Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 4
26 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2000 DV-Sport - körfuboltakynning 2000-01 Haukar ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka: Minni breidd „Við stillum upp svipuðum mannskap og í fyrra en breiddin er kannski ekki al- veg eins mikil. Tímabilið í fyrra var mikil reynsla sem á eftir að nýtast okkur i vetur. Þar sem litlar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum þá vita menn til hvers er ætlast af þeim og auðveldara fyrir mig að byggja ofan á síð- asta vetur. Stefnan hjá okkur í vetur er auðvitað sú að gera betur en á síð- asta tímabili. í fyrra duttum við út í undanúrslitum bæði i bikar- og í úrslitakeppninni og lent- um í öðru sæti i deildinni þannig að ef við ætlum að gera betur verðum við að vinna titil eða titla. Undirbúningur hjá okkur hefur verið með besta móti. Við fórum til Þýska- lands í vikuferð og spiluðum við nokkuð góð lið þar og svo höfum við spilað á sterku Reykjanesmóti. Reykjanesmótið gekk að vísu ekki vel hjá okkur og spil- uðum við ekki sannfærandi þar en ég tel að stígandi hafi verið hjá okkur og við verðum vel stemmdir í deildinni og í góðu formi. Meiðsli hafa verið að hrjá lykilmenn Komnir: Lýður Vignisson frá USA, Ásgeir Ásgeirsson frá Grindavík, Rick Mickens frá USA, Þröstur Kristinsson frá ÍS. Farnir: Ingvar Guðjónsson til USA, Sigfús Gizurason, Stais Boseman, Óskar Pétursson. Heimaleikir að Ásvöllum: Haukar-Hamar .... 1. okt. kl. 14.00 Haukar-Skallagr. . . 15. okt. kl. 20.00 Haukar-KR........5. nóv. kl. 20.00 Haukar-Grindavík .. 3. des. kl. 20.00 Haukar-ÍR .......14. des. kl. 20.00 Haukar-Ketlavík ... 4. jan. kl. 20.00 Haukar-Þór ......16. jan. kl. 20.00 Haukar-KFl ......8. febr. kl. 20.00 Haukar-Valur....11. febr. kl. 16.00 Haukar-Njarövík . . 18. febr. kl. 16.00 Haukar-Tindastóll . 4. mars kl. 16.00 en aðrir hafa stigið upp á meðan og hef- ur t.d. Eyjólfur Jónsson fyllt skarð Guð- mundar Bragasonar vel. Útlendingar spila stórt hlutverk í liðum sínum og höf- um við fengið til okkar bakvörð og hefur það tekið nokkurn tíma hjá okkur að koma honum inn í okkar leik en ég býst við honum sterkum i vet- ur. Epson-deildin í ár mun að mínu mati verða sú sterkasta frá upphafi. Stór orð, en ef menn líta á liðin og þann mann- skap sem er í dag held ég að menn séu á sömu skoðun. í dag eru 5 lið sem eiga eftir að berjast um titilinn af mikilli hörku: Haukar, KR, Keflavík, Grindavik og Njarðvík. Tvö önnur lið eiga eftir að vera í þessari baráttu að mínu mati og gera sett strik i reikninginn og það eru Valur og Tinda- stóll. Því miður hef ég ekkert séð til Stól- anna en býst samt við þeim mjög góðum í vetur. ÍR, Hamar og Þór munu síðan berjast af mikilli hörku um siðasta lausa sætið í úrslitakeppninni. KFÍ og Borgar- nes munu falla og eiga þau töluvert í land til þess að geta unnið þau bestu. Mikið er um unga stráka í deildinni í vetur sem eru ekki bara efnilegur heldur eru orðnir góðir,“ segir ívar. Haukar 1999-2000 Miesti árangur það ár * * 1 Versti árangur það ár RÓÖ flrangur 34 stig 2. Stig að meðaltali 87,0 4. Skotnýting 46,9% 5. Þriggja stiga körfur 8,4 3. Þriggja stiga nýting 38,3% 3. Vítanýting 77,9% Tapaðir boltar 13,8 2. Stigásig 75,7 3. Skotnýting mótherja 43,4% 3. Tapaðir boltar mótherja 12,2 12.Í'> Sóknarfráköst tekin 12,3 i.í;< Hlutfall frákasta tekin 55,0% *.# Varín skot 2,64 4. Fiskaðar villur 21,1 i.«;» Villur fengnar 19,9 7. • • Asgeir Asgeirsson Bakvörður 17 ára 189 cm, 84 kg Leikir 9, stig 2. Bragi H. Magnússon Framherji 27 ára, 194 cm, 106 kg Leikir 217, stig 2750 Brynjar Grétarsson Framherji 21 árs, 194 cm, 89 kg Leikir 14, stig 7 Davíð Asgrímsson Framherji 23 ára 190 cm, 92 kg Leikir 35, stig 66 Eyjólfur Örn Jónsson Framherji/miöherji 26 ára, 202 cm, 98 kg Leikir 12, stig 56 Guðmundur Björnsson Framherji 29 ára, 183 cm, 85 kg Leikir 41, stig 42 Guömundur Bragason Framherji/miðherji 33 ára, 203 cm, 98 kg Leikir 269, stig 4879 Jón Arnar Ingvarsson Bakvörður 28 ára, 186 cm, 87 kg Leikir 279, stig 4168 Leifur Þór Leifsson Bakvörður 25 ára, 185 cm, 83 kg Leikir 64, stig 84 Lýður Vignisson Bakvörður 20 ára, 184 cm, 84 kg Leikir 1, stig 2 Marel Guðiaugsson Framherji 28 ára, 194 cm, 88 kg Leikir 298, stig 2464 Ottó Þórsson Bakvörður 23 ára 186 cm, 82 kg Leikir 1, stig 8 Rick Mickens Bakvörður/framherji 22ára, 190 cm, 90 kg Leikir 0, stig 0 Róbert Leifsson Bakvörður 22 ára, 183 cm, 82 kg Leikir 14, stig 30 Stefán Reynisson Bakvörður 21 árs, 198 cm, 94 kf Leikir 0, stig 0 Teitur Arnason Bakvöröur 17 ára, 180 cm, 78 kg Leikir 0, stig 0 Þröstur Kristinsson Framherji 25 ára, 190 cm, 82 kg Leikir 36, stig 50 ívar Ásgrímsson Þjálfari Þetta er 2. ár hans meö liöiö. Haukar tókufleiri fráköst en andstæðingarnir í átján af 22 leikjura sínum og alls 55% þeirra frákasta sem voru í boði hjá liðinu i leikjunum 22. Haukar tóku 39,1% frákasta í boði undir körfu andstæðinga sinna og 70,5% frákasta undir sinni eigin körfu. Ekki er hœgt að segja ann- að en Hafnarfjarðarliöið hafí tekið sig á þvi áriö á undan tóku Haukar aðeins 47,7% frákasta í boði. Haukaliðið hækkaði sig því um 11 sæti og rúm 7% milli ára. Koma Gudmundar Bragasonar til liðs- ins hafði þarna örugglega mikil áhrif en Guðmundur varð í fyrra sá leikmaður sem hefur tekið flest frá- köst í sögu úrvalsdeildar- innar. Guðmundur bætti met Johns Rhodes i fyrra, þegar hann tók sitt 126. frá- kast á tímabilinu, og hefur alls tekið 2617 fráiköst i úr- valsdeild. Guðmundur hef- ur leikið 253 leiki þar sem tölfræðin hefur verið tekin saman og er þvi með 10,3 fráköst aö meöaltali i leik. -ÓÓJ Pmím á aiÍM ffikú. SmiÖjuvegur 6 200 Kópavogur sími 557-9555

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.