Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000
Fréttir
DV
Formaður skipulagsnefndar Kópavogs:
Undrandi á sein-
læti borgarinnar
„Ég er undrandi á því að Reykja-
víkurborg skuli ekki hafa sýnt
þessu máli áhuga fyrr,“ sagði Ár-
mann Kr. Ólafsson, formaður skipu-
lagsnefndar í Kópavogi, vegna um-
fjöllunar umhverfis- og heilbrigðis-
nefndar Reykjavíkur um skipulags-
mál á Vatnsendasvæðinu í landi
Kópavogs.
„Byggð í Vatnsendalandi er búin
að vera inni á aðalskipulagi Kópa-
vogsbæjar til fjölda ára, auk þess
sem rætt hefur verið um þessa
byggð í vinnutengdu svæðisskipu-
lagi borgarinnar, en þar eiga öll
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
- vegna framkvæmda í Vatnsendalandi
inu fulltrúa," sagði Ár- kunni að hafa áhrif á lífríki
mann. „Og það sem meira Elliðavatns og Elliðaánna.
er, fulltrúi Reykjavíkur- I j.1 „Við getum verið sam-
borgar gegnir formennsku í • mála Reykjavíkurborg um
nefndinni." ^ * I að það eigi að fara varlega.
Eins og DV greindi frá í I » ^ Við viljum gera þetta í sátt
gær var málið rætt á fundi ’ og samlyndi við þá,“ sagði
umhverfis- og heilbrigðis- Ármann. „Það er á hreinu
nefhdar Reykjavíkur fyrir I að þeir hjá Reykjavíkurborg
skömmu. Var samþykkt að Ármann þurfa ekki að óttast að við
vísa því til Heilbrigðiseftir- pörum ekki fram munum fara fram með em'
lits Reykjavíkur og borgar- meö 0ff0rsj hverju offorsi. Við höfum
verkfræðings til umsagnar. ..látið vinna skýrslu varð-
Eins og fram kom í DV hafa borgar- andi frárennslismálin og annað
yfirvöld verulegar áhyggjur af því slíkt. Skipulagsnefnd Kópavogs er
að framkvæmdir í Vatnsendalandi mjög umhugað um að vatnið og líf-
ríki vatnsins haldi sér. Markmiðið
er að fólkið sem byggir Vatnsenda
geti rölt niður að vatni, veitt fisk,
skoðað fulgalíf, notið göngustíga í
skóglendinu sem þama er. Þetta
hefur komið skýrt fram á fundum
og verið rætt mjög ítarlega viö bæj-
arverkfræðing," sagði Ármann, sem
kvað bæjarverkfræðing Kópavogs
hafa óskað eftir fundi með forráða-
mönnum Reykjavíkurborgar um
málið snemma í sumar. Þeir hafi
ekki svarað erindinu fyrr en í þess-
ari viku. Fundurinn verði á næstu
dögum.
-JSS
Frágengiö mál
Niels Beck, framkvæmdastjóri hjá Er-
icsson í Danmörku, og Eyþór Arnalds,
forstjóri Íslandssíma, undirrituöu i
gær samning um kaup á tækjum og
hugbúnaöi til fjarskiptarekstrar.
Íslandssími í slaginn:
Nýtt far-
símakerfi
Farsímanotendum bætist nýr
kostur í janúar næstkomandi en þá
ætlar íslandssimi að hefja rekstur
eigin farsímakerfls. Frá fyrsta degi
á kerfið að ná til 90 prósenta lands-
manna en að auki mun hafa verið
gerður heildarsamningur sem sagö-
ur er tryggja viðskiptavinum ís-
landssíma aðgang að 237 reikisamn-
ingum í 107 löndum.
Íslandssími mun þegar hafa kom-
ið sér upp 60 tengipunkta kerfi
senda á höfuðborgarsvæöinu en alls
er áætlað að verja fjórum milljörð-
um króna til uppbyggingar á far-
símakerfinu á næstu fjórum árum.
Pétur Pétursson, upplýsingafull-
trúi Íslandssíma, segir fyrirtækið
Heimskort Íslandssíma
Grænu svæöin sýna þau lönd þar
sem Íslandssími hefur þegar reiki-
samninga í gildi en gulu svæöin eru
lönd þar sem samningar taka gildi á
næstu mánuöum.
ætla sér strax í upphafi að vera sam-
keppnishæft í verði og þjónustu.
Að sögn Péturs gera reikiákvæði
fjarskiptalaga farsímafyrirtækjum,
sem fyrir eru á markaði, skylt að
semja við ný fyrirtæki um að endur-
varpa þeirra simtölum á dreifikerfi
sínu. Þannig eigi væntanlegir við-
skiptavinir farsímakerfis íslands-
síma að geta notað síma sína alls
staðar þar sem það er nú þegar
hægt hérlendis.
„Þetta gerir tvennt: tryggir þeim
umferð um sitt kerfi og að ekki sé
ráðist í uppbyggingu á tvöföldu
kerfi þar sem það er óhagkvæmt,"
segir Pétur. -GAR
Af æfingu The lcelandic Take Away Theater á Dóttur skáldsins eftir Svein Einarsson
Dóttir skáldsins er fyrsta verk leiklistarhátíöarinnar Á mörkunum sem hefst annaö kvöld
Leiklistarhátíðin Á mörkunum kynnt:
Trúðleikur og Góðar hægðir
í gærdag var kynnt í Tjamarbíói
leiklistarhátíðin Á mörkunum sem
er samvinnuverkefni Samtaka sjálf-
stæðra leikhúsa og Reykjavíkur
Menningarborgar, dyggilega stutt af
Sjónvarpinu, Opnum kerfum og
Morgunblaðinu.
Þórunn Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Menningarborgarinn-
ar, flutti tölu á kynningarfundinum
og sagði hún þá hugmynd að halda
leiklistarhátíð á íslandi þriggja ára
gamla, eða um hana hefði verið rætt
um leið og ljóst var að Reykjavík
yrði Menningarborg Evrópu árið
2000. Þórunn gat þess að leiklistin
væri dýrust af allri frumsköpun, en
engu að síður hefði metnaður verið
lagður í að frumflytja einvörðungu
íslensk verk á hátíðinni. Gunnar
Helgason, einn úr undirbúnings-
nefnd Á mörkunum, tók í sama
streng og sagöist ekki geta annað en
lofað öll leikskáldin, alla leikstjór-
ana og alla leikarana - og síðast en
ekki síst alla peningana sem lagðir
hafa verið í verkefnið og gert það að
veruleika - en heildarkostnaður við
hátíðina mun nema á fjórða tug
milljóna.
Leiklistarhátíðin hefst annað
kvöld með sýningu leikritsins Dótt-
ir skáldsins og verða önnur fimm
verk síðan frumsýnd eitt af öðru
fram í miðjan október. Dóttir
skáldsins er eftir Svein Einarsson
og sett upp af The Icelandic Take
Away Theater. Verkið er byggt að
hluta á frásögnum úr Egils sögu og
Laxdælu og var flutt á ensku í
London 1998 í leikstjóm höfundar.
Nú mun Bjöm Gunnlaugsson stýra
frumflutningi verksins á íslensku í
Tjarnarbíói annað kvöld.
Næsta verk Á mörkunum verður
Trúðleikur eftir Hallgrím H. Helga-
son, í leikstjóm Arnar Árnasonar,
sýnt í Iðnó 22. september. Þau verk
sem enn eru ótalin eru Tilvist, verk-
efni Dansleikhúss með Ekka, Háa-
loft eftir Völu Þórsdóttur, Góðar
hægðir eftir Auði Haralds og Vit-
leysingarnir eftir Ólaf Hauk Símon-
arson. -þhs
Reyðarfjörður:
Gluggum stolið
úr íbúðarhúsi
- íbúarnir voru heima
Gluggum var stolið úr íbúðarhúsi á Reyð-
arfirði um síðustu helgi. Tvær ibúðir em í
húsinu og að sögn lögreglunnar á Eskifirði,
sem hefur málið í rannsókn, virðist sem hús-
ráðendur hafi verið heima er þjófurinn eða
þjófamir athöfnuðu sig. Gluggamir sem um
er að ræða eru tveir jámgluggar, svokallað-
ir bretagluggar, og eru uppmnnir frá stríðs-
árunum. Þeir voru í pallhúsi sem byggt er
undir palli utan á húsinu sjálfu. -SMK
DV-MYND HELGI GARÐARSSON
Svara ekki skriflega
Tryggingafélögin
ætla að svara
spurningum efna-
hags- og viðskipta-
nefndar munnlega
á fundi. Jóhanna
Sigurðardóttir seg-
ist ekki sætta sig
við það og Ögmund-
ur Jónasson krefst skriflegra svara.
Giinter Grass á íslandi
Þýski Nóbelsverðlaunahafinn
Gúnter Grass áritar bækur sínar í
verslun Pennans Eymundsson í
Austurstræti milli klukkan 17.30 og
18.30, fóstudaginn 8. september.
Vaka-Helgafell gefur um þessar
mundir út þriðja bindi Blikktromm-
unnar eftir Grass. Tilefni komu
Gúnters til landsins er 5. alþjóðlega
bókmenntahátíðin sem haldin er
dagana 10.-16. september í Norræna
húsinu.
íslensk friðargæsla efld
Halldór Ásgrímsson skýrði frá
því á alþjóðlegri ráðstefnu um ör-
yggismál á Norður-Atlantshafi að
brátt mundu íslensk stjórnvöld til-
kynna um framlag íslands til friðar-
gæslustarfa. Dagur sagði frá.
nmui oiija
Gunnar Eydal
borgarritari segir
það hafa verið rétt
og í samræmi við
S veitarstj órnarlög
hjá Alfreð Þor-
steinssyni, for-
manni stjórnar Inn-
kaupastofnunar
Reykjavíkur, að sitja stjórnarfund
hinn 14. ágúst. Mbl. sagði frá.
Hestamönnum ekki vægt
Hestafólk biður Náttúruvernd
ríkisins um aö hætta við kæru
vegna umhverfisspjalla. Því hafnar
framkvæmdastjóri NR, enda sé mál-
ið mjög alvarlegt. Dagur sagði frá.
Há seiðavísitala þorsks
Seiðarannsóknir benda til þess að
á ferðinni sé efniviður í sterkan
þorskárgang en þorskaseiði hafa að-
eins einu sinni mælst fleiri en nú.
Seiðavísitala loðnu var hins vegar
mjög lág, eða sú önnur lægsta frá
upphafi.
Fasteignafélag spítaia?
Magnús Pétursson, forstjóri
Landspítalans, segir að til álita
komi að stofna sérstakt fasteignafé-
lag um byggingar spítalans. Mbl.
sagði frá.
Á leið úr bænum
Engar formlegar viðræður hafa átt
sér stað milli deilenda í Mjólkursam-
lagi KEA á Akureyri frá því í síðustu
viku en 15 mjólkurfræðingar sögðu
þar upp störfum. Trúnaðarmaður
mjólkurfræðinganna segir líklegt að
hluti starfsmannanna hverfi frá Ak-
ureyri. Dagur sagði frá.
Ekki hestaútflutningsbann
Dýravemdarráð telur ekki rétt að
grípa til útflutningsbanns á íslensk-
um hestum. Því hafði i erindi frá
Friðberti P. Njálssyni verið bent á
að islenskir hestar mættu þola „vít-
iskvalir" erlendis vegna sumarex-
ems. Mbl. sagði frá.
Læknar vilja ræða við ÍE
Stjórn Læknafé-
lags Islands hefur
óskað eftir að taka
upp á nýjan leik
viðræður við ís-
lenska erfðagrein-
ingu hf. um söfnun
sjúkraupplýsinga í
miðlægan gagna-
grunn fyrirtækisins. -GAR