Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaðiö
Þremur Nýkaupsverslunum breytt
í Bónus- og Hagkaupsverslanir
- Finnur Árnason til starfa á aðalskrifstofu Baugs
Baugur hf. hefur ákveöið aö auka
hlut verslana sem bjóða hagstætt
vöruverð og stuðla þar með að aukn-
um hlut verslana sem bjóða lágt mat-
vöruverð á íslandi. 1 þessu skyni verð-
ur tveimur Nýkaupsverslunum breytt
í Hagkaupsverslanir og einni í Bón-
usverslun. Verslun Nýkaups í Kringl-
unni verður áfram rekin undir nafni
Nýkaups.
í frétt frá Baugi segir að í viðamikl-
um könnunum sem Baugur hefur
framkvæmt komi skýrt í ljós að ís-
lenskir neytendur leggja mikla
áherslu á lágt matvöruverð. Vel-
gengni verslana Baugs sem leggja
áherslu á lágt vöruverö séu þess skýrt
dæmi. Af þessum sökum hefur verið
ákveðið að breyta þremur Nýkaups-
verslunum í Hagkaups- og Bón-
usverslanir.
Verslun Nýkaups í Mosfellsbæ
verður um næstu mánaðamót breytt í
Bónusverslun. Verðlag á matvöru í
Mosfellsbæ mun því lækka. Verslun-
um Nýkaups í Garöabæ og á Eiðis-
torgi verður breytt í Hagkaup
ferskvörumarkað. Verðlag í þessum
verslunum mun taka mið af verðlagi í
verslunum Hagkaups eins og það er í
dag og þvi lækka um 6-8%.
Verslun Nýkaups í Kringlunni
verður áfram rekin undir nafni Ný-
kaups. Þar verður þjónusta aukin,
m.a. með opnun sérstaks fiskborðs og
mun meiri þjónustu innanbúðar, þar
sem áhersla verður lögð á að hafa fag-
menntað fólk við afgreiðslustörf og til
Andlitsböö • Húöslípun
Augnhárapermanett ■ Litun
Handsnyrting • Fótsnyrting
Vaxmeðferð • Föörunartatto
Parafango • Strata 321
Sjúkranudd ■ Vöövanudd
Slökunarnudd • Sogæöanudd
Opið: Mán-föstd. 9:00 til 22:00
Laugard. 10:00 til 16:00
Verslun Nýkaups í Kringlunnl
Nýkaup í Kringlunni veröur áfram rekin undir nafni Nýkaups. Þar veröur þjón-
usta aukin, m.a. meö opnun sérstaks fiskborös
ráðgjafar fyrir viðskiptavini. Vöruúr-
val verður aukið um 15%.
Árni Ingvarsson, innkaupastjóri
Nýkaups, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Nýkaups í Kringlunni.
Finnur Ámason, núverandi fram-
kæmdastjóri Nýkaups, fer til starfa á
aðalskrifstofu Baugs hf.
Þessar breytingar hafa ekki áhrif á
fjölda starfsmanna Baugs þar sem öllu
starfsfólki þessara verslana verður
tryggð vinna í nýjum eða eldri versl-
unum félagsins.
Reiknað er með að breytingar þess-
ar verði að fullu komnar til fram-
kvæmda um miðjan október næst-
komandi.
MÁLARAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Suðurlandsbraut 30,108 Reykjavfk
Aðalfundur Málarafélags Reykjavíkur
Aðalfundur Málarafélags Reykjavíkur verður haldinn
fimmtudaginn 28. september 2000 að Suðurlandsbraut 30,
2. hæð, kl. 20.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.----------------------------
Stjórnin
KAJAK
ÁHUGAMENN
• NOKKRIR KAJAK-SÝNINGARBÁTAR
TIL SÖLU Á HÁLFVIRÐI
• 30% AFSL. Á NÝJUM BÁTUM
ÚT ÞESSA VIKU.
1,1% atvinnuleysi í ágúst
Atvinnuleysi mældist 1,1% í ágúst
eða 0,6% hjá körlum og 1,8% hjá kon-
um. Atvinnulausum hefur fjölgað í
heild að meðaltali um 1,2% frá júli-
mánuði en fækkað um 31,9% miðað
við ágúst í fyrra.
Undanfarin 10 ár hefur atvinnu-
leysi minnkað um 3,3% að meðaltali
frá júlí til ágúst. Árstíðarsveiflan
milli júlí og ágúst nú er því lítið eitt
önnur en árstíðarsveiflan undanfarin
ár en innan eðlilegra marka, t.d. hef-
ur fækkað nokkuð á skrá í lok ágúst-
mánaðar.
Atvinnuástandið breytist lítið á
landinu. Atvinnuleysið minnkar hlut-
fallslega á höfuðborgarsvæðinu, á
Suðurlandi og á Vestíjörðum en eykst
á öðrum svæöum. Atvinnuleysi er nú
hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæð-
inu en minnst á Suðumesjum. At-
vinnuleysi er nú almennt minna en í
ágúst í fyrra á öllum atvinnusvæðum,
nema á Vestfjörðum þar sem það er
heldur meira.
Atvinnuleysi kvenna eykst um
0,2% og atvinnuleysi karla eykst um
3,2% milli mánaða.
Búast má við að atvinnuleysið í
september geti orðið á bilinu 0,7% til
1,0%. Hlutfallslegt atvinnuleysi er nú
1,1%, eins og í júlí sl., en það var 1,7%
í ágúst í fyrra.
Atvinnuleysi á landsbyggðinni
eykst nú í heild um 5,5% milli mán-
aða, en er um 26,1% minna en í ágúst
í fyrra.
• 30% AFSLÁTTUR AF ÞURRBÚNINGUM
ÚT ÞESSA VIKU.
BJ. Trading, heildverslun,
Bfldshöfða 16, bakhús.
Sfmi 587 1600
Veffang: www.kayak.is
Netfang: bj.trading@kayak.is
Lífeyrissjóður sjómanna semur við
Kaupþing um rekstur séreignardeildar
Lífeyrissjóður sjómanna hefur gert
samstarfssamning við Kaupþing um
rekstur séreignardeildar sjóðsins.
Samstarfinu verður þannig háttað að
Kaupþing mun annast móttöku ið-
gjalda, skráningu og ávöxtun fjár-
muna séreignardeildarinnar, en upp-
lýsingar, ráðgjöf og bein tengsl við
sjóðfélagana verða jöfnum höndum
hjá lífeyrissjóðnum og Kaupþingi. Fé-
lagar í séreignardeild geta því hvort
heldur sem er snúiö sér til sjóðsins
eða samstarfsaðilans út af sínum mál-
um.
Með samningi þessum er Lífeyris-
sjóður sjómanna að nýta sér reynslu
og þekkingu Kaupþings til að efla sér-
eignardeild sjóðsins. í frétt frá Kaup-
þingi kemur fram að fyrirtækið hefur
langa reynslu í rekstri séreignarsjóða
og starfsfólk þess býr yfir sérþekk-
ingu á þessu sviði auk þess sem það
hefur yfir að ráða þeim tæknibúnaði
sem til þarf.
í samningi Lífeyrissjóðs sjómanna
og Kaupþings er m.a. fjallað um upp-
byggingu á verðbréfaeign sjóðsins
samkvæmt fjárfestingarstefnu sem
stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna markar
hverju sinni. Kaupþing sér einnig um
markaðs- og kynningarmál fyrir hönd
sjóðsins. öll þjónusta Kaupþings við
sjóðfélaga verður í nafni Lífeyrissjóðs
sjómanna.
Lífeyrissjóður sjómanna er fimmti
stærsti lífeyrissjóöur landsins og
nema eignir hans rúmum 40 milljörð-
um króna.
I>V
Þetta helst
d i > r,; i 'JL % HEILDARVIÐSKIPTI 1738 m.kr.
Hlutabréf 142 mkr.
Ríkisbréf 723 mkr.
MEST VIÐSKIPTI
0 Landsbankinn 67 mkr.
0 Össur 26 mkr.
0 Marel 23 mkr.
MESTA HÆKKUN
0 Sjóvá-Almennar 10,8%
0 Delta 5,7%
0 Marel 4,0%
MESTA LÆKKUN
0 Fiskiðjusamlag Húsavíkur 16,7%
0 Síldarvinnslan 4,6%
0 Nýheiji 2,6%
ÚRVALSVÍSITALAN 1492,8 stig
- Breyting 0 1,189 %
IMF lækkar hagvaxt-
arspá fyrir ísland
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn
(IMF) spáir 4% hagvexti á íslandi á
þessu ári og 2,1% á því næsta. Sjóð-
urinn hefur lækkað fyrri spá sem
var 4,7% fyrir árið í ár og 3,5% fyr-
ir næsta ár. í Morgunkomi FBA
kemur fram að IMF spáir því að
neysluverð hækki um 4,9% í ár og
3,5% á næsta ári og atvinnuleysi
verði svipað á næsta ári og þessu,
eða 1,8%.
MESTli VtÐSKIPTI
| 0 Íslandsbanki-FBA 829.125
| 0 Össur 458.753
] 0 Marel 426.049
0 Eimskip 270.175
0 ísl. hugb.sjóðurinn 262.538
aíöastíibna 30 daea
0 Marel 21 %
0 Vaxtarsjóðurinn 16 %
0 SR-Mjöl 13 %
0 Delta hf. 11 %
0 íslenskir aöalverktakar 11 %
IMMifflMJ síöasttlönaSO^
0 Rskiðjus. Húsavíkur -19 %
0 SÍF -18 %
0 SH -17 %
0 ísl. hugb.sjóðurinn -12 %
© KEA -12 %
Olían heldur
áfram að hækka
Hráolía heldur áfram að hækka
og hækkaði um tæp 3% í fyrradag
vegna spennunnar milli íraks og
Kúveits. Nú er svo komið að fatið af
olíu er á 37 dollara en það hefur
ekki verið svo hátt í 10 ár. Þessi
spenna getur haft í för með sér rösk-
un á olíuframleiðslu í Persaflóa en
Persaflóasvæðið framleiðir þriðjung
af allri oliu sem notuð er í heimin-
um.
BT DOW JONES 10789,29 O 0,18%
1 • Inikkei 16458,31 O 2,07%
BÍS&P 1459,90 O 1,07%
(■“nasdaq 3865,64 O 3,73%
SSIftse 6378,40 O 1,40%
FSdax 6933,49 O 0,06%
ITcAC40 6537,87 O 0,12%
ISSBB 20.09.2000 M. 9.15
KAUP SALA
1 Dollar 84,800 85,240
SlSPund 119,590 120,200
1*6X811. dollar 57,160 57,520
CSlDönsk kr. 9,5950 9,6480
”Í~- Norsk kr 8,9820 9,0320
Sænsk kr. 8,5700 8,6170
90 R. mark 12,0432 12,1156
IJfFra. franki 10,9162 10,9818
|j| Belg. franki 1,7751 1,7857
Q Sviss. franki 47,5500 47,8100
CÍHoll.gyllini 32,4933 32,6886
” Þýskt mark 36,6115 36,8315
{ít. líra 0,036980 0,037200
CCAust. sch. 5,2038 5,2351
Port. escudo 0,3572 0,3593
PTj Spá. peseti 0,4304 0,4329
r*~|jap. yen 0,794400 0,799200
K 1 írskt pund 90,920 91,467
SDR 108,700000 109,350000 \
Qecu 71,6058 72,0361