Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2000, Blaðsíða 5
5
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000
I>V Fréttir
Við Hestfjall í Grimsnes- og Grafri-
ingshreppi urðu upptök jaröskjálft-
ans aðfaranótt miðvikudagsins.
Grímsnes- og Grafn-
ingshreppur:
Borholur
þorna upp
og a.m.k. 7
skemmd hús
1 Grímsnes- og Grafningshreppi
voru 7 íbúðarhús í gær talin allt frá
því að vera óíbúðarhæf til þess að
hafa skemmst að litlu leyti, með
sprungur sem ekki teljast beinlínis
alvarlegs eðlis.
Guðmundur Rúnar Ágústsson
sveitarstjóri segir að skemmdir hafi
að öðru leyti verið á nær hverju ein-
asta heimili sveitarfélagsins, fyrst
og fremst á lausamunum. Guð-
mundur Rúnar segir það stórt tjón
að borholur hail að hluta til þornað
upp.
„Þetta gerir erfíðara fyrir í bú-
rekstri - einnig í svínarekstri og
blómarækt. Þetta þyngir róðurinn
hjá þessum aðilum. Við erum að
bíða og munum sjá hvort vatnið
kemur aftur,“ sagði sveitarstjórinn.
Talsvert mörg útihús skemmdust
einnig í hreppnum í seinni skjálft-
anum aðfaranótt miðvikudags.
Skemmdir á sumarhúsum hafa ekki
verið kannaðar skipulega enn sem
komið er.
Guðmundur Rúnar sagði að óger-
legt væri aö meta tjón í tölum, hins
vegar væri slikt í sjálfu sér fljót-
reiknað gróflega ef mið er tekið af
því að 15 milljónir kosti að byggja
nýtt íbúðarhús og hundruð þúsunda
kosti að gera við skemmdir. Þá eigi
eftir að meta kostnað við endur-
byggingu útihúsa. -Ótt
Gaulverjabæjarhreppur:
Ekki veru-
legt tjón
- vatnslindir úr lagi
„Það liggur fyrir að ekkert veru-
legt tjón hafi orðið hjá okkur og lít-
ið skemmst. Eina tjónið að heita má
eru sameiginlegar vatnslindir okk-
ar, Villingaholtshrepps og Stokks-
eyrarhrepps. Ein lindin hefur þorn-
að og vatnið í krönunum er heldur
leiðinlegt. Við vonumst til að það
smálagist," sagði Geir Ágústsson,
oddviti í Gaulverjabæjarhreppi, um
tjónið þar eftir seinni skjálftann að-
faranótt miðvikudags.
„Hvort vatnið kemur aftur er
óvíst,“ sagði Geir. Hann sagði að
sáralítið sé um sprungur í húsum -
varla sé hægt að tala um það. Eitt-
hvað hafi verið um að lausamunir
hafi falliðr úr hillum.
„Sumir sneru sér bara út í hom
og héldu áfram að sofa. Mér fannst
þetta allharður jarðskjálfti og fannst
þetta ónotalegt. Hjá mér opnuðust
eldhússkúffur en ekkert féll úr
þeim, ljósakrónur dingluðu og allt
hreyfðist sem hreyfst gat. Við fórum
strax út til að aðgæta allt en þetta
viröist hafa sloppið vel,“ sagði Geir.
-Ótt
Hrunamannahreppur:
Aðallega sprungu-
skemmdir
„Við höfum sloppið ótrúlega
vel,“ segir Loftur Þorsteinsson,
oddviti Hrunamannahrepps.
„Alvarlegasta tjónið er að eitt
íbúðarhús er dálítið mikið
skemmt. Það er þó ekki óíbúðar-
hæft. Einnig skemmdust raflýs-
ingar í tveimur gróðurhúsum.
Nokkuð víða urðu minniháttar
sprungur í íbúðar- og útihúsum.
Það er alls ekki hægt að segja að
þar sé um alvarlega hluti að ræða.
Ég hef síðan heyrt um að eitt sum-
arhús sé skakkt á grunni. Að síð-
ustu hefur auðvitað mikið af
lausafjármunum hrunið úr hill-
um, janfvel sjónvörp. Þetta eru
mál sem fara beint til tryggingafé-
laga,“ sagði oddviti Hrimamanna-
hrepps. -Ótt
Villingaholtshreppur:
Mjög mikið
skemmt í sveitinni
„Það er mjög mikið skemmt í
sveitinni. í mínu sveitarfélagi
eru 3 hús alveg ónýt. Fleiri eru
eitthvað skemmd en það hefur
ekki verið metið enn þá hve
mikið heildartjónið er,“ sagði
Bjarki Reynisson, oddviti í Vill-
ingaholtshreppi, í samtali við
DV.
Bjarki sagði að útihús væru
talin ónýt á einum bæ en
skemmdir á útihúsum væru víð-
ar í sveitinni. Einnig sagði odd-
vitinn að innbú hefði farið víða
mjög illa í hreppnum. Bjarki
sagði ekki mikið um sumarbú-
staði í sveitinni en eins og svo
víðar annars staðar á enn eftir
að kanna stöðu mála hvað tjón
varðar. -Ótt