Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2000, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000
7
Fréttir
Umsjón: ,
Reynir Traustason
netfang: sandkorn@ff.ls
Sandkorn
Flaggað í þorpinu
Vestfírðingurmn
Vala Flosadóttir
er nú sannkölluð
þjóðhetja og senni-
lega hvergi meiri
hetja en í sínum
gamla heimabæ,
Bíldudal. I gær-
morgun, þegar
Vala hóf keppni í
úrslitum í stangarstökkinu, drógu
Bílddælingar aila sína fána að
húni. Blakti því íslenski fáninn á
hverri stöng í þorpinu þegar hetjan
vann til bronsverðlauna á Ólymp-
íuleikunum i Sydney í Ástralíu.
Sagt er að allir þeir sem gengið
hafi hnípnir undanfarin ár vegna
hnignandi ástands byggðarinnar
vestra skundi nú um götur með
bros út að báðum eyrum.
Skagamönnum hjálpað
Mörgum hefur
þótt nóg um hinn
upþivöðslusama
verkalýðsforingja
á Húsavík, íisk-
verkafólkskóng-
inn Aðalstein
Baldursson.
Hann hefur
höggvið á báða
bóga í baráttunni og hafði manna
mest opinn munn í litlausum
kjarasamningum síðasta vetrar.
Ýmsum hefur þótt nóg um fram-
göngu búfræðingsins frá Húsavík.
Kraftur verkalýðsforingjans virðist
hafa skilað sér áfram til næstu
kynslóðar og inn í raðir Skaga-
manna. Sonur hans og frumburður,
Baldur Aðalsteinsson, skoraði
nefnilega fyrra mark Skagamanna
og lagði upp hið seinna þannig að
bikarinn er kominn á Akranes við
mikinn fógnuð. Húsvíkingar eru
nokkuð kátir vegna þessa og telja
sig eiga nokkurt tilkall til heiðurs-
ins....
Kjökrandi pokaprestar
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son prófessor fer
mikinn i nýjasta
tölublaði Mannlifs.
Hann er fenginn
til að mæla með
því sem gefur líf-
inu gildi. Þar ber
kaþólsku kirkj-
una hátt en lút-
ersk-evangelísku
kirkjuna að sama skapi lágt. Pró-
fessorinn segir núverandi biskup,
herra Karl Sigurbjörnsson, hafa
meiri áhyggjur af gróða í atvinnu-
lífinu en sáluhjálp einstaklinga.
Kaþólsku kirkjunni stjómi aftur á
móti lífsreyndir menn en ekki
kjökrandi pokaprestar...
Staðarhaldari hættir
Séra Þórir Stephensen, staðar-
haldari í Viðey, er
nú um það bil að
fara á eftirlaun. í
loftinu liggur að
embættið verði
lagt af þegar stað-
arhaldarinn sest i
helgan stein.
Borgin mun ætla
að spara verulegt
fé með því að ráðsmaðurinn,
Ragnar Sigurjónsson, taki alfarið
við stjórnartaumum í eyjunni
ásamt eiginkonu sinni. Nýi land-
stjórinn er reyndar betur þekktur
sem Raggi Sjonna úr Vestmanna-
eyjum og viðkvæði hans er gjaman
„við eyjamenn" sem vísar til þess
að hann er harðasti stuðningsmað-
ur ÍBV á fastalandinu. Nú er hann
um það bO að verða helsti Viðeyj-
armaðurinn ef marka má flugu-
fregnir....
Miklar skuldir vegna félagslegra íbúða á Vestf jörðum:
Þetta er herkostnaður-
inn af búsetuþróuninni
- segir Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður
„Ég tel þessa umræðu á miklum
villigötum og menn gleyma því sem
er kjami málsins," segir Einar
Kristinn Guðfmnsson, fyrsti þing-
maður Vestfirðinga, varðandi um-
ræður um vandræði félagslega
húsæðiskerfisins á Vestfiörðum.
Málið var ofarlega á baugi á fiórð-
ungsþingi Vestfirðinga um helgina.
„Menn fóru á sínum tíma í upp-
byggingu á þessum íbúðum við allt
aðrar aðstæður en nú eru. Það var
verið að byggja þær á níunda ára-
tugnum þegar ibúafiöldinn var
miklu meiri á Vestfiörðum. Þá
bjuggu þar um 1.500 fleiri íbúar en í
dag. Ég man vel að um 1990 var mik-
il eftirspurn eftir að búa í félagslegu
húsnæði. Ástæðan var sú að það
var á vissan hátt trygging fyrir því
að fólk gæti selt þetta húsnæði aftur
á raunvirði. Það er því mjög ósann-
gjöm umræða sem Jóhanna Sigurð-
ardóttir og fleiri hafa verið að halda
fram að þama
hafi verið um að
ræða einhverja
óábyrga kröfu-
gerðarpólitík frá
sveitarstjómar-
mönnum. Öðru
nær voru þeir að
bregðast við mik-
illi þörf og mik-
illi eftirspum. Þá
þurfti atvinnulíf-
ið úti á landi að
ráða til sín fólk
var ekki til.“
Einar segir að
ódýrustu lausna og m.a. keypt hús-
næði af hinum almenna markaði til
að nota sem félagslegar íbúðir. Enn-
fremur hafi íbúðabyggingar verið
boðnar út. Tilviljun hafi ráðið hvort
verktakar voru úr byggðarlögunum
eða ekki.
„Ég vísa því algjörlega á bug að
menn hafi með
þessari stefnu
fyrst og fremst
verið að huga að
hagsmunum
byggingaverk-
taka úti á landi.
Að mínu mati
er hér um að
ræða enn eina
birtingarmynd
þess kostnaðar
sem íbúaþróun á
landsbyggðinni hefur fyrir samfé-
lagið. Ég hef ásamt mörgum öðrum
verið að benda á að þetta sé ekki
einkamál byggðarlaganna, heldur
kostnaður sem með einum eða öðr-
um hætti muni falla á samfélagið.
Því er þessi þróun mjög dýrkeypt og
það er einmitt að sannast með því
sem nú er að gerast. Það sjá það all-
ir í hendi sér að það er ekki hægt að
leggja það á herðar sveitarfélaganna
og æ færri ibúa að borga upp þessar
skuldir þegar ástæðan er eitthvað
sem þau á engan hátt geta ráðið við.
Þetta er herkostnaðurinn af búsetu-
þróuninni."
Einar Mathiesen, sveitarstjóri í
Dalabyggð, var sveitarstjóri í Bíldu-
dalshreppi frá 1990 fram að samein-
ingu sveitarfélaga í Vesturbyggð
árið 1994. Hann segist ekki kannast
við að menn hafi verið i einhveijum
grátkór eftir íbúðum úr félagslega
kerfinu. „Þegar ég kom inn í þetta
var eitt parhús í byggingu sem lok-
ið var við og ekki byggt meira.
Sömu sögu er að segja á meðan ég
var sveitarstjóri í Hveragerði frá
1994 til 1999. Þá var ekki sóst eftir
að byggja félagslegar íbúðir. í Dala-
byggð eru menn að leita leiða varð-
andi rekstur ibúða í kerfinu, m.a.
með hugsanlegri stofnun hlutafé-
lags.“ -HKr.
Einar Kristinn
Guðfinnsson
alþingismaður.
en leiguhúsnæði
leitað hafi verið
Einar Mathiesen
sveitarstjóri í
Dalabyggð.
Raðgreióstur
Félagslega íbúðakerfiö á Vestfjörðum:
íbúðirnar nýttar
fyrir erlenda fræði-
og listamenn
- tillaga kynnt á Fjórðungsþingi Vestfirðinga
„Hingað til
hafa menn aðal-
lega einblínt á
eignarhaldið og
skuldabyrði
sveitarfélaganna
en minna hefur
verið rætt um
nýtinguna á hús-
næðinu og Elísabet Gunn-
hvemig hugsan- arsdóttir.
lega sé hægt að
hafa af því tekjur," segir Elísabet
Gunnarsdóttir arkitekt sem kynnti
hugmynd á Fjórðungsþingi Vest-
firðinga, sem haldið var i Súðavík
um helgina, um nýtingu íbúða i fé-
lagslega íbúðakerfinu á Vestfiörð-
um.
Náttúran aðdráttarafl
Hugmyndir Elísabetar ganga í
stuttu máli út á það að markaðs-
setja íbúðimar meðal fræði- og lista-
manna erlendis. „Það era margir
fræðimenn sem stunda huglæga
vinnu sem hafa þörf fyrir að komast
úr eigin umhverfi til að vinna að
verkefnum í afmarkaðan tíma, að
ekki sé talað um listamenn á ýms-
um sviðum sem stöðugt leita eftir
innblæstri frá nýju og framandi um-
hverfi," segir Elísabet sem telur
landið, og þá líka náttúruna á Vest-
Qörðum, hafa mikið aðdráttarafl
fyrir þennan hóp. „Samskipti há-
skólastofnana í ýmsum löndum era
alltaf að aukast og fræðimenn ferð-
ast meira, t.d. hafa háskólamir hér
á landi mikil samskipti við skóla í
öðrum löndum. Það væri reynandi
að kynna þennan valkost fyrir fé-
lagasamtökum erlendis," segir El-
ísabet sem telur hér vera um raun-
hæfan kost að ræða og að með réttri
markaðssetningu væri hægt að
leigja a.m.k. hluta þessara íbúða er-
lendum gestum.
Lífgar upp á bæjarlífið
Að sögn Ásgeirs Þórs Jónssonar
framkvæmdastjóra Fjórðungsam-
bands Vestfirðinga fannst mönnum
hugmynd Elisabetar skemmtileg og
áhugaverð og verður hún skoðuð
betur. „Þaö er gott að fá ný sjónar-
hom en hér er um margar íbúðir að
ræða og ég er ekki viss mn að eftir-
spumin yrði það mikil að það væri
hægt að fylla þær allar með erlend-
um listamönnum," segir Ásgeir sem
vissulega telur að það myndi lífga
upp á bæjarlífið ef erlendir lista-
menn færa að streyma að í ein-
hveijum mæli.
-snæ
Georg rænt
Eins metra háum sparibauk í líki Georgs var stolið úr íslandsbanka í Lækjar-
götu í Reykjavík síðastliöinn mánudag. Ungur maður kom inn í bankann, tók
Georg og hljóp út meö hann. Georg er sparibaukur íslandsbanka, í bangsa-
líki, og er hans nú sárt saknaö af bæði starfsfólki sem og ungum viðskipta-
vinum bankans. Þeir sem geta gefiö upplýsingar um afdrif Georgs eru beðnir
um að táta lögregluna í Reykjavík vita.
Qessica sófasett fyrir þau sem vilja vanda
valið og hafa gæðin í fyrirrúmi. Alktætt mjúk
nautsleðri á öllum ftötum. Pokafjaðrir í
sætum, kaldsteyptur svampur í bólstrun.
Fæst einnig í dökkbrúnu leðri. Settið
3+2+1 kr. 264.120,-. 3+1+1 kr. 239.980,-
HUSGAGNAHOLLIN
Bíldshöfoa • 110 Reykiavik • s.510 8000 • www.husgagnaholhn.is