Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2000, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2000, Blaðsíða 20
ZEAL er á neðstu hæð nýju Kringlunnar við hliðina á Nanoq og síminn er 588 7171 Tískuverslun banta og unglinga íslenska Bítlafélagið hefur verið starfandi í tæp fimm ár eða síðan í janúar 1996. í félaginu eru um 400 manns á öllum aldri. Nú stendur yfir svo kölluð Bítlahátíð í borginni á vegum félagsins. Eiríkur Einarsson, formaður félagsins, sagði frá há- tíðinni og draumi félagsmanna um árlega Bítlahátíð á íslandi. Paul í gær komu Bítlavinir saman á Kaffi Reykjavík og skemmtu sér og öörum viö góðar undirtektir. Einnig hefur útvarpsstöðin Gullið verið í samstarfi við félagið um Bítlaviku sem hófst síðastliðinn mánudag. í kvöld mun svo hátíð- inni ljúka með balli á Kaffi Reykja- vík þar sem hljómsveitin Sixties spiiar lög eftir Bítlana og lög frá því Bítlatímabilinu. Auk þess munu stíga á stokk Bítlavinir og aðstoða Sixties við að halda uppi Bítlastemningunni fram eftir nóttu. Þrisvar til Liverpool Eiríkur Einarsson, formaður fé- lagsins, segir að þótt ótrúlegt megi virðast hafi aldrei verið til Bítlafé- lag á íslandi fyrr en núverandi fé- lag var stofnað ‘96. Að sögn Eiriks er ein ástæða hátíðahaldanna nú sú að á vegum Bítlafélagsins og bókaútgáfunnar fðunnar kom ný- lega út þýðing á einni bestu bók sem skrifuð hefur verið um Bitl- ana. Auk þess segir Eiríkur að það sé ósk félagsmanna að halda Bítla- hátíð á hverju ári og þetta hafi ver- ið eins konar prufukeyrsla á slíkri hátíð. í lok ágúst ár hvert er haldin al- þjóðleg Bítlahátíð í fæðingarbæ Bítlanna, Liverpool á Englandi. Þangað hafa meðlimir íslenska Bítlafélagsins farið og hefur til dæmis Eiríkur sjálfur farið þrisvar. Margt er þar um dýrðir, hljómsveitir og tónlistarmenn keppa um hver likist hinum upp- haflegu Bítlum mest, sýndar eru kvikmyndir Bítlanna, fyrirlestrar haldnir og skipulagðar „sight- seeing" ferðir farnar um borgina þar sem saga Bítlanna í Liverpool er rakin, svo að eitthvað sé nefnt. „Emil“ frá Paul En hefur formaðurinn hitt ein- hvern hinna dáðu Bítla? Eiríkur segist hafa verið nærri því í sumar þegar Paul McCartn- ey dvaldi hér á landi. Hann náði meö kænsku að koma pakka með ýmsum gjöfum frá félagsmönnum til Pauls og auk þess netfanginu sínu. Með pakkanum fylgdi einnig bréf þar sem íslenskir Bítlavinir fóru þess á leit við Bítilinn að f Ó k U S 10. nóvember 2000 hann léti sjá sig hér aftur og þá ef til vill á Bítlahátíðinni á næsta ári sem verið er að planleggja. Og viti menn, þremur dögum seinna barst Eiríki netpóstur frá goðinu þar sem það þakkaði kærlega fyrir sig og sagðist vel geta hugsað sér að slá til og koma aftur og heimsækja þetta gullfallega land okkar. Að- spurður segir Eiríkur Bítlana sjálfa vanalega ekki taka þátt í slíkum hátíöum og því sé mikill heiður að Paul sýni því áhuga að koma ef til vill hingað á næsta ári. Hátíðina á næsta ári segir Eiríkur vera hugsaða jafnt fyrir islenska sem erlenda Bítlaáhugamenn. Fé- lagsmenn hugsa hátt og vonast til að hægt verði að halda hér í fram- tíðinni árlega alþjóðlega Bítlahátið sem erlend Bitlafélög og listamenn munu sækja og vonandi Bítlarnir sjáifir. Eiríkur segir Bítlana vera al- þjóðlegt fyrirbæri, „Þegar talað er um Bítlana þá er ekki bara átt við hljómsveitina sem slika heldur allt tímabilið, allt sem gerðist á þess- um tíma. Það er svo margt sem hægt er að tengja við þetta.“ i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.