Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2000, Blaðsíða 3
ég get ekki sagt að ég eigi mikið sam-
eiginlegt með Billy Jean,“ segir Rakel
og brosir um leið og hún drekkir sér í
café au lait inni á Hominu í Hafnar-
stræti 15. Undir þessi orð hennar tekur
Védís sem leikur sakleysingjann hana
Möggu sem vill helst ekki sofa hjá
snoppufríða kærastanum sínum,
Benna. Það er aftur á móti Billy Jean
meira en fus til þess að gera - enda lagst
undir hnífínn áður. Verkið er stór-
skemmtilegt og hefur verið sýnt i Loft-
kastalanum við fádæma imdirtektir
áhorfenda. I stuttu máli segir sagan frá
nokkrum krökkum sem stunda
skemmtistaðinn “Ertu í fíling“ og er
hann með endalaus Jacksonkvöld. Þar
reyna þau að syngja, við hvort annað og
eiturlyf sem er útbýtt þeirra á meðal
með hrikalegum afleiðingum. Nokkrir
krakkanna ákveða að takast á við þessa
vá og takast á við stórlúðann Óskar,
eiganda staðarins, sem er leikinn af
Kára Gauta Guðlaugssyni (sannfær-
andi leikur, Kári minn).
„Handritshöfundar sýningarinnar
gáfu okkur ákveðið svigrúm þegar ver-
ið var að skrifa. Þeir tóku ábendingar
okkar alvarlega og þannig tóku verzl-
ingar fullan þátt í sýningunni frá upp-
hafl,“ segir ofurskvisan Védís sem sleit
barnskónum sínum innan 108-svæðisins
í Reykjavik. Védis er í fullu starfi sem
leik- og söngkona i sumar og sinnir því
að mikiili alúð. Þetta endurspeglast
glögglega í því hversu fantagóð söng-
kona hún er.
„Eitt af því fyrsta sem allir spyrja
okkur að er hvort þetta hirði ekki mik-
inn tíma frá náminu," grípur Rakel inn
í og tekur annan sopa af kaffinu sínu.
Rakel er, rétt eins og stalia hennar,
Reykvíkingur í húð og hár tókst á við
bamæskuna í Ártúnsbrekkunni þar
sem hún söng hástöfum í kór á sínum
yngri árum. Rakel gefur Védísi ekkert
eftir f söngnum og víst þykir að þær eigi
báðar eftir að sjást aftur á sviðinu syngj-
andi.
„Sýningin var frumsýnd 3. febrúar á
nemendamóti Verzlunarskólans og
höfðum við þá verið að æfa söngva og
dansa stanslaust frá því um haustið.
Vissulega tók þetta töluverðan tíma frá
okkur. Flestir kennaranna era þó skil-
ingsríkir og reyna að hliðra til fyrir
okkur.“
Sýning verzlinga hefur gengið svo vel
að ákveðið var að halda sýningunni
áfram í sumar í samvinnu við forsvars-
menn Loftkastalans.
Fókus hvetur þá sem ekki hafa enn
þá hunskast á sýninguna að drífa sig,
setja á sig silfurhanskann og hattinn,
þamba bjór þangað til þeir verða með-
vitundarlaus og hlusta á Jackson-filing-
inn eins og hann gerist bestur. Ef það
nægir ekki era þama nokkrir vel út-
skomir dansarar sem halda manni við
efnið á miili atriða.
sauriífsseögunnn og plastdukkan
Michaeí Jackson
raörg af bestu poppiögum sögunnar.
b A siöasta.nemencianioti verzlinga var
ákveðiö aö taka tíi sýninga nýjan
söngíeik meö lögum Jacksons í
þýðingu vísnasniHingsins Hailgríms
Helgasonar. Fókus:ákvað a'ð
kíkia á Sýnífígtína og athuga þessa
menntaskóla. Þeir viröast hafa tekið
að sér að haída uppl leikhuslífi iandans
! sumar.
Sögusviöið er sjávarþorpið Djúpidalur og búið er að selja kvótann burt. Strákarnir eru atvinnulausir og
stelpurnar vinna allar í ígulkeraverksmiöjunni. Frekar súrir sjá þeir myndina um ráöagóðu bresku iðnaðar-
mennina og fá í kjölfarið þá snilldarhugmynd að troða upp á sjómannadaginn, kviknaktir. Söguþráðurinn
hljómar eflaust kunnuglega enda er um aö ræða grínleikrit með söngvum, byggt á hinni sívinsælu kvik-
mynd Full monty. Frumsýning á „Með fullri reisn“ er í Tjarnarbíói í kvöld.
„Við lofum nekt, góðri tónlist, bull-
andi skemmtun og þvi að fólk komi og
hlæi sig máttlaust. Okkur er ekkert
heilagt og við gerum grín að öllum,“
segir Guðmundur Rúnar Kristjánsson,
handritshöfundur og leikstjóri.
„Reykjavík er ein menningarborganna
í ár og því hafa flest leikhúsin keppst
við að halda úti miklum menningarvið-
burðum. Okkur fannst vanta skemmt-
Hluti hópsins fyrlr utan Tjarnarbíó.
un, það var ekkert sem
heitir grin og glens en
það er einmitt það sem
þessi sýning er, grín og
glens. Því ákváðum við aö drífa í
þessu.“ Leikritið gerist að mestu leyti á
æfingatlma strákanna í Djúpadal
þannig að hugmyndin er 1 stóram drátt-
um sú sama og við sáum í myndinni.
Þó skipar tónlist, bæði íslensk og er-
lend, stóran
sess og eins era
kvenpersónur
meira áberandi
i þessari ís-
lensku leik-
gerð.
Þremenn-
ingar og 10
leikarar
Auk Guð-
mundar . eru
það Matthías
Matthíasson
tónlistarstjóri
og Bjartmar
Þóröarson
danshöfundur
sem halda utan
um sýninguna.
Drengimir era
Með fiullri reisn
langt í frá ókunnugir leikhúsheimin-
um, Guðmundur hefur kennt leiklist í
nokkum tíma og sett upp verk hingað
og þangað, m.a. Heimtan úr helju með
Fjölbraut í Breiðholti.
Matti hefur m.a. sungð i Hárinu,
Jesus Christ Superstar og verið tónlist-
arstjóri hjá MH í Hárinu og i Heimtum
úr helju. Bjartmar hefur kennt dans í
mörg ár og lék m.a. aðaðhlutverk í
nemendauppfærslum Versló í nokkur
ár.
Leikhópinn skipa 10 manns um eða
yfir tvítugt; ailt ungt hæfileikafólk sem
starfað hefur í leikhúsunum. Með
stærsta kvenhlutverkið fer Margrét Eir
Hjartardóttir og í stærsta karlhlutverki
er Guðjón Davið Karlsson en hann hef-
ur leikið mikið í Þjóðleikhúsinu.
Ferskir vindar
Bryddað era upp á ákveðinni ný-
breytni í leikaravali í Með fullri reisn.
Með hiutverk Spassa fer nýr og nýr
leikari á hverri sýningu en þó alltaf
þekktur leikari í íslensku leikhúsi.
Fyrst um sinn mun Hjálmar Hjálmars-
son leika Spassa en svo er það leyndar-
mál hverjir verða næstu Spassar.
„Hlutverkið hentar vel í þetta, Spassi er
þrælfyndinn og hugmyndin er góð,“
segir Guðmundur.
En þetta er ekki eina nýjungin því
það eru aðrar byltingarkenndari. -
Nektardansmær frá Maxim's tekur þátt
í sýningunum og það hljóta að teljast
ferskir vindar i leikhúsheiminum. I
handritinu að verkinu fara aðalsögu-
hetjumar iun á Maxim's í Reykjavík og
því lá þetta nokkuð beint við, að sögn
Guðmundar. „Geiri á Maxim's skaifar
stelpu á hverja sýningu. Pælingin er sú
að þessar stelpur era skráðar inn í
landið sem listamenn og því ekki að
nota þær þannig?" segir Guðmundur
leikstjóri. „Marina fer með hlutverkið
út ágúst en þá tekur önnur við.“
Æfmgar hafa staðið i rúman einn og
háifan mánuð og Guðmundur segir ailt
hafa gengið vel. Miklar endurbætur
hafa verið gerðar á Tjamarbíói, bæði
fyrir áhorfendur og eins baksviðs
þannig að það ætti ekki að væsa um þá
sem skella sér á sjónleikinn. Eins og
áður sagði er frumsýning í kvöld og
önnur sýning þann 23. nk. -HH
e f n i
Arlindo frá
Grænhöfða-
eyjum:
Strippar
og slátrar
kjúllum
Anna Kournikova:
Strákarnir
vilja refsa
henni
Stoke City:
Sætar
stelpur
og dýr bjór
Reykjavik
City:
Bangkok
norðurs-
Ragnheiður
Axel:
Hvíslandi
eldfjall
10
IfeLiZ'
,-U- Kim
Stelpa sem
tekur
stórt upp í sig
Jimi Tenor:
Kvikmyndatón
list án kvik-
myndar
Mary Poppins:
Blómarokk úr
Breiðholti
Maggi Logi:
Bakar pönnu- A
kökur 1
'Andy Sellar:
Ministry of
Sound á
Thomsen
I m.
Lárus Hjálmarsson^
Meira um tón- \ ;
listargagnrýni
1* J* m
1 f 1Ö
Sækó Ameríkani
Hún vill kossa. kossa. kossa
Hópur fólks i ÍR húsinu
Bleeder er framhald á Pusher
Selló í 12 tónum
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók Hilmar Þór af
Ragnheiði Axel
21. júlí 2000 f ó k u s
3