Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2000, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
I>V
Fréttir
Björgun dælir 1,5 milljónum tonna af hafsbotni í meðalári:
Mikið landbrot
- í kjölfarið, segja óánægðir landeigendur í Kjós
Dælluskip
Fyrirtækið hefur tekið efni í Kollafirði, Hvalfirði og Faxaflóa en efnistaka
þess hefur sætt mikilli gagnrýni.
Björgun hf. dælir um 1,5 milljón-
um tonna af möl og sandi upp af
sjávarbotni á meðalári. Fyrirtækið
hefur tekið efni i Kollafirði, Hval-
firði og Faxaflóa en efnistaka þess
hefur sætt mikilli gagnrýni, einkum
í Kollafirði þar sem hún er talin
eyðileggja fjörur á stóru svæði. Um-
hverfis- og heilbrigðisnefnd Reykja-
víkur hefur beint þeim tilmælum til
iðnaðarráðherra að ítarleg rannsókn
fari fram á efnistöku úr Faxaflóa.
Árið 1991 veitti iðnaðarráðherra fyr-
irtækinu leyfi til að dæla möl og
sandi upp af sjávarbotni.
„Hér var sandur í öllum fjörum
fyrir innan Tíðaskarð. Hann er allur
horfinn vegna þessarar efnistöku
fyrir löngu,“ sagði Sigurbjörn Hjalta-
son, sem býr á Kiðafelli i Kjós. „Sjór-
inn hefur haft miklu greiðari aðgang
til að berja á landinu og það hefur
valdið miklu landbroti. Þeir hafa far-
ið hér inn eftir öllu og nánast farið
inn á svæði sem eru á náttúruminja-
skrá.“
Hreppsnefnd Kjósarhrepps hefur
barist mjög fyrir því að fullnægjandi
rannsóknir færu fram áður en svo
miklu efni yrði dælt af sjávarbotni
eins og raunin hefur orðið. Þá hefur
hreppsnefndin barist gegn því að
efnaistaka færi fram svo nærri landi
að það stórspillti ijörunni.
Sigurður R. Helgason hjá Björgun
sagði engan fót fyrir því að efn-
istaka gæti eyðilagt lífríki sjávar-
botnsins né ylli landbroti. Hann
kvaðst ekki geta látið blaðinu í té
tölur um hve miklu efni hefði verið
dælt af sjávarbotni árlega frá 1991,
þar sem þær væru ekki handbærar.
„Þegar mikið er byggt og fram-
kvæmt er meiri eftirspurn eftir
efni,“ sagði hann og bætti viö að
árið í fyrra hefði verið „með bestu
árum“.
Fyrirtækið er nú með upplýsinga-
skyldu til iðnaðarráðuneytisins um
magn efnistöku. Sú skylda komst á
við breytingar á lögum um eignar-
rétt ríkisins á auðlindum á hafs-
botni fyrr á árinu. Tölur um magn
verða í fyrsta skipti gefnar upp fyr-
ir árið 2000.
Stærsta verkefni Björgunar nú er
endurnýjun Reykjavíkurflugvallar.
Þriðjungi þess verks er lokið, að
sögn Sigurðar, en áætlað er að um
1,1 milljón tonna fari í völlinn. -JSS
Herjólfsmálið í ríkisstjórn
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra
hefúr mátt sitja und-
ir hörðum ásökunum
samflokksmanna
sinna í Vestmanna-
eyjum vegna þess að
hann fór að lögum í
Herjólfsmálinu.
Lagði hann málið fyrir ríkisstjóm sem
gerði ekki athugasemd við afgreiðslu
hans á því. - Dagur greinb frá.
Trillukarlar á SUS-fundi
„Við hlustuðum
þama á menn. Ég
var hins vegar hjart-
anlega ósammála
mörgu,“ segb Arthur
Bogason, formaður
Landssambands smá-
bátaeigenda, en
biliukarlar gerðu
hlé á aðaifundi sínum tii að sækja frrnd
Sambands ungra sjálfstæðismanna þar
sem rætt var um tillögur auðlinda-
nefndarinnar svokölluðu.
Grund ekki lokað
Fjölmennur fundur heimilisfólks
Elii- og hjúkrunarheimiiisins Grund-
ar, aðstandenda þess og starfsfólks
samþykkti í gær ályktun þar sem skor-
að var á heilbrigðisráðuneytið að faiia
frá málsókn á hendur Grund.
Svefnlaus nótt:
Lá á gluggum
og Ijósmyndaði
Áhugaljósmyndari gerði sér ferð
seint í fyrrakvöld að heimiii Kristínar
Isleifsdóttur, systur Haildórs Heimis
hagfræðinema sem týndist í Texas i tólf
ár, og tók fjölda mynda í gegnum glugga
af heimilisfólki í þann
mund sem það var að
ganga til náða. Eftir
að hafa tekið mynd-
imar hringdi ljós-
myndarinn í Kristínu,
tiikynnti verknaðinn
og bauð siðan
nokkrum fjölmiðlum
myndimar til kaups
gegn umtalsverðu
gjaldi. Hér er um að ræða þekktan ein-
stakling úr undirheimum Reykjavíkur
sem hlotið hefur þunga dóma fýrb fikni-
efnamisferli og setið í fangelsum bæði
hér á landi og erlendis.
„Þetta var svefnlaus nótt hjá okkur,
enda ósvífin innrás i einkalíf fjölskyld-
unnar,“ sagði Kristín ísleifsdóttb sem
var brugðið eftb atburðinn og ætlar að
láta málið ganga lengra. „Framferði sem
þetta verður ekki þolað.“
Kristin býr í Ártúnsholtinu í Reykja-
vík og þar hefúr Halldór bróðir hennar
dvalið frá því hann kom óvænt til lands-
ins skömmu fyrb síðustu mánaðamót.
Hinn óboðni kvöldgestur i garði Kristin-
ar tók heila filmu af myndum í gegnum
flesta glugga á húsi fiölskyldunnar án
þess að heimilisfólk yrði hans vart.
-EIR
ísleifsdóttir.
Meistarar hnykla vöðvana
Þær Carmen Lachu frá Rúmeniu, Evrópumeistarinn í Fitness, og Islandsmeistarinn Freyja Sigurðardóttir, sem gáfu sér
tíma í vikunni til að hnykla vöðvana fyrir Ijósmyndara DV, veröa meðal keppenda í alþjóðlegri fitnesskeppni í Laugar-
dalshöllinni á laugardagskvöld.
Gyrðir Elíasson hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness:
Óhugnaður og lágstemmd kímni
Bókmenntaverðlaun Halldórs Lax-
ness voru afhent í fiórða sinn í gær, í
Þjóðmenningarhúsinu við Hverfis-
götu. Gyrðb Elíasson, einn virtasti rit-
höfúndur þjóðarinnar, hlaut verðlaun-
in fyrb smásagnasafn sitt Gula húsið.
Gyrðb hefur sent frá sér skáldsögur,
smásögur og ljóð, auk þýðinga og hlot-
ið margvíslegar viðurkenningar fyrb
verk sín. í umsögn um verðlaunabók-
ina segb m.a.: „Gula húsið er safn fiöl-
breyttra og einkar vel skrifaðra smá-
sagna. í sumum sagnanna renna sam-
an draumur og veruieiki með áhrifa-
miklum hætti þannig að alit vbðist
mögulegt og í öðrum vinnur höfundur
eftirminnilega úr íslenskri þjóðtrú. Á
stundum vekja smásögumar óhugnað
með lesandanum meðan aðrar ein-
kennast af lágstemmdri kúnni. Allar
bera sögurnar vott um mikla stfigáfú
höfundarins og mynda magnaða og
Verðlaunahöfundurinn Gyröir
Gyrðir Elíasson rithöfundur tók við verðlaununum úr hendi
Ólafs Ragnarssonar, formanns stjórnar Eddu, sameinaðs
forlags Vöku-Helgafells og Máls og menningar.
töfrum slungna
heild."
Valið var úr hópi
tæplega þrjátíu hand-
rita sem merkt voru
dulnefni en rétt nafh
höfundar látið fylgja
með í lokuðu umslagi
og valdi sérstök dóm-
nefnd verðlaunahand-
ritið. Formaður dóm-
nefndar var Pétur
Már Ólafsson, bók-
menntafræðingur og
útgáfustjóri Vöku-
Helgafells, en með
honum í nefndinni
voru Ármann Jakobs-
son íslenskufræðingur
og Kolbrún Bergþórs-
dóttb bókmennta-
gagnrýnandi.
Skúli Bjöm Gunnarsson hlaut fyrst-
ur Bókmenntaverðlaun Halldórs Lax-
ness árið 1996 fyrb smásagnasafiiið
Lífsklukkan tifar, 1997 komu þau í hlut
Eyvindar P. Ebíkssonar fyrb skáld-
söguna Landið handan fiarskans, sem
einnig var tilnefnd til íslensku bók-
menntaverðlaunanna, og 1998 féllu þau
Srndra Freyssyni í skaut fyrb skáld-
söguna Augun í bænum. í fyrra þótti
ekkert handrit uppfylla kröfumar sem
til verðlaunahandrits em gerðar.
Það er bókaforlagið Vaka-Helgafell
sem stendur að verðlaununum í sam-
ráði við fiölskyldu skáldsins. Verðlauna-
féð nemur 500.000 krónum. Megintil-
gangur Bókmenntaverðlauna Halldórs
Laxness er að efla íslenskan sagnaskáld-
skap og stuðla þannig að endumýjun ís-
lenskrar frásagnarlistar. Viðtal við
verðlaunahöfundinn Gyrði Eliasson
mun birtast í mánudagsblaði DV. -þhs
Elding í Flugleiöavél
Eldingu laust niður í Flugleiðavél
þegar hún var að koma inn til lending-
ar á flugvellinum í Minneapolis í
Bandarikjunum í fyrradag. Þá átti hún
eftb um 20 mínútna flug, eða 50-60 míl-
ur. Þegar vélin varð fyrir eldmgunni
kom högg, hvellur og glampi sem far-
þegar urðu varb við.
Falla frá forkaupsrétti
Á fundi borgar-
stjómar Reykjavíkur
var i gær frestað um-
ræðu um tiilögu sjálf-
stæðismanna, að
borgin falli frá for-
kaupsrétti að öllum
félagslegum eignarí-
búðum í Reykjavík
sem ekki lúta ákvæðum um kaup-
skyldu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttb
borgarstjóri kvaðst efhislega sammála
tillögunni.
Ekki her I Bláfjöll
Bæjarstjóm Seltjamamess sam-
þykkti á síðasta fundi sínum tillögu
um að bæjarstjóm álíti að það sam-
ræmist ekki grundvallarhugmyndum
um notkun Bláfialla sem útivistar-
svæðis fyrb almenning að leyfð séu af-
not svæðisins undb heræfingar.
Óttast um íslenskar kýr
Þeir era margb sem ekki era sáttb
við að Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra skuli hafa leyft innflutning
fósturvísa úr norskum kúm. Stefán
Aðalsteinsson, doktor í búvísindum, er
einn þebra.
„Ég óttast að þetta verði til þess að
íslenska kýrin muni hverfa af yfir-
borði jaröar," segb dr. Stefán Aðal-
steinsson. - Dagur greinir frá.
Átján ára á ofsakeyrslu
Betur fór en á horfðist þegar 18 ára
piltur missti stjóm á bifreið srnni á
Njarðarbraut í Njarðvík í nótt. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu í Kefla-
vík mun pilturinn hafa verið á 100 km
hraða á klst er hann mætti öðrum bíl
á móts við Iðjustíg.
Engin viðbrögð
Unnur Sverrisdóttb, talsmaður
samstarfshóps vegna olíuverðshækk-
ana, sagði í samtali við Visb.is að hóp-
urinn hafði ekki fengið nem viðbrögð
frá olíufélögunum og að því muni hóp-
urinn að öllu óbreyttu taka til aðgerða
eftb miðnætti. -HK/r