetafrúin geröi lukku
á ráöstefnu um málefni kvenna.
Konur sungu fyrir
Hillary Clinton
Kvenréttindakonur klöppuðu
óspart fyrir Hillary Rodham Clint-
on, forsetafrú í Bandarikjunum,
þegar hún mælti fyrir jafnrétti milli
kynjanna í ræðu á kvennaráðstefnu
SÞ í New York í gær. Ekki nóg með
það, heldur stóðu konumar á fætur
allar sem ein og hófu að kyrja lagið
We Shall Overcome sem frægt varð
í manréttindabaráttu blökkumanna.
Um tíu þúsund fulltrúar og bar-
áttufólk er saman komið í New
York til að meta hvemig miðað hafi
frá kvennaráðstefnunni í Peking
fyrir fimm árum.
Tugir látnir og hundruð slösuð eftir jarðskjálfta á Súmötru:
Vont veður tefur
fyrir björguninni
Öflugur jarðskjálfti á sunnudags-
kvöld og tugir eftirskjálfta sem
skóku indónesísku eyjuna Súmötru
urðu allt að 94 að bana og særðu
meira en fimm hundmð, að sögn
fjölmiðla og embættismanna þar
austur frá. Embættismenn sögðu í
morgun að björgunarsveitir væru
að reyna að komast til hins af-
skekkta Bengkulu-héraðs, sem varð
verst úti í hamforunum, en gengi
erfiðlega. Slæmt veður hamlar for,
auk þess sem fjarskipti eru rofm og
flugvöllur héraðsins lokaður.
Dagblaðið Harian Semarak, sem
kemur út á skjálftasvæðinu, sagði í
morgun að 94 hefðu týnt lífi víðs
vegar um héraðið þar sem 1,4 miUj-
ónir manna búa.
Lögreglan hefur aðeins greint frá
dauðsfollum í bænum Bengkulu
þar sem 58 týndu lífi. Skjálftinn á
sunnudagskvöld mældist 7,9 stig á
Richter og enn í morgun mældust
eftirskjálftar. Margir íbúanna
þorðu ekki að sofa í skemmdum
húsum sínum síðastliðna nótt held-
ur gistu í tjöldum.
Fréttastofan Antara sagði að
rúmlega fimm hundruð manns
hefðu slasast, helmingur þeirra al-
varlega. Læknar í héraðshöfuð-
borginni Bengkulu neyddust til að
hlúa að mörgum hinna særðu á
bílastæði sjúkrahússins þar sem
næg rúm voru ekki innan dyra. Þá
gerði skortur á blóði þeim einnig
erfitt fyrir.
Byggingar hrundu í jarðskjálft-
anum, vatnsleiðslur rofnuðu og
hristingurinn fannst alla leið til
höfuðborgarinnar Jakarta og til
Singapore.
Stjórnvöld í Indónesiu sögðu að
þörf væri á erlendri aðstoð. Þor-
steinn Þorkelsson, skólastjóri
björgunarskóla Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar, heldur áleiðis til
Indónesíu í dag þar sem hann mun
starfa við björgunaraðgerðirnar á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Jarðskjálftinn á sunnudags-
kvöld er einhver sá öflugasti sem
mælst hefur á jörðinni á síðustu
tíu árum.
Lögreglan óttaðist gripdeildir í
Bengkulu og sendi þangað varalið.
Með aleiguna í pokaskjatta
Ung stúlka í borginni Bengkulu á indónesísku eyjunni Súmötru heldur á aleigu sinni í rústum heimilis síns eftir jarö-
skjálftann mikla sem reiö yfir á sunnudagskvöld. Jaröskjálftinn, sem mældist 7,9 stig á Richter, er einhver sá öflug-
asti sem mælst hefur á jöröinni á síöustu tíu árum. Taliö er aö hátt í eitt hundraö manns hafi látist og meira en fimm
hundruö hlutu sár. Helmingurinn er alvarlega slasaöur, aö sögn yfirvalda á Súmötru.
Tony Blair og kirkjan
blessa hiónaband
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og breska biskupakirkj-
an eru reiðubúin að leggja blessun
sína yfir hjónaband Karls prins og
ástkonu hans til margra ára,
Camillu Parker Bowles. Breskir fjöl-
miðlar greindu frá þessu í morgun.
Fjölmiðlar hafa jafnframt greint frá
því að Karl og Camilla hafi átt
leynilega fundi með erkibiskupnum
af Kantaraborg.
Hafa fundimir kynt undir vanga-
veltum um að kirkjan sé ekki leng-
ur andvíg hjónabandi prinsins og
ástkonu hans.
Blaðið The Daily Express hefur
það eftir háttsettum heimildar-
mönnum að Blair muni hvetja til
hjónabands Karls og Camillu leiti
drottningin ráða hjá honum.
Elísabet Englandsdrottning gaf í
Karl Bretaprins
Ástkona hans er nú komin inn úr
kuldanum.
skyn siðastliðinn laugardag að kom-
inn væri tími til að Camilla kæmi
inn úr kuldanum þegar hún kom til
afmælisveislu Konstantíns Grikkja-
konungs sem Karl og Camilla héldu
honum. Gekk drottningin beint til
Camillu er hún kom til veislunnar
og ræddi við ástkonu sonar síns í 10
mínútur áður en hún heilsaði öðr-
um gestum.
Breska blaðið Times greindi frá
því í morgun að eldri sonur Karls,
Vilhjálmur prins, hefði bundist
Camillu sterkum böndum eftir að
móðir hans, Díana prinsessa, lést í
bílslysi i Paris fyrir nær þremur ár-
um. Blaðið segir að komið hafi í ljós
að það hafi verið Vilhjálmur sem
hafi fengið fóður sinn til að koma á
fundi með Camillu, honum sjálfum
og Harry bróður hans árið 1998.
Clinton afhendi tölvupóst
Bandarískur al-
rikisdómari krefst
þess að Hvita húsið
afhendi tölvupóst
skrifaðan af Bill og
Hillary Clinton inn-
an 20 daga. Um er
að ræða tölvupóst
tengdan meintri
ólöglegri notkun á leynilegum gögn-
um bandarísku alríkislögreglunnar
ásamt tölvupósti frá Lindu Tripp og
Kathleen Willey. Þeir sem standa að
baki málinu vilja sanna að stjóm
Clintons haf notað gögn alríkislög-
reglunnar í baráttunni gegn
pólitiskum andstæðingum.
Mannskæður jarðskjálfti
Að minnsta kosti einn lét lifið í
öflugum jarðskjálfta sem skók mið-
hluta Tyrklands í morgun. Að
minnsta kosti 26 slösuðust í skjálft-
anum, þar á meðal nokkrir sem
stukku út um glugga í skelfmgu.
Veðjað í Belgrad
í kjölfar fjölda morða á háttsett-
um serbneskum stjórnmálamönn-
um eru íbúar Belgrad nú famir að
veðja um það hver verði næsta fórn-
arlamb. Þeir sem veðja mega velja á
milli tuttugu nafna. Á listanum eru
bæði stjómmálamenn og meintir
stríðsglæpamenn.
Börn tróðust undir
Fjórtán böm létu lifið og 67 slös-
uðust þegar þátttakendur í minn-
ingarathöfn í Addis Abeba í Eþíóp-
íu forðuðu sér undan steypiregni.
Þúsundir barna voru viðstaddar
minningarathöfnina um fómarlömb
stríðsins við Erítreu.
Minnkandi fylgi
Fylgi Verka-
mannaflokksins í
Noregi hefur
minnkað um 4,5
prósentustig frá
því í síðastliðnum
mánuði. Fylgið er
nú 30,5 prósent. í
síðasta mánuði
jókst fylgið. Þá var mánuður frá þvi
að Jens Stoltenberg tók viö forsætis-
ráðherraembættinu.
Svíar vinna of lítið
Sviar vinna að meðaltali 32 ár. Er
litið á þennan stutta starfsaldur sem
ógnun við velferðarkerfið er gerir
ráð fyrir 40 ára starfsaldri.
Hlusta ekki á kröfur
Herforingjar á
Fídjieyjum hertu í
gær afstöðu sína
gegn George
Speight, leiðtoga
valdaránsmanna,
og kváðust ekki
láta undan kröf-
um hans gegn
frelsi gíslanna.
Morð og sjálfsmorð
Kennari við framhaldsskóla í
Kristiansand í Noregi skaut til bana
í gær fyrrverandi unnustu sína í
bilageymslu við skólann. Kennar-
inn svipti sig síðan lifi.
Út af sporinu
Röskun varð á lestarsamgöngum
í N-Frakklandi í morgun eftir að
Eurostar-hraðlestin frá París til
London fór út af sporinu.