Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2000, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 Skoðun DV Vandræðamála- flokkar í kerfinu Á yfirfullu sjúkrahúsi Má staka á kröfunum og fjölga þannig auöu rúmunum? ipurning dagsins Spilarðu í happdrætti? Ólafur Halldór Ólafsson nemi: Nei, ekkert svoleiöis. Gunnlaugur Torfason starfsm. póstsins: Voöalega sjaldan og man ekki eftir aö hafa unniö nokkurn tíma. Jóhanna Jónsdóttir húsmóðir: Já, ég spiia í htappdrætti Háskólans en þaö er oröiö voðalega langt síöan ég hef unniö. Sveinn Kristinsson blaöamaöur: Já, í Happdrætti Háskólans og það eru komin ein 16 ár síöan ég vann. Halldóra Þórsdóttir nemi: Ó, nei, þetta er svo mikil vitleysa. Áslaug Einarsdóttir nemi: Nei, þetta er sko atgjört peningapiokk. Björn Jónsson skrifar: Hvaö á manni annað að detta í hug, þegar fréttum linnir ekki af vandræðagangi á sjúkrahúsunum og í skólunum, en að þjóðfélaginu sé ofviða að fást við málaflokkana heil- brigðismál og skólamál. Ég hef reyndar alltaf verið þeirr- ar skoðunar að hvor tveggja vand- ræðin stafi af skorti á aga og þjón- ustulund. Þessir málaflokkar eru miklu minna áberandi í löndum þar sem aginn er til staðar, og rík tO- finning fyrir því að spyrja fyrst: hvað get ég gert fyrir þjóðfélagið, fremur en hvað getur þjóðfélagið gert fyrir mig. Þetta er áberandi þáttur í vest- rænum samfélögum og kemur kannski til af því, að alls staðar er herskylda ríkjandi og ungir menn og nú oft konur líka fá smjörþefinn af þeim aga sem verður að ríkja meðan herþjónustu er gegnt. Þetta smitar síðan út frá sér í fjölskyldu- lífið og samfélagið allt. Á Rás 2 í RÚV í morgun (mánud. 18. september) var verið að ræða samfélagslega aðstoð við fatlaða og að hér á landi stæði til að reyna að gera þeim kleift að taka meiri þátt í atvinnulífinu en nú er. Styðjast ætti við kerfl sem gildir í Bandaríkjun- um. Þar í landi er líka miklu meira um að fólk veiti aðstoð í þessa veru í sjálfboðavinnu. Hér er slík aðstoð næsta fátíð, því heilbrigða fólkið hér spyr fyrst og fremst um það, hvað þjóðfélagið geti gert fyrir það sjálft. Vandræðamálaflokkar kerfisins hér á landi, heilbrigðismálin og skólamálin eiga tvímælalaust rætur að rekja til þess að hér gegnir eng- inn neinum skyldum, hvorki við Torfi skrifar: Það hefur lengi loðað við okkur íslendinga að þykjast vilja taka tillit til náungans á sem flestum sviðum. Enga þjóð tel ég samt líklegri til að hlífa lítt náunganum, jafnvel ná- grannanum þegar bjátar á. Við erum ílest alin upp við vonda siði en afskaplega mikla hræsni. Eða er hræsnin bara meðfædd? Ég er hér að tala um hneykslismál sem allir vilja heyra um. Þar erum við auðvitað á sama báti og aðrir, vitt og breitt í heiminum, enda eru fjölmiðlar uppfullir af slíku efni en væru það ekki ef ekkert kæmi í þeirra hlut fyrir birtinguna. „ Vandrœðamálaflokkar kerfisins hér á landi, heil- brigðismálin og skólamálin eiga tvímœlalaust rœtur að rekja til þess að hér gegnir enginn neinum skyldum, hvorki við sjálfan sig né þjóðfélagið alla œvina...“ sjálfan sig né þjóðfélagið, alla æv- ina, og engum eru settar skorður í „Þannig eru dag hvern birt nöfn fasteignaeigenda (tal- inna eða löggiltra) sem hafa lent í vanskilum og hafa fengið tilkynningu um uppboð. Ég spyr: Hver er munurinn?“ Erlendis þykir ekkert tiltökumál að birta myndir af glæpamönnum, og jafnt þótt þeir séu ekki sannir að sök, aðeins ef upp kemst að þeir séu aðilar að afbrotamálum. Hér tíðkast ekki slíkar myndbirtingar fyrr en aga eða uppeldi. Enda þjóðfélagið á hverfanda hveli í samfélagsmálum, almennt talað. Upplausn og afbrot fara vaxandi með hverju ári og þeir sem meira mega sín eru græðginni ofurseldir við að finna smugu til að ávaxta sitt pund með lántökum til að kaupa fyrir verðlausa pappíra. - Er ekki kominn tími til að slaka á kröfun- um? Þá yrðu kannski færri veikir og sjúkrahúsin stæðu betur að vígi, með fleiri og fleiri auð rúm og færri hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. viðkomandi er sannur að sök. Jafn- vel ekki nafn heldur. Hér er hins vegar ekki hikað við að birta nöfn allra sem lenda í því að skulda hinu opinbera vegna van- skila. Þannig eru dag hvern birt nöfn fasteignaeigenda (talinna eða lög- giltra) sem hafa lent í vanskilum og fengið tilkynningu um uppboð. Ég spyr: Hver er munurinn? Er hinn skuldugi þá orðinn afbrotamaður sem birta má nafnið á? Ég tel að við íslendingar búum við afar frumstæð lög að þessu leyti og skora á dóms- valdið og einnig þingmenn að taka til við endurskoðun á þessum ólög- um. - Nafnabirtingar á gráu svæöi Dagfari Traustur vinur að vestan Fíkniefnin skulu stöövuð Unnsteinn skrifar: Maður furðar sig á þeim fréttum sem berast, að ekki sé hægt að eyða frek- ari íjármunum tO að halda úti veru- legu eftirliti með flkniefnabrotum, innflutningi (smygli) og tilheyr- andi rannsóknum sem hingað til hafa þó virst hafa nokk- uð að segja. Ég tek undir með þing- ——— manninum á Suðurnesjum (man ekki í svipinn hvað hann heitir eða hvaða flokki hann tilheyrir) sem segir það skyldu stjórnvalda að bæta hér úr og það strax. Með einum eða öðrum hætti skulu fíkniefnin stöðvuð, og þar má kosta allmiklu fé til. Þjóðin verður að standa saman um aðgerðir. Hjálmar Arna- son alþm. Hefur lagst gegn sparnaöi í fíkniefnarann- sóknum. Ofurlán til hlutabréfakaupa? Ásgeir Sigurðsson skrifar: Eru lykilmenn sumra bankanna virkilega orðnir helstu eigendur þeirra með hlutabréfakaupum sínum? Jafnvel stjórarnir sjálflr? TUurð „einkabankanna" svonefndu, eins og t.d. Íslandsbanka-FBA, má rekja tU opinberra sjóða af ýmsu tagi. Slíkar upphæðir eru nefndar í hlutabréfa- kaupunum, að þarna hlýtur að koma til stórlán viðkomandi manna, ofm- lán sem erfltt verður að standa í skU- um með. Mér er sama þótt um miUj- óna- eða tveggja mUljónamenn sé að ræða. Þeir eru ekki öfundsverðir af því að greiða niður lánin. Og þegar harðnar á dalnum eins og nú, og hlutabréf eru faUandi, hljóta lykU- menn bankanna með sína hlutafjár- eign að fá hnút í magann. í dreifbýlinu: Patreksfjöröur Heföu jarögöng hjátpaö? Straumurinn suöur SvanhiIdur skrifar: Enginn getur stöðvað fóUcsflóttann úr dreifbýlinu, hversu miklu fé sem eytt er tU þess að halda fólkinu kyrru. Byggðastofnun hefm engum árangri náð og mun ekkki ná, ekki heldur stjórnarformaðurinn, þótt hann skenki sparisjóðum í heimahéruðum verkefnum í formi innheimtuaðgerða. Úr því ekki var tekið á samgöngumál- unum í tæka tið, með því að tengja saman þéttbýli og strjálbýli með var- anlegum hætti, þ.m.t. jarðgöngum, sem heföi vel getað verið lokið fyrir löngu, er ekkert sem getur haldið fólki lengur í einangrun frá þéttbýl- inu og umsvifunum syðra. Einstaklingsskattar H.K.P. skrifar: Dagfari hefur aldrei verið á móti sanngjömum klíkuskap. Þess vegna skilur hann og styður Krist- in H. Gunnarsson, formann stjómar Byggðastofn- unar, í því að flytja allar innheimtur Byggðastofn- unar til Sparisjóðsins i Bolungarvík enda er Krist- inn sjálfur Bolvíkingur og er með tékkheftið sitt í bankanum fyrir vestan. Þessi ráðstöfun er til þess fallin að bjarga sparisjóðnum sem er ein rjúkandi rúst eins og aðrar bankastofnanir á landsbyggð- inni. Kristinn er bara að hlaupa undir bagga að gömlum og góðum íslenskum sið og spyr hvorki kóng né prest. Það gerði hann heldur ekki þegar hann hljóp úr Alþýðubandalaginu í Framsóknar- flokkinn. Þá var hann líka að hlaupa undir bagga með sjálfum sér. Þegar Dagfari var i barnaskóla var venjan sú að hefja hvern skóladag með því að syngja eitt lag til undirbúnings sigram dagsins sem í hönd fór. Dag- fari þykist vita að sami háttur sé á hafður við upp- haf stjómarfunda í Byggðastofnun þar sem Krist- inn, þingmaður Bolvíkinga og sparisjóðsins, situr í forsæti. Kristinn leitaði í smiðju flokksbróður síns þegar hann var að leita að morgunlagi fyrir stjórn- arfundi Byggðastofnunar og kom ekki að tómum kofanum hjá Magnúsi Stefánssyni, varaþingmanni í Vesturlandskjördæmi. Magnús var trommuleikari í hljómsveitinni Upplyftingu áður en hann varð þing- Starfsfólk Byggðastofnunar heyrir nú lag varaþingmannsins óma út úr stjórnarherberginu við upphaf hvers fundar og segir að Kristinn stjórnarformaður syngi hæst. maður hér um árið og söng meðal annars lagið „Traustur vinur“ inn á hljómplötu. Lagið varð geysivinsælt og skilaði trommuleikaranum inn á þing tímabundið. Starfsfólk Byggðastofnunar heyrir nú lag varaþingmannsins óma út úr stjórnarher- berginu við upphaf hvers fundar og segir að Krist- inn stjórnarformaður syngi hæst. Sérstaklega þegar þar kemur í textanum sem segir: „Stundum verður mönnum á styrka hönd þeir þurfa þá traustur vinur getur gert kr aftaveeeerk... “ Þetta er kjarni málsins í Byggðastofnun. Krist- inn H. Gunnarsson er traustur vinur sinna manna fyrir vestan og beitir fyrir sig sanngjörnum klíku- skap þegar við á og þurfa þykir. Fyrir bragðið er hann maður að meiri sama hvað hjáróma gagnrýn- israddir kvaka hér fyrir sunnan. Kristinn er þing- maður Bolvíkinga, sama í hvaða flokki hann er, og stendur og fellur með því. Á meðan Vestfirðingar hafa fjöllin og Kristin þurfa þeir ekki að óttast þó þeim verði á. Þeir eiga traustan vin í Byggðastofn- un sem réttir þeim styrka hönd og getur gert kraftaverk eins og segir í dægurlagi trommuleikar- ans og varaþingmannsins Magnúsar Stefánssonar í Upplyftingu. Dagfari vonar að menn haldi áfram að syngja á stjórnarfundum Byggðastofnunar og leggi þar með sitt af mörkum til að viðhalda byggð í landinu. _ n . Mikið má sjávarútvegsráðherra vera glámskyggn ef hann heldur að kjósendur hans hrópi húrra fyrir þeirri yfirlýsingu hans að lækka verði skátta á fyrirtækjum, en minnist ekki á einstaklingana í þeim efnum. Var ekki flokkur hans búinn að álykta og álykta um að lækka yrði tekjuskatt og afnema hann að fullu í áfóngum? Ætl- ar Sjálfstæðisflokkurinn að láta fram- sóknarmenn valta yflr sig í skatta- stefnunni? Nei, Ámi Mathiesen á að láta almenna kjósendur njóta orða sinna og gjörða. Spái hann meira i þá, þá munu þeir spá í Árna þegar hann þarf mest á að halda. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Þvcrholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum S sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.