Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2000, Blaðsíða 3
g f n i
íhaldssamir framhaldsskólakennarar, sem hvorki hafa laun né vilja til að endurnýja
hljómtæki sín, eru ekki þeir einu sem taka gömlu nálina fram yfir geislann. Því
krónprinsar íslenska plötusnúðabransans munu berjast um kórónuna á Spotlight í
kvöld, þegar Ómar Ágústsson, sem kýs að nefna sig Ómar Ómar, í óþökk Hagstof-
unnar, og TFA-krúið standa fyrir Skífuskanki nr. 2.
TFA-krúið samanstendur af
nokkrum félögum sem eiga það sam-
eiginlegt að vera flknir í hip-hop og
rafmagnstónlist og er þetta fjórða
plötusnúðakeppnin sem þeir standa
fyrir. „Við höfum líka reynt að fá
DMC-heimsmeistarakeppnina til ís-
lands en það hefur strandað á því að
flytja inn dómarana. Hún var að vísu
haldin hérna áttatíu og eitthvað og þá
vann Þórhallur Skúlason," segir
Ómar Ómar.
Einvígi með piötum
Fyrirkomulag Skífuskanksins er
þannig að allir 10-12 keppendurnir
setja saman þriggja mínútna syrpu.
Svo eru fjórir valdir í undanúrslit og
á endanum heyja hinir tveir bestu ein-
vígi með plötimum. Að sögn Ómars
Ómars gengur keppnin aðallega út á
skífuskank og plötuflækjur
(skratchin’ and jugglin’). Keppendur
mega blanda saman takta og tóna að
eigin vali, sem þeir teygja og toga á
alla mögulega og ómögulega vegu, og
skjóta inn setningum úr lögum til að
niða andstæðinginn. Stundum gera
þeir ýmsar kúnstir í leiðinni eða not-
ast við furðuleg hjálpartæki, upplýsir
Ómar Ómar. Hinn danski plötusnúður
Shlne ætlar að gera sér ferð til íslands
og dæma keppnina. Hann er marg-
verðlaunaður fyrir leikni við spilar-
ana og tilheyrir sömu klíku og hinir
nafntoguðu Statik og Noize. Honum
til aðstoðar við krýningu kóngsins
verða íslensku jaxlarnir Charlie D og
Mad Erb. Að keppninni lokinni verð-
ur haldin sérstök „scratch-keppni"
þar sem allir þurfa að nota sama takt
og sama hljóð. Sú keppni verður þó
einungis áhorfendum til skemmtunar
og áður en úrslit eru tilkynnt ætlar
Shine, hinn danski, að láta ljós sitt
skína í sama tilgangi.
Of „underground“
Hip-hopmenningin virðist hafa
gufað upp af yflrborði klakans eftir að
vel hafði viðrað á hana í nokkur ár.
En Ómar Ómar fullyrðir að hip-hop
lifi enn góðu lífi í Reykjavík. „Senan
er bara svo „underground“,“ segir
hann. „Eiginlega of „underground".
Það vantar miðil fyrir hip-hop en það
er fullt af fólki i þessu,“ bætir hann
við. Rígurinn er aldrei langt undan í
rappi og plötusnúðun og í Bandaríkj-
unum hafa menn verið skotnir til
dauða, fyrir minna en að bera ósvíf-
inn texta í míkrafón. Ómar Ómar tal-
ar um að mönnum sé líka heitt í
hamsi á íslandi. „Það eru til þvílíkir
„disstextar" á milli mismunandi rapp-
hljómsveita og plötusnúðarnir kepp-
ast um að búa tO sem flest „mixtape“,“
segir hann og býst við fostum skotum
á milli keppenda í Skífuskankinu.
Miðaverð á keppnina er 500 kall. Hún
hefst stundvíslega 19.30 og stendur til
klukkan 23.
I
Þeir Jón Atli Jón-
asson og Jón Mýr-
dal eru mörgum
aö góðu kunnir
eftir áralanga veru
í skemmtana-
bransanum. í
kvöld lítur enn
eitt uppátækiö
dagsins Ijós þegar
skemmtisketsarnir
þeirra, Margt
smart, hefja
göngu sína á
ÞoppTíví.
„Okkur er alveg sama þannig séð
hvort PoppTíví er málið, við höldum
að það sé fólk að horfa á þetta og þeir
á stöðinni voru í raun nógu móttæki-
legir fyrir þessu. Þeir voru nógu
djarfir til að þora,“ segja piltarnir
spurðir um vettvang grínsins f þetta
skiptið. Margt smart eru einnar mín-
útu langir skemmtisketsar sem sýnd-
ir verða á milli tónlistarmyndbanda á
stöðinni og er aðalsöguhetjan Hálf-
dán Hannesson.
Beint frá Borgarnesi
„Við tveir vinnum í raun og veru
við að búa til sjónvarpsþáttinn með
Hálfdáni. Hálfdán bað okkur bara aö
gera þáttinn og við höfum verið að
gera það, klippum hann sjálfir og tök-
um hann sjálfir og það kannski sést,“
segja þeir um framleiðsluna.
En hver er Hálfdán?
„Hann er úr Borgarnesi og áður en
hann fór í sjónvarpið var hann beitn-
ingamaður. Svo var hann að vinna í
ÚSVB, sem er Útvarp- og sjónyarsfé-
lag Borgarness, í kringum ‘80. Ástæð-
an fyrir því að hann fór í sjónvarpið
er sú að hann sá að í dag fær hver
sem er að vera með sjónvarpsþátt og
af hverju ekki hann? Við erum að
mynda svona persónuleg samskipti
hans við annað fólk og það sem hann
hefur áhuga á, hans skoðanir á hlut-
unum. Hann hefur mjög beittar skoð-
anir á ýmsu í þjóðfélaginu.“
Er þetta á jákvœóum eóa neikvœó-
um nótum?
„Þetta er mjög jákvætt. Hann er
líka mikið í því að hjálpa fólki."
Top Shop prófsteinninn
Þegar eru tilbúnir 20 sketsar sem
fara beint í spilun en þegar fólk er
búið að melta þá segjast Jónarnir
verða tilbúnir með meira. Einhverjir
myndu kannski líta á þetta sem eitt-
hvert uppfyllingarefni fyrst þetta er
bara mínúta að lengd, er það málið?
„Nei, ég held að gæðin tali fyrir
sig. Það er alveg hægt að vera með
snilldarþátt á hverjum degi hvort
sem hann er klukkutími eða ein mín-
úta,“ segir Jón Atli. En kemur fólk til
með að fila þetta?
„PoppTvíví er alltaf í spilun í Top
Shop og þannig búðum og við sjáum
það fyrir okkur sem prófstein á hvort
þetta virkar hvort þeir skipti yfir á
MTV.“
Eruð þiö eitthvað aó veröa mjúkir,
komnir meö þátt á Popptíví eins og
drengirnir af Mono?
„Nei, það er alveg á hreinu. Ég
held að það sé ekki hægt að segja það
þegar þú sérð þetta," segir Jón Mýr-
dal. „Við erum líka mjög undrandi
yfir því að það er engin ritskoðun,
það er mjög gott,“ bætir nafni hans
Atli svo við.
Taktu prófið:
Ertu með
kaupæði?
Stelpurnar í Vox Feminae:
Söngur er list
t Hljómsveitin
Sóldögg:
Ekki neinar
Barbie-
^dúkkur
Valur og íris úr
Buttercup:
Draumainn-
kaupakerran
í Kringlunni
Eiríkur Ein-
arsson:
Fékk póst
frá
McCartney
íslenskir búð-
arstrákar:
Hvað er í
tísku í
vetur?
Bergur Þór Ing-
ólfsson:
Gert grín að
ungskáldun-
um
Fatboy Slim:
Næsta
fönk-
skrefið
Óskar Guðjónsson:
Jón Múli er málið
10 Æ *
1 T 1 0
ÍMW31IM[gJ
Sherman Klump snvr aftur
Næsta mvnd Guv Ritchies
HrvHiriaur hiá Filmundi
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók Hilmar Þór af
Begga í Sóidögg
Fatnaöur: Arma Supra
10. nóvember 2000 f Ókus
I