Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2000, Side 22
S4
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000
r>v
Ættfræði
Umsjón: KJartan Gunnar Kjartansson
ÉBB
80 ára_____________________________
Haukur Guömundsson,
Austurbrún 4, Reykjavík.
75 ára_____________________________
Sónbjörg Sigfinnsdóttir,
Laugateigi 14, Reykjavík.
Helga Aaberg,
Álftamýri 54, Reykjavík.
Suðmundur Jasonarson,
Safamýri 47, Reykjavík.
Vigdís Ámundadóttir,
Skriðustekk 15, Reykjavík.
Ólafur Jónsson,
Hamraborg 22, Kópavogi.
öorsteinn Elísson,
Laxárdal 2, Brú.
fJaldvina Guðlaugsdóttir,
Hjarðarslóð 2c, Dalvík.
70 ára______________________________
Þórunn Andrésdóttir,
Eyjabakka 11, Reykjavík.
Hjördís S. Arndal,
Öldugötu 16, Hafnarfirði.
Sogi J. Melsted,
Syðri-Brúnavöllum, Selfossi.
50 ára
Þórdís Sölvadóttir,
Ölduslóð 18, Hafnarfirði.
Hún og börn hennar taka
á móti gestum á
A. Hansen í Hafnarfirði,
laugard. 14.10. kl.
>. jU 21.00.
Á'k Sigurður Kristjánsson,
I Sæbólsbraut 2, Kópavogi.
Sólveig Erna Sigurvinsdóttir,
Gunnarsbraut 7, Búðardal.
Lotta Wallý Jakobsdóttir,
Rauðafelli, Fosshóli.
40 ára___________________________
Arnheiður G. Guömundsdóttir,
Vaðlaseli 7, Reykjavík.
Unnur Ásta Jóhannsdóttir,
Mururima 4, Reykjavík.
Valgerður Guðmundsdóttir,
Vesturfold 44, Reykjavík.
Margrét Alice Birgisdóttir,
Breiðvangi 11, Hafnarfirði.
Guðjón Kjartansson,
Sólvöllum 2, Akranesi.
Sigríður Oddný Jónsdóttir,
Ásvegi 31, Akureyri.
Elfa Ósk Jónsdóttir,
Baughóli 31b, Húsavík.
Anna Heiðlaug Bragadóttir,
Flúðum, Egilsstöðum.
Anna Kristín Hjálmarsdóttir,
Heiðarvegi 49, Vestmannaeyjum.
Smáauglýsingar
OV
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
Sveinn Ólafur Sveinsson, Sævangi 41,
Hafnarfiröi, lést miðvikud. 4.10.
Bjarni Guöbjörnsson, fýrrv. yfirvélstjóri á
rannsóknarskipinu Bjarna
Sæmundssyni, Byggðarholti 31,
Mosfellsbæ, lést á heimili sínu
miðvikud. 4.10.
Margrethe Carisson andaöist á
Droplaugarstöðum, þann 28.9. sl.
Útförin hefur fariö fram í kyrrþey.
Dr.philos, Bjarni Einarsson
handritafræöingur lést 6.10. á
Liknardeild Landspítalans.
Alma Ellertsson, Kópavogsbraut la,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Túngötu,
föstud. 6.10.
Aðalsteinn Eiríksson
deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu
Aðalsteinn Eiríksson, deildar-
stjóri framhaldsskóla- og fullorðins-
fræðsludeildar menntamálaráðu-
neytisins, Stóragerði 32, Reykjavík,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Aðalsteinn fæddist á Núpi í Dýra-
firði, lauk stúdentsprófi frá MR
1959, lauk fyrrihlutaprófi í guðfræði
við HÍ 1963, lauk BA-prófi i landa-
fræði, sögu, grísku og uppeldis- og
kennslufræði við HÍ 1971 og lauk
fyrsta stigi í íslensku í HÍ 1977.
Aðalsteinn var kennari við Hér-
aðsskólann á Núpi 1960-61, við VÍ
1961-63, við Iðnskólann og Austur-
bæjarskólann 1961-63, við Kvenna-
skólann 1964-77, kennari við KHÍ
1978, yfirkennari í Kvennaskólan-
um 1977-82 og skólameistari þar
1982-2000.
Aðalsteinn var í stúdentaráði HÍ
1963-64, formaður Stúdentafélags HÍ
1966-67, formaður Félags guðfræði-
nema og formaður Bræðralags, for-
maður borðtennisklúbbsins Arnar-
ins 1974^-78, formaður mótanefndar
BTÍ 1975-85, sat i stjóm og launa-
málaráði FHK 1974-78, í samein-
inganefnd FHK og Félags ménnta-
skólakennara 1978-79, var ritstjóri
Stúdentablaðsins 1966, í ritnefnd af-
mælisritsins Kvennaskólinn í
Reykjavík 1874-1974 og var í starfs-
hópi um samfélagsfræði á vegum
Skólarannsókna 1977-84.
Fjölskylda
Aðalsteinn kvæntist 22.7. 1967
Guðrúnu Þorgerði Larsen, f. 1.11.
1945, jarðfræðingi og sérfræðingi
við Raunvísindastofnun HÍ. Foreldr-
ar Guðrúnar: Kristján Larsen, verk-
stjóri á Akureyri, og k.h., Brynhild
f. Nilsen frá Lopra í Færeyjum.
Börn Aðalsteins og Guðrúnar eru
Eiríkur Kristján, f. 22.12. 1966,
tæknifræðingur en kona hans er
Anna Sigríður Jökulsdóttir og eiga
þau tvo syni; Brynhildur Kristín, f.
29.9. 1980, nemi við MH, i
foreldrahúsum.
Systkini Aðalsteins: Guðmundur,
f. 6.5. 1943, d. 10.7. 1946; Jón, f. 23.9.
1944, dr. í jarðfræði, sérfræðingur á
Rannsóknarstofnun HÍ; Hildur, f.
21.3. 1947, skrifstofumaður við
Landspítalann í Fossvogi; Ágústa, f.
18.6. 1948, hjúkrunarfræðingur á
Sauðárkróki; Jónína, f. 14.2. 1952,
kennari á Kleppjárnsreykjum;
Magnús, f. 10.12.1953, véltæknifræð-
ingur í Reykjavík; Guðmundur, f.
14.5. 1955, byggingatæknifræðingur
í Borgarnesi; Ásmundur, f. 6.10.
1959, tölvunarfræðingur á Selfossi;
Ásdís, f. 2.10.1960, kennari, búsett á
Sturlu-Reykjum; Ingveldur, f. 9.4.
1965, kennari að Ljósafossi.
Foreldrar Aðalsteins: Eiríkur J.
Eiríksson, f. 22.7. 1911, d. 11.1. 1987,
skólastjóri, prestur og Þjóðgarðs-
vörður, og k.h., Sigríður Kristín
Jónsdóttir, f. 5.10. 1917.
Ætt
Eiríkur var sonur Eiríks, tré-
smiðs í Vestmannaeyjum og Kali-
forníu, Magnússonar, trésmiðs í
Reykjavík, Magnússonar, b. á
Hrauni í Ölfusi, Magnússonar, b. og
hreppstjóra í Þorlákshöfn, Bein-
teinssonar, lrm. á Breiðabólsstað,
Ingimundarsonar, b. á Hólum,
Bergssonar, ættföður Bergsættar,
Sturlaugssonar. Móðir Eiríks tré-
smiðs var Aldís Helgadóttir, b. á
Læk, Runólfssonar, og Ólafar Sig-
urðardóttur, b. á Hrauni, Þorgríms-
sonar, b. á Leiðólfsstöðum, Bergs-
sonar, bróður Ingimundar.
Móðir Eiríks þjóðgarðsvarðar var
Hildur Guðmundsdóttir, b. á Iðu,
Guðmundssonar, og Jónínu Jóns-
dóttur.
Kristín er dóttir Jóns, b. á Gemlu-
falli í Dýrafirði, Ólafssonar, b. i Hól-
um, Guðmundssonar, b. í Hólum,
Guðbrandssonar. Móðir Guðbrands
var Guðrún Guðbrandsdóttir, b. í
Hólum, Sigurðssonar, b. í Hólum,
Guðbrandssonar, b. á Gerðhömrum,
Sigurðssonar, prófasts í Holti, Jóns-
sonar. Móðir Ólafs í Hólum var
Guðrún Bjarnadóttir. Móðir Guð-
rúnar var Elísabet Markúsdóttir,
pr. á Söndum, Eyjólfssonar, og El-
ísabetar Þórðardóttur, ættföður
Vigurættar, Ólafssonar, ættföður
Eyrarættar, Jónssonar.
Móðir Kristínar var Ágústa Guð-
mundsdóttir, skipstjóra á Brekku,
Jenssonar, b. á Brekku, Guðmunds-
sonar. Móðir Jens var Guðrún
Magnúsdóttir, skrifara á Núpi í
Dýrafirði, Magnússonar, og Jósabet-
ar Jónsdóttur, pr. á Hrafnseyri,
Bjamasonar. Móðir Jósabetar var
Þorkatla Sigurðardóttir, pr. i Holti í
Önundarfirði, Sigurðssonar, bróður
Guðbrands á Gerðhömrum. Móðir
Ágústu var Jónína Jónsdóttir, syst-
ir Egils, langafa Ólafs Ragnars
Grímssonar forseta.
Attræður
ms.i ■
l&mZ:-:
Lárus Halldórsson
fyrrv. sóknarprestur í Breiðholtsprestakalli
Lárus Halldórsson, fyrrv. sóknar-
prestur í Breiðholtsprestakalli,
Þórsgötu 12, Reykjavík, er áttræður
í dag.
Starfsferill
Lárus fæddist á Selvöllum í
Helgafellssveit. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1941, stundaði nám við
guðfræðideild HÍ og lauk embættis-
prófi í guðfræði 1945, kynnti sér sjó-
mannatrúboð á Norðurlöndum 1949,
sótti kristlegt stúdentamót í Hels-
ingfors sama ár, dvaldi við nám í
fimm mánuði í Ósló 1955 og kynnti
sér sálgæslustörf í sjúkrahúsum og
starfsemi sjúkrahúspresta í Noregi
og Danmörku.
Lárus var sóknarprestur í Flatey
á Breiðafirði 1945-56, var forstöðu-
maður sjómannastofu í Reykjavík
1956, sóknarprestur í Breiðabólstað-
arprestakalli á Skógarströnd 1956,
var ráðinn farprestur Þjóðkirkjunn-
ar 1957 og gegndi sem slíkur prests-
þjónustu, m.a. i Húsavíkurpresta-
kalli, á ísafirði, í Hallgrímspresta-
kalli í Reykjavik, í Selfosspresta-
kalli, í Mosfellsprestakalli í Gríms-
nesi, í Möðruvallaprestakalli og auk
þess til aðstoðar séra Pétri Sigur-
geirssyni á Akureyri og í Hvera-
gerðisprestakalli.
Láms lét af embætti farprests
1965 og var kennari i Reykjavík um
skeið. Hann var ráðinn sjúkrahús-
prestur í Reykjavík 1971 og veitt
Breiðholtsprestakall 1972 sem hann
þjónaði þar til hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir.
Eftir að Lárus lét af prestsþjón-
ustu í Breiðholtinu gegndi hann
prestsþjónustu i afleysingum, m.a. á
Seyðisfirði, á Akureyri og i Bolung-
arvík.
Lárus starfaði við æskulýðsstarf
og sumarstarf Þjóðkirkjunnar að
Löngumýri í Skagafirði í mörg sum-
ur og var þar forstöðumaður í nokk-
ur sumur.
Fjölskylda
Lárus kvæntist 15.9. 1945 Þórdísi
Nönnu Nikulásdóttur, f. 14.5. 1922,
húsmóður. Hún er dóttir Nikulásar
Jónssonar, bónda í Króktúni í Hvol-
hreppi, og k.h.,
Maríu Þórðar-
dóttur húsfreyju
en þau eru bæði
látin.
Börn Lárusar
og Þórdísar
Nönnu eru Anna
María Lárusdótt-
ir, f. 19.3. 1946,
starfar á ljós-
myndastofu, bú-
sett í Reykjavík;
María Kristín Lárusdóttir, f. 14.3.
-1948, forstöðukona á leikskóla, gift
Birgi Símonarsyni; Sigríður Lárus-
dóttir, f. 22.1. 1950, lögfræðingur í
Danmörku, gift Stig Henriksen;
Halldór Nikulás Lámsson, f. 7.8.
1954, guðfræðingur og fram-
kvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Ámýju Jóhannsdóttur.
Barnabörn Lárusar og Þórdísar
Nönnu eru nú átta talsins.
Hálfsystkini Lárusar, sammæðra,
voru Kári Gíslason, sjómaður í
Reykjavík; Hafliði Gíslason, bif-
reiðarstjóri í Reykjavík; Guðrún
Gísladóttir, dó ung kona, var hús-
móðir, búsett í
Reykjavík; Sæmund-
ur Gíslasori, dó á img-
lingsárum;Árni
Gíslason, lengst af
starfsmaður Ríkis-
skipa, búsettur í
Reykjavík; Björn
Gíslason, starfaði
lengst af hjá Steypu-
stöðinni, búsettur í
Reykjavík; Kristín
Gísladóttir, húsmóðir
í Reykjavík.
Foreldrar Lárusar vora Halldór
Þórarinn Sveinsson, f. 16.2. 1880, d.
1.4.1946, bóndi á Selvöllum, og k.h.,
Kristín Sigurlín Hafliðadóttir, f.
31.7. 1883, húsfreyja.
Ætt
Halldór Þórarinn var sonur
Sveins, b. á Hraunhálsi í Helgafells-
sveit, Jónssonar.
Kristín Sigurlín var dóttir Haf-
liða, b. á Kljá í Helgafellssveit, Jóns-
sonar.
Lárus verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Merkír Islendíngar
Helgi Ingvarsson, yfirlæknir á Vífilsstöð-
um, fæddist í Gaulverjabæ í Flóa 10.
október 1896. Hann var sonur Ingvars
Nikulássonar, prests þar, og Júlíu Guð-
mundsdóttur húsfreyju.
Kona Helga var Guðrún Lárasdóttir
en meðal bama þeirra má nefha Guð-
rúnu, fyrrv. skólastjóra Kvennaskól-
ans, móður Ólafs Oddssonar mennta-
skólakennara og læknanna Helga og
Jóns Jónssona; Ingvar, stórkaupmann
og forstjóra, föður Júlíusar Vífils, for-
stjóra, borgarfulltrúa og óperusöngvara;
Lárus Jakob, geðlækni og yfirlækni, og
Sigurð, sýslumann og bæjarfógeta.
Helgi lauk stúdentsprófi frá MR 1916, emb-
ættisprófi í læknisfræði við HÍ 1922 og stundaði
framhaldsnám í berklalækningum í Þýska-
landi og á Norðurlöndunum.
Helgi var aðstoðarlæknir á Vífilstaða-
spitala 1922-38 og yfirlæknir þar 1939-67.
Hann var auk þess læknir við Kópa-
vogshælið í rúman áratug.
Helgi er sá læknir sem flestum kem-
ur í hug þegar baráttan við Hvíta
dauða ber á góma. Hann er vel að því
kominn enda var ævistarf hans helgað
þeirri baráttu. Hann festi sjálfur kaup
á röntgentæki og fylgdist mjög gaum-
gæfilega með öllum nýjungum í berkla-
vörnum og berklalækningum. Þá þótti
hann sérstaklega nærgætinn og skilnings-
ríkur gagnvart sjúklingum sínum sem oft
var alvarlega veikt ungt fólk. Helgi lést 1980.
Helgi Ingvarsson læknir
Ágúst Þór Þórsson, Sogavegi 109,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju þriðjud. 10.10. kl. 15.00.
Brynhildur Slgtryggsdóttir, Hávegi 15,
Kópavogi, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju þriðjud. 10.10. kl. 10.30.
Árni Sigurjónsson, fyrrv. fulltrúi lögreglu-
stjóra, verður jarðsunginn frá Hallgríms-
kirkju þriðjud. 10.10. kl. 15.00.
Óskar Jóhannsson málarameistari, áður
til heimilis í Meöalholti 7, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskaþellu þriðjud.
10.10. kl. 13.30.
Guðjón Böðvar Jónsson tónmennta-
kennari, Hátúni 4, áöur til heimilis í
Safamýri 35, verður jarðsunginn frá Bú-
staöakirkju fimmtud. 12.10. kl. 13.30.
Útför Auðar Guðrúnar Arnfinnsdóttur,
hjúkrunarh. Eir, áður I Lönguhlíð 19, fer
fram frá Háteigskirkju 12.10. kl. 13.30.