Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Page 29
45
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
DV Tilvera
Fjáröflun:
F j ölbrautaskóla-
nemar frá Sauðár-
króki gefa blóð
Nemendur Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra á Sauðárkróki fjöl-
menntu til Reykjavíkur fyrir helgi í
þeim tilgangi að gefa blóð. Einar
Björgvin Eiðsson, forsvarsmaður
hópsins, segir að hópurinn saman
standi af útskriftarnemum skólans.
„Þannig er mál með vexti að á hverju
ári stöndum við fyrir fjáröflun fyrir
útskriftarferð. í ár ákváðum við að
fara í samstarf við Blóðbankann og
gera eitthvað gagnlegt og skemmti-
legt. Samkvæmt fréttum undanfar-
inna vikna hefur ríkt hálfgert neyðar-
ástand í Blóðbankanum vegna skorts
á blóði. Að þessu sinni skilum við af
okkur einhverju gagnlegu með fjáröfl-
uninni í stað þess að gera tóma vit-
leysu í tilgangsleysi.
Á undanförnum árum hefur mara-
þonið, eins og við köllum fjáröflunina,
falist í því að lesa bækur í heilan sól-
arhring eða hlaupa ákveðinn fjölda
kílómetra."
40 máttu gefa blóö
Alls eru fimmtíu manns í útskrift-
arhópnum og Qörutíu máttu gefa blóð
að þessu sinni. Þeir sem ekki gátu gef-
ið blóð fóru í heimsókn í Fjölbrauta-
skólana í Breiðholti og Garðabæ þar
sem þeir héldu erindi um gagnsemi
þess að gefa blóð. „Erindið fjallaði lít-
illega um verksvið Blóðbankans og af
hverju menn ættu að gerast blóðgjafar
og hvaða kvaðir fylgdu því. Margir
eru dauðhræddir við að gefa blóð og
mikla það fyrir sér. Við ætlum að
reyna að draga úr þessari hræðslu og
fá fleiri í lið með okkur.1'
Dennis til varn-
ar fyrrum frú
Texasguttinn Dennis Quaid er
hreint ekki kátur með frásagnir
sumra óvandaðra blaða vestanhafs
þess efnis að hann hafi lýst fyrrum
eiginkonu sina, kvikmyndastjörn-
unni Meg Ryan, sem óhæfri móður.
„Ég vil ekki heyra neina gagn-
rýni á það hvernig Meg hefur tekist
á við móðurhlutverkið. Hún er Jack
ákaflega góð móðir, umhyggjusöm
og ástúðleg. Allt annað er bara öm-
urleg lygi,“ segir Dennis í viðtali
við New York Post.
Rokkari sakad-
ur um nauðgun
Rokkarinn Paul Weller, fyrrum
söngvari Sultusveitarinnar vin-
sælu, var handtekinn fyrir
skömmu, sakaður um nauðgun. Lið-
lega hálffertug kona heldur því
fram að Weller hafi nauðgað henni í
veislu á árinu 1996. Hún segir í við-
tali við breska blaðið People að hún
hafi verið of hrædd til að kæra
popparann fyrr en nú. Weller neita
að hafa nauðgaö konunni.
Weller þurfti ekki að dúsa lengi
inni því hann var látinn laus gegn
tryggingu. Lögreglan segist líta mál-
iö alvarlegum augum og að það
verði rannsakað ofan í kjölinn.
Lögreglufylgd
Þegar Sauðkrækingamir voru bún-
ir að gefa blóð héldu þeir í skrúð-
göngu niður Laugaveginn í lögreglu-
fylgd. í skrúðgöngunni dreifði hópur-
inn bæklingum til að kynna starfsemi
Blóðbankans og seinnipart dags fóru
þeir í Kringluna í sama tilgangi.
-Kip
Nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki við Blóðbankann
Margir eru dauöhræddir við að gefa bióð. Við ætlum að reyna að draga úr þessari hræðsiu og fá fleiri í lið með okkur.
r - ^ rjr r- ■ r - ^
' / . , f j, u {jr( j j r
i
www.rockfordfosgate.com
t Rockford magnarar
Verð frá kr. 21.949,-
Bassahát;|larar 8-18"
Verð-frá ílr. 8.661.-
.
Bassabox 2x10, 12, 15".
Verð frá kr. 30.751.-
; RÓCKFÖRDCD 'Z
25% kynningarafsláttur
af hljómtækjapökkum aðeins
þessa viku 30. okt.- 4. nóvember
■Jfréfrr
Bíltæki
Kynningarverð rfx-83io
frá kr. 19.999.- 26.911
Aðelns þessa viku eða á meðan birgöir endast
Skeifan 4 • Sími 585 0000 • www.aukaraf.is
Umboðsaðilar:
Radíónaust, Akureyri • sími 462 1300
Árvirkinn, Seifossi • sími 482 1160
i.
r
*