Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Page 8
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000
8
^úðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónieikar—sýningar—kynningar og fl. ogfl. og fl.
■n
feoípy - ws8@Odff(>0@O<o)«>
..og ýmsir fylgihlutir
Ekki treysta á veðrið þegar
skipuleggja á eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
T|öld af öllum stœrðum
frá 20 - 700 m2.
Leigjum einnig borð
og stóla í tjöldin.
skáta
skátum ó heimavelli
sími 562 1390 • fax 552 6377 • bis@scout.ls
Fréttir
Fjölbrautaskóli Vesturlands:
Reiknilíkanið óhagstætt
- leiðin til útgjaldalækkunar er að fella niður nám
DV, AKRANESI:________________________
A síðasta fundi skólanefndar Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
greindi Þórir Ólafsson skólameistari
frá bréfi sem hann sendi mennta-
málaráðuneytinu vegna fjárhags-
stöðu skólans þar sem hann útskýrði
halla sem varð á rekstri seinasta árs.
Þórir segir það muni hafa afdrifa-
einingum eins og verknámsdeildum
eða hætta kennslu á Snæfellsnesi.
Þessi úrræði snerta öll grundvall-
arstarfshætti skólans og þá þjón-
ustu sem honum er ætlað að veita
Á tímum síhækkandi bensínverðs skiptir eyðslan bíleigendur gríðarlegu
máli, sérstaklega þegar Ijóst er að lítraverðið fer í 100 krónur.
Það er vandfundinn bíll sem eyðir minna bensíni en Daewoo Matiz.
Nýlega komst hann í Heimsmetabók Guinness fyrir litla bensíneyðslu,
þegar honum var ekið 3.899 km. á aðeins 122 lítrum í Ástralíu -geri aðrir
betur!
Ef þú sérð brosandi bíleiganda á bensínstöð, þá er hann eflaust á Matiz!
Nýr Matiz fyrir 457 krónur á dag!*
Verð:
Matiz S kr. 829.000,-
Matiz SE kr. 899.000,-
MatizSE-X kr. 966.666,-
riauz o, utDorgun Kr. i oj.ouu,-
eftirstöðvar til 72 mánaða.
Miðað við bílasamning og verðbólguspá.
Gamli bíllinn þinn getur líka verið útborgun.
Bílabúð Benna ‘Vagnhöfða 23 og Kringlunni • Sími 587-0-587 • www.benni.is
- og kominn í
heimsmetabókina!
Erfiöleikar í skólahaldi
„Reiknilíkaniö er miðaö við skóla sem hafa betri aðstöðu til að sérhæfa
námsframboð sitt og búa við meiri stöðugleika en Fjölbrautaskóli Vestur-
lands, “ segir Þórir Ólafsson skólameistari.
ríkar afleiðingar fyrir FVA ef
reiknilíkan það sem skammtar skól-
unum fé verður ekki endurskoðað,
t.a.m. gæti þurft að fella niður
kennslu á ákveðnum námsbrautum.
Hann segir einu leiðina til að ná
fram umtalsverðri lækkun útgjalda
þá að fella niður tiltekið nám, þ.e.
hætta að bjóða fram nám á ákveðn-
um námsbrautum. Það er leið sem
er nærtæk á svæði þar sem nemend-
ur geta auðveldlega leitað í aðra
skóla. Nemendur FVA verða að
sækja í skóla utan Vesturlands ef
námið er ekki í boði í FVA. Einnig
er mögulegt að takmarka aðgang
þeirra sem eru mest áberandi í
brottfallshópnum með ófyrirséðum
afleiðingum á möguleika þeirra til
menntunar. Þá er hugsanlegt að
fella niður nám í dýrum rekstrar-
Vestlendingum. Reiknilíkanið sem
skammtar skólunum fé er óhagstætt
skóla eins og FVA, meðalstórum
skóla með breitt námsframboð og
mikið verklegt nám. í bréfi Þóris
segir að verði sá agnúi ekki sniðinn
af reiknilíkaninu verði bakreikn-
ingar vegna brottfalls stærri en svo
að þeir verði endurgreiddir með
hagræðingu einni saman.
Allur almennur rekstur skólans
er nú í lágmarki. Stefnt er því að
lækka almenn rekstrarútgjöld árs-
ins 2000 um 5% frá árinu 1999. í ljósi
þess að fjárveitingar til skólans hafa
dregist saman milli áranna 1999 og
2000 er ljóst að þetta mun ekki duga.
Þórir heldur því fram að þær að-
ferðir sem notaðar eru við ákvörð-
un fjárveitinga standist ekki þegar í
hlut á skóli eins og FVA. -DVÓ/HH
Landgræðslufélag
Skarðsheiðar
fær 6 milljónir
- frá Umhverfissjóði verslunarinnar
DV, MELASVEIT:____________________
Landgræðslufélagi Skarðsheiðar
hafa verið afhentar 6 milljónir
króna frá Umhverflssjóði verslunar-
innar til uppgræðslu lands undir
Hafnarfjalli en umhverflssjóðurinn
fær tekjur sínar af plastpokum.
Þetta er í annað sinn sem umhverf-
issjóðurinn styrkir verkefnið og það
gerir félaginu kleift að halda því
áfram. í dag var byrjað á að planta
3000 plöntum í
þriggja kílómetra
skjólbelti með fram
þjóðvegi 1 en það er
stórt svæði frá Öl-
veri út að Fiskilæk í
Melasveit sem þekkt
er fyrir uppblástur
og mela og hefur
Landgræðslufélag
Skarðsheiðar haflst
handa við upp-
græðslu á svæðinu.
Markmið verkefnis-
ins eru meðal annars
að bæta landkosti á
svæðinu bæði til
mannvistar, útivist-
ar, búskapar; skýla
þjóðveginum og
vernda og stækka
Hafnarskóg. Verkefnið hefur farið
vel af stað og eru bændur á svæðinu
mjög áhugasamir og mikið að gera.
Landgræðslufélag Skarðsheiðar
var stofnað í vor af ábúendum 16
jarða við Hafnarfjall en Hafnarskóg-
arverkefnið sjálft hófst i fyrra þegar
lúpínu og grasfræi var sáð í um 150
hektara lands. Landgræðslufélagið
hefur annast allar framkvæmdir en
Landgræðslan var faglegur ráðgjafi.
Það var Bjarni Finnsson, formaður
Umhverfissjóðs verslunarinnar,
sem afhenti Landgræðslufélagi
Skarðsheiðar styrkinn en sama upp-
hæð var veitt í fyrra. Bjarni sagði
m.a. að sjóðurinn hefði fylgst vel
með þessu verkefni og litist vel á
það en fyrr á öldum var Hafnar-
skógur einn stærstu skóga landsins.
Umhverfissjóðurinn hefði því jafn-
vel áhuga á að styrkja verkefnið
enn frekar. Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri þakkað fyrir þetta
mikilvæga framlag frá Pokasjóði
verslunarinnar og sagðist vona að
sjóðurinn efldist og dafnaði svo
hægt yrði að græða landið enn frek-
ar. -DVÓ
DV-MYND DVÓ
Beint úr Pokasjóði
Bjarni Finnsson, formaöur Umhverfissjóös verstunarinn-
ar, afhendir Baldvini Björnssyni frá Skorholti, formanni
Landgræðslufélags Skarösheiðar, 6 milljónirnar.