Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000
DV
11
Fréttir
Bændasamtök íslands og FEIF, Alþjóöasamtök íslandshestafélaga:
Alþjóðlegur gagnagrunnur
um íslenska hestinn
DV, AKUREYRI:_____
Bændasamtök íslands og FEIF
(Alþj óðasamtök íslandshestafélaga)
hafa tekið upp samstarf um að móta
alþjóðlegan gagnagrunn um ís-
lenska hestinn. Talið er að þessi
gagnagrunnur verði sá fyrsti sinnar
tegundar í heiminum og endur-
speglar verkefnið þann mikla áhuga
sem ríkir um íslenska hestinn í fjöl-
mörgum löndum og glöggt kom
fram á Landsmóti 2000.
Gagnagrunnurinn hefur hlotið
nafnið „Heimsfengur“ (WorldFeng-
ur) og byggir á þeim einstæða
gagnabanka (Feng) sem BÍ hafa
komið upp hér á landi en í hann eru
nú skráð vel yfir 100 þúsund hross
sem fæðst hafa hér á landi. Skráðar
eru upplýsingar um ættemi, lit,
sýningar og dóma, afkvæmi og
margt fleira. Grunnurinn hefur ver-
ið þróaður jafnt og þétt og nú hefur
verið tekin upp gæðastýring til að
tryggja rétta skráningu og þar
með áreiðanlegar ættemisupplýs-
ingar.
Á siðasta ári var ákveðið að
endurforrita Feng, tengja hann
Intemetinu og gera þannig gagna-
flutninga í og úr grunninum
mögulega um Netið um allan
heim. Með þessu móti er kleift að
gera gagnagmnninn aðgengilegan
til skráningar á íslenskum kyn-
bótahrossum erlendis og skjóta
um leið enn styrkari stoðum und-
ir ræktunina með því að bæta
hrossunum erlendis inn í kyn-
bótaútreikninga fyrir stóðhesta
sem enn em í notkun hér heima.
Samhliða tölvuvinnunni hófust
samningar milli BÍ-og FEIF um
hvemig hátta skyldi aðgengi ein-
stakra aðildarfélaga FEIF að Heims-
feng og meðhöndlun upplýsinga
Vinsæll hestur
Heimsfengur endurspeglar þann mikta áhuga
sem er um íslenska hestinn víöa um heim.
sem þau legðu inn í bankann. Að
samningunum unnu Jens Otto Veje,
Danmörku, og Clive Phillips,
Skotlandi, af hálfu FEIF en Ágúst
Sigurðsson hrossaræktarráðu-
nautur og Jón Baldur Lorange,
forstöðumaður tölvudeildar BÍ, af
hálfu Bændasamtakanna. Á firndi
sem ræktunarleiðtogar FEIF
héldu hér á landi í nóvember sl.
var verkefnið kynnt og hlaut það
einróma stuðning.
Samningurinn, sem undirritað-
ur var nú á landsmótinu, ber með
sér þá gagnkvæmu virðingu og
traust sem einkennir samstarf
þessara aðila. í honum felst ávinn-
ingur fyrir alla hlutaðeigandi.
Hann innsiglar stöðu íslands sem
upprunalands íslenska hestsins,
breikkar grunninn undir útreikn-
ingi kynbótamats og veitir innsýn
í markaðsþróun erlendis. Erlendir
hestaeigendur fá aðgang að marg-
háttuðum upplýsingum um hross
sín, forfeður þeirra og ættingja sem
aðstoðar þá við ræktun og hrossa-
val.
Forritun á Heimsfeng er langt
komin og brátt verður forritið reynt
i tveimur löndum sem valin hafa
verið til prófunar, þ.e. í Noregi og
Sviss. Vonast er til aö Heimsfengur
verði fullreyndur og standi öllum til
boða snemma á næsta ári.
Landbúnaðarráðherra hefur stutt
þetta verk og er forritunin kostuð
að miklu leyti af fé sem rikisvaldið
veitir til þróunar í hrossarækt sam-
kvæmt samningi sem undirritaður
var sl. vetur. Landbúnaðarráðherra,
formaður BÍ og forseti FEIF hafa
undirritað sameiginlega yflrlýsingu
um stuðning við áframhaldandi
samstarf á þessu sviði sem m.a. fel-
ur í sér viðurkenningu á íslandi
sem upprunalandi íslenska hests-
ins. -gk
Sýningar- og
reynsluakstursbílar
Á STÓRLÆKKUÐU
VERÐI
FYRSTIR K0MA FYRSTIR FÁ
Þeir sem hafa hraðar hendur geta nú tryggt sér bíl af
bestu gerð á enn lægra verði. í nokkra daga seljum við
með góðum afslætti nokkra bíla sem notaðir hafa verið
á sýningum og í reynsluakstri.
Fyrstir koma, fyrstir fá. Ekki missa af þessu tækifæri.