Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2000, Qupperneq 28
Topp 20
01) Again
Lenny Kravitz
02 On a night like this Kylie Minogue ‘T" 4
03 Sigurjón Digri Land & Synir og Stefán Karl ’t’ 3
(04) Hollar Spice Girls n 4
05 Með þér Skítamórall n s
06 Beautiful Day U2 4» 11|
07 Yellow Coldplay 4> 6
08 Ekki nema von Sálin hans Jóns míns t 7
09 Ég hef ekki augun af þér Sóldögg 4, 9
10) Come on over Christina Aquilera t 3
11 La Fiesta Club Fiesta t 8
12 Give me just one night 98 Degrees t 4
13 Don’t mess with my man Lucy Pearl t 2
j (74) Get along with you Kelis t 3
75 Hvenær Buttercup 5
16 Fiesta (Houseparty) Dj Mendez 4 7
77 Music Madonna 10
i (78) Ekkert mál Á móti sól 4, 6
ig Cruisin’ Gwyneth Palthrow & Huey Lewis X 1
(20) You’re a God Vertical Horizon ■k 5
Sætin 21 til 40
Q topplag vikunnar Let the music play Barry & Funkstar t 4
Lady Modjo 4» 9
/ nastokkvari ff vikunnar Groovejet Spilier 4, 9
Could 1 have this. Houston/lglesias 4-12
nýtt á iistanum Spanish guitar Toni Braxton X 1
stendur 1 stað Lucky Britney Spears Á11
3 jt. hækkarsigfrá Why does my heart... Moby t 2
t siðustu viku Rock Dj Robbie Williams Á14
lækkarsigfrá Body Groove Architecs feat. Nana 4 2
slðustu viku Sky Sonique i’ 6
fallvikunnar Wonderful Everclear i 8
f Let’s get loud Jennifer Lopez 4^12
1 wonder why Tony Touch feat t 2
1 turn to you Melanie C 4-7
Body II Body Samantha Mumba X 11
I Most girls Pink Á12
Wasting Time KidRock 4. 9
1 It’s my life Bon Jovi 410
Porcelain Moby 4 7
Stop messing ar.. Craig David X 1
fókus
íslenski listinn er
samstarfsverkefni DV og
FM 957 og birtist vikulega i
Fókus. Listinn er fluttur á
FM í umsjá Einars Ágústs
Víðissonar.
28
10. nóvember 2000
Hljómsveitin Grandaddy er eitt af nýju nöfnunum í
bransanum. Það hefur jafnt og þétt verið að klífa metorða-
stigana hjá spekúlöntum um veröld víða og nýja platan, The
Sophtware Slump, á ekki hvað minnstan þátt í því. Kristján
Már Ólafsson hreifst af hljómsveitinni en ekki nafninu.
Gamalt
Grandaddy finnst mér eitthvert
sorglegasta nafnið sem er í gangi í
bransanum i dag en það að ekki
skuli dæma bók af kápunni á víst
við í þeirra tilfelli. Bandið er upp-
runnið í Modesto, lítilli skitabúllu
í San Joaquin-dalnum í Kaliforn-
íu. Þeir sem hrifust af leik hljóm-
sveitarinnar The Flaming Lips á
dögunum ættu að glugga á nýju
plötu Grandaddy þar sem þessar
sveitir eru gjarnan paraðar saman
í umræðunni.
Skytturnar þrjár
í upphafi voru það Jason Lytle
söngvari, gitarleikari, borðaleik-
ari, aðallagasmiður, upptökustjóri
og örugglega eitthvað fleira,
Kevin Garcia (veit ekki með
skyldleikann við Jerry) bassaleik-
ari og Aaron Burtch sem lögðu
saman í púkk og uröu afl. Þetta
var 1992 og án þess að þeir hafi
verið vansælir þá þótti þeim mik-
ill akkur í því er gítarleikarinn
Jim Fairchild og hljómborðsleik-
arinn Tim Dryden bættust í hóp-
inn árið 1995. Svo vitnað sé í þá
sjáifa þá gaf það þeim meira „lita-
úrval, betri málningu og stærri
flöt að vinna með“.
Það er bara nýlega að strákarn-
ir hafa verið að brjótast úr viðjum
heimalandsins og hljóta viður-
kenningu á heimsvísu. Það að
þeim er að skola á land hér í Evr-
ópu má þakka V2 útgáfunni, sem
ákvað að taka hina rómuðu Under
the Western Freeway upp á sína
arma 1998, árið eftir að hún kom
út í heimalandinu. í kjölfarið fóru
strákamir að sækja yfir hafið og
hafa verið að spila góð slott á há-
tíðum á borð við Reading og öðr-
um nafntoguðum í Evrópu.
Húmoristar
Á skrifstofum V2 höfðu menn
beðið í ofvæni eftir að fá að heyra
prufur af The Sophtware Slump og
hoppuðu hæð sína þegar kassetta
kom inn um lúguna. Þegar hún fór
að rúlla kárnaði þó gamanið, inni-
haldið reyndist rúmur klukkutími
af upptökum sem hafði verið hafn-
að, soðnar saman í kokkteil sem
skar í eyrun. Þegar farið var að
grennslast um málið reyndist
skopskyn meðlima vera að hlaupa
með þá í gönur og málum snarlega
kippt i liðinn, gimsteinarnir komu
með næstu flugvél. Strákamir sáu
þó mest eftir að hafa ekki verið
búnir að koma fyrir hlerunarbún-
aði á skrifstofum V2 ...
Annars eru þetta ljúflingar sem
bara fóru í tónlist í staðinn fyrir
eitthvað annað, eða allavega að-
alinnspýtingin hann Jason. Hann
segist ómögulega geta útskýrt
hvers vegna, nema jú honum finn-
ist hann vera ein af þessum týpum
sem þurfi aö vera að gera eitthvað
skapandi. Það hefði hins vegar ailt
eins getað leitt hann út í að reisa
hengibrýr eða hnoða dauðum
tækjabúnaði saman i vélmenni.
Náttúran í manninum,
maðurinn í vélinni,
vélin í...
Nafniö á plötunni fór að mynd-
ast í kolli Jason sem hann vafraði
um flóamarkaði og virti fyrir sér
stafla af úreltum tölvum. Honum
er hin hraða þróun og síaukin
hlutdeild alls kyns tækja í daglegu
lífi líka mjög hugleikin, þó hann
sé þess fullviss að maðurinn muni
alltaf stjórna tölvunum, ekki öf-
ugt. Hann er þó tregur til að tjá sig
um hvort yrkisefni plötunnar
heggur í sama knérunn, vill við-
halda því sem hann segir vera
einn skemmtilegasta þáttinn í tón-
list; túlkun einstaklingsins. Þær
hugmyndir sem aðrir gera sér út
frá því að hlusta á hugvekjur lista-
mannsins, þeirri duld á að við-
halda og hver að kryfja eftir
smekk.
Annars viðhalda strákarnir
bara ástar/haturssambandi sínu
við Modesto, þó svo velgengnin sé
að knýja dyra og tækifærin til að
flytja sig um set séu til staðar.
Jason segir að eins og heimurinn
sé að þróast þá skipti það á endan-
um ekki máli hvar þú býrð:
„Fljótlega, þegar Barnes &
Noble, Burger King og Star-
bucks hafa tekið yfir allan heim-
inn þá skiptir staðsetningin engu
máli.“
Þangað til ætlar hann bara að
halda tO í hlöðunni sem hann leig-
ir undir upptökudraslið sitt og
rækta þetta áhugamál sem tekiu-
sifellt meira af tíma hans. Þegar
yfirtakan hefur átt sér stað fer
hann líklega í göngutúr, nær sér í
borgara, kaffi og góða bók og held-
ur síðan bara áfram því sem hon-
um finnst skemmtilegast að gera.