Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2000, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2000, Qupperneq 15
Þrátt fyrir þrálátan orðróm um dauða Jafningjafræðslunnar lifir hún góðu lífi. Um þessar mundir hefur JF margeflst og stefna aðstandendur hennar að því að láta góða hluti gerast í sumar. Hjá JF vinna nú 19 manns í fullu starfi og er þeirra aðalstarf að fræða ungt fólk um hætturnar sem fylgja vímuefnaneyslu og gefa þessu sama fólki tækifæri til þess að mynda sér skoðun á vímuefnum - á eigin forsendum. Fókus tók púlsinn á Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur og Elmu Lísu Gunnarsdóttur, starfsmönnum JF. Taka jm ■■ ■■■■ aisioou iii vímuefna Sylvia og Elma eru báðar vest- urbæingar í húð og hár. Elma var að vísu fyrstu níu ár ævi sinnar i Fellunum en fluttist þá í rokið vestan við miðbæinn. Þær hafa báðar starfað með Jafningjafræðsl- unni áður, er þetta þriðja sumar Sylvíu en annað sumarið hennar Elmu. Sylvía er ‘80 módel sem lauk náttúrufræðibraut Kvennó i vor og hyggur á nám i verkfræði við HÍ í haust. Elma er ‘73 módel og leiklistamemi sem var að ljúka þriðja árinu sínu við Leiklistar- skóla íslands. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því að hjálpa fólki og gæti jafn- vel hugsað mér að fara i einhvers konar þróunarstarf að námi loknu. Þetta skýrir líka af hveiju ég hef áhuga á því að starfa með Jafningjafræöslunni," segir Sylvía. Starfið í sumar einkennist af vinnu með Vinnuskóla Reykjavík- ur en þar fer fram forvamarstarf í formi fræðslu fyrir unga fólkið sem þar er við störf. Einnig er Jafningjafræðslan dugleg við það að selja þjónustu sína til ýmissa fyrirtækja hér á landi og mæta starfsmenn þá galvaskir og bjóða upp á fræðslu og forvamir. Elma Lísa tók að sér að skýra aðeins fyrir okkur fyrirkomulagið á fræðslunni. „Við reynum að brjóta upp dag- inn hjá þessu unga fólki og höfum farið með það í Selið í Hveragerði. Þegar þangað er komið eyðum við töluverðum tíma í að kynnast hvert öðrum og síðan forum við í fræðsluna. Á fundunum sjálfum ríkir fullur trúnaður þannig að við getum í raun ekki tjáð okkur á neinn hátt um það sem þar fer fram. Þó má benda á að aðal mark- miðið okkar er að unga fólkið myndi sér skoðun og sé vakandi fyrir umhverfi sínu.“ Stelpurnar blása á þá gagnrýni sem fram hefur komið á JF - að ekki eigi að kynna ungu fólki skaðsemi vímuefna og vona bara að það frétti ekki af þeim. „Með því að kynita ungu fólki hvað þessi efni gera og hvernig þau vinna fær það tækifæri til þess að taka meðvitaða afstöðu til efnanna og hvað þvi finnst í raun og veru um þau. Þegar ungt fólk talar við ungt fólk eru mun meiri líkur á því að hægt sé að ná til þess. Þvi miður virðist fullorðið fólk ekki ná sömu tengslum við ungt fólk og fólk á svipuðu reki,“ bætir Elma við. Þegar hér er komið sögu berst talið að lítilli umfiöllun um JF á undanfornum misserum. „Því miður hefur ekki alveg tek- ist að halda starfinu á fleygiferð allan ársins hring og yfirleitt ver- ið töluvert meira að gerast á sumr- in. Það stendur þó til bóta og mun- um við leitast við að efla starfið við tengiliðina í framhaldsskólum landsins og halda uppi góðum dampi í vetur. Síðan munum við að sjálfsögðu vera á fullri keyrslu í allt sumar og bjóða upp á tón- leika og fleira við allra hæfi,“ sagði Sylvía í lokin. Jafningjafræðslan er með aðset- ur í Hinu húsinu í hjarta Reykja- víkur. Sylvía og Elma eru tvelr af 19 starfsmönnum Jafningjafræðslunnar. Tll stendur að standa fyrir öflugu starfi í allt sumar og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. IHErrA 9 H /\FM AR FJ Ö RÐ U R * Fjarðargata '13 - 15 - Sínii 565 0073 i n\\\ F 1 v Ef þú kaupir buxur færðu bol eða skyrtu af slá á 5 krónur 30. júní 2000 f Ó k U S 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.