Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2000, Side 4
Fyrir þá sem ekki
geta hugsað sér að
húka í tjaldi yfir
verslunarmanna-
helgina er komin
góð lausn því á
Thomsen er verið
að setja saman
dagskrá fyrir borg-
arrotturnar.
Langbest
i bænum
Það verður þriggja daga geðveikt
djamm á Thomsen um verslunar-
mannahelgina til að bæta djamm-
þ y r s t u m
Reykvík-
ingum upp
afar slaka
útihátíða-
helgi. Að
sögn Agn-
ars Tr.
Le’macks,
annars eig-
anda stað-
arins, hafa
þeir ákveð-
ið að bjarga
því sem
bjargað verður um þessa stærstu
djammhelgi landsmanna þar sem
meirihluti borgarbamanna kunni
nú alltaf vel að meta að þurfa ekki
að húka í tjaldi í rigningu og hlusta
á Skítamóral. Hann segir að
ástandið sé svo slæmt í ár að það sé
bara um þjóðhátíð að ræða eða ekk-
ert og því hafi þeir rokið til og hent
saman góðri röð af hörkuplötu-
snúðum sem komi til með rokka
staðinn þessi þrjú kvöld.
Þekktasta nafnið sem komið er á
listann er án efa breski plötusnúð-
urinn og útgefandinn Miles Hollo-
way. Miles þessi kom hingað til
lands fyrir nokkrum árum og gerði
bókstaflega allt vitlaust á gamla
Rósenberg og muna vist margir
eftir því giggi. Agnar segir að auk
hans muni allir þekktustu íslensku
plötusnúðarnir sem spilað hafa á
Thomsen mæta á svæðið, auk ann-
arra, og þá sé annað stórt erlent
nafn i spilunum en það skýrist á
næstu dögum.
Undirbúningur er þegar kominn
nokkuð á veg og segir Agnar að tek-
in hafi verið ákvörðun um að
breyta Thomsen nokkuð fyrir þessa
stóru helgi. Hann segir að þrátt fyr-
ir veruna í borginni verði verslun-
armannahelgarfllingur yfir öllu
saman svo íslendingar gleymi nú
ekki alveg hverjir þeir eru. En
burtséð frá öllu virðist ljóst að ef
fólk ætlar á annað borð að vera í
borginni þá er Thomsen staðurinn
til að mæta á, og ef út í það er far-
ið mætti fólk alveg íhuga að drull-
ast bara til að vera í bænum.
Hann heitir Arlindo Soaris
Bandera og er 29 ára. Hann vinn-
ur í kjúklingaverksmiðjunni
Reykjagarði á Hellu og dansar
nektardans þegar vel liggur á
honum. „Ég kom til íslands fyrir
fjórum árum og vann þá í frysti-
húsi, bjó svo í Reykjavík og lík-
aði vel og er núna kominn á
Hellu. Heima á Grænhöfðaeyjum
var enga vinnu að fá. Hér er hins
vegar mjög gott að vera og fólkið
er skemmtilegt." Fyrir þá sem
ekki vita það eru Grænhöfðaeyj-
ar fjöllóttar klettaeyjar við vest-
urströnd Afríku og voru áður ný-
lenda Portúgala. Arlindo hefur
hins vegar sagt skilið við heima-
hagana, í bili a.m.k.
Mörg járn í eldinum
„Ég dansa af því mér finnst það
skemmtilegt, ekki vegna pening-
anna enda eru þeir líka svo litlir.
Það er nefnilega dýrt að kaupa
sér búning og græjur, flugmiða
hingað og þangað. Það er hringt í
mig og mér boðiö að dansa, hef
t.d. verið í Vestmannaeyjum,
Keflavík og á Akureyri.“ Það er
eitt ár síðan Arlindo hóf að
stunda þennan aukastarfa og
honum líkar svona ljómandi vel.
Hann segist skemmta sér líka og
að sér sé alveg sama hvort hann
dansi fyrir karla eða konur. Þetta
hófst allt með því að vinkona
hans, sem vinnur á Bóhem,
hvatti hann til að skeUa sér í
bransann þar sem hann væri
dansmaður mikill og vörpulegur
í alla staði. Eftir það varð ekki
aftur snúið og nú hefur Arlindo
dansað á nokkrum þartilgerðum
stöðum borgarinnar. Hann segir
Arlindo gegndi herskyldu í tvö ár á
Grænhöfðaeyjum.
Þegar maður keyrir um grámóskulega þjóðvegi landsins í skýjaþykkni
og aigjöru stefnu- og reiðileysi, bugaður af vegarykinu og subbu-
legum sjoppum og þráir einhverja nýbreytni, þá er Hella lausnin. Þar
er nefnilega hægt að láta piltinn Arlindo dansa fyrir sig og það
sko engan Óla skans, ó, nei. Fókus kynnti sér málið.
- i*
Vlð bakka Ytri-Rangár á Hellu.
þetta eintómt gaman og að hann
hafi aldrei verið feiminn. Arlindo
hefur dansað mikið 1 gegnum tíð-
ina, þannig var hann sjö ára þeg-
ar hann tók þátt í sinni fyrstu
kjötkveðjuhátíð og svo varð hann
karnivalkóngur á Grænhöfðaeyj-
um árin 1990 og 1996.
En af hverju ísland? „Bróðir
minn benti mér á að koma en
hann hefur verið hér i fjöldamörg
ár og er vélstjóri á togara. Svo
hefur reynst það gott að búa hér
að ég hef ekkert farið heim eftir
að ég kom hingað árið 1996.“
Áður en Arlindo kom til íslands
hafði hann kynnst mörgum ís-
lendingum á Grænhöfðaeyjum
sem unnu við sjávarútveg. Hann
segist stundum verða fyrir for-
dómum af hálfu íslendinga en
gerir þó litið úr því, segir íslend-
inga gott fólk. Hann tekur þó sem
dæmi að ef lögreglan kemur að
íslending og blökkumanni í ein-
hverjum stimpingum niðri i bæ,
þá sé blökkumaðurinn umsvifa-
laust yfirbugaður þvi eflaust hafi
hann ráðist á saklausan Frónbú-
ann.
Bara kjúlli núna
Fram undan hjá Arlindo er
vinna; dans og kjúklingur. Hann
á þó von á börnunum sínum
tveimur í heimsókn frá Græn-
höfðaeyjum í haust og eins er
hann líklega á leiðinni heim í
október til að gifta sig. Aðspurð-
ur segir hann sér alveg vera
sama um það hvað fólk kjaftar og
allt umtalið. Heima vita allir
hvað hann gerir á íslandi. „Það
er leiðinlegt fyrir mömmu en
pabbi er alveg sáttur við það.
Mamma vill ekki koma og heim-
sækja mig vegna nektardansins,"
segir Arlindo Soaris Bandera,
kjúklingaslátrari og nektardans-
ari með meiru. Hver veit nema
Hella sé að fá á sig nýja og nú-
tímalegri ímynd? Eden í Hvera-
gerði, Njálusafnið á Hvolsvelli,
Reynisdrangar í Vík og stripp á
Hellu? -HH
í fínu karnlvalpússi á hátíðinni 1996,
þá var hann kosinn karnivalkóngur.
---------------------------------------------
Ert þú á aldrinum 15 til 25 ára?
Þá á Biotherm fullt erindi til þín.
Biotherm-vörurnar eru mjög vinsælar hjá ungu, hressu fólki víða um heim.
Biotherm eru náttúrulegar snyrtivörur fyrir ungt fólk sem nýtur lífsins.
Því ekki að prófa?
Klipptu út auglýsinguna og farðu með hana á næsta BIOTHERM útsölustað
og þar færðu fría gjöf. Þú getur valið um að fá hreinsi, andlitsvatn og rakakrem
sem henta þurri, viðkvæmri, normal eða blandaðri húð.
Vertu velkomin(n), það verður tekið vel á móti þér. (Líka ykkur, strákar.)
Útsölustaðir:
Andorra, Strandgötu 32, Hafnarfirði - Bjarg, Stillholti 14, Akranesi - Bylgjan,
Hamraborg, Kópavogi - Fína, Háholti 14, Mosfellsbæ - Hjá Maríu, Amaró,
Akureyri - Hygea, Kringlunni - Hygea, Laugavegi 23 - Snyrtivöruverslunin,
Glæsibæ.
aawBB
AQUASOURCE
RAKABAÐ SEM JAFNGILDIR
5000 LÍTRUM AF LINDARVATNI í
EINNI KRUKKU.
öflug rakagjöf sem slekkur þorsta
húðfrumnanna tímunum saman.
Rakafyllt kremið/hlaupið veitir
L vellíðan og ánaegjulega notkun. Það
i. er ferskt, frískandi og fullt af virkni
5000 lítra lindarvatns.
r.
f Ó k U S 14. júlí 2000
4