Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Page 9
MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2000
31
DV-Sport - körfuboltakynning 2000-01
„Við Njarðvíkingar höfum æft mjög
vel á undirbúningstímabilinu og komið
að okkar mati þokkalega út úr
æfingaleikjum að undanfórnu.
Við fengum reyndar útlendingana
frekar seint til okkar (Brenton og Jes
Hansen) en það er mikið ánægjuefni
fyrir okkur að hafa endurheimt
Brenton. Að okkar mati ættum við að
vera með lið sem getur náð mjög langt í
vetur. Logi Gunnarsson kom til okkar í
hörkuformi eftir stíft
landsliðsprógramm og
við gerum miklar
kröfur til hans. Brenton
á að leiða sóknarleik
liðsins í vetur en aðrar
skyttur liðsins ættu að
geta notið góðs af
athyglinni sem þeir draga
að sér. Liðið er fín blanda
ungum og sprækum strákum og
reynslumeiri mönnum og liðið a
vonandi eftir að bjóða upp á körfubolta
sem verður skemmtilegur áhorfs og
einnig vænlegur til árangurs. Að okkar
mati er deildin jafnari en undanfarin ár
og sægur af ungum mjög góöum
leikmönnum eiga að okkar mati eftir að
taka deildina með trompi í vetur og það
oib B
ra
virðist sem kynslóðaskipti séu að eiga
sér stað í íslenskum körfuknattleik. í
fljótu bragði virðast lið eins og
Njarðvík, Keflavík, KR, Grindavík,
Haukar og Tindastóll líklegust til afreka
í vetur en þessi lið eru öll mjög vel
mönnuð og breiddin er til staðar hjá
þeim. Þó er allt eins líklegt að lið eins
og Þór og ÍR eigi eftir að blanda sér í
toppbaráttuna. Við áttum í miklu basli
með að innbyrða sigur á mjög svo frísku
-j.ÍR-liði í 2. umferð Epson-
deildarinnar en það
gpl / verður sýnd veiði en ekki
■ L .J gefín í vetur. Hamar og
Valur/Fjölnir eiga eftir að
sigla lygnan sjó í vetur en
að okkar mati verður það
hlutskipti Borgarness og
KFÍ að reka lestina. Þó getur
islegt gerst og þessi lið eru
ekki þekkt fyrir annað en að blása á
svona spár. Epsondeildin hefur farið
íjörlega af stað og við spáum
skemmtilegum körfuboltavetri og það er
að minnst kosti eina spáin okkar sem
rætist örugglega. Allt annað verður
tíminn að leiða í ljós," segir Friðrik
Ragnarsson sem þjáifar Njarðvík ásamt
Teiti Örlygssyni.
EPSOÞÍ
"■Jp OEILOIIM
Komnir:
Sævar Garðarsson frá Grindavík, Jes
V. Hansen frá Danmörku, Halldór
Karlsson frá Keflavík, Jóhannes
Kristbjörnsson frá Stjörnunni, Brent-
on Birmingham frá Grindavík.
Farnir:
Friðrik Stefánsson til Finnlands,
Gunnar Örlygsson hættur, Hermann
Hauksson til KR, Sigurður Einarsson
til USA, Örvar Kristjánsson til
Stjörnunnar, Riley Inge.
Heimavöllur:
Heimaleikir í Njarövík:
Njarðvik-ÍR......1. okt. kl. 20.00
Njarövík-Hamar ... 15. okt. kl. 20.00
Njarðvík-Skallagr . . 2. nóv. kl. 20.00
Njarðvík-Haukar . . 15. nóv. kl. 20.00
Njarðvík-Grindavík 14. des. kl. 20.00
Njarðvík-Tindastóll . 4. jan. kl. 20.00
Njarðvík-Keflavík . . 16. jan. kl. 20.00
Njarövík-ÞÓr....8. febr. kl. 20.00
Njarðvík-KFÍ .... 15. febr. kl. 20.00
Njarðvík-KR ....2. mars kl. 20.00
Njarðvík-Valur ... 4. mars kl. 20.00
Tölfræði og árangur
Njarðvík 1999-2000
* 11Besti árangur það ár
* Versti árangur það ár Roð
flrangur 36 stig
Stig að meðaltali 90,4 2.
Skotnýting 49,1% 3.
Þriggja stiga körfur 7,9 4.
Þriggja stiga nýting 34,5% 6.
Vrtanýting 70,2% 8.
Tapaðir bottar 14,9 6.
Stigásig 75,1 2.
Skotnýting mótherja 41,4% 1.®
Tapaðir boltar mótheija 17,2 5.
Sóknarfráköst tekin 11,0 4.
Hlutfall frákasta tekin 51,4% 8.
Varinskot 3,81 i.(;.
Fiskaðar villur 20,8 2.
Villur fengnar 18,2 4.
•--------•
5ZS
Ásgeir Guðbjartsson
Bakvörður
23 ára, 194 cm, 98 kg
Leikir 28, stig 30
Brenton Birmingham
Bakvöröur/framherji
28 ára, 195 cm, 93 kg
Leikir 40, stig1128
Friðrik Ragnarsson
Bakvörður
30 ára, 183 cm, 84 kg
Leikir 305, stig 3059
Halldór Karlsson
Framherji
22 ára, 194 cm, 94 kg
Leikir 66, stig 203
Hjörtur Guðbjartsson
Miöherji
17 ára, 202 cm, 103 kg
Leikir 0, stig 0
Ingvi Steinn Jóhannsson
Bakvörður
21 árs, 176 cm, 77 kg
Leikir 0, stig 0
Jes V. Hansen
Framherji/miöherji
26 ára, 205 cm, 101 kg
Leikir 0, stig 0
Jóhannes Kristbjörnsson
Bakvörður
35 ára, 190 cm, 84 kg
Leikir 292, stig 3616
Logi Gunnarsson
Bakvöröur
19 ára, 190 cm, 80 kg
Leikir 26, stig 154
Páll Thorsteinsson
Miöherji
20 ára, 203 cm, 98 kg
Leikir 0, stig 0
Ragnar Ragnarsson
Bakvöröur
24 ára, 190 cm, 85 kg
Leikir 85, stig 200
Sævar Garðarsson
Bakvöröur
26 ára, 188 cm, 80 kg
Leikir 60, stig 124
Teitur Orlygsson
Bakvörður/framherji
33 ára, 190 cm, 82 kg
Leikir 351, stig 5877
Þorbergur Hreiðarsson
Bakvörður
18 ára, 186 cm, 78 kg
Leikir 0, stig 0
Órvar Asmundsson
Bakvörður
19 ára, 190 cm, 77 kg
Leikir 0, stig 0
Spilandi þjálfarar Njaróvikur eru
einnig leikjahæstu leikmenn félagsins í
úrvalsdeild frá upphafi. Teitur Örlygsson
er bæði sá leikjahæsti (354) og stigahæsti
(5908) og Friðrik Ragnarsson komst í
annað sætið á leikjalistanum þegar hann
lék sinn 269. leik i fyrra, en aUs hefur
hann leikið 297 úrvalsdeUdarleiki.
Teitur, sem var valinn bestu leikmaður
síðasta tímabUs, er sá sem hefur oftast
hlotið þá útnefningu eða hórum sinnum.
Teitur leiddi lið Njarðvíkinga gegnum
erfíða tíma og tU deUdarmeistaratitUs.
Teitur skoraði 18,3 stig að meðaltali og
hitti úr 86,9% vita sinna.
Teit vantar aóeins 80 stolna bolta í
vetur tU að verða sá fyrsti i sögu úr-
valsdeUdarinnar tU að stela 1000 bolt-
um. Með þeim árangri verður hann
enn fremur fyrsti leikmaður úrvals-
deUdarinnar tU að ná Qórum tölfræði-
þáttum yfir 1000 en hann hefur einnig
skorað 5908 stig, tekið 1287 fráköst og gef-
ið 1002 stoðsendingar.
Njarðvík hefur oröiö íslandsmeistari
tíu sinnum fíá upphafi en aðeins ÍR-ing-
ar hafa unnið titilinn oftar, eða fimmtán
sinnum. Njarðvík hefur unnið þessa tiu
fslandsmeistaratitla á síðustu 19 árum
en ailir titlar ÍR-inga komu fyrir tíma úr-
valsdeildarinnar.
Njarövik er eina liðið ásamt KR sem
hefur verið með öll árin 22 í úrvalsdeUd-
inni og hefur Njarðvík bæði unnið Uesta
úrvalsdeildarleiki allra félaga (389) og er
með besta sigurhlutfaUið (77,2%) fyrir
þetta tímabU.
Njarövikurliöið hefur farió langt á
góðri vöm og í fyrra þvingaði liðið
mótherja sína tU að nýta aðeins 41,4%
skota sinna. Þetta var lægsta skotnýting
mótherja af öUum úrvalsdeildarliðunum
og annað árið i röð sem Njarðvík er efst
á þessum lista. Auk þessa vörðu leik-
menn NjarðvUsurliðsins Uest skot í ann-
að sinn á þremur árum.
Njaróvikurliöiö tapaöi engum stigum
gegn sex neðstu liðum EpsondeUdarinn-
ar í fyrra eitt liða en Njarðvík vann alla
12 leiki sína gegn þeim liðum sem end-
uðu í 7. til 12. sæti deildarinnar. Njarð-
vík vann einnig aUa tólf leiki sín þar sem
liðið hitti úr meira en helmingi skota
sinna. -ÓÓJ