Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Qupperneq 28
Faðii 3ja daginn frían
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
AVIS
Frábær kjör
á bílaleigu-
bílum
Sími: 533 1090
Fax: 533 1091
Ermail: avis@avis.is
Dugguvogur10
Davíð Oddsson:
A5 nýju í
Alþjóðahval-
veiðiráðið
ákvörðun á næsta ári
Davíð Oddsson
segir líklegt að
ákveðið verði á
næsta ár að ís-
lendingar gangi
að nýju í Alþjóða-
hvalveiðiráðið.
Þetta er haft eftir
Davíð í Financial
Times. Þar er enn
fremur haft eftir
forsætisráðherra að íslendingar
muni ekki hefja hvalveiðar á
þessu ári og sennileg ekki heldur
á því næsta.
Davið bendir á að áður en hval-
veiðar verði hafnar að nýju þurfi
•# að tryggja markaði fyrir kjötið og
segir í því sambandi að ólíklegt
sé að Japanir muni kaupa af okk-
ur hvalkjöt á meðan við stöndum
enn utan við hvalveiðiráðið.
-GAR
Davíð Oddsson.
3
•4
Súpermódel og
sjálfsfróun
í Fókus á morgun er meðal ann-
ars að fmna viðtal við leikarann
Árna Pétur Reynisson sem snýr að
utan til að blanda sér í slaginn hér
heima auk þess sem kvikmyndin ís-
lenski draumurinn er að detta inn
og Jón Gnarr segir okkur allt um
myndina og hvað er að gerast hjá
honum. Þú færð að vita allt um
kosti sjálfsfróunar og Shotgun-regl-
urnar um setu í framsæti farþega-
megin verða loksins kortlagðar.
Sagt verður frá fyrirsætunni Gisele
sem á að verða aðalmódel þessa ára-
tugar, auk þess sem Lífið eftir
vinnu er á sínum stað sem er ítar-
legur leiðarvísir um skemmtana- og
menningarlifið.
Skólatorgiö opnað dv^iynd þoi
Björn Bjarnason menntamálaráöherra opnaði Skólatorgið formlega í Selásskóla í gær. Skólatorgið er vefútgáfufyrir-
tæki og þjónustuvefur fyrir grunnskóla landsins og auðveldar samskipti heimila og skóla.
Snæfellsnes:
Tveir á sjúkrahús
eftir útafakstur
Tveir menn voru fluttir á
sjúkrahús eftir að fólksbíll þeirra
hafnaði utan vegar á þjóövegin-
um við Rif á Snæfellsnesi upp úr
klukkan 10 á þriðjudagskvöldið.
Bíllinn er ónýtur eftir atvikið.
Mennirnir, sem voru ekki taldir
lífshættulega slasaðir, voru báðir
í beltum. Lögreglan í Ólafsvík
rannsakar nú tildrög slyssins.
-SMK
Breiðholt:
Pottur gleymd-
ist á eldavél
Eldur kviknaði í ibúð í Qölbýlis-
húsi að Kötlufelli í Breiðholti um
áttaleytið í gærkvöld. Tveir íbúar
voru sofandi í íbúðinni er eldurinn
kom upp en að sögn slökkviliðsins í
Reykjavík hafði pottur gleymst á
eldavél. Slökkviliðið mætti á svæðið
og reykræsti íbúðina. Fólkið var
flutt á slysadeild með minni háttar
reykeitrun. -SMK
Flugleiðir í vanda með leigu á vöruflutningavél:
Ráðherra gaf grænt Ijós
á afrískt dauðafar
- að sérfræðingum Flugmálastjórnar forspurðum
„Við sáum ástæðu til að
skoða flugvélina við kom-
una til landsins en niður-
stöðurnar eru trúnaðar-
mál og voru sendar í al-
þjóðlegan gagnabanka
flugöryggisyfirvalda,"
sagði Pétur Maack, for-
stöðumaður Loftferðaeftir-
litsins, um vöruflutninga-
vél sem hingað kom frá Af-
rican International Airwa-
ys í lok síðasta mánaðar.
Vélin var leigð af Flug-
leiðum til vöruflutninga eftir að
önnur leiguvél félagsins hafði
verið kyrrsett í Bandarikjunum
af öryggis-ástæðum.
„Vélin fékk að fljúga hingað til
lands með sérstöku leyfi sam-
gönguráðherra og aðeins fyrir
þetta eina flug,“ sagði Pétur
Maack.
Sú svartasta
Samkvæmt heimildum DV
neyddi flugvélaskortur Flugleiðir
til að taka um-
rædda vél frá Af-
rican Inter-
national Airways
á leigu en hún
mun vera á lista
flugöryggisyfir-
valda í Evrópu
yfir svokallaðar
sj ór æningj avélar
sem eftirlitsmenn
vara flugfélög við
að leigja vegna
slæms eftirlits og
slælegs reksturs.
Samkvæmt sömu heimildum
mun vélin, sem hingað kom með
sérstöku leyfi Sturlu Böðvarsson-
ar. samgönguráðherra, vera
„...ein sú svartasta á svarta list-
anum yfir sjóræningavélarnar",
eins og heimildarmaður orðaði
það.
Ástæða tll skoðunar
- í hvernig ásigkomulagi var
þessi afríska sjóræningjavél?
„Þær upplýsing-
ar eru trúnaðarmál
en að sjálfsögðu
var ástæða fyrir
þvf að við skoðuð-
um vélina," sagði
Pétur Maack og
bætti því við að
rannsóknarmenn
sínir væru við fulla
heilsu eftir skoðun-
ina.
Ljóst þykir að
Flugleiðir hafi ekki
treyst sér til að
sækja um leyfi til flugs afrísku
þotunnar hingað til lands hjá
Flugmálastjórn vegna ástands
hennar. Því hafi forsvarsmenn
félagsins snúið sér beint til ráð-
herra sem gaf grænt ljós á flug
sjóræningjavélarinnar.
Afsláttur á öryggi
„Það er ekki á ábyrgð ráðherra
að veita afslátt í flugöryggismál-
um,“ sagði Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra um
flug afrfsku þotunnar.
„Allt er varðar öryggis-
mál er í höndum flug-
málayfirvalda og þar
sem vélin var innan Evr-
ópska efnahagssvæðisins
þegar beiðnin kom frá
Flugleiðum sá ég ekki
ástæðu til að neita henni
um leyfi til flugsins.“
Það lá á
„Ráðherrann lét minni
hagsmuni víkja fyrir
meiri og tók pólitíska ákvörðun
sem var rétt,“ sagði Pétur J. Ei-
ríksson, framkvæmdastjóri fragt-
flutninga Flugleiða. „Tæplega 40
tonn af fiski biöu i Keflavik, skip
var bundið við bryggju á Aust-
fjörðum og beið eftir varahlut og
verktakaframkvæmdir voru að
stöðvast í Reykjavík. Þess vegna
lá á.“
-EIR
Pétur Maack
Niöurstööurnar
trúnaðarmál.
Siguröur
Helgason
Dauövantaði
flugvél.
Sturla
Böövarsson
Veitir ekki af-
slátt í öryggi.
Nýtt hverfi Kópavogsbæjar við Elliðavatn:
Reykjavíkurborg mun kanna
skipulagstillöguna
Ingibjörg
Sólrún
Gísladóttir.
Skipulagsdeild
Reykjavíkurborg-
ar mun skoða
deiliskipulagstil-
lögu Kópavogs-
bæjar við Elliða-
vatn, þar sem
Kópavogsbær
áætlar mun
stærri byggð á
mörkum Reykja-
víkur og Kópa-
vogs en þar er nú þegar.
„Þetta er á landi sem liggur að
landi Reykjavíkur og það er gert
ráð fyrir því i skipulagslögum að
þegar þannig háttar til sé skipu-
lagstillagan send aðliggjandi
sveitarfélagi til skoðunar og um-
fjöllunar," sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri Reykja-
víkur.
Hún bætti því við að eftir því
sem hún best vissi væri Reykja-
vík ekki með neitt land til ibúða-
byggðar þar sem háttar til eins og
á Vatnsendalandinu, þar sem
fólki sem á þar íbúðarhús en leig-
ir jörðina hefur verið sagt upp
leigusamningum sínum.
„Ég veit ekki til þess að nein
sambærileg byggð sé innan borg-
arinnar," sagði borgarstjórinn í
samtali við DV í morgun.
-SMK
Tílboósveró kr. 4.444
bfOthöf P-touch 1250
Lítil en STORmerkileq merkivél
5 leturstærðir
9 leturstillincjar
prentar í 2 linur
borði 6, 9 og 12 mm
4 gerðir af römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
SYLVANIA