Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2000, Blaðsíða 24
►
Bergur Þór
Ingólfsson leikur
Hermann í nýju
* leikriti Hallgríms
Helgasonar,
Skáldanótt, sem
frumsýnt verður í
kvöld í Borgar-
leikhúsinu.
Auk þess sér
Bergur Þór um
leikstjórn Móglís
eftir Rudyard
Kipling sem
frumsýnt verður
á annan í jólum.
A
.AUGAVEGI 26
11. NÓVEMBER
2001
um
Eins og til er Menningamótt þá
gerist verkið á svokallaðri Skálda-
nótt þegar allir tala í bundnu máli.
Ungskáldin eltast við þjóðskáldin,
sem lifna við þessa einu nótt á ári,
og reyna að fá viðurkenningu
þeirra. „En við vitum að sannleikur-
inn lúrir í manns eigin hjarta," Seg-
ir Bergur Þór og kímir. Þjóðskáldin
eru hins vegar meira í því að fara á
kvennafar og fillerí.
Grípandi popplag
Við biðjum Berg Þór um að lýsa
Skáldanótt í stuttu máli, „Ég mundi
segja að það væri póst-módemískt
verk, hálfgert festival. í raun eins og
popplag, eins og skemmtilegt gríp-
andi popplag. Meikar kannski ekki
alltof mikið sens en er skemmtilegt
á meðan á því stendur."
Bergur Þór segir verkið ekki vera
mjög alvarlegt, „Það er svolítið grín
gert að ungskáldunum og þjóðskáld-
in tekin af stöllunum. Auk þess er
gert grín að allri samkeppninni sem
er í dag. Það er kannski broddurinn
í sýningunni."
Þú leikur Hermann í verkinu sem
er nœstum því Hallgrímur sjálfur,
ekki satt?
„Þeir sem hafa lesið bók Hall-
gríms, Þetta er allt aö koma, vita
að Hallgrímur er alveg óragur við
að taka fólk sem allir þekkja, breyta
bara á þeim nöfnunum og gera grín
að þeim.“
Hvaó er þaö sem helst einkennir
persónuna Hermann?
„Wannabe," segir Bergur eftir
nokkra umhugsun og hlær. „Mað-
ur, eins og Hallgrímur, sem er í því
að gera grín að samferðafólki sínu
og taka þjóðskáldin af stöllunum,
hefur ekkert efni á því að setja sjálf-
an sig á stall. Hermann veit
kannski ekki alveg hvar verðmætin
liggja, ætlar eina mínútuna að
verða jafnstór og þjóðskáldin, en
svo á þeirri næstu er hann búinn að
gleyma sér í einhverri greddu.
Hann veit ekki alveg hvað hann vill
en vill allt í einu.“
En verður þá eitthvaö úr þessu hjá
honum?
„Ég veit það ekki, endirinn á leik-
ritinu fjallar svolítið um það og
hvort hann fái þann löðrung sem
hann þarf á að halda.“
„Réttu“ nöfnin
Heyrst hefur að í Skáldanótt sé
mjög augljóslega gert grín að
nokkrum ungskáldum samtímans,-
en er það rétt?
„Já, já, það fer ekkert á milli
mála í handritinu. Meira að segja
þegar fyrstu drög að handritinu
kom í okkar hendur þá hafði hann
á sumum stöðum gleymt að taka út
„réttu“ nöfnin. Því var nú breytt.
Annars höfum við ekkert verið að
eltast við að herma eftir hinum
raunverulegu ungskáldum. Þó ekki
fari á milli mála að á sviðið stígur
skáld- og blaðakona frá Séð og
heyrt. En Jónas, Steinn Steinar og
Dóri Lax eru þama í nákvæmri
túlkun frábærra listamanna," segir
Bergur og hlær dátt.
Heldur þú aö verkiö eigi eftir aö
koma illa viö einhvern?
„Alveg örugglega.“
Börnin læra frumskógar-
lögmálið
Eftir helgina munu hefjast æfing-
ar á bamaleikritinu Móglí eftir
Rudyard Kipling. Þar er Bergur
Þór leikstjórinn. Undirbúningur
fyrir sýninguna hefur staðið yfir
síðan í sumar. Bergur segir að
þrátt fyrir að Mógli sé barnaleikrit
sé mikil grimmd í sögunni, „Þama
er það frumskógarlögmálið sem
ræður.“ Hann segir þó verkið vera
mjög skemmtilegt og spennandi.
Bergur er ekki óvanur þvi að
leika fyrir börn sjálfur því hann
hefur leikið i tveimur barnaleikrit-
um í Þjóöleikhúsinu auk þess sem
með honum býr trúðurinn Úlfar,
besti vinur Barböru sem leikur í
Lé konungi um þessar mundir.
Hann segir þau skötuhjúin bæði
hafa skemmt bömum og fullorðn-
um. „Þau eru bæði fyrir börn og
bönnuð börnum.“
Barbara og Úlfar ætla einmitt að
koma gestum Borgarleikhússins í
jólaskapið kvöld eitt í desember.
Þarf ekki viö uppsetningu barna-
leikrita að gera ráö fyrir aö við-
brögö barna sem áhorfenda séu
önnur en fulloröinna?
„Jú, það er heil stúdía, nokkuð
sem þarf að rannsaka.“ Bergur
bætir stríðnislega við: „Kannski
þarf bara að hræða þau nógu mik-
ið til að þau steinþegi,“og hann
hlær dátt. „Ég þekki lítinn strák
sem sá Pétur Pan og þorir ekki f
leikhús aftur eftir það. Það má
ekki einu sinni minnast á Pétur
Pan, þá fær hann hysteríukast.
Þetta er náttúrlega eitthvað sem
maður þarf að pæla í, til dæmis
gengur „black out“ í byrjun ekki
með 3 ára gömul börn í salnum.
Þau verða bara skíthrædd þegar
ljósin slökkna. Þau verða kannski
ekkert hrædd við úlf eða ljón eða
eitthvað slíkt uppi á sviði en þau
eru hins vegar hrædd við myrkrið.
Þetta þarf að taka með í reikning-
inn.“
í sólina um jólin
Aðspurður segir Bergur bama-
sýningar ganga jafnmisjafnlega og
sýningar fyrir fullorðna, „ef bama-
sýning er skemmtileg þá gengur
hún mjög vel en ef ekki þá er það
bara eins og með aðrar sýningar.“
Bergur segist hafa í huga við
uppsetninguna þann lífskraft og
lífsvilja sem býr með öllum böm-
um og miða að því að sýningin
verði eins og sól í svartasta
skammdeginu. „Börnunum býðst
að fara I sólina til Indlands um jól-
in, fara til sólarlanda um jólin,
bara með því að mæta í
Borgarleikhúsið.“
UTSLATTARKEPPNIN
hefst kl. 13:00 á
laugardegintim
ÚRSLITAKEPPNIN verður
á sunnudeginum.
Skráning fer fram i Skífunni
FIFA
á Laugavegi 26, i síma
525 5042 eða skifan.is
GLÆSILEGIR VINNINGAR
skifan.is
- stórverslun á netinu
24
f Ó k U S 10. nóvember 2000