Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2000, Page 11
Jimi Tenor er mættur með nýja plötu og hún hljómar ekkert líkt
því sem flestir bjuggust við frá þessum speisaða fönkbolta.
Tónlist fyrir geggjaöa
llsatefiiiiuiw^ynd
„Verk sem samin eru fyrir kvikmyndatónlist eru alltaf stutt, stundum þrjár mínútur eöa minna, sem er ekki langt frá lengd
popplaga,“ útskýrir Jimi Tenor.
Finninn Jimi Tenor er svalur
náungi og íslendingum að góðu
kunnur eftir að hann spilaði á
Thomsen fyrr á árinu með kon-
unni sinni Nicole Willis. Hann
heitir reyndar Lassi Lehto en
tók upp Jimi-nafnið þegar hann
var sjö ára því öllum í hverfinu
hans fannst hann svo líkur Jim-
my úr The Osmonds. Tenor bætt-
ist við þegar hann fór að spila á
saxófón. Jimi hefur föndrað við
alls kyns tónlist í gegnum tíðina,
verksmiðjuhávaðapönk í byrjun,
svo skakkt diskó, en eftir að hann
gerði samning við enska Warp-
merkið hefur eins konar speisað
kokkteilfönk verið hans aðals-
merki.
Hann hefur verið kallaður
„hinn finnski Barry White“ en
með nýju plötunni sinni, „Out of
Nowhere“, fer hann í allt aðra átt
en búast mátti við.
Lífræn ræktun í Pól-
landi
Platan, sem kom út í vikunni,
var tekin upp í Póllandi og nýtur
Jimi aðstoðar hinnar 55-manna
The Great Theatre Lodz org-
hestru. Tónlistin ber ótvírætt
merki niðþungrar nútímaklassík-
ur og frídjass. En látið þessa lýs-
ingu ekki fæla ykkur frá, sjálfum
leiðist Jimi flest nútímaklassík
og er því hrifnari af kvikmynda-
tónlist.
„Verk sem samin eru fyrir
kvikmyndatónlist eru alltaf stutt,
stundum þrjár mínútur eða
minna, sem er ekki langt frá
lengd popplaga," útskýrir Jimi.
„Ég hef farið á tónleika með nú-
timatónlist og næstum því sofnað
því verkin eru allt of löng“.
Á plötunni syngur einnig
finnski Pro Canto kórinn og
Baluji Shrivastav spilar á sítar
og tambla. Tónlistin er þung í
Stjörnukerfi Ifókus
★ ★ ★ ★ * Gargandi snilld! ★ Notist í neyð.
★ ★★ ★ Ekki missa af þessu. 0 Tímasóun.
★ ★ ★ Góð afþreying. Skaðlegt.
★ ★ Nothæft gegn leiðindum.
plötudómar
fyrstu en venst furðuvel. Innan
um tónlist sem hljómar eins og
hún gæti verið úr vísindamynd
frá því um 1970 (Jimi reyndi að
muna hvernig tónlist er í Planet
of The Apes þegar hann samdi ti-
tillagið) er íðilfagurt fönk, eins og
t.d. fyrsta smáskífulagið „Spell“.
Þetta er lífrænt ræktuð plata hjá
Jimi og engar tölvur eða „sömpl“
með í spilinu.
Leyfði það mannlega
Jimi útskýrir þessa þróun
svona: „Ég var orðinn leiður á til-
raunakenndri raftónlist og
smekklegu teknói og endalausum
töktum. Mér datt því í að koma
þessum leiða mínum á framfæri
með því að nota ekkert af þessari
tækni. Ég var tilbúinn því að
gera mistök, leyfa slappa spila-
mennsku og syngja af tilfinningu.
f raun allt það sem er mannlegt.
Ég vildi skemmta mér með hljóð-
færaleikurunum i stað þess að
gera allt upp á eigin spýtur."
Nýja plata Jimi Tenor er
sándtrakk fyrir kvikmynd sem
ekki er til og þó Jimi vildi gjarn-
an gera alvöru kvikmyndatónlist
er hann ekki vongóður um að það
gerist. „Kvikmyndir frá
Hollywood eru ömurlegar og í
Evrópu virðast þeir ekki hafa
áhuga á að hafa góða tónlist í
myndunum," segir Tenorinn.
„Tónlist mín væri góð fyrir vís-
indamynd eða einhverja geggjaða
risaeðlumynd. Það voru gerðar
frábærar vísindamyndir á 7. og 8.
áratugnum, en nú eru þær drasl.
Menn hafa bara áhuga á sjón-
ræna þættinum - stórum spreng-
ingum og bardagaatriðum."
Nýja platan hans Jimi Tenor er sándtrakk fyrir kvikmynd sem ekki er til og þó
Jimi vildi gjarnan gera alvöru kvikmyndatónlist er hann ekki vongóöur um aö
það gerist.
Fatboy fokkar í trúuðum
Bigg-bít snilling-
urinn Fatboy Slim
(alias Norman
Cook) er langt kom-
inn með nýju plöt-
una sína. Margir
leggja hönd á plóg-
inn, m.a. hinn stein-
dauði Jim Morri-
son, bassagoðið
Bootsy Collins og soul-drottningin
Macy Gray syngur tvö lög, en texti
annars þeirra hefur vakið reiði hjá
sannkristnum. Norman sagði þetta:
„Því meiri reiði sem ég get vakið hjá
hægri sinnuðum trúarhreyfingum því
betra og því betri kynning verður það
fyrir plötima."
Bangles með kombakk
Fleiri en Utangarðsmenn eru með
kombökk þessa dagana. Stelpumar í
The Bangles, sem vom upp á sitt besta
á 9. áratugnum og eru þekktastar era
fyrir lagið „Walk like an Egyptian",
era komnar saman aftar og ætla að
túra um bandaríska klúbba í septem-
ber. Upprunalega liðsheildin er farin
að semja ný lög saman og búast þær
við aö gera nýja plötu bráðlega. The
Bangles verða einnig gerð skil í þætti
af „Behind the Music" á VH-1.
Með morðhótun á toppinn
Sæti írinn Ronan
Keating úr Boyzone
fór beint á toppinn í
Englandi með lagið
sitt „Life’s A Roll-
ercoaster", sem tekið
er af plötunni hans
„Ronan“, sem kemur
út 22. ágúst. Smá-
skuggi féll þó á gleð-
ina með toppsætið því Ronan var send
morðhótun á Boyzone-vefnum. Söngv-
arinn fékk því lögregluvemd í ferðum
sínum í vikunni og er var um sig.
Pearl Jam aftur á túr
Þrátt fyrir harmleikinn á Hró-
arskeldu munu koma út tónleikadisk-
ar með Pearl Jam eins og áætlað var.
Teknir vora upp allir 25 tónleikar
sveitarinnar í Evrópu og verður hægt
að kaupa upptökur á hverjum fyrir sig
í gegnum heimasíðu bandsins
(www.tenclub.net). Hljómsveitin er
nú að búa sig undir Ameriku-túrinn
sem hefst 3. ágúst. „Öllum er farið að
líða aðeins betm-,“ segir sveitin um
andlega líðan sína og ætlar að kapp-
kosta að tónleikamir verði skemmti-
leg og fyrst og fremst öragg upplifun.
hvaö? fyrir hvernf
★★★ Flytjandl: UZZ piatan: Eldrauðar varir Útgefandl: UZZ/ Skífan Lengd: 30:00 min. Björn L. Þórisson er aðalmaður Uzz og kóngur i ríki sínu. Hann semur lög og texta og syngur öll lögin auk þess að spila á hljómborð á móti Mána Svavarssyni, sem kemur mikið við sögu. Þessi sjö laga plata er fyrsta plata Uzz, en sveitin hefur áöur átt nokkur lög á safnplötum. Tónlist Uzz er sitt-að-aftan sintapopp með hressum trommuheilum og minnir meir en lítið á íslensk dæmi eins og Geira Sæm og jafnvel Tod- mobile. Þetta er létt og snoturlega unnið nostalgíupopp fyrir þá sem voru ungir og í stuði fýrir 10-15 árum.
★★ Flytjandi: GlÓpaaull Platan:GIÓpagulT Útgefandi: Gréta Sigurjónsdóttir/ Skífan Lengd: 36:56 min. Fyrsti sólódiskur Grétu Sigurjónsdótt- ur, gítarleikara Dúkkulísanna. Á hon- um eru tíu lög, átta eftir Grétu, eitt eftir Herdísi fv. bassaleikara Grýl- anna og eitt eftir hljómsveitina Tepp- ið hennar tengdamömmu. Gítarar Grétu eru fýrirferöamiklir á plötunni en hún fær einnig góða aöstoð vina sinna. Tónlist Grétu - poppað nýbylgjurokk, blús, létt raggí o.fl. - hefði auðveld- lega getað komið út áriö 1985, bæði tónlistarlega og sándlega. Við neyslu disksins ætti því að birta yfir þeim sem hlutu sitt poppuppeldi á miðjum 9. áratugnum.
★★★ Flytjandi: YmSÍr piatan: Pönkið er dautt Útgefandi: Örkuml útgáfan Lengd: 72:23 mín. Þetta er safnplata með þorra þeirra íslensku hljómsveita sem kenna sig við pönk. Á henni eru bæöi marg- reyndir pönkarar eins og Kuml, For- garðar helvitis og Saktmóðigur og yngri sveitir eins og Bisund og Spit- sign. Platan er gefin út til minningar um Pönk-hátiðirnar sem haldnar voru I Norðurkjallara MH 96-98. Þetta er plata fyrir þá sem vilja attitúd frekar en frumlegheit eða flókið spileri. Það er kraftur i mörg- um af þessum hljómsveitum og líka hávaði og stundum stælar. Þetta er ekkert vælurokk eins og maður heyr- ir alltof mikið i útvarpinu þessi miss- erin.
skemmtilegar
staöreyndir
niöurstaöa
Björn syngur fimm lög á íslensku og
tvö á ensku. Textarnir fjalla m.a. um
heilaþvott, ástarveiru og líkams-
vessa og Björn syngur vel, er mjög
öruggur, hljómar Armani-töff og er
sannfærandi lostafullur, hljómar
stundum eins og hann sé við það að
fá’ða.
Dúkkulísurnar komu frá Austfjörðum,
sigldu I kjölfar Grýlanna og slógu í
gegn um miðjan 9. áratuginn þegar
þær sungu um s/h hetju og Pamelu
í Dallas. Stelpurnar snéru sér að
ööru nema Gréta sem stúderaði gít-
arinn meöfram því að vinna við kjöt-
iðn. Meö útkomu sólódisksins hefur
langþráður draumur ræst.
Yfirlýsingar um andlát pönksins hafa
fylgt því allt frá því að fyrstu pönk-
hljómsveitirnar skrifuðu undir plötu-
samninga árið 1976. Uppvakningar
þessarar tónlistarstefnu hafa samt
verið iönir viö kolann alla tíð síðan og
þönkið tekið á sig ýmsar myndir.
Þetta er ein útgáfan.
Lögin sjö eru ágætlega samin og oft
skemmtilega útfærð, en vantar
galdragripið til að gera þau verulega
eftirminnileg. Strákarnir sleppa
ágætlega frá sínu og kunna þetta allt
- hefðu jafnvel verið með puttann á
púlsinum árið 1988 - en platan er
þó full gamaldags til aö teljast til tíð-
inda árið 2000. dr. gunni
Gréta er klár gítarleikari, tekur sólóin
fagmannlega og flutningur allur er
ágætur. Textar eru góðir og persónu-
legir á köflum en lagasmíðarnar eru
veikasti hlekkurinn, lögin eru að
mínu viti ekki alveg að gera sig í dag
þó þau heföu mörg smellpassað
sem titillagiö i Löggulifi. Ferskari
hugmynda er þörf. dr. gunni
Þetta er ágæt plata. Það er ennþá
hressandi að hlusta á hraða og hráa
pönkkeyrslu. Sándið er misjafnt, allt
frá popplögum Saktmóðigs yfir í há-
vaðamúr Forgarða helvítis. Þó að
pönkið sé orðiö aldarfjórðungs gam-
alt þá er ennþá kraftur i þessari tón-
list. Það er líf í líkinu.
trausti júliusson
21. júlí 2000 f Ó k U S
11