Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2000, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2000, Blaðsíða 34
* í f ó k u s ú r f ó k u s að koma öðruvísi en fólk á að venjast með tónlist Jóns Múla. Hljómsveitin hélt sína fyrstu tónleika árið 1998 í Iðnó og gengu þeir svo vel að aðrir tónleikar voru haldnir kvöldið eftir sem einnig var uppselt á. Eftir þetta var beðið fram til aprílloka í fyrra þegar haldnir voru tónleikar í Salnum sem voru hljóðritaðir fyrir plötuna. „Eftir það ákvað ég að liggja að- eins á þessu, ég var ekki viss um útgáfumál og það átti eftir að velja úr þessum 14 lögum sem við höfð- um tekið upp. í byrjun þessa árs gróf ég síðan upptökurnar upp og fór að hlusta á þær og vinna al- mennilega í þessu, skoða fjárhags- hliðina og svo framvegis. Þetta endaði svo á þvi að Mál og menn- ing gefur þetta út og platan kemur út um miðjan nóvember og ég er kominn heim til að fylgja þessu eft- ir,“ segir Óskar. Hljómsveitin verður með tónleika til að kynna plötuna klukkan 16 á sunnudaginn í Tjarnarbíói. Gaman að prófa eitthvað nýtt Á plötunni eru sjö lög sem valin voru úr þeim 14 lögum sem spiluð voru á tónleikunum. En hvert verður framhaldið, koma þeir til með að spila eitthvað meira til að fylgja plötunni eftir? „Það verður eiginlega bara að koma í ljós, eins og er höfum við bara planað þessa einu tónleika en það gæti mögulega eitthvað bæst við,“ segir Óskar. Hann segir að gaman sé að takast á við verkefni sem þetta. „Það er bæði gaman að sjá fólk sem þekkir öll þessi lög koma og heyra þau í allt öðrum búningi, en líka fólk sem þekkir þau ekki. Þetta er alls ekki einhver djassveisla, þetta eru frekar bara falleg lög i góðum búningi og ekkert verið að reyna eitthvað voða mikið.“ Óskar hefur búið í London í rúmt ár núna þar sem hann hefur verið að koma sér á framfæri. „Ég er kominn með regiulegt gigg á skemmtistaðnum Home sem er einn af þremur stærstu stöðunum þarna. Síðan hef ég bara verið að hoppa inn hér og þar, ég hef spilað á hinum og þessum pöbbum með ýmsum fónk- hljómsveitum, ég hef verið að spila sessionir inn á einhverjar plötur og svo var ég t.d. að spila með hótelband- inu á The Dorchester Hotel. Ég hef þvi verið í hinu og þessu og hef mik- ið verið bara að kynnast fólki.“ Og gengur þetta? „Það er svona að fara að ganga, þetta hefur gengið ágætlega og það er bara ofsalega gaman að prófa eitthvað nýtt. Það er orðið langt síðan að ég var búinn að prófa að spila með öllum hérna heima en maður fattar það aft- ur á móti þegar maður er kominn út hvað við eigum mikið af góðum mús- íköntum." En er planið að vera þarna til fram- búðar? „Ég ætla að vera eitthvað áfram, alla vega fram á næsta ár og vonandi út næsta ár. Það er bara vonandi að hlutirnir fari að ganga aðeins hraðar en þetta er búið að vera mjög skemmtilegur og lærdómsríkur tími. Það er gaman að prufa eitthvað nýtt og spila annars staðar en svo er líka alltaf svo gaman að koma heim.“ Lítið hefur heyrst til Óskars Guðjónssonar saxófónleikara undanfarið en hann hefur dvalist í London við að koma sér á framfæri. Óskar er nú á landinu í stuttan tíma til að fylgja eftir útgáfu geisladisks með lögum Jóns Múla Árnasonar sem flutt eru í nýjum búningi. Hann var meira en tilleiðanlegur til að spjalla um diskinn, hljómsveitina Delerað og veruna í London. Alltaf m-mm fm vmi ■ Platan heitir Söngdansar Jóns Múla Árnasonar og flytjendur tón- listarinnar heita Óskar Guðjóns- son og Delerað. Auk Óskars eru í hljómsveitinni þeir Matthías M.D, Hemstock og Birgir Baldursson á trommum, Pétur Grétarsson á slagverk, Þórður Högnason á kontrabassa, Eðvarð Lárusson og Hilmar Jensson á gítar. Öðruvísi útgáfur Óskar segir að ástæðan fyrir því að ráðist var í þetta hafi verið að hann vildi finna islenska djassstandarda, sem Banda- rikjamenn eiga t.d. svo mikið af. „Þá byrjaði ég að skoða músíkina og þekkti eitthvað af þessum lög- um, þetta eru auðvitað mjög þekkt lög. Því meira sem ég fór að skoða þetta sá ég hvað væri hægt að gera við það. í stað þess að taka þetta eins og þetta hefur alltaf verið tek- ið, með söngvurum, ákvað ég að taka þetta í aðra átt og setti saman bandið Delerað." Eins og hljóð- færaskipaninni er háttað í Delerað gefur augaleið að útgáfurnar eru Áfengisauglýsingar eru loksins famar að sjást aftur í kvikmyndahús- um og á öðram opinberum stöðum. Það er ánægjulegt að áfengisframleið- endur og innílytjendur skuli tíma að eyða fé sínu og tíma í þessa frelsisbar- áttu. Hversu hlægilegt er það t.d. að Is- lendingar geta ekki nálgast rauðvín og bjór í matsöluversunum? Vissulega geta bæði bjór og rauðvín haft slæm áhrif á fólk, séu þessar veigar misnot- aðar. En sömu sögu má segja um svo margar aðrar vörur, sem allir geta keypt í stórmörkuðum, burtséð frá aldri og gáfnafari. Besta dæmið um þetta eru blessaðir kardimommudrop- amir, sem innihalda rúmlega áfengis- magn eins bjórs og óharðnaðir bama- skólanemendur eiga jafnhægan að- gang að og hlandvotir rónar. Forræð- ishyggjumenn sem vilja byggja hér upp vitringaveldi á sínum forsendum munu þurfa að láta í minni pokann fyrir heilbrigðri skynsemi í þessu sem öðru. GTI-ökumenn eru merkilegur sér- trúarsöfnuður, öllum til trafala í um- ferðinni. Þetta er fólkið sem er með svo beina innspýtingu að það verður að rása á milli akreina tU að keyra ekki aftan á neinn. Fólkið sem notar ekki stefnuljós, en svigar á milii akreina og skýst inn á milli tveggja bíla um leið og biilengdarglufa mynd- ast. Þetta eru hálfvitamir sem horfa á Formúluna og fá sér svo bíltúr til að komast í fílinginn. Háifvitarnir sem flauta á þig og benda á hægri akrein- ina í baksýnisspeglinum þegar þú ert á 100 km hraða á Kópavogsbrautinni. Sömu hálfvitarnir kunna tjónaskýrsl- una utanbókar. Yfirleitt eru þessir ökumenn á litlum GTI-bílum, en á því er allur gangur. Ökukonur eru líka ökumenn og það er merkilegt hversu margir GTI-ökumenn eru kvenkyns. Til hvers að kitla pinnann innanbæjar og græða nokkrar sekúndur til þess að tapa þeim aftur á næstu ljósum? Þetta er sérstaklega undarlegt háttalag í ljósi ailra þeirra banaslysa sem orðið hafa I umferðinni undanfarið. Það kemur nefnilega að því að menn fljúga út af brautinni þegar þeir sviga of hratt eins og fifl, spyijiði bara Kristin Bjömsson. hverjir voru hvar A laugardags- kvöldiö á Vega- mótum voru staddir Helgi og Kristján P a r t y z o ne gaurar. Á Prik- inu sama kvöld mátti sjá mörg af helstu and- litum Skjás 1 eins og Hrönn Sveinsdóttur Árna Þór Vig fússon. Isa. Kristján Ra og Alfred Moore. Herb Legowitz þeytti sklfur í félagi viö hinar jurtirnar. Á Næsta bar á föstudagskvöldinu mátti finna Eggert Þorleifsson, Guömund Inga leikara, Laufeyju Brá, Ingvar Sig, Eddu Arnljótsdóttur, Svein Baldursson, Eddu Björg Eyjólfsdóttur, Stefán Má Gelrfugl og Elmu Lísu. Á Astró um helgina mátti sjá Ragnar Viihjálms IOZ og félaga, Rúnar hjá ÍÚ og Vlggó í Eldhús- inu. Berglind fegurðardrottning mætti meö vin- konum sínum sem hafa tekið þátt I Ungfrú Is- land síöustu ár. Hausverkjar-krúiö var á sínum staö og Jói dansmeistari sat I rólegheitum meö sinni heittelskuöu Theodóru. Pétur Marteinsson var þarna mættur hlutverki leiðsögu- manns norska fót- boltaliðsins Stabæk og skvísurnar Elín FM-model og Kol- brún hjá lcelandic Models voru einnig þarna komnar, glæsilegar og Heimir FH-kappi, Höröur Magnússon og Valtýr Björn létu lika sjá sig. Siggi B. i Heimilistækjum kíkti inn og þar voru lika I Magnús Ver. Ya- ■ smin Olsen, Óli jj Adonis og Sölvi I Fannar ásamt I öllu hinu Fit- I nessliöinu, inn- lendu og útlendu Jl eftir vel hepnaöa 1 keppni í Höllinni. t ........... JH Sigurjón Ijós- I myndari á Fróða. I Sveinn Eyland á I uröur Kári létu L <Sc1*^, sjá sig, sem og H a I I d ó r Backman meö félögum úr Kon- íaksklúbbnum, allir í smóking. Sara, Anna Bent- ína og allar hinar Noi Noi skutlurn- ar áttu dansgólf- iö. Þarna voru líka Samúel Bjarki og FM957- gengið, Sigga Halla meö hana- kamb, Helgi Par- tyzone og Jón Gunnar Geirdal og félagar. Einnig sást til Snæbjörns í Sambióunum, Kalla í Skíf- unni, Arnars Gauta, Eyþórs Paint Ball stjóra, Frank Pitt Jr., Gumma Jóns i Sálinni, Halla og Raoul Rodrigues e i n kaþj álfara , Heiöu og Hard Rock-píanna. Inn stakk nefinu ívar Guömunds Bylgju- maður, Kalli Lú, P h i I i p p e DreamWorld, Rut Róberts og vinkon- ur, Sophus á Kringlukránni, Júlli Jóns fótboltakall, Gotti í X18, Þór- hallur úr Islenska draumnum, Helga Braga, Steini ! Coke og Andri í Heimsferöum, Þarna sást lika til Hlínar „Hawaiían Tropic" og vin- kvenna, Þórs Jós- efs, Villa Vill, Ein- ars og Georgs á Pizza ‘67, Ásdísar Birtu módels og Birtu og Örnu Playboy-módela. Kolli úr Bílum og list var þar líka eins og Siggi John i Prlvat, Nonni Quest, Geirþrúöur, Vilberg og Kristján Ra, Inga Stefáns leikkona og K r i s t J á n Brooks fót- boltastrákur. Tíska* Gæði* Betra verð RCWELLS ! f Ó k U S 10. nóvember 2000 i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.